Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.1994, Blaðsíða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.1994, Blaðsíða 13
 ií:i5:B::S$:$ií5ffiSíf'!-SSS:ÍSS5®:5: .:5555:;:;55:;55:;:|:!:!:|:?:|:|:|:|:?:|:|:!:!:!:!:!:^ Fimmtudagurinn I4.júlí 1994 ; tlJJIIS ! ! ! !•? :':V S?: !! !!$:$? 1 13 Verðlaunahafar í meistaraflokki kvenna. F.v. Fríða Dóra, Jakobína og Katrín. Mynd: Sigfús Gunnar. Jakobína missteig sig illa Jakobína Guðlaugsdóttir vann að venju Vestmannacyjameistaratitilinn í golfi sl. laugardag. Segja má að hún hafi fyrst og fremst verið í kcppni við sjáifa sig því hún hafði mikla yfir- burði en átti í mestu erflðleikum með að Ijúka mótinu vegna meiðsla. „Eg missteig mig illa strax á fyrstu holu. Eg var búin að slá upphafshöggið og var á labbinu út á völl jregar ég sneri löppina illa. Það var ekki um annað að velja en að halda áfram þrátt fyrir að ég væri mjög bólgin. Karlinn minn slasaði sig fyrir skömmu og til að geta haldið áfram að spila klæddi ég hann úr gifs- spelkunum og skellti þeim á núg,“ sagði Jakobína. Aðspurð hvers vegna svo fáar konur hefðu tekið þátt í meistaramótinu sagði hún að það væru margar konur sem væru að spila golf. Hins vegargengi iha að fá þær til að taka þátt í móturn. „Eg held að ástæðan sé sú að nýi völlurinn er mjög erfiður yfirferðar. Sent dæmi fór Islandsmeistarinn okkareina holuna á 10 höggum sem er alveg einstakt. En vonandi koma fieiri konur í golfið. Eg get lofað þeim að þetta er mjög skemmtileg afþreying og heilsusamleg þar að auki,“ sagði Jakobína. Þorsteinn hefur kennt mér allt Karl Haraidsson bar sigur úr býtum á Meistaramóti GV í flokki 14 ára og yngri. Karl er mjög efnilegur golf- íeikari en hann á reyndar ekki langt að sækja hæfileikana. Karl er ekki nema 10 ára en samt vann hann jafn- aldra sína og eldri stráka með gifurlegum yfirburðum. Að sögn Is- landsmeistarans, Þorsteins Hall- grímssonar, er mjög efnileg kynslóð kylfínga á aldrinum 10 til 11 ára að koma upp í golfklúbbnum og ekki sé óraunhæft að tala um að eftir 2 til 3 ár eigi Vestmannaeyingar eina sterkustu drengjasveit landsins. Þorsteinn hefur haldið vel utan um þcnnan hóp sem þjálfari og eru strákarnir mjög áhugasamir. Hins vcgar vantar alveg stúlkur á þessum aldri. Elleftu piltar á aldrinum 9-14 ára tóku þátt í drengjakeppninni. Karl vann nteð miklum yfirburðum og lék hring- ina tvo á 129 höggum. Eyþór Þórðarson varð í 2. sæti á 158 höggum og Örlygur Helgi Grímsson í 3. sæti á 164 höggum. Karl sagði í samtali við FRETTIR að hann hefði byrjað að fikta við golf í fyrra. „Eg aðstoðaði Þorstein og var að tína upp kúlur fyrir hann. í sumar byrj- aði ég fyrir alvöru í golfi," sagði Karl. Aðspurður hvers vegna hann hefði burstað mótið sagði Karl að hinir strákarnir væru nýbyrjaðir að æfa golf en hann hefði byrjað á síðasta ári. Uppáhaldsgolfleikarinn hans er Ballesteros og fyrirmyndin er íslands- Tveir meistarar. íslands- og Vest- mannaeyjameistarinn I>orsteinn Hallgrímssonásamt hinum efni- lega Karli Haraldssyni Vest- mannaeyjameistara í flokki 14 ára Ogyngri. Mynd:Sigfús. meistarinn Þorsteinn, sent hefur kennt Karli allt sem hann kann í golfi. Hann ætlar sér að verða góður golfleikari í framtíðinni en sterkasta hlið hans eru 80 til 90 metra högg, að því hann segir sjálfur. Karl ntun eignast sitt fyrst golf- sett á næstu vikum sem hann fær að gjöf frá foreldrum sínum en hingað til hefur hann fengið að láni golfsettið sem Óskar bróðir hans á. Karl æfir golf fimrn daga vikunnar og er einnig í fótbolta fjóra daga vik- unnar þannig að hann hefur nóg að gera yfir sumartímann. Einnig ber hann úr Morgunblaðið. En hvers vegna er golf svona skemmtileg íþrótt? „Það er útiveran og svo er þetta gott labb." Verðlauna- hafar í 1. flokki kvenna: Nanna, Elsa og Magnúsína. Mynd: Sigfús Verðlauna- hafar í 1. flokki karla: Asbjörn, Guðjón og Jónas Þór. Mynd: Sigfús Blaðamannafundur Þjóðhátíðarnefndar Þórs 1994: Þjóðhátíðarnefnd Þórs efndi til blaðamannafundar í tilefni Þjóð- hátíðar sl. miðvikudag. Fjölmiðla- flóran mætti í öllu sínu veldi með Flugleiðum til Eyja þar sem for- maður Þjóðhátíðarnefndar, Bjarni Samúelsson og Arni Johnsen kynnir, voru í hlutverki gest- gjafanna. Ohætt er að segja að blaðamannafundurinn hafi í alla staði tekist mjög vel, þrátt fyrir að hersveitin hafí þurfti að dvelja í Eyjum hálfum sólarhring lengur en ráð var fyrir gert vegna veðurs. Bjarni sagði í samtali við FRÉTTIR að margir blaðamenn hefðu haft samband til Eyja eftir fundinn og lýst yfir ánægju sinni með hvernig til tókst. Tilgangurinn með blaðamannafundinum er að kynna Þjóðhátíðina fyrir hlaða- mönnum í þeirri von að Þjóðhátíðin fái myndarlega um- fjöllun í fjölmiðlum þeirra. Alls mættu um 30 manns á blaða- mannafundinn sem hófst með siglingu út í Klettshelli. Þar kynnti Ami Johnsen dagskrá Þjóðhátíðar og kom m.a. fram að þetta er 120. Þjóð- hátíðin sem Eyjamenn halda. Þjóðhátíðarlagið var kynnt og leikið af segulbandi en það heitir Út við sund og Eyjar og er eftir þá Gísla Helgason og Guðjón Weihe. Lagið var síðan tekið upp í hljóðveri sl. mánudag með hljómsveitinni Upp- lyftingu og upptaka send til allra útvarpsstöðva. Að siglingunni lokinni var farið í Herjólfsdal. Stærsti hluti blaðamannahópsins hafði aldrei verið á Þjóðhátíð og því tók Ami Johnsen góðan tíma í að kynna fyrir þeim hVemig þessi einstaka hátíð gengur fyrir sig. Einnig tók Ami létta brekkusöngsæfingu og þurfti engan gítar til heldur tóku blaðamennimir lagió undir stjóm Ama. Að kynningu lokinni biðu veisluhöld í Þórsheimili. Þegar blaðamennimir áttu að fara heim á leið grúfði þoka yfir Heimaey og var orðið ófært með flugi. Komust blaðamennimir því ekki til síns heima fyrr en morguninn eftir en þeir sáu til þess sjálfir að þeim leiddist ekki og skemmtu sér konunglega í Eyjum. Mikið gert fyrir börnin Eins og greint hefur verið frá í FRÉTTUM er búið að ganga frá ráðningu allra skemmtikrafta á Þjóð- hátíð og verður miðaverð óbreytt eins sl. fjögur ár eða kr. 6.500 og 6.000 í forsölu. Forsala hefst mánudaginn 18. júlí og stendur til föstudagsins 22. júlí. Bjami benti á að forsalan Væri einmitt þegar nýtt kortatímabil hæfist. Stórhljómsveitimar SSSól og Vinir vors og blóma leika á stóra dans- pallinum og Upplyfting verður aðalhljómsveit á Tjarnarsviði. Tón- leikar verða tvisvar á dag með hljómsveitunum Finn Fein, Turbo, Lipstick Lovers og Quicksand Jesus. A kvöldvökunum verða einnig Radd- bandið, Magnús Ólafsson, Eyþór og Móeiður, Örvar Kristjánsson o.fl. Mikið er lagt í dagskrána fyrir bömin. Elva Ósk og Hinrik Bjama- son verða með atriði úr Dýrunum í Hálsaskógi, Einari Askeli og Karíus og Baktusi, Magnús Ólafsson verður með ýmis gervi, Raddbandið verður með glens og verða bömin með og Upplyfting verður með söngkeppni, danskeppni, látbragðsleik og upp- lestur fyrir bömin að ógleymdum bamaböllunum. Að sjálfsögðu verða hinir ó- missandi og föstu liðir eins og brenna á Fjósakletti á föstudagskvöldinu, flugeldasýningin á laugardags- kvöldinu sem Þórarar lofa að verði sú stærsta sem sögur fara af og á sunnu- dagskvöldinu verður varðeldur og brekkusöngur sem Ami Johnsen stjómar. Einnig verður fimleika- sýning á sunnudeginum og Haraldur Geir og fleiri Bjamareyingar sýna bjargsig af Fiskhellanefi á föstu- deginum. Að venju verður Þjóðhátíðinni þjófstartað á fimmtudagskvöldinu með Húkkaraballinu svonefnda fyrir unglingana. Mjög öfiug 'öryggis- og sjúkra- gæsla verður á hátíðarsvæðinu allan sólarhringinn alia Þjóðhátíðardagana. Gæsla verður í höndum Björgunar- félags Vestmannaeyja sem hefur margra ára reynslu í þessum málum og fær auk þess aðstoð ofan af landi. Kynnir verður að sjálfsögðu Ami Johnsen og dagskrárstjóri Sigurgeir Scheving. Öflugar samgöngur Vestmannaeyingar búa við úrvals samgöngur og fyrir lesendur FRETTA á fastalandinu er ekki úr vegi að upplýsa um hvaða ferða- möguleikar eru í boði. Herjólfur mun bæta við ferðum vegna Þjóðhátíðar. Verða famar tvær ferðir á dag, miðvikudag, fimmtudag og föstudag og síðan aftur mánudag, þriðjudag og miðvikudag. I tengslum við Þjóðhátíðina verður boðið upp á pakkaferðir til Eyja. Hjá BSÍ kostar pakkinn 9.400 kr. og er þá innifalið rútuferð, Herjólfsferó og aðgangurað hátíðarsvæðinu. Pakkar seldir í Þorlákshöfn eru seldir á 8.600 kr. og pakkar seldir hjá Sérleyfisbílum Sel- foss á Selfossi kosta 9.100 kr. Leigufiug Vals Andersen veróur með loftbrú frá Bakka og einnig verður fiogið frá Selfossi. Flugleiðir verða einnig með loftbrú og bjóða upp á pakkaferðir af öllu landinu. Pakkinn frá Reykjavík kostarkr. 10.990 og er innifalið fiug og aðgöngumiði. Frá ísafirði kostar pakkinn 15.990 en dýrast er frá Höfn eða 17.990. Islandsfiug verður í stöðugum ferðum milli lands og Eyja og kostar pakkinn 11.000 kr. FuIItrúar Þjóðhátíðarnefndar, skcmmtikraftar, Árni Johnsen og höfundar Þjóðhátíðarlagsins í Herjólfsdal. Vísir að slysvarnaskóla fyrir börn I Eyjum eru margir staðir sem bjóða hættunni heim, bæði fyrir börn og fullorðna. Skemmst er að minnast hörmulegs slyss þcgar Sigurður Helgi Sveinsson drukknaði við S'taf- nes þann 14. apríl sl. Til að minnast hans gáfu krakkarnir í 7. bekk Hamarsskólans ferðasjóð sinn sem nú stendur i rúmlcga 113 þúsund krónum. Var ósk krakkanna að peningarnir yrðu notaðir m.a. til að koma fyrir bjarghring í Stafnesi. Nú er það orðið að veruleika því í vikunni voru settir tveir bjarghringir og Björgvinsbclti i Stafnes. Til stend- ur að setja slíkan björgunarbúnað á fleiri stöðum á eyjunni. Auk minningarsjóðsins eru það Vest- mannaeyjabær og Slysavamadeildin Eykyndill sem niunu kosta búnaðinn og kostnað við uppsetningu, sem verður í höndum Björgunarfélags Vestmanna- eyja sem gefur sína vinnu. Að sögn Bjarna Sighvatssonar, fomianns Björgunarfélagsins, var ákveðið að koma upp bjarghring og Björgvinsbelti á tveimur stöðum í Stafnesi því landið þar sé erfitt yfirferðar. Einnig er búið að koma upp björgunarbúnaði í Kapla- gjótu. Ákveðið hefur verió að setja björgunarbúnað á sitt hvom hafnar- garðinn þar sem tugir krakka em ávallt að veiða. Brimurð og Klaufin koma einnig sterklega til greina. Endanlegur kostnaður liggur ekki fyrir en talið er að hann nemi um nokkur hundruð þúsund krónum Bjarni sagði að auðvitað væri engin spuming um að löngu tímabært hefði verið að setja björgunarbúnaðinn upp. Hann sagðist hafa heyrt eftir hið hörmulqga slys í Stafnesi í vor að menn hefðu áður farið í sjóinn á svipuðum slóðum en sloppið fyrir horn. Það hefði hins vegar ekki farið hátt og sýndi nauðsyn þess að björgunarbúnaður væri fyrir hendi. Hugmyndin að baki minningar- sjóðnum var fyrst og fremst að komið yrði upp slysavarnaskóla fyrir böm. Fyrsta verkefnið var að koma upp bjarghring og neti við Stafnes og mikill áhugi er fyrir því að búa til námsefni til að efla slysavamir hjá bömum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.