Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.1988, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.1988, Blaðsíða 6
FRÉTTIR - Fimmtudaginn 26. maí 1988 Stýrimannaskólanum slitið: 10 skipstj óraefni útskrifast — 41 nemandi við skólann í vetur. Fjölmenni var viö skólaslit Stýrimannaskólans í Vest- mannaeyjum á laugardaginn. Auk nemenda og aöstandenda þeirra voru margir gamlir nem- endur og velunnarar skólans mættir. Friðrik Asmundsson skóla- stjóri sagði í skólaslitaræðu sinni að alls hefðu 41 nemandi stundað nám við skólann í vetur. 16 voru í fyrsta stigi og 10 í öðru stigi. Þess utan luku 5 nemendur síðari hluta undan- þágudeildar með 200 rúmlesta réttindum og 10 luku prófi með 30 rúmlesta réttindi. Óli H. Gestsson frá Nes- kaupsstað náði bestum árangri nemenda í 1. stigi með ágætis einkunina 9,7. Annar varð Sig- urður I. Ólafsson með 9 í einkunn og Gunnar Þ. Friðriks- son Keflavík varð 3. með 8,9 í einkunn.. í öðru stigi dúxaði Húsvík- ingurinn Stefán Guðmundsson með ágætiseinkunina 9,2. Næstir og jafnir voru Gylfi Sig- urjónsson Vestmannaeyjum og Sigurður R. Kristinsson Þórs- höfn með einkunina 9,0. Að vanda fengu nemendur verðlaun fyrir góðan náms- árangur. Stefán Guðmundsson fékk Verðandaúrið og barómet frá Sigurði Einarssyni útgerðar- manni, fyrir hæstu meðaleink- unn í 2. stigi. Haraldur Sverris- son Vestmannaeyjum fékk sjónauka frá Útvegsbændafé- lagi Vm. fyrir hæstu einkunn í siglingafræði. Einnig fékk Har- aidur bokavcðlaun frá Rótary- klúbbi Vesimannaeyja fyrir hæstu einkunn í íslensku. Óðinn Þór Hallgrímsson fékk bókaverðlaun úr sjóði hjónanna Ástu og Friðfinns á Oddgeirshólum fyrir bestu ástundun. Sigurgeir Jónsson kennari við skólann hefurtekið upp þann sið að veita bóka- verðlaun fyrir bestu lokarit- gerðina, í ár hlaut þau Gylfi Sigurjónsson Vm. Sigurður Ingi Ólafsson fékk bókaverðlaun frá sendiráði Dana, fyrir bestan árangur í dönsku. Steingrímssjóðnum, sem stofnaður var til minningar um Steingrím Arnar fyrrverandi kennara við skólann, bárust 35.000 kr. frá 20 ára nemend- um. 15 ára nemendur gáfu skólanum málverk Gylfa Ægis- sonar af Breiðabliki, þar sem skólinn var áður til húsa. Magnús Guðmundsson tal- aði fyrir hönd nemenda, þakk- aði ánægjulegt samstarf nem- enda við kennara og aðra að- standendur skólans. Að lokum var boðið upp á veitingar sem Eykyndilskonur reiddu fram af miklum myndarskap. 9 15 ára nemendur gáfu skólanum málverk Gylfa Ægis- sonar af Breiðabliki. 9 16 luku prófi frá Stýrimannaskólanum á I. stigi. 9 10 luku prófi frá Stýrimannaskólanum á II. stigi. Knattspyrnu- skóli Þórs sumarið 1988 íþróttafélagið Þór mun standa fyrir knatt- spyrnuskóla fyrir stráka og stelpur 10 ára og yngri, í júní og ágúst. Fyrra námskeiðið hefst 20. júní n.k. og mun standa til 1. júlí. Kennt verður alla virka daga frá kl. 9:30-12:30 á hinum nýja grasvelli félagsins við Hamarsveg. Tímasetningin verður þessi: Kl. 09:30-10:30 Strákar 6-8 ára. Kl. 10:30-11:30 Strákar 9-10 ára. Kl. 11:30-12:30 Stelpur 8-10 ára. í lok námskeiðsins verða veitt verðlaun. Þátttökugjald á einstakling er kr. 1.000. Kennari verður Hörzt Lutz. Innritun fer fram í Þórsheimilinu í síma 2060. ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ ÞÓR Bílstjóri Vantar meiraprófsbílstjóra til afleysinga í sumar. Upplýsingar gefur Atli í Steypustöðinni. ú T S A L A ÚTSALAN í vefnaðarvöru- deildinni STENDUR ENN Allt á að seljast upp! Ótrúlegur afsláttur! kaupfélag VESTMANNAEYJA

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.