Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 09.05.1996, Blaðsíða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 09.05.1996, Blaðsíða 12
- Vestmannaeyingarnir og tvíburarnir frá Gerði, Valurog Örn Stefánssynir, eignuðust hjartveika syni með eins og hálfs árs millibili sem reyndust með nákvæmlega eins hjartagaiia. Eftir fjórar aðgerðir í London braggast sonur Arnar vel en sonur Vals fer í aðra hjartaaðgerð til London um mánaðamótin. Tvíburarnir segja frá lífsreynslu fjöl- skyldna sinna f samtali við Þorstein Gunnarsson. Að eignast hjartveikt bam er lífsreynsla sem tvíburamir Valur og Öm Stefánssynir frá Gerði, synir Stefáns frá Gerði, þekkja vel. A meðan flest okkar keppast við að fá ekki leiða á hversdagsleikanum, er það heitasta þrá þeirra að geta farið að upplifa hversdags- leikann á ný og lifa venjulegu íjölskyldulífi! Örn og kona hans eignuðust fmmburð sinn, son, fyrir þremur ámm. Hann fór tvisvar í hjartaaðgerð til London með skömmu millibili. Einu og hálfu ári seinna eignuðust Valur og kona hans tvíbura. Annar tvíburinn reyndist með nákvæmlega eins hjartagalla og bróðursonur Vals en möguleikamir á því að slíkt geti gerst er einn á móti tveimur milljónum og 250 þúsund samkvæmt mati lækn- isfræðinnar. Sonur Vals er að fara í sína aðra hjartaaðgerð um mánaðamótin en hann hefur legið inni á spítala meira og minna síðasta árið. Þetta hefur verið erfiður tími fyrir fjölskyldumar, álagið hefur verið mikið og þau hafa fengið ótrúlega mikinn stuðning alls staðar að sem hefur fleytt þeim yfir erfiða hjalla. Mikið hefur verið á þau lagt enda hafa hjónin þörf fyrir að tjá sig um lífsreynslu sína til að getað miðlað öðmm foreldmm sem vonandi eiga ekki eftir að lenda í sömu erfiðleikum og þau. Blaðamaður heimsótti þá bræður í Reykjavík í síðustu viku. Viðtalið fór fram í íbúð Vals og íjölskyldu. Það fyrsta sem blasir við í stofunni er gömul en falleg mynd frá Eyjum. Þeir em ekkert annað en Vestmannaeyingar þrátt fyrir að hafa búið í Reykjavík stærri hlutann af ævinni. Og samrýmdir eru þeir, varla líður sá dagur að þeir hafi ekki sam- band. Þrátt fyrir að Valur og Öm hafi aðeins verið 6 ára þegar eldsumbrotin á Heimaey settu spor sín á íslandssög- una, minnast þeir margs frá æsku- árunum í Eyjum. Stefán í Gerði og fjölskylda bjuggu á Gerðisbraut 3, „mitt á milli Gísla Jónasar og Olla Tryggva og á móti Tóta í Geisla. Við þóttum frekar fjörugir peyjar. Æsku- félagar okkur voru Ágnar Guðnason, Viðar Einars málari, Siggi Olla, Gummi Gísla, Siggi og Jóhanna Alfreðsböm o.fl. Gosið var örlaga- valdur í lífi okkar því við fluttum aldrei aftur til Eyja eftir gos. Húsið okkar fór undir ösku og eyðilagðist og því fannst foreldrum okkar að þau gætu alveg eins byrjað upp á nýtt í Reykjavík. En við höfum verið dug- legir að fara út í Eyjar í gegnum tíðina enda býr þar mikið af ættingjum okkar. Sem peyjar fómm við alltaf um páskana, á sjó- mannadaginn, vomm eitthvað yfir sumarið og létum þjóðhátíð aldrei framhjá okkur fara,” segir Valur, sem er sölustjóri hjá kor- taútgáfunni Lit- brá. Eiginkona hans heitir Heið- björt Haðardóttir og er heimavinn- andi. Hún er ekki viðstödd viðtalið þar sem hún er hjá Val Pálma á sjúkrahúsinu. Öm starfar hjá Eim- skipum og sam- býliskona hans, Dóra Hauksdóttir, er heimavinnandi. Öm og Dóra em þessa dagana að undirbúa flutning til Akureyrar en Dóra er úr Eyjafirði. Valur og Öm, sem verða þrítugir á árinu, em kenndir við Gerði eins og faðir þeirra, Stefán Stefánsson og móðir, Vilborg Bryn- jólfsdóttir. Stefán vinnur í dag við Reykjavíkurhöfn. Eldri bræður tvíbu- ranna era Stefán og Brynjólfur. Dóra segir tvíburabræðuma mjög samrýmda. „Þeir verða að talast við á hverjum degi og hafa marga líka takta.” Bræðumir bæta því við að faðir þeirra hafi ekki þekkt þá í sundur fyrstu árin. Þegar annar þeirra gerði eitthvað af sér sluppu þeir við skamm- ir því það átti jafnt yfir báða að ganga. Síðustu árin eftir að þeir fóm í sambúð með konum sínum hafa þeir vaxið eilítið í sundur en samt sem áður em þeir mjög nánir og erfiðleikar undan- farinna ára hafa þjappað þeim saman og báðum íjölskyldunum. Hjartagallinn uppgötvaðist í sónar Mánuði áður en Haukur Þór, fmm- burður Amar og Dóm fæddist, fór Dóra í sónar. Þar kom í ljós óreglu- legur hjartsláttur og var ákveðið að leita til sérfræðings, Hróðmars Helga- sonar. í ljós kom að kúlubúinn var með hjartagalla, opið var á milli hjartahólfa. „Þetta var mikið áfall fyrir okkur en við gerðum okkur ekki grein fyrir því hversu alvarlegt þetta var fyrr en strákurinn var fæddur og það þurfti að laga gallann. Haukur Þór fæddist 2. október 1993 og var vel fylgst með honum af læknum. Okkur var sagt að hann þyríti að fara í aðgerð þegar hann yrði 14 til 18 mánaða gamall,” segir Öm. Ágætlega gekk með Hauk Þór Hjartveiku bræðrasynirnir, Valur Smári og Haukur Þór. fýrstu þrjá mánuðina og hann dafnaði vel. Þann 12. janúar ‘94 fóm þau með hann í skoðun til hjartalæknis og fékk hann sitt fyrsta kast í þeirri heimsókn. Haukur Þór var samstundis lagður inn á sjúkrahús og aðeins fimm dögum seinna var flogið með hann til London í hjartaaðgerð, rúmu ári fyrr en ráð var fyrir gert. „Við vomm alls ekki undir þetta búin. Allt bar að með svo skömmum fyrirvara. Við vomm aðeins búin að segja okkar nánustu frá hjartagalla Hauks Þórs og því kom flatt upp á marga þegar við tilkynntum að við væmm að fara með hann til London í aðgerð. Þessar fréttir komu sem kjafts- högg á kunningja okkar því við höfðum ekki látið þá vita. En það hjálpaði okkur mikið að einn vin- nufélagi minn hjá Eimskipum hafði eignast hjartveikt bam ári áður og hann gat gefið okkur góð ráð. Hann sagði okkur m.a. að okkur ætti eftir að bregða eftir hjartaaðgerðina því strákurinn myndi líta illa út með skurðinn og allar slöngumar,” segir Öm. Hróðmar hjartalæknir og hjúkmnar- fræðingur fóm með þeim út þann 17. janúar en Öm segist ekki muna eftir fluginu út. Upphaflega var ráð fyrir gert að þau yrðu úti í 10 daga en dvölin varð 6 vikur. Eftir hjartaþræðingu var bjartsýni töluverð en í fyrstu aðgerðinni var sett gervibót á milli hjartahólfa ásamt því að æðin að hjartanu var löguð. Öm segir að þrátt fyrir orð vinnufélagans hafi verið algjört kjaftshögg að sjá Hauk Þór eftir aðgerðina því hann hafi verið eins og útblásin blaðra. Aðgerð- in heppnaðist vel og var búið að panta ferðina heim þegar sýking komst í sárið. Haukur Þór var drifinn í aðra aðgerð sem fólst aðallega í því að hreinsa upp eftir fyrri aðgerðina. „Það var rosalegt sjokk fyrir okkur að fá þennan aftur- kipp,” segir Öm. Sýnilegt var að gervibótin úr fyrstu aðgerðinni dugði ekki og því þurfti Haukur Þór að fara í þriðju aðgerðina. Eitthvað lá á því hann var skorinn á sunnudegi, 13. febr- úar, en yfirleitt em aldrei aðgerðir á sjúkrahúsinu í London á þessum degi. Drifinn út öðru sinni í aðgerð Þegar þama var komið við sögu þoldi Valur ekki lengur við á íslandi eftir að hafa talað við bróðir sinn í síma og ákvað að drífa sig til London. Miklir fagnaðarfundir urðu þegar Valur kom út. Öm segist hafa hlaupið í fangið á honum því mikill stuðningur hafi verið í honum. Valur segist aldrei hafa getað ímyndað sér á þessari stundu að hann ætti eftir að standa í sömu spomm og bróðir sinn aðeins einu og hálfu ári seinna. Aðgerðin á Hauki Þór gekk mjög vel að þessu sinni. Sett var lifandi bót í stað gervibótar og strákurinn var fljótur að jafna sig. Viku eftir aðgerðina fengu þau að fljúga heim, 25. febrúar. „Við reyndum að vera bjartsýn allan tímann. Okkur fannst mjög erfitt að hringja heim þegar við fengum slæmu fréttimar, að Haukur Þór þyrfti Tvíburarnir frá Gerði, Valur (t.v.) og Örn. að fara í fleiri aðgerðir. Ættingjar heima á Islandi vissu að okkur leið illa þrátt fyrir að við reyndum að bera okkur vel í símanum,” segir Dóra. Haukur Þór lá í mánuð á Landspít- alanum eftir heimkomuna en var svo útskrifaður og átti að koma í skoðun mánaðarlega. Hann braggaðist vel. Um miðjan maí var farið með hann í sónar til Hróðmars og þá kom í ljós að bótin á milli hólfanna var orðin eins og blaðra. Hún var að springa og þrýsti á æðamar. Þetta var á fimmtu- degi og á sunnudeginum var flogið í annað sinn til London með Hauk Þór í hjartaaðgerð. „Þetta var ennþá meira áfall fyrir okkur. Okkur fannst sérstaklega erfitt að segja foreldrum okkar frá þessu. Haukur Þór var skorinn tveimur dögum eftir að við komum út og var sett ný gervibót. Aðgerðin gekk að óskum og við vomm komin heim nokkram dögum síðar. Okkur leið mun betur eftir þessa aðgerð og allt gekk betur. Við gerðum okkur þama grein fyrir því hvað hann var í raun og vem veikur eftir fyrstu aðgerðina í fyrri ferðinni. Eftir þessa aðgerð hefur allt gengið vel. Við fömm með Hauk Þór til Hróðmars í skoðun einu sinni á ári og hann þroskast eins og önnur böm,” segir Öm sem horfir á son sinn leika á gólfinu. Ekki er að sjá á Hauki Þór að hann hafi gengið í gegnum fjórar erfiðar hjartaaðgerðir á skömm- um tíma. Með ólíkindum er hversu litlir skrokkar geta verið sterkir og undur læknavísindanna eru mikil.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.