Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.1988, Page 11
FRÉTTIR - Miðvikudaginn 27. júlí 1988
Ólafur Jónsson í Hull:
F r éttir frá Hull
Hull 20.07. 1988.
Héðan frá Hull er allt gott að
frétta og frábært verð fyrir góð-
an fisk. Meðalverðið þessa viku
sem er að líða er kr. 98,15, sem
er með því allra besta sem
gerist.
En það eru ýmsar blikur á
lofti í fisksölumálum okkar hér
í Englandi og margt sem bendir
til þess að útflutningskvótar,
þeir sem nýlega hafa verið settir
á heima geti haft slæmar af-
leiðingar fyrir útflutning á
ferskfiski að heiman.
í fyrsta lagi má benda á, að
markaðurinn hérna þarf að fá
ca. 1000 til 1200 tonn frá íslandi
á viku til að geta annað venju-
legri eftirspurn. Afleiðingar
þessa geta hugsanlega orðið,
að aðrar þjóðir komast inn á
markaðinn til að fylla upp það
gat sem óhjákvæmilega hlýtur
að myndast ef þessar skerðing-
ar halda áfram. Annað sem
óhjákvæmilega hlýst af þessu
er það, að fiskneysla dregst
saman bæði vegna skorts á fiski
og ekki síður vegna hins háa
verðs, sem er ofviða kaupgetu
fólks með venjuleg laun hér í
Englandi. Ef þetta fer eftir er
orðinn skaði, sem erfitt verður
að bæta og kemur til með að
kosta íslendinga óhemju fjár-
muni.
í öðru lagi má benda á, að
þegar verðfall hefur orðið
hérna er það vegna of mikils
framboðs, þ.e. framboðið hef-
ur farið yfir 2000 tonn, sem er
allt of mikið sérstaklega vegna
þess að þegar svona toppar
hafa komið er oft um að ræða,
að mokveiði hefur orðið á einni
fisktegund, lang oftast
smáþorski. Hverjir flytja svo
þennan smáþorsk út? Jú, það
eru fyrst og fnemst togarar
frystihúsanna á íslandi. Frysti-
húsamenn á íslandi hafa verið
duglegir að auglýsa vanda sinn
og sinna fyrirtækja það sem af
er þessa árs og notast óspart við
misviturt fjölmiðlafólk, sem
margt hvert virðist ekki hafa
gripsvit á fisk eða fiskvinnslu.
Fjölmiðlafólk er því miður ekki
eitt um fáfræðina hún virðist
hafa heltekið stóran hluta
ráðmanna þjóðarinnar, sem
virðist halda það að peningar
verði til í Reykjavík í skulda-
garði Seðlabankans. Væri nú
ekki eðlilegra fyrir frystihúsa-
menn að líta aðeins í eigin
barm og reyna að hafa hemil á
sínum eigin skipum, sem voru
flest a.m.k. eftir því sem menn
sögðu grátklökkir þegar þau
komu, keypt til að halda uppi
atvinnu í frystihúsunum, sem
þá bjuggu við hráefnisskort.
Ástæðan fyrir hráefnisskorti
frystihúsanna var fyrst og
fremst, að útgerðin var komin
á vonarvöl, vegna langvarandi
skuldasöfnunar sem stafaði af
alltof lágu fiskverði.
Nú er aftur á móti svo komið
að frystihúsin og fiskimjöls-
verksmiðjurnar ráða yfir lang-
stærstum hluta fiskveiðiflotans
og þá um leið yfir útflutningi á
ferskum fiski. Pað skýtur því
skökku við þegar forsvarsmenn
frystihúsanna stíga á stokk og
hrópa „úlfur, úlfur“, og heimta
takmörkun á útflutningi á
ferskum fiski, því sá fiskur sem
helst fer í vinnslu hérna í
Englandi er smáfiskur af togur-
unum. Bátarnir eru yfirleitt
með stærri og ferskari fisk sem
hefur beinst á neytendamarkað
og í flestum tilfellum fyrir betra
verð.
Eins og ég sagði áðan, hafa
verðin á markaðnum verið frá-
bær upp á síðkastið og læt ég
fylgja hérna meðalverð tveggja
vikna hjá Gíslason and Marr
Ltd.
Vikan 11.7. -15.7.
Þorskur..........
Ýsa...............
Ufsi ............
Karfi............
Koli ............
Grálúða..........
kr. 94,94.
kr. 83,34.
kr. 36,14.
kr. 40,18.
kr. 91,56.
kr. 77,75.
Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja 1988
SÖLUBÖRN
ATHUGIÐ!
Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja 1988
kemur út á morgun, fimmtudaginn 28. júlí,
og er stærra og veglegra en nokkru sinni
fyrr.
Sölubörn eru vinsamlegast beðin að
mæta kl. 13:00 í Eyjaprent hf. (FRÉTTIR).
Sölulaun fyrir hvert selt blað er kr. 75.
ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND ÞÓRS
Vikan 18.7. - 22.7.
Þorskur..........
Ýsa..............
Ufsi ............
Karfi............
Karfi............
Koli ............
kr. 97,27.
kr. 96,24.
kr. 50,40.
kr. 50,40.
kr. 69,77.
kr. 105,07.
Eins og þessar tölur bera
með sér eru verðin mjög góð,
ég man reyndar ekki eftir svona
meðalverðum þann tíma sem
ég hef dvalið hérna.
Tíðarfarið hérna hefur verið
svona frekar rysjótt upp á síð-
kastið, en hefur lagast síðustu
dag, allt upp í það að vera
frábært Þjóðhátíðarveður. í
næstu viku eru Katrín VE og
Huginn VE væntanleg hingað
til Hull og í Grimsby verður
Særún ÁR, sem er í eigu Þórðar
rakara og Sævars Sveinssonar(
Svenna Matt). Útlitið fyrir
þessa viku er nokkuð gott, en
líklega lækka verðin eitthvað
frá því sem var í síðustu viku.
Nú þegar líður að Þjóðhátíð er
óhjákvæmilegt annað en að
hugurinn leiti heim, því það er
sama hvað hver segir þá er
Þjóðhátíðin okkar í sérflokki
og hápuntur sumarsins. Ég ætla
því að nota tækifærið um leið
og ég óska öllum gleðilegrar
Þjóðhátíðar að hvetja Eyjabúa
til að fjölmenna í Dalinn og
skemmta sér vel.
Kveðjur frá öllum á Piason
Avenue 17 Hull.
Ólafur Jónsson.
Viðskipta-
vinirathugið!
Hársnyrtistofan
STRÍPAN
verður lokuð dagana
2.-6. ágúst n.k.
Hársnyrtistofan
STRÍPAN S*12888
Barnagæsla á
Þjóðhátíð
Félagsmálaráð vill benda á að sækja þarf
um leyfi til gæslu bama á einkaheimilum
yfir Þjóðhátíð.
Gæslutími er frá kl. 20 að kvöldi til kl. 12 á
hádegi næsta dag. Hámarksgjald er kr.
1.500 á sólarhring.
Hámarksfjöldi barna er 5 á hvern gæslu-
mann.
Sóli
Foreldrar: Leikskólinn Sóli opnar 4. ágúst
kl. 7:30 eftir sumarleyfi. Dagana 2. og 3.
ágúst mun starfsfólk nota til undirbúnings
vetrarstarfinu.
Sjáumst glöð og hress!
Heimilishjálp
Starfskraftur óskast í heimilishjálp. Um
er að ræða 75% starf f.o.m. 15. ágúst.
Umsóknareyðublöð eru í afgreiðslu ráð-
húss og skilist til félagsmálastjóra.
FÉLAGSMÁLARÁÐ
Náttúrugripasafnið
Náttúrugripasafnið verður opið Þjóðhá-
tíðardagana frá kl. 15:00-17:00.
Sundlaug
Sundlaugin verður opin um Þjóðhátíðina
sem hér segir:
Föstudag 29. júlí: Lokað.
Laugardag 30. júlí: 12:00-15:00.
Sunnudag 31. júlí: 12:00i15:00. -
Mánudag 1. ágúst: 10:00-20:00.
Sundlaug, pottar, vaðlaug, 7 sólarlampar,
sauna og fleira.