Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 14.11.1996, Qupperneq 4

Fréttir - Eyjafréttir - 14.11.1996, Qupperneq 4
Fréttir Sælkeri vikunnar - Kristmann Karlsson Hversd Við félagar í kór Landakirkju, makar okkar og annað samferðafólk í ferð okkartil austurlanda tjær, urðum þeirrar ánægju aðnjótandi að fá sem fer- ðafélaga, Erlend Jónsson og konu hans, Hönnu Maríu. Eftir þau kynni, frásagnaranda og fræðslu um hin ýmsu mál, mátti svo sem búast við hinu óvæntasta frá hans hendi. En það að skora á mig sem sælkera vikunnar, það er nú toppurinn á hans mjög svo frjóu hugsun. Ég sem elda aldrei og þá meina ég aldrei. En hún Kristín mín hefur nú bjargað mér úr öðru eins og var ekki lengi að hjálpa mér með þetta. Vandinn með mig og ntat er að ég borða allt of mikið af öllu! agslegt Eggjahvítur og sykur þeytt vel saman, smátt skomar, döðlur og súkkulaði, lyftiduft og kartöflumjöl sett varlega í. Bakað í 60 mín. við 150 gráðu hita. Gott er að nota Ice Magic íssósu til að skreyta tertuna. Hægt er að búa til alls konar mynstur. Á ntilli botnanna eru settir 5 dl rjómi og heil dós jarðarber. Safrnn er látinn leka vel af þeint, þau stöppuð og hrærð saman við rjómann. Svo látum við fylgja með handa bör- nunum uppskrift af SÝRÓPSVÍNAR- BRAUÐUM. Og þar sem nafnið fer illa í ntunni lítilla Ibama, en bragðast afar vel, þá er þetta bara kallað Svínabrauð á okkar heimili. 200 gr smjörlíki 200 gr sykur 1 eggjarauða 1 msk. sýróp 1/2 tsk. kanill 1 tsk. vanilludropar 1 tsk. matron 300 gr hveiti Hnoðað og búnar til lengjur sem er bara ýtt niður með fingri á plötuna. Sem sælkera næstu viku skora ég á eldavélasalann og þúsundþjala smiðinn, sem er alltaf með TRÉVERK, Garðar Björgvinsson. Fljótlegur og góður hversdagsréttur sem við köllum bara: GRJÓNAFISK 2-3 dl hvít grjón ýsuflak I pk. beamaisesósa Aromat krydd Ostur Grjónin eru soðin, sett í ofnfast fat, fiskbitamir lagðir ofan á, kryddað með arómat. Sósan löguð og hellt yfír. Ostur settur ofan á. Hitað í ofni við 200 gráður í ca. 30 mín. JARÐABERJATERTA 4 eggjahvítur 200 gr sykur 100 gr döðlur lOOgr suðusúkkulaði 1 tsk. lyftiduft 1 tsk. kartöflumjöl ORÐSPOR - ORÐSPOR ■ Sumir eru seinheppnari en aðrir. Þannig er lífið. Elli Friðriks sjúkraþjálfari er einn af þeim. Um daginn fór hann í kaffi á sjúkrahúsinu, fékk sér kaffitár og kökusneið og hitti í leiðinni yfirmann tæknideildar sjúkrahússins og fór að spjalla um heima og geima. Þeir röltu fram á gang og upp stigann á aðra hæð þar. Enn hélt Elías á kaffibollanum og kökud- iskinum og því spurði yfirmaður tæknideildar Elías hvað hann ætlaði að gera við þetta. - Æ já, ég ætlaði víst að borða þetta í matsalnum, ég bara gleymdi því, sagði Elías. Og nú segja gárungar að unnusta Elíasar safni saman leirtaui heima hjá sér eftir Elías sem hann kemur óvart með heim af sjúkrahúsinu og skilar aftur í eldhúsið á nokkurra vikna fresti... • Ingvar í Skógum hefur sérleyfi á tónlistarviðburðum að panta aukalög. Yfirleitt hefur hann gert það í lok tónleikanna. En á styrktarfélagatónleikum Lúðrasveitar Vm. um síðustu helgi lá óvenju vel á Ingvari því eftir aðeins eitt lag ávarpaði hann tónleikagesti, skammaði þá sem ekki höfðu mætt og bað um endurtekningu á fjórða laginu sem spilað væri eftir hlé.... Verkakonur langþreyttar á lágum launum Atvinnulífið hefurfengið vítamín- sprautu upp á síðkastið með tilkomu silfurs hafsins, síldarin- nar. Verkakonur í Verka- kvennafélaginu Snót eru hins vegar aldeilis ekki á því að þær fái eitthvað silfur fyrir vinnu sína heldur þykir launin skammarleg. Um næstu áramót verða samningar lausir. Snótarkonur ætla ekki að láta samningsumboðið frá sér fara heldur ætla að semja heima í héraði. Nýrformaður Snótar er Linda Björk Hrafnkelsdóttir. Hún verður væntanlega í sviðsljósinu á næstunni og sýnir Eyjamönnum á sér hina hliðina að þessu sinni. Fullt nafn? Linda Björk Hrafnkelsdóttir. Fæðingardagur og ár? 27. ágúst 1961. Fæðingarstaður? Reykjavík. Fjölskylduhagir? Gift Guðjóni Egilssyni. Við eigum þrjú börn, Guðbjörgu Mörtu, Jökul Andra og Inga Hrafn. Menntun og starf? Hætti námi eftir tvær annir í öldungadeild. Laun? Laun eru allt of lág á íslandi. Helsti galli? Helli aldrei upp á kaffi fyrir varaformanninn. Helsti kostur? Þrjóska (enda ekki enn farin að hella upp á kaffi fyrir varafor- manninn). Uppáhaldsmatur? Silungur úr T ungufljóti í V-Skaft. og lambalundir á a la Lanterna. Versti matur? Bjúgu og saltaður fýll. Uppáhaldstónlist? Allt nema klassík. Hvar myndir þú vera ef þú yrðir fluga á vegg í einn dag? Ég held ég þyrði ekki að vera fluga, vegna flugna- hræðslu, en ég held ég myndi láta mig hafa það ef ég sæi inn á borð hjá at- vinnurekendum yfir samningstímabilið. Uppáhalds stjórnmálamaður? Eldhús- og vinnustaðapólitíkusar. Uppáhalds íþróttamaður? Gunnar Svali + Sæunn Svala í torfæruakstri. Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Gildur meðlimur í Verkakvennafélaginu Snót. Hvert er eftirlætissjónvarpsefnið þitt? Þegar atvinnurekendur koma í kippum í sjónvarpið og segjast ekki getað hækkað launin (sniff, sniff). Hvaða sjónvarpsrás horfir þú mest á? Ég horfi á alla fréttatíma (því við megum ekki missa af grátkórnum). Annars horfi ég á Sky One þegar ekki eru fréttir. Uppáhaldsleikari? Tóti boy. Uppáhaldskvikmynd? Steven King myndir (horror). Uppáhaldsbók? Bankabókin hans Guðjóns. Hver eru helstu áhugamál þín? Kjaramál. Hvað metur þú mest í fari annarra? Húmor. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Leikaraskapur. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Tungufljót í Vestur-Skaft. og útsýnið í vissum eldhúsglugga hér í bæ. Hvernig hefur haustið verið atvinnu- lega séð hjá verkakonum í Snót? Misjafnt en virðist heldur vera að glæðast með síldinni. Hvað gerið þið við samningsumboð ykkar í Snót? Við látum það ekki frá okkur. Hverjar eru kröfur ykkar í samningunum? Númer 1,2 og 3, beinartaxtahækkanir. Sérðu fram á að það verði verkfalls- átök um áramót? Ekki er hægt að segja til um það fyrirfram. En fólk er orðið langþreytt á þessum lágu launum. Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir þessi orð: - Síld? Meiri vinna en áður. - Verkakvennalaun? Til háborinnar skammar. - Kjarasamningar? Von um launa- hækkun. - Eitthvað að lokum? Baráttukveðjur til allra félagskvenna. ÞoGu Fimmtudagur 14. nóvember 1996 Búið að opna „Jóla-Oddinn" Á undanlörnuni árum hefur það verið árvíst í nóvember að verslunin Oddurinn hefur fært út kvíarnar og opnað aðra verslun til viðbótar þeirri giirnlu og góðu við Strandveginn. Á laugardag í síðustu viku var opnuð ný verslun að Bárustíg 1 þar sem veitingastaðurinn Calypso var áður. Raunar er þarna um gamalgróið versiunarhúsnæði að ræða, Kaupfélagið hafði þar byggingarvöruverslun og Páll krati rak veiðarfæraverslun í húsinu um margra ára skeið. Katrfn Magnúsdóttir í Oddinum sagði að þau hefðu þennan hátt á, að opna nýja ver- slun, til að létta á þegar tæki að nálgastjól. Mikið bættist við af vörum, svo sem nýjum leik- föngum og gjafavöru auk jólavöm og föndurvöru sem væri að verða æ fyrirferðarmeiri. Því tækju þau þennan kost, að opna „Jóla-Oddinrí’ og húsnæðið að Bámstíg 1 væri mjög rúmgott og þægilegt á allan hátt. Katrín sagði að mikið hefði verið að gera, strax á laugardag þegar opnað var. Þegar er komið mikið af leikföngum og jólavöru en meira væntanlegt og jólalistinn með jólaleikföngunum verður borinn út síðar í þessum mánuði. Myndin var tekin í Jóla-Oddinum á þriðjudag. Nýfazddir Vestmannaeyingar Stúlka Þann 9. október sL eignuðust Sólveig Anna Gunnarsdóttir og Þorvaldur Heiðarsson dreng sem hefur verið skírður Eyþór Örn. Hann vó 15 merkur og var 51 sm. Systkinin Gunnar Heiðar, Berglind Björg og Björgvin Már eru einnig á myndinni. Ljósmóðir: Guðný Bjarnadóttir Stúlka Þann 10. nóvember sl. eignuðust Harpa Ósk Rafnsdóttir og Jakob Smári Erlingsson stúlku. Hún vó 14 merkur og var 52 sm. Ljósmóðir: Drífa Björnsdóttir Drengur Þann 5. nóvember sl. eignuðust Ágústa Salbjörg Ágústsdótfir og Ósvald Tórshamar Alexander dreng. Hann vó 16 merkur og var 54 sm. Systkinin Hildur Rán og Alexander Páll eru einnig á myndinni. Ljósmóðir: Guðný Bjarnadóttir.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.