Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.1988, Síða 10
TL O
FRÉTTIR - Fimmtudaginn 26. maí 1988
Eyjakaup byggir nýtt
verslunarhúsnæði
— „Alfariö okkar framtak/4 segir Helgi
Hj á 1 marsson annar eigenda Eyjakaups.
• Eyjakaup hefur hafíð byggingaframkvæmdir á nýju versiunarhúsnæði við Faxastíg.
Verslunin Eyjakaup er að
færa út kvíarnar og hefur nú
hafíð framkvæmdir á byggingu
nýs verslunarhúsnæðis að
Faxastíg 34. Um er að ræða
byggingaframkvæmdir á 340
fermetrum af 650 fermetra
verslunarhúsnæði sem búið er
að teikna á umrædda lóð. Eig-
endur Eyjakaups eru Helgi
Hjálmarsson og Björn Ás-
björnsson.
Helgi sagði í samtali við
FRÉTTIR að stefnt væri að
því að opna verslunina í nýju
húsnæði á þessu ári. „Við ætl-
um að reyna að klára þennan
áfanga á sem skemmstum tíma,
og opna allavega fyrir næstu
jól. Að því loknu er hægt að
spá í framhaldið, hvort við
vindum okkur strax í seinni
áfangann á næsta ári. Það verð-
ur bara að koma í ljós.“
Eyjakaup hefur sem kunnugt
er hingað til aðeins verslað
með fatnað frá Hagkaupum í
Reykjavík, og sagði Helgi það
alveg óráðið hvort þeir færu út
í að selja einnig matvöru. En
líklega myndu þeir bæta henni
í reksturinn þegar allt húsnæðið
væri komið í notkun.
Aðspurður hvort Hagkaup í
Reykjavík stæði á bak við þess-
ar framkvæmdir sagði Helgi að
svo væri ekki. „Þetta er aifarið
okkar framtak og Hagkaup
stendur ekki á nokkurn hátt á
bak við framkvæmdirnar. Hins-
vegar verðum við áfram með
Hagkaupsvörur á boðstólum,
og á sama verði í Reykjavík
eins og ávallt áður. Fólk virðist
eiga mjög bágt með að trúa því
að við bjóðum vörur á sama
verði í Reykjavík þrátt fyrir
fjarlægðina. Én verðið er ná-
kvæmlega það sama, og verður
svoleiðis áfram,“ sagði Helgi
að lokum.
Félagsheimili Þórs auglýsir:
Nú er að hefjast kennsla í veggtennis
og mun hún verða í allt sumar.
Kennt verður þrjá daga í viku sem hér segir:
Mánudagar kl. 13:00-14:30 og 21:30-23:00
Þriðjudagar kl. 13:00-14:30 og 21:30-23:00
Fimmtudagar kl. 13:00-14:30 og 21:30-23:00
Hver tími er 45 mínútur í senn. Kennslugjald er kr. 400
fyrir hvern tíma.
Kennari er Hörst Lutz, en hann er með háskólapróf í
veggtennis frá íþróttaháskólanum í Munchen.
Notið ykkur þetta einstaka tækifæri hjá menntuðum
kennara. Tímapantanir í síma 2060.
FÉLAGSHEIMILI ÞÓRS
PS! Lausir tímar
í sólarlampa
Knattspyrnu-
félagið Týr
auglýsir
Knattspyrnunámskeið fyrir stráka og
stelpur 10 ára og yngri. Um er að ræða
hálfsmánaðarnámskeið í senn, í júní og júlí,
samtals 4 námskeið.
Námskeiðið stendur yfir alla virka daga
frá kl. 13-15. Veitt verða verðlaun í lok hvers
námskeiðs. Námskeiðsgjald er kr. 1750 pr.
einstakling. Fyrsta námskeiðið byrjar
mánudaginn 6. júní.
Námskeiðin fara fram á hinum nýja gras-
velli félagsins við Hástein.
Aðalkennari verður Heimir Hallgrímsson.
Innritun fer fram í Týsheimilinu, sími
2861.
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ TÝR
Aðalfundur
Aðalfundur Kaupfélags Vestmannaeyja
verður haldinn, að Bárustíg 6 (uppi), laug-
ardaginn 28. maí n.k. kl. 15:00.
Dagskrá skv. félagslögum.
STJÓRN KAUPFÉLAGS
VESTMANNAEYJA
Atvinnuhús-
næði til sölu
Húseign okkar að Bárustíg 1 er til sölu.
Hentar vel til hverskonar léttrar atvinnu-
starfssemi s.s. iðnaðar- eða verslunarrekst-
urs.
Laust til afhendingar strax.
Upplýsingar gefur Jón Hjaltason hrl. og
kaupfélagsstjóri.
#kaupfélag
VESTMANNAEYJA
Þórarar!
Tökum fram skóna!
Nú hefur verið ákveðið að hefja æfingar
hjá Þór hjá þeim sem finnast árin vera farin
að segja til sín og öðrum sem vilja vera með.
Æfingar verða á mánudögum og miðviku-
dögum kl. 21:00 á grasvelli félagsins við
Hamarsveg. Menn eru skyldugir til að nota
flatbotna skó á æfingunum og verður æf-
ingagjald 100 kr. fyrir hverja æfingu á
mann.
Þórarar! Tökum nú fram skóna og fjöl-
mennum vel.
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ ÞÓR