Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.1994, Page 1
HÚSEY
/r
HUSEY
BYGGINGAVÖRUVE RSLUN
VESTMANNAEYJA
Garöavegi 15 - sími 1115 1
þar sem fagmennirnir versla.
21. árgangur Vestmannaeyjum, 14. júlí 1994 26. tölublað - Verð kr. 100 - 5ími: 96-13310 - Myndriti: 96-11293
I lausu lofti
Vegagerð á Heimaey að Ijúka:
Heildarkostnaður
70 milljónir króna
Uppbygging þjóðvega og lagning
slitlags er á lokastigi. Aðeins er ól-
okið framkvæmdum við veginn
upp í Stórhöfða en uppbygging
hans er hafin. Heildar- kostnaður
Vegagerðarinnar vegna fram-
kvæmdanna, sem eru orðnar mun
meiri en upphaflega var áætlað,
nálgast 70 milljónir.
Siguröur Kr. Jóhannsson, tækni-
fræðingur Vegagerðarinnar á
Selfossi, sagði að Stórhöfðavegurinn
væri það eina sem verktakinn ætti
eftir að vinna fyrir Vegagerðina. „Að
ööru leyti eru þeir búnir að vinna
fyrir Vegagerðina en eitthvað eiga
þeir eftir að vinna fyrir Vestmanna-
eyjabæ, Flugmálastjóm og ef til vill
fleiri aðila,“ sagði Sigurður.
Vegaframkvæmdir á Heimaey eru
orðnar mun meiri en upphaflega stóð
til og sagði Sigurður að sennilega
hefði verkið vaxið um 80%. „Það var
alltaf verið að bæta við og endanlegur
kostnaóur við framkvæmdimar
verður á bilinu 68 til 70 milljónir."
Upphafleg áætlun Vega-
gerðarinnar var 35 milljónir en
verktakinn, Ræktunarsamband Flóa
og Skeiða hf. bauð 21,6 milljón.
Sigurður sagði að þá ætti eftir að taka
inn í efni í ræsi, mulning og tjöru sem
Vegagerðin útvegar þannig að hlutur
verktakans segir ekki alla söguna um
heildarkostnað.
Að lokum sagði Sigurður að sáð
yrði í vegkantana á næstu dögum og
á hann von á að þeir verði orðnir
grænir fyrir haustið.
Mikill þorskur en kvótann vantar
Mjög alvarlegt ástand er að skap-
ast hjá humarbátunum vegna of
mikils þorsks á miðunum. Flestir
þeirra áttu einhvern þorskkvóta í
upphafi vertíðarinnar og tóku mið
af þorskgengd á humarmiðunum
undanfarin ár en í sumar hefur
hún verið miklu meiri og er svo
komið að þeir geta hvergi dýft
trollinu án þess að eiga á hættu að
fá þorsk.
Einar Sigþórsson, stýrimaður á
Agústu Haraldsdóttur VE, sagði að
þeir ættu lítinn sem engan þorsk-
kvóta. „Þorskkvótinn sem eftir er er
það lítill að við megum helst ekkert
fá en það er sama hvar reynt er, alls
staðar er þorskur. Við reynum aö
sneiða fram hjá honum eins og hægt
er en það getur verið erfitt því miklu
meiri þorskur er á humarslóð núna en
verið hefur.“
Agústa Haraldsdóttir er löngu búin
með eigin humarkvóta en núna veiðir
hún kvóta fyrir Vinnslustöðina. „Mér
skilst að Vinnslustöðin eigi nógan
humarkvóta en þorskkvótinn liggur
ekki á lausu og ef hann fæst kostar
hann hátt í 80 krónur þannig að alls
ekki borgar sig að kaupa hann. Svona
held ég að ástandið sé orðið hjá flest-
um humarbátunum,“ sagði Einar.
Björgvin Sigurjónsson, skipstjóri á
Sleipni VE, tók í sama streng og
Einar. „Þetta er orðið hryllilegt á-
stand í einu orði sagt. Menn hafa
reynt að treina þorskinn eins og
kostur er en það er alveg sama hvar
kastað er á humarslóð, alls staðar er
þorskur. Eg veit ekki hvað gera skal
en það er óþolandi að reyna að vinna
við þessi skilyrði," sagði Björgvin og
var hann sammála Einar um að þetta
ætti við flesta ef ekki Eyjabátana.
Vestmannaeyjahöfn:
Sjómenn
hlusta lítið
á rás 12
Hafnarstjóri hefur áminnt skip-
stjórnarmenn vegna slæmrar
hlustunar á Rás 12, vinnurás Vest-
mannaeyjahafnar.
Að sögn Björgvins Magnússonar,
hafnsögumanns, hefur hlustunin
farið sífellt minnkandi síðan far-
síminn kom til sögunnar. „Þetta er
mjög slæmt því það er ekki mögu-
leiki að ná sambandi við bátana til að
koma mikilvægum upplýsingum á
framfæri. Þetta getur skapað mikla á-
rekstrarhættu, sérstaklega í
óhagstæðum veðurskilyrðum og í
myrkri. Einnig þegar þarf að stjóma
umferðinni um höfnina vegna graf-
skipsins eða stærri skipa.“
Eru það tilmæli hafnarstjóra til
skipstjóra að hlusta betur á Rás 12 í
framtíðinni, á leið úr og í höfn.
Ekki útilokað að Siggi
þjálfi ÍBV næsta vetur:
Vantar
handknattleiksráði hefði ekki tekist
að uppfylla þær ennþá. Siguðrur
útilokar ekki aó hann komí en allir
hljóti að sjá að hann komi ekki með
fjölskylduna frá Noregi án þess aó
hafa tryggt húsnæði.
Grímur Gíslason, formaður hand-
knattleiksráðs segir að samningur
hafi legið á borðinu fyrir þremur
Allt er í óvissu hvort Sigurður mánuóum en ekki hafi enn fundist
Gunnarsspn þjálfar meis- húsnæöi sem Siguröur gæti sætt sig
taraflokk ÍBV í bandbolta í vetur. við eða vinna og þar standi hnífu-
Sigurður, sem nú er staddur í rinníkúnni.
bænum, sagði vió FRÉTTIR að Stjóm IBV mun ræða við Sigurð
hann hefði sett fram ákveðnar og œttí að skýrast í dag eða á
kröfur um húsnæði og vinnu en morgun hvort hann kemur eðaekki.
húsnæði
Lundadrottning
Eitt lundaafbrigði hefur veiðst í Ystakletti. Það var ungur lundaveiði-
maður, Gylfi Einarsson, sem veiddi Iundadrottningu í síðustu viku.
Lundadrottningin er brúnleit að lit og hvergi svart að finna í henni. Sjald-
gæft er að fá lundadrottningu en að fá alhvítan lundakóng er enn sjaldgæfara
og veiðist hann ekki nema á margra ára fresti. í fyrra veiddi Þórður Hallgríms-
son lundakóng og segist faðir hans, Hallgrímur Þórðarson, ekki hafa séð
hvítari lunda á ævinni. Ystaklettsmenn veiddu tvö afbrigði í fyrrasumar en
komu auga á a.m.k. fjögur. Nánar er sagt frá lundaveiði á bls. 11.
FJÖLSKYLDU-Í Bílaverkstæðið BRAGGINNs/f.
IiTm 1 TRYGGING RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 11535
TRYGGINGA FASTEIGNA. j VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ: Græðisbraut 1 - sími 13235
MIÐSTÖÐIN HF. TRYGGING
r
i
BRÚAR BILIÐ
1_ „SjMn 2800^ Fax_ 12991,
Sumaráætlun Herjólfs
Alla virka daga
Frá Vestmannaeyjum: KL 08:15
Frá Þorlákshöjh: Kl. 12:00
Aukjiess fóstudaga ogsunnudaga:
Frá Vestmannaeyjum: KL 15:30
Frá Þorlákshöfr: KL 19:00.
Aukfimmtdaga ijúní ogjúlí:
Frá Eyjum kL 15:30 - Þrá Þhöfn kl. 19:00
"1
I
I
I
I
I
I
I
I
1
I
I
I
J