Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.1994, Qupperneq 4

Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.1994, Qupperneq 4
Bermir Ágústsson, sjávarútvcgsfræöingur í Norejíi, um Svalbarðadciluna: NYFÆDDIR VESTMANNAEYINGAR Deilan hefur einkennst af stríðsyfirlýsingum beggja aðila Eyjamaðurinn Bergur E. Agústs- son, sjávarút- vegsfræðingur hjá hagfræðideild sjávarútvegs- stofnunarinnar í Tromsö í Noregi, hefur ekki verið öfundsverður af hlutskipti sínu undanfarnar vikur vegna fiskveiðideilu Islendinga og Norðmanna. Sem Islendingur í innsta hring norsks sjávarútvegs þekkir hann vel báðar hliðar á deilunni. Bergur segir að sjaldan eða aldrei hafi Island eða Islendingar verið jafn áberandi í norskum fjölmiðlum og að undanfömu. Veiðar Islendinga á Svalbarðasvæðinu hafi fengió mikla umfjöllum og mikið veriö ræddar meðal almennings í Norður-Noregi. „Því miður verður að segjast að um- ræðan hefur einna helst einkennst af stríðsyfirlýsingum forystumanna í íslenskum og norskum sjávarútvegi. Slíkar yfirlýsingar munu varla leiða til þess aó deilan leysist. Það má segja að þessi deila milli frændþjóðanna hafi komið upp á góðum tíma fyrir norsk stjómvöld. Þannig er mál með vexti að eftir aó samningum lauk við ESB hafa menn rifist um niðurstöðu samningsins fram og til baka. Ekki em margir sammála um hvað þessi samningur muni leiða af sér, sérstaklega hvað varðar norskan sjávarútveg. Á meðan samningum við ESB stóð var helsta slagorð Norðmanna „Vi har ikke en ftsk á gi“, en eins og flestir vita varð niðurstaðan önnur. Norsk stjómvöld hafa hlotið mikla gagnrýni fyrir að hafa gefið eftir hvað þetta varðar,“ sagði Bergur. Eftir að Svalbarðadeilan kom upp á borðið fengu norsk stjómvöld kjörið tækifæri til að sýna fram á að hags- munir sjávarútvegsins væm hafðir að leiðarljósi og gripu þar af leiðandi til harðra aðgeróa. Bergur segir að þessar aðgerðir hafi leitt til þess að í fyrsta skipti í langantíma styðji flest- ir Norðmenn aðgerðir stjómvalda af heilum hug og norski sjávarútvegs- ráðherrann, Jan Henry T. Olsen hafi vaxið mjög í áliti í deilunni. „Eg hef ekki hugsað mér að taka afstöðu í þessu máli hér og nú, þar sem ég er eini starfandi Islend- ingurinn hjá sjávarútvegsstofnuninni í Tromsö. En ég vona innilega að stríðsyfirlýsingunum muni fækka og menn setjist niður og fihni lausn sem báðir aðilar geti sætt sig við þó það sé auðveldara sagt en gert,“ sagði Bergur. Svalbarðadeilan hefur síðustu tvær vikumar fallió í skuggann af fréttum um aðgerðir Grænfriðunga vegna hvalveiða Norðmanna. „Norska landhelgisgæslan hefur tckið einn bát grænfriðunga til hafnar og munu höfða mál gegn þeim. Einnig kom til átaka milli landhelgisgæslunnar og Paul Watson sem er vel þekktur á Is- landi en því miður tókst honum að koma sér á opið haf út áður en hægt var að ná honum. Þaó hefur því verið í nógu að snúast hjá Norðmönnum að undanfömu. En hvað sem öðm líður er það augljóst mál að deilur milli Norðmanna og annarra, hvað sem þær nú snúast um, þjappa fólki með ólíkar skoðanir á hinum ýmsu málum, saman.“ Bergur bað aö lokum að heilsa heim og vonaðist einnig til að IBV tækist að halda sér í 1. deild. í Tölvuskólanum Upplýsingar í síma 11122 og 13220 Tölvuskóli Vestmannaeyja IFríða Dóra Jóhannsdóttir: Dóra Jóhannsdóttir: Fleiri stelpur í golf í Meistaramótinu í golfí um síöustu helgi hafnaði Fríða Dóra Jóhannsdóttir í 2, sæti í meistara- flokki. í raun og veru átti hún að keppa í 1. flokki en svo Jakobína Guðlaugsdóttir þyrfti ekki að vera ein í mcistaraflokki voru Fríða Dóra og Katrín Harðar- dóttir hækkaðar um einn flokk. Fríða Dóra byrjaði seint í golfí en hefur mikið yndi af því að taka einn hring í góöum félagsskap. Því miður er kvcnmannsskortur í Golfklúbbi Vestmannaeyja og er það sérstakt áhugaefni klúbbsins að fá fíeiri stúlkur á öllum aldri til að iðka golf. Fríða Dóra er Ijós- lifandi dæmi um að það er aidrei of seiut að byrja í golfi og hún sýnir Eyjamönnum sér hina hliöina. Fullt nafn? Fríða Dóra Jóhanns- dóttir. Fæðingardagur og ár? 18. mars 1939. Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar. Fjölskylduhagir? Gift Gunnlaugi Axelssyni og við eigum þrjú böm, Axel Valdemar, Jóhönnu Krístínu og Halldór, og sex bamaböm, Önnu Dóm, Andra Frey,.. Anítu, Dóru Kristínu, Gunnlaug Öm og einn ó- skíröan. Farartœki? Toyota Corolla ‘88 sem ég á. Menntun og starf? Gagnfræóingur og ég vinn vió afgreiðslustörf. Helstigalli? Eyðslusemi. Hclsti kostur? Það get ég ekki sagt um sjálf, læt aðra dæma um þaó. Uppáhaldsmatur? Nýtt svínakjöt. Versti matur? Enginn sérstakur. Eg elda aldrei mat sem mér þykir vondur. Uppáhaidstóniist? Það eru hinir einu og sönnu Bítlar og jassinn er voóa góður. Uppáhaldsíþróttamaður? Þorsteinn Hallgrimsson. Hvaða stjórnmálamanni hefur þú mestar mætur á? Engum. Hvert er eftirlætissjónvarpsefnið þitt? Siguróur Hall og matreióslu- þættimirhans. Hvaða sjónvarpsefni finnst þér leiðinlegast? Væmnar bíómyndir. Uppáhaldsleikari? Enginn sér- stakur. Uppáhalds bíómynd? Söngleikir eru mjög skemmtilegir, Hvað gcrir þú í frístundum þínum? Spila golf. Hvað metur þú mest S fari annarra? Heiðarleika. Hvað fer mest í taugarnar á þér t fari annarra? Leti. Hvernig finnst þér best að slappa al? Heima hjá mér með fjölskyld- • unni. Fallegasti staður sem þú hcfur komiö á? Auðvitað Vestmanna- eyjar og svo er Borgartjörðurinn mjög fallegur. Hvaða námsefni iíkaði þér verst í skóla? Félagsfræði. Hvað myndir þú gera ef þú yrðir bæjarstjóri í einn dag? Setja hraöahindrun á Kirkjuveginn. Uppáhalds félag sem þú hefur starfað með? Golfklúbbur Vest- mannaeyja. Hvernig gekk Meistaramótið í golfi? Mér gekk sæmilega en mótið I v 3 í heild gekk mjög vei. Nýi völlurinn er virkilega skemmtilegur en hann er mjög erfiður yfuferóar í þessari vindátt sem var. Völlurinn hefur tekið vel við sér síðan í vor. Hvað ertu hræddust við? Ó- kunnuga hunda, Ef þú værir fluga á vegg, hvar vildir þú helst vera? Helst hvergi, þær eru drepnar alls staðar. Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir orðin: - Golf? Leíkur. - Þjóðhátíð? Skemmtun. - Heimsmeistarakeppnin? Mark- vörðurinn hjá Svíunum um daginn. Að iokum? Ég vil hvetja allar stúlkur til að prófa golfið, fara á námskeið og sjá hvemig þcim líkar. Ég get iofað ykkur stelpur að golfið er góð og holl hreyfing og skemmti- leg iþrótt. Verið ekkí feimnar heldur látió sjá ykkur. Stelpa Þann 9. júlí sl. eignuðust Jóhanna Sigmarsdóttir og Magnús Björgvin Jóhannsson stúlku. Hún vó 16 merkur og var 53 sm. Ljósmóðir: Valgerður B. Ólafsdóttir. Strákur Þann 20. júní sl. cignuðust Iris Þórðardóttir og Valur Örn Gíslason dreng og er hann fjórða barn þeirra. Hann vó 20 merkur og var 58 sm. A myndinni eru einnjg systkinin Eydís Inga og Eysteinn Orri. Ljósmóðir: Valgerður B. Ólafsdóttir. Strákur Þann 5. júlí sl. eignuðust Hclcna Sigurðar- dóttir og Karl Karlsson dreng. Hann vó 15 merkur og var 52 sm. Ljósmóðir: Valgerður B. Ólafsdóttir. Strakur Þann 1. júní sl. eignuðust Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir og Guðjón Örn Guðjónsson dreng. Hann vó 14 merkur og var 51 sm. A myndinni eru einnig tvíburarnir Gunnlaugur Örn og Dóra Kristín. i íAcmóöir: Björg Ingimundardóttir. Strákur Þann 28. júní sl. eignuðust Nazunin Naimi og Wolfgang Zeller dreng, sem fæddist í Reykjavík og hefur verið nefndur Cyrus Werner. Hann vó 12 merkur og var 49 sm. Á myndinni er einnig amman Tahera Naimi Ljósmóðir: Emma Þorsteinsdóttir.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.