Fréttir - Eyjafréttir - 13.12.1988, Qupperneq 8
ÞJÓÐVILJINN
- BLAÐIÐ SEM BERST —
HARPA
gefur lífinu lit!
BRIMNES
STRANDVEGI. SÍMI 11220.
Útsala úr þrotabúum:
Kaupmenn segja þetta
óeðlilegt í jólaösinni
- Löglegt og verið að vernda hag kröfuhala.
Ónægju gætir meðal kaup-
,manna í bænum vegna útsölu-
nnar sem bæjarfógetaembættið
var með fyrir helgina. Seldar
voru vörur úr þrotabúum
tveggja verslana Tómstundar
og Vitans.
Um var að ræða leikföng,
fatnað o.fl. sem selt var með
umtalsverðum afslætti. Mikið
var að gera í gömlu Magnabúð-
inni við Skildingaveg, þar sem
útsalan var. Pótti kaupmönn-
um súrt í broti að keyra þar
framhjá með nýjar vörur úr
Herjólfi, meðan fógetaembætt-
ið seldi gamlar vörur með af-
slætti.
Blaðið snéri sér til Kolbeins
Ólafssonar formanns Kaup-
sýslumannafélags Vestmanna-
eyja og fékk hans álit á þessu.
„Okkur finnst þetta mjög óvið-
eigandi nú í jólatraffíkinni. Við
höfum ekki rætt þetta formlega
á fúndi í félaginu, en þeir sem
ég hef haft samband við eru
mjög óánægðir með þetta. Ég
hafði samband við lögfræðing
Kaupmannasamtakanna, sem
sagði að þetta væri fullkomlega
löglegt. Venjan er sú að bjóða
kaupmönnum vörur úr þrota-
búum verslana og ég veit að
það var gert í þessu tilfelli.
Tilgangurinn er að vernda hag
kröfuhafa með þessu,“ sagði
Kolbeinn að lokum.
Jóhann Pétursson dómara-
fulltrúi hjá Bæjarfógetaem-
bættinu sem hafði veg og vanda
af útsölunni sagði í samtali við
blaðið að þessi leið sem farin
var væri fyllilega lögleg. „Þegar
einstaklingar sem hafa stundað
verslun, verða gjaldþrota, þá
fer skiptaráðandinn í Eyjum
með forræði fyrir búi þeirra
meðan á gjaldþrotaskiptum
stendur og þá fer skiptaráðandi
einnig með þau réttindi sem
þessir einstaklingar eiga,
þ.á.m. verslunarleyfi. Þessi
sala og þegar selt var úr Mat-
vöruval og Eyjabæ á sínum
tíma er því lögleg og það er
verslunarleyfi þessara manna
sem er grundvöllurinn fyrir
þeim rekstri sem þarna átti sér
stað.
Skiptaráðanda ber skylda til
að selja eignir sem í þrotabúinu
eru á eins háu verði og hægt er.
í þessu tilviki var um tvær
verslanir að ræða. Varðandi
Tómstund og varning þess, þá
var kaupmanni gefinn kostur á
að kaupa lagerinn, en það er sú
leið sem við viljum helst fara,
en tilboðið var ekki nægilega
hagstætt fyrir búið. Þá varð að
selja vörurnar með öðrum
hætti, og kom lítið annað til
greina en að selja þær í smá-
sölu.
Varðandi Vitann, þá fannst
mér þetta ekki það mikið af
vörum, og sumar vörurnar þess
eðlis að þær hefur enginn annar
á boðstólum eins og hjól o.fl.,
að ég hafði ekki samband við
aðra kaupmenn til að gera til-
boð í lagerinn. Því slógum við
tvær flugur í einu höggi og
seldum lagerana úr báðum búð-
unum í einu,“ sagði Jóhann.
Gagnvart Kaupmannasam-
tökunum sagði Jóhann að það
væri einnig önnur hlið á þessu
máli. „Þarna var um að ræða
tvo kaupmenn sem ekki gekk
nógu vel hjá og endaði í gjald-
þroti. Kaupmannasamtökin
ættu ekki að vera því mótfallin
að skiptaráðandi skyldi reyna
að selja vörurnar á hagstæðasta
tíma svo tap kaupmannanna
yrði sem minnst. Utkoman úr
útsölunni var töluvert hagstæð-
ari þrátt fyrir mikinn afslátt, en
að taka því tilboði sem gert var
í lagerinn,“ sagði Jóhann, en
vildi ítreka það að lokum helst
væri reynt að fara þá leið að
selja í búðir lagerinn ef það er
talið forsvaranlegt fyrir þrota-
búið.
Bárugötu 1 auglýsir
► 2 gerðir Matin Bleu gallar, með 25% afslætti.
► Fis og Adidas regnfatnaður á niðursettu verði.
► Adidas stakar buxur með röndum. Stærðir 116-176
og 5-9. Verð kr. 1869.
► Glæsilegt úrval af íþróttatöskum.
► Ferðatöskur, flugtaska, snyrtitaska og íþróttataska,
allt í setti.
► Take off fatnaður frá Adidas er toppurinn í dag.
Lítið inn Bárugötu 1
• Þráinn Óskarsson, Hrund Sigurðardóttir og Lára Skæringsdótt-
ir í hlutverkum sínum.
Leikfélag Vestmannaeyja:
Frumsýnir barna-
leikritið Jólasveinn-
inn sem villtist
- 18. desember. 35-40 krakkar
taka þátt í sýningunni.
Það var ys og þys í Bæjar-
leikhúsinu þegar FRÉTTIR
litu þar við á laugardagskvöld-
ið. Stóð yfir æfing á jólaleikriti
Leikfélagsins Jólasveinninn
sem villtist, eftir Jan Vörs, í
þýðingu Signýjar Pálsdóttur.
Sigurgeir Scheving leikstýrir af
miklum myndugleik, enda veit-
ir ekki af, því milli 35-40 börn
taka þátt í sýningunni.
Lára Skæringsdóttir og Þrá-
inn Óskarsson eru einu leik-
endurnir, sem komnir eru af
barnsaldri. Aðrir leikarar eru
flestir 10-12 ára, einn þeirra,
Hrund Sigurðardóttir, leikur
eitt aðalhutverkið. Jólasveinn-
inn sem villtist er bráðskemmti-
legt og fjörugt leikrit fyrir börn
og unglinga á öllum aldri. Þar
kemur við sögu jólasveinafjöl-
skylda, sem hefur tekið tækn-
ina í sína þjónustu. Lagt sleð-
anum og ætlar sér að ferðast
um á þyrlu. Ekki gengur það
sem skyldi, því hún villist og
lendir í hinum ýmsu ævintýr-
um.
Sigurgeir lætur vel af sam-
starfinu við börnin, sem öll
tóku þátt í leiklistarnámskeiði
Leikfélagsins í haust og hefur
það nýst vel á æfingunum.
Frumsýning verður sunnu-
daginn 18. þ.m. og er ekki að
efa að börn, sama á hvaða aldri
þau eru, muni fjölmenna í
Bæjarleikhúsið. Efstemmning-
in á æfingunni skilar sér í
leikritinu, verður það sannar-
lega þess virði.
Gæðavara
á góðu verði