Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.1988, Page 11
FRÉTTIR - Fimmtudaginn 26. maí 1988
Lausar stöður
Á bæjarskrifstofunum, Ráðhúsi, eru tvær
stöður lausar til umsóknar:
a) 50% starf í launadeild.
b) 100% starf við afleysingar frá 15. júlí. Gæti
orðið framtíðarstarf.
Umsóknum skal skila fyrir 10. júní 1988.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma
1088.
BÆJARRITARI
Hér með er auglýst laus staða húsvarðar við
Barnaskóla Vestmannaeyja og einnig starf um-
sjónarmanns kaffistofu við sama skóla.
Umsóknarfrestur er til 10. júní 1988.
Nánari upplýsingar um störfin veitir skóla-
stjóri Barnaskólans í símum 1943 og 1898
Dagmæður athugið!
í kvöld kl. 20:30 verður fundur í Ráðhúsinu.
Efni fundarins verður: Starfsreglur, gjaldskrá
o.fl. Kaffiveitingar.
Félagsmálastjóri
Kjörskrá
Kjörskrá fyrir Vestmannaeyjar vegna kjörs
forseta íslands, sem fram á að fara 25. júní 1988
liggur frammi til sýnis á bæjarskrifstofu Vest-
mannaeyjabæjar, Ráðhúsinu á opnunartíma
skrifstofunnar sem er kl. 09:30-12:00 og 12:30-
15:00 alla virka daga.
Kjörskráin liggur frammi frá og með 25. maí
til 14. júní 1988. Kærufrestur til sveitarstjórnar
vegna kjörskrár rennur út 10. júní 1988.
Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum
Vinnuskólinn byrjar
1m r r
. jum
Starfsemi Vinnuskólans hefst næstkomandi
miðvikudag kl. 13:00. Þátttakendur mæti við
Barnaskólann en þar verður skráð í hópa.
Vinnan hefst degi síðar, fimmtudag.
Mætið vel og stundvíslega.
Fundur með flokksstjórum Vinnuskóla:
Flokksstjórar Vinnuskólans eru boðaðir til
fundar í Félagsheimilinu n.k. þriðudagkl. 17:00,
3. hæð.
Mæting í skólagarða
1m r r
. juni
Starfssemi skólagarðanna verður framhaldið
n.k. miðvikudag kl. 13:00 á starfssvæði skóla-
garðanna við Dali.
Mætið vel og stundvíslega.
Frá Félagsheimilinu
í júní og júlí verður Félagsheimilið aðeins
opið á kvöldin og verður dagskráin í höndum
unglingaráðs. Sjáumst.
Afmælishappdrætti B j örgunarfélagsins:
Björgunarbátur af þess-
ari stærð nauðsynlegur
• Á myndinni sést samanburður á
núvcrandi bát Björgunarfélagsins,
Farsæi, bát Hjálparsvcitar Skáta
og bátnum sem Björgunarfélagiö
er að kaupa.
Þetta segja þeir Björgun-
arfélagsmenn, sem eru að fara
af stað með happdrætti til
styrktar kaupum á björgunar-
bát, sem þeir áætla að kosti um
8 milljónir og er væntanlegur í
ágúst til september n.k.
„Þetta er góð viðbót við það
sem fyrir er“, sagði Heimir
Sigurbjörnsson formaður
Björgunarfélagsins, þegar
hann var spurður að því hvaða
not væru fyrir bát af þessari
stærð. „Við teljum hann nauð-
synlegan vegna hraðans, en
hann kemst um 30 mílur. Svo
er stórt hús á honum, sem
tekur 8-10 manns og tvennar
sjúkrabörur komast inn í húsið.
Báturinn sem er 9.75 metra
langur er mjög vel búinn
tækjum, með loran, radar, mið-
unarstöð og síðast en ekki síst
tveimur sjálfstæðum vélum,
sem auka mjög öryggið."
Það er í mikið ráðist með
happdrættinu. Vinningurinn er
Toyota Corolla, árgerð 1988, að
verðmæti 549 þús. En þeir setja
markið hátt, eru þegar búnir að
safna 3 milljónum, en mikið
vantar á að dæmið gangi
upp. Þeir telja að með því að
bjóða þennan stórglæsilega
vinning séu þeir að gera það
ennþá eftirsóknarverðara fyrir
bæjarbúa að styrkja félagið
með því að kaupa happdrættis-
miða. Fyrir ári voru þeir með
happdrætti, þá kostaði miðinn
1000 krónur og upplagið var
1500 miðar. Sama verð og upp-
lag verður í ár, það eina sem
hefur hækkað er verð bílsins,
sem enn glæsilegri, en sá sem
þeir buðu í fyrra.
„Svo verður dregið 17. júní
og þá kemur í ljós hver hinn
heppni verður og fær bílinn, en
ég held að með því að kaupa
miða séu Vestmannaeyingar
allir vinningshafar. Er það von
mín að fólk taki okkur vel
þegar við byrjum að selja happ-
drættismiðana og yrði báturinn
góð afmælisgjöf til félagsins,
sem er 75 ára á þessu ári,“ sagði
Heimir að lokum.
REBHJÓLASPREKGJA
Nýkomið
mikið úrval af
nýjum reiðhjólum.
ATH! Eigum
fjallahjól á lager!
Í> ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
i vmnn s 2200
--------
BRIMHÓLABRAUT 1