Fréttir - Eyjafréttir - 14.11.1996, Page 6
SPURT&SVARAÐ:
Bara
mættur á
svæðið?
Ólafur „Blö“ Harðarson,
HEJMSHORNAFLAKKARi:
„Já. Ég fór til Noregs með
Herjólfi en hálfur mánuður
var alltof stuttur tími fyrir
mig. Ég keyrði um alla
Skandinavíu, upp til
Finnlands en þar var auðvelt
að villast því allt var illa
merkt. Ég fór meira að segja
einn túr á norskum togara en
heldur var nú veiðin dræm.
Ég keyrði 10 þúsund kíló-
metra og kom víða við. Þetta
var Ijúft. Ég setti bílinn svo í
gám og hann er á leiðinni
með flutningaskipi til
landsins."
Ólafur fór með Herjólfi til
Noregs í október en kom til
landsins í lok síðustu viku
Jólakortasala
Kvenf. Líknar
Ágætu bæjarbúar!
Senn líður að jólum. Eins og
venjulega munu Líknarkonur fara
af stað með sína árlegu jólakorta-
sölu. Það var árið I980 sem
Kvenfélagið Líkn stóð fyrir
bæjarsöfnun og safnað var fyrir
sónartæki sem gefið var til
sjúkrahússins. Nýlega bilaði
ómhausinn í sónartækinu og emm
við búnar að kaupa nýjan sem
kostaði 330.924 kr. og ætti þá
sónartækið að vera komið í lag.
Það er von okkar að bæjarbúar taki
vel á móti félagskonum, eins og
ávallt áður, með því að kaupa
jólakort Kvenfélagsins Lfknar.
Styrkið okkur í starfi því alltaf er
þörfin mikil og margt smátt gerir
eitt stórt. Allur ágóði rennur í
Sjúkrahússjóð félagsins.
Einnig verða iólakortin seld í
verslunum KA Goðahrauni,
skóverslun Axel Ó, bensínsölunni
Kletti og Kránni Boðaslóð.
Með bestu kveðjum og fyrirfram
þökk.
Kvenfélagið Líkn
Fréttir
Fimmtudagur 14. nóvember 1996
Leikfelag Vestmannaeyja:
Klárað að koma
niður hrmgsviðinu
- og revía úr bæjarlífinu verður sýnd eftir áramót
rj ratt fyrir að Leikfelag
Vestmannaeyja hafi ekki sett
upp stykki í haust hefur verið nóg
um að vera í féluginu. Ákveðið var
að leggja áherslu á að ljúka upp-
setningu á hringsviði í haust og
standa framkvæmdir yfir þessa
dagana. Eftir áramót er svo ráðgert
að setja upp revíu úr bæjarlífinu
sem innanbúðarfólk í LV er að
leggja drög að þessa dagana.
Samkvæmt upplýsingum frá for-
manni LV verður hringsviðið rúmir 6
metrar í þvermál. Hringsviðið hefur
verið notað ofan á gólfinu til
bráðabirgða í nokkur misseri og verið
snúið með handafli. Hringsviðið
verður nú sett ofan í gólfið.
Vélsmiðjan Þór hannar og smíðar
undirstöður, grindur og drif ásamt Þór
Engilbertssyni sem sér um tréverk.
Framkvæmdir þessar eru kostn-
aðarsamar fyrir fátækt félag. En með
góðri aðstoð einstaklinga, fyrirtækja,
tómstundafulltrúa, bæjarfélagsins og
dugnaði fjáröflunamefndar LV með
fömneyti Fríðu Sigurðardóttur í farar-
broddi, munu endar vonandi ná
saman. Að sögn formanns LV mun
nýja hringsviðið gefa aukna mögu-
leika á hraðri skiptingu, fjölbreytni í
leikmyndagerð o.fl.
En það er fleira skemmtilegt að
gerast hjá LV. Nú er LV að fara af
stað með leiklistamámskeið fyrir unga
og aldna. Þetta er tíu stunda námskeið
í tjáningu og framsögn og er verði
stillt mjög í hóf eða aðeins kr. 800
fyrir hvem einstakling. Undirtektir
hafa verið frábærar og fjölmargir hafa
látið skrá sig. Fundað verður með
væntanlegum nemendunt í kvöld kl.
20.30 í leikhúskjallaranum. Nám-
skeiðin hefjast nk. laugardag.
Leiðbeinandi verður Guðjón
Sigvaldason leikstjóri.
Stjóm LV er nú farin að huga að
næsta verkefni félagsins. Þar er efst á
blaði ný revía úr bæjarlífinu á nýja
hringsviðinu. Hugmyndir eru uppi að
hún fá nafnið Hringavitleysa. Stefnt er
að fmmsýningu eftir áramót.
- ÞoGu
Varúðf vírus!
Vorið 1994 uppgötvaðist nýr
ræsigeiravírus sem kallaður hefur
verið J&M vírusinn. Vírusinn fer í
gang þegar dagsetning vélarinnar
sýnir 15. nóvember og keyrir þá
vírusinn endalaust í hring og fors-
níður ákveðinn hluta harðdisksins.
J&M víms hefur verið ótrúlega lífs-
seigur hér í Eyjum og varla líður sú
vika að starfsmenn Tölvunar rekist
ekki á hann. Sú staðreynd segir raunar
margt um þann undirheim forrita-
viðskipta sent viðgengst hér í Eyjum
og má búast við því að margur
Eyjamaðurinn vakni upp við vondan
draum í fyrramálið hafi hann ekki
gripið til viðeigandi ráðstafanna.
En hvað er til ráða? Einfaldasta
lausnin er að kveikja ekki á vélinni
þann 15. Nóvember. En ekki getur það
talist endanleg lausn þvf ef vélin er
smituð, þá heldur hún einfaldlega
áfram að smita hvem þann diskling
sem í hana kemur og dreifir sér þannig
og þegar 15. nóvember rennur næst
upp, lætur vímsinn til skara skríða!
Tölvun hefur boðið viðskiptavinum
sínum upp á vímsleit, og er nt.a. hver
einasta vél sem kemur til viðgerðar hjá
fyrirtækinu vímsleituð í leiðinni. ÞoGu
Skjaldbaka á Fiska- og náttúrugripasafninu
Smkeppni m natn
Fyrir skömmu gáfu hjón úr Reykjavík Fiska- og náttúrugripasafninu
skaldböku. Er þetta fyrsta skjaldbakan sem safnið eignast
Skjaldbökuna vantar gott íslenskt kvenkyns nafn. Því hefur safnið beðið
alla krakka í Vestmannaeyjum að taka þátt í samkeppni til að hjálpa að finna
skemmtilegt nafn á skjaldbökuna. Hún er til sýnis á safninu á opnunartíma,
laugardaga og sunnudaga frá kl. 15-17. Á sama tíma eru þátttökuseðlar af-
hentir og nánari upplýsingar um skilafrest. Höfundur að skemmtilegasta
nafninu, að mati dómnefndar, fær í verðlaun frítt í safnið í eitt ár.
- ÞoGu
LÚÐRASVEIT
VESTMANNAEYJA:
ÁRLEGIR
STYRKTARFÉLAGA-
TÓNLEIKAR
Styrktarfélagatónleikar
Lúðrasveitar Vest-
mannaeyja sem haldnir
voru í safnaðarheimilinu
sl. laugardag, voru lík-
lega bestu tónleikar
sveitarinnar í mörg ár.
Svo góðar voru undir-
tektimar að tónleika-
gestir risu úr sætum og hylltu flytj-
endur.
Efnisskráin var óvenju fjölbreytt að
þessu sinni, allt frá þemum úr söng-
leikjum og upp í þjóðhátíðarlög. Það
sem vakti hvað mesta athygli voru
nýjar útsetningar Ellerts Karlssonar á
tveimur lögum Oddgeirs Kristjáns-
sonar sem ekki hafa áður verið útsett
fyrir lúðrasveit. Það voru lögin „Ungi
vinur“ og „Góða nótt“. Var sérlega
ánægjulegt að hlýða á flutning
Lúðrasveitar Vestmannaeyja á þessum
fallegum lögum sem allt of sjaldan
heyrast. Oddgeir endurvakti
Lúðrasveit Vestmannaeyja 1939 og
var stjómandi og frumkvöðull á meðal
hann lifði. Oddgeir lést árið 1966 en
hann hefði orðið 85 ára 16. nóvember
nk.
Meðal annarra skemmtilegra laga
má nefna Trumpettango, The
Entertainer og Michelle. Lúðrasveitin
hefur haft fyrir sið að flytja
þjóðhátíðarlag ársins. Því miður hafði
þjóðhátíðarlagið í ár ekki verið útsett
fyrir lúðrasveit að þessu sinni. í stað
þess lék lúðrasveitin þjóðhátíðarlagið
1976 sem þúsundþjalasmiðurinn
Sigurður Óskarsson samdi á sínum
tíma en hann var einmitt viðstaddur
tónleikana að þessu sinni.
Lúðrasveit Vestmannaeyja hefur
ekki verið eins fjölmenn í mörg ár.
Alls léku 29 manns á tónleikunum að
þessu sinni undir stjóm Stefáns
Sigurjónssonar. Trompetleikurinn var
mjög sterkur að þessu sinni og þá var
gaman að heyra ýmsar nýjungar í
slagverki í meðferð Friðsteins
Vigfússonar og Jóns Kristins
Sverrissonar. Stjómandinn Stefán er
sérlega skemmtilegur í kynningum
sínum á lögum og með húmorinn í
lagi.
Um þriðjungur Lúðrasveitar
Vestmannaeyja er að mestu skipaður
Vestmannaeyingum sem búa uppi á
landi og koma þeir ár eftir ár til að
leggja sveitinni lið á styrktarfélagatón-
leikum hennar. Er ánægjulegt að sjá
hversu mikilli tryggð þeir halda við
sína heimabyggð og Lúðrasveitina
með þessurn hætti.
Flutningur sveitarinnar var með
miklum ágætum. Henni óx ásmegin
eftir því sem leið á tónleikana og hún
náði sér á virkilegt flug í lokin.
Hverju sveitarfélagi er nauðsynlegt
að hlúa að menningarstarfsemi.
Lúðrasveit Vestmannaeyja skipar
stóran sess í menningarlffi okkar
Eyjamanna. Sú flóra væri án efa miklu
fátækari ef hennar nyti ekki við.
Vonandi mun Lúðrasveit Vest-
mannaeyja vaxa og dafna í
framtíðinni. Bestu þakkir fyrir góða
skemmtun.
ÞoGu