Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 09.05.1996, Síða 17

Fréttir - Eyjafréttir - 09.05.1996, Síða 17
Fimmtudagur 9. maí 1996 Fréttir Henni mun ég aldrei gleyma en Ghanabúar eru gott fólk og á margan hátt ekki ólíkir íslendingum þó lífs- skilyrðin séu allt önnur.“ Hefði ekki viljað missa af þessu Miðvikudaginn 24. apríl flaug Ingólfur heim á leið í gegnum Frankfurt í Þýskalandi og daginn eftir var hann kominn til Islands eftir rúm- lega sólarhrings ferðalag. „Það gekk á ýmsu á heimferðinni og þegar ég sá Astu (Finnbogadóttur konu mína) í gegn um glerið á Keflavíkurflugvelli rann loks upp fyrir mér að ég var kominn heim. Þessi ferð varð miklu erfiðari en mig gat órað fyrir og ég er ekki enn búinn að ná fullri heilsu. Þrátt fyrir það hefði ég ekki viljað missa af þessu. Þama fékk ég tækifæri til að kynnast heimi sem er svo gjörólíkur okkar og það eitt er reynsla sem maður kentur til með að búa að í framtíðinni," sagði Ingólfur að lokunt. Mörg hundruð manns tóku á móti Sæfelli þegar það lagðist að bryggju í Ghana. Ingólfur með eigendum Sæfells, Astman til vinstri og Nick til hægri. Þeir reyndust honum vel. í Ibeiirxii á Ibrei&tj aldi Kl. 14:00 á laugardag Manchester United & Liverpool Bikarúrslitaleikur r I tilefni bikarúrslitaleiksins bjóðum við upp á léttar veitinga á lágu verði Stór á boltaverði - 300 kr. Nýr Sighvatur Bjarna- son Vi kom um helgina Sighvatur Bjarnason VE við bryggju í Vestmannaeyjum. Sighvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri, og Geir Magnússon, stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar í brúnni á nýja skipinu. Nýr Sighvatur Bjarnason VE, sem Vinnslustöðin keypti í Noregi kom til landsins um miðnætti á laugar- dagskvöldið. Sighvatur Bjarnason er öflugt nóta- og togskip sem ber 1350 tonn í kælitönkum og getur verið með tvær nætur og flottroll um borð. Samkvæmt upplýsingum Sig- hvats Bjarnasonar, framkvæmda- stjóra, er aðalvél skipsins af Ber- gen Diesel gerð, 3020 hestöfl og er togkrafturinn 45 tonn. Til saman- burðar sagði Sighvatur að togkraftur Breka VE sé 27 tonn og Sindra VE 34 tonn. Hliðar- skrúfurnar eru 500 og 600 hestöfl. Lestarnar eru 1500 rúmmetrar og ber skipið 1350 tonn í kælitönkum en 1500 tonn af bræðslufiski. Auk þess er til staðar 200 rúmmetra rými sem hægt er að nota undir afla. Mesta lengd er 68,75 metrar og breidd 9,8 metrar. Sighvatur segist þess fullviss að Vinnslustöðin hafi gert góð kaup. „I fyrsta lagi hefur skipið verið í eigu sömu aðila frá upphafi og hafa sömu feðgamir verið um borð allan tímann. Það er með skip eins og bfla að einn eigandi eru meðmæli þrátt fyrir að aldurinn sé ekki sá vænlegasú," segir Sighvatur en skipið var smíðað í Noregi árið 1975. Skipið er mikið endumýjað. Aðalvél, allur vél- búnaður, rafbúnaður og spil eru frá árinu 1987. Umgengni um skipið er með ágætum og aðbúnaður fýrir áhöfn er góður. Blakkarbúnaður er frá árinu 1994 og fiskleitar- og siglingatæki em meira og minna ný- leg. „Þama emm við því með öflugt skip með góðum aðbúnaði og vinnu- aðstöðu fyrir áhöfnina." Veiði á uppsjávarfiski, loðnu og sfld, hefúr á undanfömum ámm orðið meira ráð- andi í rekstri Vinnslustöðvarinnar. Með kaupum á þessu skipi er stigið enn eitt skrefið þessu til staðfestingar. „Sighvati verður haldið úti allt árið. Hann fer til veiða úr norsk-íslenska sfldarstofninum og í haust verður það Suðurlandssfldin. A vertíðinni verður skipið á hefðbundnum loðnuveiðum. Auk þess er meiningin að leita eftir öðmm tegundum eins og kolmunna, makríl og fleiri tegundum. Þar em miklir möguleikar sem við þurfum að nýta okkur. Takist það er ég viss um að verkefni verði næg fyrir skipið allt árið um kring.“ Með nýju skipi er ætlunin að auka arðsemi land- vinnslunnar, lengja vinnslutímann og jafnframt svara kröíú markaðarins um ferskara hráefni. „í kæli- tönkunum er hægt að geyma hráefni í allt að fimm til sjö daga þannig að það er ekkert því til fyrirstöðu að sigla með sfld af Austfjarðamiðum og vinna hana til manneldis hér í fyrirtækinu. Það em því ekki bara sjómenn sem njóta góðs af þessari fjárfestingu, hún á líka að skapa fólki í landi meiri og stöðugri vinnu. Strax í maí fer skipið á sfld og ætlum við að koma með hana til vinnslu í Eyjum. Seinna í sumar, þegar sfldin hefur styrkst og fengið meiri búkfitu, verður vonandi hægt að flytja hana heim í vinnslu til manneldis.“ „Við munum mæta þessari fjárfestingu með sölu annarra eigna en ég get eldd tilkynnt hverjar þær verða á þessari stundu,“ segir Sighvatur en það er þó ekki aðalatriðið að hans mati. „Is- lendingar hafa dregist aftur úr í vinnslu á uppsjávarfiski á undan- fömum ámm. Með jressu skipi emm við stíga skref inn í nútímann sem á eftir að koma fyrirtækinu, starfsfólki, eigendum og Vestmannaeyjum til góða. Það skiptir mestu þegar upp er staðið," segir Sighvatur að endingu. Skipstjóri er Guðmundur Svein- bjömsson, stýrimaður Halldór Jörgen Gunnarsson og yfirvélstjóri Bergvin Jónsson. Guðmundur Svein- björnsson skipstjóri: Eins og að fara afbát yfiráskip -segir hann um muninn á þeim gamla og nýja. Guðmundur Sveinbjörnsson, sem tekur við skipstjórn á Sighvati Bjarnasyni VE, segir það spenn- andi verkefni. „Það leggst vel í mig og ég er orðinn mjög spenntur. Ég segi eins og góður skipstjóri sagði einu sinni, að mun- urinn væri eins og að fara af báti yfir á skip,“ sagði Guðmundur þegar hann var spurður um muninn á gamla og nýja Sighvati. „Sjóhæfni, vélar- orka og burðargetan er miklu meiri og svo em kælitankamir mikill plús.“ Guðmundur fór einn túr með fyrri eigendum á kolmunatroll og segir hann að sér hafi strax líkað vel við skipið. „Við fengum brælu á út- leiðinni en við fundum ekki mikið fyrir henni og aldrei fómm við undir tíu mflum. Á heimleiðinni gekk hann að meðaltali 13 sjómflur og sögðu vélstjóramir að aðeins hefði verið keyrt á 2200 hestöflum af 3000 sem þeir hafa yfir að ráða,“ sagði Guðmundur að endingu. Vinnslustöðin gerír þann gamla úf í sumar Vinnslustöðin VE hefur selt gamla Sighvat Bjarnason til Ú.D; Vest- mannaeyjum sem tengist Útgerð- arfélagi Dalvíkur. Ákveðið er að Vinnslustöðin geri hann út í sumar og verður Magnús Jónasson skipstjóri. Magnús verður stýrimaður á Sighvati nýja þegar sá gamli kveður. Búið er ganga frá úreldingu vegna nýja skipsins. Era það skuttogarinn Kambaröst SU, Klara Sveinsdóttir eldri og trillan Hugborg sem verða úreld.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.