Fréttir - Eyjafréttir - 13.12.1988, Side 6
FRÉTTIR - Þriðjudaginn 13. desember 1988
SÓL
SUNDLAUG
SÓL
SUndlaugin er opin virka daga fyrir al-
menning.
► Á MORGNANA KL. 07.00-08.00
► ÍHÁDEGIKL. 12.15-13.15
► SÍÐDEGIS KL. 17.00-20.30
► LAUGARDAGA KL. 09.00-15.30
► SUNNUDAGA KL. 09.00-12.00
Vestmannaeyingar og aðrir, notið þessa
frábæru aðstöðu:
► SUNDLAUG
►SAUNA
► LÍKAMSRÆKTARSALUR
► 7 SÓLARLAMPAR (nýjar perur)
► VATNSRENNIBRAUT
► FRÁBÆRIR VATNSNUDDPOTTAR
ATH! Sólarlamparnir og vatnsnuddpott-
arnir eru opnir fyrir almenning allan daginn
frá kl. 07.00-20.30 og þegar jólafrí byrjar hjá
skólum 19. des. n.k. verður sundlaugin og
líkamsræktarsalur opinn alla daga frá
12.00-20.30 og um helgar eins og opnunar-
tími Sundlaugar.
ATH! Vorum að setja nýjar frábærar perur í
sólarlampana. Pantið tíma í lampana með
góðum fyrirvara eins og hentar ykkur best,
á tímabilinu 07.00-20.30 og um helgar.
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐIN
VESTMANNAEYJUM
, [
Unnur Stefánsdóttir skrifar:
Frá fHðkhvupin
íidiijdiMiyggju
I
> Unnur Stefánsdóttir.
f síðasta mánuði komu
nokkur hundruð manns
saman á flokksþingi Fram-
sóknarflokksins og mótuðu
stefnú hans til næstu ára.
Rætt var m.a. um þá
erfiðleika sem efnahagslíf
þjóðarinnar stendur nú
frammi fyrir. í því sambandi
var bent á mikilvæga þætti,
sem óhjákvæmilega verður
að leggja áherslu á næstu
mánuði. Þar má nefna bætta
afkomu atvinnuveganna og
fyrirbyggjandi keðjuverk-
andi samdrátt í hagkerfinu,
auka jafnvægi í þjóðarbú-
skapnum, halda verðbólgu
niðri, endurskipuleggja
bankakerfið og treysta jafn-
vægi í byggð landsins.
Byggðarjafnvægi -
Nýr Herjólfur
Traust staða útflutnings-
atvinnugreinanna er undir-
staða þess að byggðajafn-
vægi ríki hér á landi. Mikil-
vægt er að skipulega verði
unnið að meiri fjölbreytni í
atvinnulífi landsbyggðarinn-
ar s.s. með því að flytja
þjónustustarfsemi út á land
og auka sjálfstæði lands-
hluta.
Byggðastofnun þarf að
efla til þess að hún geti
unnið sem best að þjóðhags-
lega hagkvæmri þróun
byggðar í landinu. Hún
þyrfti að hafa frumkvæði að
gerð landshlutaáætlana sem
nái til opinberra fram-
kvæmda og skipulagningar
opinberra þjónustu.
Bættar samgöngur auð-
velda staðsetningu ýmissa
ríkisfyrirtækja úti á lands-
byggðinni. Því er mjög brýnt
samgöngulega séð að endur-
nýja Herjólf þannig að
öruggari og tíðari samgöng-
ur séu á milli lands og Eyja.
Samgönguráðherra segir
þrjú til fjögur ár þar til nýr
Herjólfur komi, það er of
langur tími að mínu mati og
erfitt að tala um byggðar-
jafnvægi á meðan ástand í
samgöngumálum eyjamanna
er eins og það er nú.
Fullvinnsla
sjávarafurða
Á flokksþinginu var mikið
rætt um þá erfiðu aðstöðu
sem sjávarútvegur okkar
stendur nú í.
Þar sem takmarka verður
nýtingu fiskistofnanna við
ísland þarf að leggja áherslu
á að sækja á ný mið s.s. eldi
vatna- og sjávar-fiska og
hugsanlegar veiðar íslend-
inga í lögsögu annarra ríkja.
Leggja þarf áherslu á full-
vinnslu afla hér heima í
Bættar sam-
göngur auð-
velda staðsetn-
ingu ýmissa
ríkisfy rirtækj a
úti á lands-
byggðinni. Því
er mjög brýnt
samgöngulega
séð að endur-
nýja Herjólf
þannig að ör-
uggari og tíðari
samgöngur séu
á milli lands og
Eyja. Sam-
gönguráðherra
segir þrjú til
fjögur ár þar til
nýr Herjólfur
komi, það er of
langur tími að
mínu mati og
erfítt að tala
um byggðar-
jafnvægi á
meðan ástand í
samgöngumál-
um eyjamanna
er eins og það
er nú.
bestu neytendaumbúðir,
þannig að innlendur virðis-
auki verði sem mestur.
Lögð var rík áhersla á að
útflutningur á ísfiski og
fjölgun frystitogara þyrfti að
skipuleggja með einhverju
móti. Verðjöfnunarsjóð
sjávarútvegsins ætti að efla
og gera hann virkari sem
hagstjórnartæki t.d. með
stofnun sérreiknings hvers
framleiðanda í sjóðnum, þar
sem innistæða viðkomandi
verði vistuð.
Námsbrautir í
ferðaþjónustu
Staða ferðamála í landinu
var rædd á 20. flokksþingi
framsóknarmanna á dögun-
um.
Þar þótti brýnast að auka
ferðalög íslendinga innan-
lands, bjóða upp á náms-
brautir í ferðaþjónustu á
framhaldsskólastigi og að
stutt verði við ferðamála-
samtök landshlutanna til
þess að þau geti gengt hlut-
verki sínu.
Hægt gengur að móta op-
inbera ferðamálstefnp hér á
landi. Við mótun hennar er
brýnt að gætt sé ítrustu var-
kárni í umgengni allri við
landið og e.t.v. þarf að tak-
marka komu ferðamanna á
viðkvæm landssvæði.
Einnig þarf að lengja
ferðamannatímann til þess
að nýta betur þá aðstöðu til
ferðamannamóttöku sem
búið er að koma upp á
einstökum stöðum s.s. hér í
Eyjum. Hin einstæða og
fjölbreytta náttúrufegurð
sem hér er, á að gefa góða
möguleika til þess.
Vonandi er að nýskipaður
samgönguráðherra taki
þessi mál föstum tökum og
að opinber ferðamálastefna
líti dagsins ljós innan tíðar.
Ungt fólk að
stofna heimili
f hraða nútímans hefur
fjölskyldan átt í erfiðleik-
um. Langur vinnudagur og
hraði í daglegu lífi fólks
hefur m.a. gert það að verk-
um að heimilislífið og rækt-
un þess hefur fengið minni
tíma en flestir telja æskilegt.
Nú er jafnvel svo komið
að þegar ungt fólk ætlar að
stofna heimili kann það lítið
til húsverka. Foreldrar,
skólar og fjölmiðlar hafa
e.t.v. brugðist skyldu sinni.
Því er talið nauðsynlegt að
sem flestir aðilar í þjóðfélag-
inu leggist á eitt um úrbætur
svo tryggja megi vellíðan í
samskiptum og kunnáttu í
heimilishaldi. Grunneining
þjóðfélagsins hefur verið og
verður áfram fjölskyldan og
því ber okkur að hlúa að
henni svo sem kostur er, að
því skal stefnt.
Unnur Stefánsdóttir
Höfundur er varaþingmaður
Framsóknarflokksins í
Suðurlandskjördœmi.