Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 14.11.1996, Page 9

Fréttir - Eyjafréttir - 14.11.1996, Page 9
Fimmtudagur 14. nóvember 1996 Fréttir Hann lætur dæluna ganga / „Eg er kóngur í ríki mínu. Það er enginn sem skiptir sér af mér, ef nóg er af vatni þá er allt í lagi” segir Gunnar Marmundsson vélvirki, starfsmaður Bæjarveitna Vestmannaeyja. Hann annast allt viðhald á vatnsleiðslunni til Vestmannaeyja, þeim hluta sem liggur á fastalandinu. Vinnustaður hans nær yfir 21,5 kílómetra, frá Syðstu-Mörk í norðri niður í flæðarmál á Landeyjarsandi. Gunnar á Hlíðarenda reið um héruð til foma, þau sömu og eru vinnusvæði nafna hans Marmundssonar frá Hvols- velli. Reiðskjóti þess síðarnefnda er hins vegar jeppi enda er hætta á að lítið yrði úr verki ef hann færi um á hesti eins og hinn fomi kappi. Gunnar minnir á ýmsan hátt á hraustmenni íslendingasagnanna þótt ekki stökkvi hann hæð sína í öllum herklæðum. Hann vílar ekki fyrir sér að vippa 120 kflóa römm þegar svo býður við. Viðhald vatnsleiðslunnar krefst mikillar verkkunnáttu, þolinmæði og ósérhlífni. Gunnar býr yfir þessu öllu og segja má að hann sé sannkallaður „alltmúligmann”. í starfi hans felast allar við- gerðir á leiðsl- unni bæði ofan og neðan jarðar á 21,5 kflómetra kafla. í hans verka- hring er einnig að sjá um að nægu vatni sé dælt út í Eyjar. Því stjómar Gunnar í dælustöð er liggur syðst á Landeyjasandi. Þar eru stórar, kraftmiklar og hávaðasamar vélar sem þarfnast reglulegs við- halds og eftirlits og þá þarf kunnáttu á sviði rafvirkjunar. I lausu lofti Gunnar hefur ákveðna skoðun á þeirri ráðstöfun að reisa dælustöðina þar sem hún er því svartur sandur umlykur hana á alla Þetta var ódýrasti kosturinn os því varð hann ofan Sandurinn hefur með tímanui safnast fyrir dyrnar sem ætlaðar sem aðalinngangur í stöðina. Gunnar leysti það mál með því að reisa stiga upp á aðra hæð sem er ekki ætlaður lofthræddu fólki. Gunnar hefur einnig komið að vinnu- jeppanum sínum að lokinni vinnu í lausu lofti því fokið hafði undan öllum fjómm hjólunum. Hann reynir að forðast þetta með því að leggja bflnum alltaf í skjóli frá sandfokinu. Stundum kemst Gunnar ekki í burtu og þá hefur hann lítið herbergi sem í er beddi, útvarp og sjónvarp, til að halla sér í. Dælustöðin er steinsteypt en þolir samt illa ágang sandsins. Til að spoma gegn áganginum þarf Gunnar að klæða austurgaflinn á ftmm ára fresti. Draugagangur á sandinum Gunnar segir að fyrstu 15-20 árin hafi honum liðið vel í starfi en hin síðari ár hefur þetta starfi og þá helst þegar hann fer að kvöldi til niður í dælustöðina. Þá eykur svartur sandurinn á myrkrið og hrollvekjandi hljóð berast frá sand- auðninni. Þegar hann er einn á ferð, fjarri mannabyggð, magnast þessi hljóð og vekja með honum óhug. Á ferðum sínum í dælustöðina hefur hann einnig lent í annars konar vandræðum. I einni ferðinni fór hann niður um ís á jeppanum þannig að vatnið náði upp undir bíl- breyst. Hann finnur miklu meira til þeirrar ábyrgðar sem á honum hvflir því hann er sá eini sem sinnir þessu starfi. Vatnsleiðslan er sú eina sinna tegund- ar á íslandi og því getur hann ekki leitað til neinna annarra um stuðning og aðstoð við að leysa þau vandamál sem upp koma í starfinu. Að halda dælunum gangandi stendur því og fellur með honum. Gunnar viðurkenn- ir að stundum verði hann einmana í stjórasætið. Gunnar brást við þessu með fullkomnu æðruleysi, gekk heim á bæ, náði þar í traktor og dró jeppann upp úr ísnum. Fallegasta málverkið Allsérstakt málverk er í dælu0- stöðinni sem Gunnari þykir fjarska- lega vænt um. Það er fallegasta málverk sem hann hefur augum litið. Á suðurhlið stöðvarinnar er hleri sem hann opnar með miklu stolti og við blasa Vestmannaeyjar í allri sinni dýrð. Kostir málverksins eru miklir vegna síbreytileika þess. Gunnari finnst málverkið hvað fallegast þegar sólin er hvað lægst á lofti í desember og svo virðist sem hún liggi í eyjunum, milli Heimakletts og Eldfells. Vinnutíminn hjá Gunnari er langur „frá I. janúar til 31. desember ár hvert”. Þegar eitthvað bilar í leiðslunni fer sjálfvirkt símboðakerfi í gang. Eina leiðin til að stöðva þessar hringingar er að fara niður í dælustöðina. Engu máli skiptir hvort um er að ræða jól, páska, dag eða nótt, sól eða stórhríð, starfið kallar og hann getur ekki skotið sér undan að sinna því. Hann segist reyndar hafa leyft sér að taka frí í mánaðartíma á stundum og þá hefur sonur hans leyst hann af. Starfið hefur líka orðið að litlu fjöl- skyldufyrirtæki. Þegar stór bilun varð á leiðs- lunni árið 1988 var það fjöl- skyldan sem kom honum til hjálpar, kona, dóttir og sonur. Sá eini sem ekki var úr fjöl- skyldunni var gröfumaðurinn. Það er ekki hægt að skilja við þennan sérstaka mann án þess að forvitnast um föðurnafn hans, Marmundur. Það er þannig til komið að þegar amma hans gekk með föðurinn missti hún bæði bróður sinn Guðmund og systur sína Margréti. Gamla konan setti þessi tvö nöfn saman og úr varð Marmundur. Enginn annar íslendingur hefur borið þetta nafn. Jóhanna Magnúsdóttir Minning látinna haldin í Landa- kirkju Miðvikudagskvöldið næsta, þann 20. nóvember, kl. 20.20, niun fara frarn látlaus athöfn í Landakirkju sem við nefnum núnningu látinna. Við það tækifæri eru nöfn allra þeiiTa, sem látist hafa á liðnu ári, lesin upp við altari kirkjunnar. Svo gefst syrgjendunt kostur á að ganga fram og kveikja á keiti, í bæn fyrir ástvini sínum. Sálmur verður sunginn og blessun flutt. Að lokinni athöfninni gefst syrgjendum kostur á að ganga yfir í safnaðarheimilið þar sem Sjálfshjálparhópur um Sorg býður upp á stutt erindi og umræður um sorgina. Er þetta í þriðja sinn sent Minning látinna er gerð með þessum hætti og hefur það orðið mörgum syrgjendum til blessunar. Viljum við benda fólki á, sem misst hefur ástvin fyrir meira en áiri eða hafi útför farið fram annars staðar, að vilji þau láta nefna nöfn ástvina sinna við athöfnina, tökum við prestarnir fúslega við slíkum beiðnum. Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn Bolladóttir

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.