Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.1988, Blaðsíða 5

Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.1988, Blaðsíða 5
FRÉTTIR - Fimmtudaginn 26. maí 1988 RUSLIÐ BURT: Hreinsunarvika 30. maí - 4. júní Ruslið burt! FRÉTTIR og heilbrígðisnefnd bæjarins hafa sem kunnugt er blásið í her- lúðra og hafa hrundið af stað fegrunar- og hreinsunarherferð á eyjunni. í beinu framhaldi af þessu átaki, verður árleg hreinsunar- vika á vegum Vestman.'iaeyja- bæjar í næstu viku, eða dagana 30. maí til 4. júní. Hingað til hefur hreinsunarvikan verið í fjóra daga, en verður núna lengd í fimm, og ekki vanþörf á. Fyrirkomulag hreinsunarvik- unnar verður að þessi sinni svona: Mánudaginn 30. maí: Svæðið frá hraunjaðri til og með Skóla- vegar neðan Kirkjuvegar. Þriðjudaginn 31. maí: Svæðið frá Skólavegi til og með Illuga- götu. Miðvikudaginn 1. júní: Svæðið ofan Kirkjuvegar. Fimmtudagur 2. júní og föstu- dagur3. júní: Vesturbærinn. Því fólki sem vill losna við drasl á einfaldan og þægilegan hátt, er vinsamlegast bent á að hafa samband við Áhaldahúsið í símum 1093 eða 1533 til að láta vita af ruslahrúgunum. Bæjarbúar eru hvattir til að notfæra sér ókeypis þjónustu, og leggja sig í framakróka að gera eyjuna okkar sem hrein- legasta. Tökum höndum saman í sameiginlegu Grettistaki í umhverfismálum eyjunnar. Sameinumst nú: Ruslið burt! # Þessi mynd er tekin í Norðursundi, og þar þarf ekki mikið að gera til að hreinsa götuna. Aðeins að hirða eða henda þessu netadrasli. 0 Þetta útsýni blasir við þeim fjölmörgu ferðamönnum sem leggja leið sína í sprönguna. Þama þarf ekki mikið til að gera umhverfið snyrtilegt. Hávarður B. Sigurðsson, yfirverkstjóri Áhaldahússins Má alltaf gera betur „Við verðum með bfl á fart- inni í hreinsunarvikunni eins og undanfarin ár. Almenningur þarf að hafa samband við okkur í Áhaldahúsinu I sima 1093 eða 1533 til að láta vita af ruslahrúg- um. Ég vil benda fólki á að koma ruslahrúgunum þannig út fyrír lóðina að hægt sé að kom- ast að þeim á kranabfl. Einnig að ganga þannig frá þeim að ef það er eitthvað drasl sem getur fokið, að binda það niður,“ sagði Hávarður B. Sigurðsson yfirverkstjóri í Áhaldahúsinu i samtali við FRÉTTIR. Hávarður hefur yfirumsjón með árlegri hreinsunarviku bæjarins sem verður í næstu viku, en þar gefst almenningi kostur á að losna við drasl á þægilegan hátt. „Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn að minnast á það við fólk sem vill losna sjálft við drasl, að allt brennan- Tómstundahús Strandvegi 63-65 © 2953 Opnað alla daga kl. 14 Laugardagskvöld kl. 23:00 Dansleikur. Tískusýningarhópur OZ meö sýningu frá Tipp Topp. ATH! Aldurstakmark 16 ára. # Hávarður B. Sigurðsson, yfirverkstjóri. legt sorp ber að losa í sorp- brennslunna austur í nýja- hrauni, en óbrennanlegt sorp s.s. bílhræ og járnadrasl, í Helgafellsgryfju. Það eru nokkur brögð að því að fólk leggi það ekki á sig að aka alla leið austur í sorpbrennslu og hendi í staðinn, brennanlegu sorpi í Helgafelisgryfju, sem leiðir af sér mikinn sóðaskap sem ella væri hægt að koma í veg fyrir,“ sagði Hávarður. Hann vildi að lokum hvetja bæjarbúa til að nota tækifærið í hreinsunarvikunni til að gera gangskör í því að hreinsa til í garðinum hjá sér og í nánasta umhverfi. Það mætti alltaf gera betur. Fasteignaviðskipti Til sölu m.a. þessar eignir: Fjólugata 11: Brekastígur 32. Vandað einbýlishús í mjög Einbýlihús á góðum stað. góðu standi. Fallegur garður. Ennfremur 2ja herbergja íbúð við Áshamar og falleg 3ja herbergja íbúð við Foldahraun. JÓNHAUKSSON Kirkjuvegi 23, III. hæð Sími 2000 ■ . , II íbúð til sölu í þessari blokk við Áshamar er til sölu 3ja herbergja íbúð í góðu ásigkomulagi. Ný- standsettur stigagangur og sameign. Bíl- skúr fylgir. Upplýsingar © 2014 og 2715. TIL SOLU Einarshöfn, Kirkjuvegur 15 er til sölu, ef viðunandi tilboð berst. Um er að ræða hæð, ris og útihús. íbúðin telst 5 herbergi, eldhús og bað. Upplýsingar gefa Jón Hjaltason hrl. sími 1847 og Kolbeinn Ólafsson, heimasími 1622 og vinnusími 1820. FÉLAG KAUPSÝSLUMANNA VESTMANNAEYJUM ATVINNA Óska eftir að ráða konu til afgreiðslu- starfa hálfan daginn. Upplýsingar © 1964. MAGNÚSARBAKARÍ

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.