Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 09.05.1996, Side 4

Fréttir - Eyjafréttir - 09.05.1996, Side 4
Fréttir Fimmtudagur 9. maí 1996 ORÐSPOR - ORÐSPOR Nýffœddir Vgstmannqcyingar 9 Stúlka Þann 5. maí sl. eignuðust Svandís Geirsdóttir og Ingi Grétarsson stúiku seni hefur verið nefnd Sigríður Þóra. Hún vó 13,5 merkur og var 52 sm. Ljósmóðir: Guðný Bjarnadóttir. 9 Stúlka Þann 26. apríl sl. eignuðust Sigurður Friðrik Karlsson og Sólrún Helgadóttir stúlku. Hún vó 15 merkur og var 53 sm. Stóra systir heitir Sylvía Dögg Hvað er að gerast í Nóg um Skrapp til Portúgal Stopp Sá sjúklega ferð auglýsta í Ferðablaði Frétta Stopp Er þreyttur eftir helgina á Lundanum Stopp Þar var svaka fjör, sérstaklega hjá handboltastrákunum Stopp Rakst á tvífara Einars Ottó Högnasonar Stopp Einar er bara stór Stopp Allir spenntir fyrir bikarúrslitaleikinn á laugardag Stopp Fullt af tilboðum skemmtanalífinu? að vera Stopp Skilst að helgin í Eyjum eigi að verða góð Stopp Eg hugsa til ykkar þegar ég svala þorstanum í 30 stiga hita Stopp Kennarar ætla í óvissuferð um helgina Stopp Omar félagi minn trúbador á HB pöbb og leikurinn í beinni á laugardag Stopp Má ekki vera lengur að þessu Stopp Bið að heilsa heim... Góð helgi í Landakirkju Nú um helgina verður sitthvað spennandi á döfinni í Landakirkju. A laugardagskvöldið kl. 20 mun Guðni í Landlyst halda tónleika með bjöllu- sveit og unglingahljómsveit Bústaðakirkju en þar á bæ er hann organisti. Á dagskrá verða létt kirkjuleg lög og sumarlög. Hér er um að ræða klukkutíma skemmtun fyrir alla fjölskyIduna og aðgangur er ókeypis. Við messu sunnudagsins kl. 11 munu Guðni og bjöllusveitin annast tóniist- arflutning í samvinnu við kantor og kór Landakirkju. En sú messa verður einnig sérstök að því leyti að til hennar er boðað undir nokkuð óvenjulegum for- merkjum. Starfsfólk Vinnslustöðvarinnar hf. er sérstaklega hvatt til kirkjugöngu þennan sunnudag og munu fulltrúar frá fyrirtækinu flytja ritningarlestra dagsins frá altari. Ef vel tekst til með þetta munum við taka upp þráðinn næsta vetur og halda fleiri „vinnustaðamessur” í þeim einfalda tilgangi að gefa fólki ástæðu til að koma til kirkju. Prestar Landakirkju. Viljum gera verk okkar sýnileg Nú um helgina, laugardag og sunnudag, efna fyrirtæki í byggingariðnaði til svonefndra byggingadaga. í hópi Vestmannaeyinga, sem kynna starfsemi sína, er Þórður Svansson sem ætlar að kynna hin nýju raðhús sín við Áshamar. Þórður er Eyjamaður vikunnar að þessu sinni. Fullt nafn? Þórður Svansson. Fæðingardagur og ár? 19.11.56 Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar Fjölskylduhagir? í sambúð með Anítu Vignisdóttur, fullt af börnum. Menntun og starf? Húsasmíðameistari, nám frá Iðnskólanum í Vestmannaeyjum Laun? Já. Helsti galli? Spurðu Þórð Karlsson. Helsti kostur? Spurðu Anítu að því. Uppáhaldsmatur? Allur matur sem Aníta eldar. Versti matur? Enginn. Uppáhaldstónlist? Rokk. Hvar myndir þú vera ef þú yrðir fluga á vegg í einn dag? I vinnuskúrnum hjá Sæla Sveins. Uppáhalds stjórnmálamaður? No komment! Hvaða forsetaframbjóðanda líst þér best á? Hefekki myndað mér skoðun enn. Uppáhalds íþróttamaður? Patrekur Jóhannesson. Hvert er eftirlætissjón- varpsefnið þitt? íþróttir. Hvaða sjónvarpsrás horfir þú mest á? Ríkissjónvarpið. Uppáhaldsleikari? Tom Hanks. Uppáhaidskvikmynd? Myndin með Tom Hanks, sem gerist í Víetnam, ég er búinn að gleyma hvað hún heitir. Uppáhaldsbók? Bankabókin, verst hvað það er lítið inni á henni. Hver eru Reyna að selja íbúðir og raðhús út á það. Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir þessi orð? - Byggingadagar? Uppskera erfiðisins. - Steypa? Atli! - Uppsláttur? Við erum hættir slfku, við notum kubba! : ÍBV sumarið ‘96? íslandsmeistaratitill. Eitthvað að lokum? Vonast eftir mörgum til að skoða raðhúsin hjá mér. helstu áhugamál þín? Að vera með fjölskyldunni, lundaveiði og útivera. Hvað metur þú mest í fari annarra? Heiðarleika og traust. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Baknag og svartsýni. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Höfnin í Brandinum. Hvernig eru horfir í byg- gingabransanum í Eyjum? Allavega sæmilegar í sumar. Veturinn er alltaf erfiðari. Er ekki rétt að vera bara bjartsýnn? Hvers vegna haldið þið byg- gingadaga? Til að gera verk okkar sýnileg, sýna okkar vinnu. - Undirtektir fram l Handknattleiksdeild ÍB1 samvinnu við atvinnumála bæjarins er þessa dagana að lokahönd á undirbúning atvinnu- og þjónustukynni VjOR í EYJUM sem haldin i í Iþróttamiðstöðinni aðra helL 19. maí. Að sögn Kára Jfiigfússonar og Björns Þorgrímssonar hafa viðtökur sýningaraðila farið fram úr björtustu vonum. Töluvert er af nýjum fyrirtækjum sem verða á sýningunni með ýmsar nýjungar sem eykur enn á fjölbreytnina. Þetta er í þriðja skiptið sem sýninginVORÍ EYJUM er haldin og hefur hún skapað sér fastan sess í bæjarlífinu. Að þessu sinni verða 30 sýningaraðilar í 42 básum og eru Sælkeri víkunnar - Anný Hafþórsdóttir Kjúklingur Non Stop básamir að verða uppseldir. „Hér er kjörið tækifæri fyrir fyrirtæki að kynna og selja vöru sína og þjónustu en verð á sýningaraðstöðu er óbreytt," sagði Kára. Meðal nýjunga að þessu sinni má nefna að Eðalvagnar verða með Rolls Royce bílinn hans Hasso og aðra limosínu. FM 957 verður með til- raunaútsendingar frá Eyjum auk ýmislegs annars. Ymis skemmtiatriði og uppákomur verða á sviðinu og fyrirtækið Sprell sér um að hafa ofan fyrir krökkunum en ýmis leiktæki verða á svæðinu. „Það er fullur metnaður hjá okkur að gera þetta enn ntyndarlegra en áður. Alla vega sýna undiitektir að þetta hefur mælst vel fyrir og ég vona að bæjarbúar taki virkan þátt í þessu,“ sagði Bjöm. Opið verður föstudaginn 17. maí kl. 20-22, laugardaginn 18. maíkl. 13-18 og sunnudaginn 19. maíkl. 13-18. Sælkeri síðustu viku, Helena Pálsdóttir, skoraði á vinkonu sína, Anný Hafþórs- dóttur, sem næsta sælkera og brást hún vel við. „Sko, Helena mín, ertu ekki enn búin að ná þér eftir að ég missti „ptnulítið” karrý út í hrísgrjónaréttinn minn um daginn? En jæja, svo við komum okkur að namminu: Kiúklingur Non Stop 1 kjúklingur 1 ds. Hunt’s original garlic tomato sauce 2 grænar paprikur 10 stk. ferskir sveppir 1 peli kaffirjómi Kryddið kjúklinginn með uppáhalds- kryddinu ykkar og steikið í ofni í einn og hálfan tíma. Skerið paprikuna í litla teninga og sneiðið sveppina. Ristið síðan grænmetið á þurri djúpri pönnu. Fláið kjúklingakjötið af beinunum og setjið út á pönnuna. Hellið Hunt's sósunni yfir réttinn og blandið vel saman. Látið þetta krauma í 5 mínútur, hellið þá rjómanum yfir og hitið upp að suðu. Með þessum rétti er ómissandi að hafa hvítlauksbrauð, hrísgrjón, franskar og pastaslaufur með ostasósu. Fyrir þá sem aldrei hafa búið til ostasósu get ég látið aðferðina fylgja með. I hana þarf einn piparost, einn paprikuost og einn pela af rjóma. Þú einfaldlega bræðir ostana í rjómanum í potti og hellir síðan í skál. Verði ykkur svo að góðu. Eg ætla að lokum, vegna fjölda áskor- ana, að skora á besta kokkinn í flot- anum, nefnilega Víglund Þór Víglundsson, kokk á Ófeigi VE. hann er víst alveg klassakokkur, að eigin sögn. Eyjar, nafli alheimsins Fyrir ekki löngu birtist á forsíðu Frétta gullfalleg Ijósmynd, tekin af Grétari Sævaldssyni vestur á Selvogsbanka, og sýndi sólarupprás í austri. Með myndinni fylgdi textinn „Sólampp- rás á Selvogsbanka.“ Einn af kunningjum okkar á Fréttum, sem oft lítur við hjá okkur, var mjög ósáttur við textann. „Sólin kemurekki upp á Selvogsbanka," sagði hann. „Hún kernur upp fyrir austan Eyjar og sest fyrir vestan Selvogsbanka.“ Þetta er náttúrlega sjónarmið út af fyrir sig og lyftir mjög undir þá kenn- ingu, sem margir hafa haldið fram, að Vestmannaeyjar séu nafli alheimsins. VoríE 17.- 19

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.