Fréttir - Eyjafréttir - 23.04.1986, Blaðsíða 4
200 ára afmæli
Reykj avíkurborgar
Fyrir nokkru var blaðamönn-
um víösvegar ai'landinu boðiö til
Keykjavíkur á blaöamannafund
af Reykjavíkurborg. Ástæða fyr-
ir þessu boöi var að kynna fyrir
landsbyggöarfólki 200 ára af-
niæli Keykjavíkurborgar.
Á fundinum byrjaði Davíð
Oddsson að afhenda fjórum fyrr-
verandi borgarstjórum, þeim
Agli Skúla Ingibergssyni, Auði
Auöuns, Birgi ísleifi Gunnars-
syni og Geir Hallgrímssyni núm-
eraða mynt, 2-5, sem sérstaklega
var búin til í tilefni afmælisins.
Peningnr. 1 hafði forseti íslands,
frú Vigdís Finnbogadóttir, feng-
ið aflientan. Gripirnir voru síðan
sýndir fréttamönnum.
Meðal rnuna sem til sölu verða
má telja fyrrnefnda minningar-
Samanburður á fjölda funda í
nefndum á vegum bæjarins
Á vegum bæjarins cru hin- ar margvíslegu nefndir, ráð og stjórnir sem hvcr fyrir sig hcfur sínu hlutverki að gegna. Flestar eru þetta fjögurra ára nefndir. og er skipað í þær eftir hverjar bæjarstjórnarkosningar. 1981 1982 1983 1984 Hér á eftir fer samanburð- ur á fjölda funda. sern nefndir. ráð og stjórnir bæjar- ins hafa haldið árin 1981- 1985. 1985
Almannavarnanefnd 1 0 4 1 1
Áfengisvarnanefnd 9 9 7 2 4
Atvinnumálanefnd 1 4 5 10 5
Barnaverndarnefnd 11 5 13 9 15
Brunamálanefnd 2 5 10 7 6
Bygginganefnd 22 25 22 22 30
Byggingastjórn íb. aldraðra 0 0 0 17 23
Byggingastjórn hamarsskóla 0 0 0 9 2
Bæjarráð 53 55 81 73 78
Félagsmálaráð 36 37 37 40 40
Ferðamálanefnd 1 1 2 2 1
Hafnarstjórn 20 14 13 16 16
Heilbrigðisnefnd 9 7 14 8 9
Landnytjanefnd 5 4 3 0 2
Safnanefnd 3 7 9 6 9
Samninganefnd 12 23 8 42 15
Skólanefnd grunnskóla 9 21 17 11 12
Skólanefnd frmahaldsskóla 11 18 9 10 10
skólanefnd stýrimannaskóla 5 5 8 2 6
Stjórn veitustofnana 18 15 12 21 18
Stjórn verkamannabústaða 7 8 5 8 9
Stjórn íþróttamiðstöðvar 8 10 8 8 11
Stjórn lífeyrissjóðs 3 2 5 5 5
Tómstundaráð 14 12 19 13 24
Umferðarnefnd 1 1 2 4 4
Útgáfustjórn 2 3 1 1 1
Útsvarsnefnd i 1 2 3 3
Bæjarstjórn 16 19 18 21 17
peninga sem eru fáanlegir bæði
úr silfri og eir. Peningurinn sem
hannaður er af Tryggva Tryggva-
syni. er framleiddur í 3000 núm-
eruðum eintökum og er til sölu í
öllum bönkum og sparisjóðum
Reykjavíkur.
Einnig voru kynntir postulíns-
vcggdiskar, hannaðui af
Tryggva og framleiddur af Bing
og Gröndal Kaupmannahöfn, og
handunnar bréfapressur úr silfri.
Tilefni afmælisins
Aö lokinni afhendingu pen-
inganna skýröi Davíö Oddsson
borgarstjóri frá tilefni afmælis-
ins. Hann bauð sérstaklcga vel-
komið fólk utan af landi. Hann
fór einnig nokkrum orðum um
togstreituna milli borgarinnar og
landsbyggðarinnar og sagði þá
togstreitu ástæðulausa þar
sem Reykjavík væri höfuöborg
landsins og því sameiginleg eign
allra landsmanna. Pví væri 200
ára afmælið í raun afmæli allra
240 þúsund íbúa Reykjavíkur.
Davíð lagði á það ríka áherslu
að með borgarkynningunni væri
ekki, eins og margir hefðu vilja
halda, verið að auglýsa borgina
sem betri en landsbyggðina.
Markmiðið væri aðeins að sína
fram á hlutdeild borgar í lífi
landsmanna.
Dagskráin
Að loknu ávarpi Davíðs var
blaðamönnum kynnt það helsta
sem yrði á dagskránni á afmæl-
isárinu. Má þar helst nefna List-
ahátið, 31. maí, 17 júní sem
verður með veglegra sniði en
nokkru sinni fyrr. Tæknisýning
Reykjavíkurboregar, 17. ágúst-
18. sept., en þar verður kynnt öll
starfsemi borgarinnar með lík-
önum, ljósmvndum og kvik-
myndum. Sem dæmi má nefna
að þar verður m.a. líkan af öllu
íslandi þar sem hægt verður að
sjá alla dýpstu dali og hæðir
landsins ásamt líkani af Sund-
ahöfn þar sem fólki gefst kostur
aá ð stýra fjarstýrðum skipum til
ogfrá bryggju.
Hápunkturinn verður þó á
afmælisdaginn, þann 18. ágúst.
Pann dag verður fjölbreytt
dagskrá sem höfðar bæði til
barna og fullorðinna. Boðið
verður m.a. upp á veitingar og
stærstu köku sem mun hafa verið
bökuö hér á landi^
Ýmsar sýningar verða og ber
þar helst að nefna sýninguna:
Reykjavík 200 ára, Kjarvals-
stöðum 16.ágúst-28. september.
Pað væri endalaust hægt að
halda áfram að telja upp atburði
sem verða til að minnast afmælis-
ins en það væri of langt mál.
Hinsvegar má fullyrða að það er
alveg þess virði að dvelja nokkra
daga sumarsins í sinni eigin höfu-
ðborg og skemmta sér við það
sem verður upp á að bjóða.
Alveg örugglega verður eitthvað
á boðstólunum við allra hæfi.
Gunnar Már Sigurfinnsson
Revkjavík ’86.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
Nýr sölulisti vikulega
Skrifstofa í N estmannaevjum:
Heimacötu 22 cotuhieö.
\'idtáístínai:!.'.3o- |o.m
þriðjudaca-tÖNtudaga SI >4"
Skrifst. i Re\kja\ik: Garðastneti 13
Yiðtalstimi: 15.30- lo.oo
mánudaca. S13045
JÓN HJALTASON, hrl.
Almennur borgarafundur
um málefni fatlaðra
Félagið Proskahjálp í Vest- |
mannaeyjum boðar til almenns
borgarafundar um málefni fatl-
aðra, þriðjudaginn 29. apríl kl.
20.30. Fundurinn verður haldinn
í Alþýðuhúsinu.
Til fundarins verða boðaðir
efstu menn/konur á listum fram-
boðsflokkanna til bæjarstjórnar-
kosninga í vor.
Framsögu flytja:
Eggert Jóhannsson, fram-
kvæmdasijni i Svæðisstjórnar
Suðurlands.
Sævar Guðbergsson, félags-
ráðgjafi Svæðisstjórnar Suður-
lands.
Siguröur Jónsson, starfsmað-
ur félagsmálaráös.
Fuiltrúi foreldra fatlaðra
barna í Vestmannaeyjum.
Fulltrúi starfsfólks sem vinnur
að málefnum fatlaðra í Vest-
mannaeyjum.
Fyrirspurnir og umræður
\ erða að loknum framsöguerind-
um. Kaffi á staðnum.
Bæjarbúar! Núna gefst ykkur
tækifæri á að kynna ykkur fyrir-
komulag á málefnum fatlaðra
hér í bæ og hugmyndum að
nauðsynlegum breytingum sem
tryggja fötluðum búsetu í heima-
byggð sinni. Vestmannaeyjum.
Mætum öll.
Fréttatilkynning frá Þroskahjalp
í Vestmannaeyjum.
SPOEX
SP0EX. samtök psoriasis og exemsjúk-
linga uiru stofnuð 2S. ágúst 1972. Upphafs-
og fyrsti íormaður samtakanna var Hörður
Ásgeirsson. Samtök þessi eru stofnuð til þess
ið sjúklingar geti miðlað öðrum af reynslu
sinm. og fengið upplýsingar og hjálp.
Talið er að ekki færri en 5000 íslendingar
séu með psoriasis. auk allra þeirra sem þjást
af exemi ýmiskonar, þannig að nú liggur fyrir
að gera siórátak í að fjölga félögum og hafa
þvi xcrið stofnaðar að undanförnu deildir
víða um land.
Nú er ætlunin að kynna starfsemina hér í
Eyjum. og verður kynningarfundur haldinn í
Snótarhúsinu að Heiðarvegi 7. laugardaginn
26. apríl n.k. kl. 14.00. klukkan 2 e.h.
Jón Hjaltalín Ölafsson húðsjúkdómalæknir
mun mæta á fundinn og heldur hann erindi
um psoriasis, og annað erindi um exemsjúk-
linga. Auk þessa mun hann svara fyrirspurn-
um og sýna litskyggnur.
Með Jóni í för verða tveir fulltrúar samtak-
anna af Reykjavíkursvæðinu, og munu þau
einnig halda erindi og svara fyrirspumum.
Núverandi formaður samtakanna er Páll
H. Guðmundsson. Áhugafólk og aðrir em
hvattir til að kynna sér málefnið. Állar nánari
upplýsingar veita Þyrí E 2460 og Gunnhildur
S 2572.
Fréttatilkynning