Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.1988, Blaðsíða 9

Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.1988, Blaðsíða 9
FRÉTTIR - Miðvikudaginn 27. júlí 1988 Framúrakstur bannaður á Dal- vegi austur að Hásteinsvegi - Agnar Angantýsson yfirlögregluþjónn: Af gefnu tilefni. Bílastæði einungis í Torfmýri. Agnar Angantýsson sagði í viðtali virt blaðið, að cins og undanfarin ár yröu geröar ýms- ar breytingar á umferð, vegna Þjóðhátíðar. „Þær helstu eru að nú er framúrakstur bannaður á Dal- vegi austur að Hásteinsvegi, er þetta gert að gefnu tilefni. Þá er vert að benda á að bílastæði eru einungis leyfð inn á Torf- mýri, vestan við Golfvöllinn.“ Þá sagði hann að einstefna yrði í austur á Hásteinsvegi, frá Heiðarvegi að Hlíðarvegi, ein- stefna í austur á Vestmanna- braut frá Heiðarvegi að Skóla- vegi og loks á Faxastíg í vestur, frá Hlíðarvegi að Heiðarvegi. „Að fenginni reynslu má eiga von á miklli urnferð á þessum leiðum og eru það því tilmæli okkar að ökumenn og gangandi taki þessar breytingar til gre- ina, sýni tillitssemi í umferð- inni, sem og annarstaðar, því slysalaus Þjóðhátíð hlýtur að vera takmark okkar allra," sagði hann að endingu. ^ÉSTMÁNNAEYINGAR! ÞJÓÐHÁTÍÐÁPIG6STIR! Við höfum opið alla Þjóðhá- tíðardagana frá kl. 10-23:30 ☆ Heitar og kaldar samlokur. ☆ Langlokur ☆ Pizzur ☆ Hamborgarar ☆ Pylsur ☆ (s, shake ☆ Öl, sælgæti ☆ Tóbak ☆ Nýjung: Diet langlokur. ® 1 L-“::n?mzziz] Gleðilega Þjoðhatið! ,, " “ .“ ” 6 J HASTEINSVEGI43-&11366 Væri ekki rétt að láta fylla gaskútinn tímanlega! ATH! Opið til kl. 19 miðvikudag og fimmtudag. ATH! Gulu kútarnir heita kosan-gaskútar, og eru með smellistút. Þeir fást hjá Skeljungii VIÐ FYLLUM GULA, RAUÐA, GRÆNA OG BLÁA GASKÚT OPIÐ TILKL. 19:00. Shell-þjónusta - Örugg-þjónusta SKELJUNGUR HF. Strandvegi 65 2? 11115 LESENDABRÉF Til umhugsunar Ég ætla nú að byrja á því að biðja ykkur að virða vilj- ann fyrir verkiö, en að skrifa í blöðin er ekki mín sterk- asta hlið held ég. Það sem kom mér til að reka niöur penna er varð- andi hann Óla vin ntinn frá Arnarfelli. Hann Óli fæddist með aðeins eitt nýra sem seinna reyndist vera hálf- gerður gallagripur og er nú búið að afskrifa með öllu. Þá þurfti Óli að leggjast i ferðalög til Reykjavíkur til að komast í gerfinýra. En nú er hann búinn að fá slíkt apparat heim til sín og er víst sá fyrsti hér á landi sem það gerir. Nú vantar bara aura til ;tð borga græjurnar. Þetta kost- ar um 700 þúsund eftir niðurfellingu á tollum. Ekki yröi það nú mikið á mann ef allir legðu í púkkið. Ég veit að margir hafa styrkt þetta þarfa verk rausnarlega. Ég veit líka að margir hafa hugsað sér^að leggja þessu liö, en ein- hvernvegin gleymt því aftur í önnum dagsins. Nú er að koma Þjóðhátíð og rnikið að smiast og allir þurfa i bæinn að versla og útrétta. Hvernig væri nú að koma við í bankanum næst þcgar þú áitt leið hjá og leggja nokkrar kjónur inn á reikning nr. 502355. Sam- staða fólks hér í Eyjurn er með ólíkindum þegar á reynir. Setjum nú hrygg í málið eins og Addi Johnsen segir. 1 þeirri vissu óska ég ykk- ur öllum gleðilegrar Þjóð- hátíöar. Asgeir Þorvaldsson LESENDABRÉF Fyrirmyndar þjón- usta í Tipp Topp Því ntiður er það svo að helst er þess getið í blöðun- um þegar eitthvað fer úr- skeiðis og það þarf að kvarta og kveina. Hinsvegar má ég til með að segja frá mjög góöri þjón- ustu sem ég fékk í verslun- inni Tipp Topp unt daginn, og er vert að geta og segja almenningi frá. Ég fór í Tipp Topp fljót- lega eftir hádegi og ætlaði að kaupa mér gallabuxur. Þær voru hinsvegar ckki til, en afgreiðslustúlkan lofaði að panta þær fyrir mig. Um kvöldmatarleytið er bankað á dyrnar hjá mér og þar er stúlkan mætt með gallabuxurnar. Þetta kalla ég fyrirmynd- arþjónustu og er öðrum til eftirbreytni. Ásta Kristinsdóttir LESENDABRÉF Móðurást • Páll H. Árnason. Páll H. Árnason er kunn- ugt Eyjaskáld og hefur hann verið iðinn við skáldskapinn í gegnuin tíðina, cnda hag- yröingur góður. Þcssar vísur laumaði Páll inn á borð til okkar, og stóðumst við ekki freistr inguna og birtum þær hér. MÓÐURÁST Móöitrást, geislinn á mannlífsins hjarnið lijá manni og dýri sro guðdóms hjört. ,./Etlarðu kona að eiga barnið?" Ósköp erspurningin hryllings svört. Við ágirnumst bara, til umliyggju tregir „Parsem góðir meim fara, jmreru Guðs vegir. “ Með bestu kveðjuni, 26/7 ‘88 P.H. Árnason

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.