Fréttir - Eyjafréttir - 14.11.1996, Qupperneq 18
LANDAKIRKJA
Fimmtudagur 14. nóvember
11.00 Kyrrðarstund á Hraunbúðum
17.00 TTT fundur fyrir 10-12 ára.
Sunnudagur 17. nóvember
11.00 Sunnudagaskólinn.
14.00 Almenn Guðsþjónusta.
- Bamasamvera meðan á predikun
og altarisgöngu stendur.
- Messukaffi og „kirkjudjús" á eftir
15.15 Almenn Guðsþjónusta á
Hraunbúðum
20.30 KFUM&K Landakirkju
- Unglingafundur
Mánudagur 18. nóvember
20.00 Kvenfélag Landakirkju
heldur saumafund.
20.30 UHF fundar í KFUM & K
húsinu. Fyrir 15-20 ára.
Þriðjudagur 19. nóvember
16.00 Fermingartímar. Bamaskóli.
17.00 Kirkjuprakkarar. Fundur
fyrir 7-9 ára.
20.00 Fullorðinsfræðslan í
KFUM&K húsinu
Miðvikudagur 20. nóvember
10.00 Mömmumorgunn.
12.10 Kyrrðarstund í hádegi.
Einfalt, fljótlegt og innihaldsríkt!
16.00 Fermingartímar.
Hamarsskóli.
20.00 KFUM & K húsið opið
unglingum.
20.30 Minning látinna
- Á hljóðri bænastund em nöfn
þeirra nefnd sem látist hafa og
verið jarðsungnir frá Landakirkju
síðastliðið ár. Einnig taka prestar
fúslega við nöfnum þeirra sem
látist hafa fyrr, sé þess óskað. Að
lokinni athöfninni er heitt á könn-
unni í safnaðarheimili þar sem
Sjálfshjálparhópur um Sorg býður
upp á stutt erindi og umræður um
sorgina (sjá fréttatilkynningu).
Hvítasunnukirkjan
Fimmtudagur
20.30 Biblíulestur. Um handleiðslu
Guðs!
Föstudagur
17.30 Krakkaklúbburinn. Öllböm
velkomin, 3-8 ára.
20.30 Samkoma fyrir ungt fólk.
Laugardagur
kl. 20.30 Bænasamkoma.
Ræða: Mike Bellamy.
Sunnudagur
15.00 Vakningarsamkoma!
Ræðumaður Mike Bellamy frá
Keflavíkurflugvelli. Samskot til
trúboðsins. Fjölbreyttur söngur og
lifandi orð.
Allir hjartanlega velkomnir.
Aðventkirkjan
Laugardagur 16. nóvember
10.00 Biblíulestur.
11.00 Guðsþjónusta.
Steinþór Þórðarson talar.
Allir velkomnir.
Fréttir Fimmtudagur 14. nóvember 1996
Islandsmótið í vaxtarrækt á sunnudaginn • Tveir Eyjamenn þátttakendur
- Smári Harðarson og Ragnar Ragnarsson mæta vel undirbúnir til leiks
Lærisveinninn og meistarinn mæta
saman til leiks! Islandsmótið í
vaxtarrækt fer fram í Loftkast-
alanum nk. sunnudagskvöld. Vest-
mannaeyingar eiga þar tvo fulltrúa,
Smára Harðarson og Ragnar
Ragnarsson. Þegar blaðamaður
ræddi við þá í Hressó á þriðju-
daginn var lokaundirbúningurinn
á fullum krafti. Þeir hafa verið að
skera niður alla fitu í líkamanum til
þess að stæltir vöðvarnir fái að
njóta sín sem best þegar út á sviðið
er komið. Og þeir eru hrikalegir
piltarnir í orðsins fyllstu merkingu,
vöðvastæltir og vel skornir.
Smári er að taka þátt í íslandsmót-
inu í vaxtarrækt í annað sinn. Frum-
raun hans var í fyrra. Þá keppti Smári
í þyngsta flokknum, 90 kg. plús, og
lenti í fjórða sæti. Að margra mati
þótti Smári besti nýliði keppninnar.
„Ég tel mig koma mun betur
undirbúinn til leiks að þessu sinni. Ég
er fituminni og meðvitaðri um hvað
ég er að gera. Eg hef haft betri stjóm á
mataræðinu. I fyrra hafði ég ekki
nógu góða stjórn á vatninu í líkam-
anum, hélt því ekki nægilega vel í
vöðvunum. Vatnið fór meira í húðina.
Ég hef lært af þessum mistökum,"
segir Smári.
Hann býst við því að frekar fáir
keppendur verði í hans flokki að
þessu sinni. Og markmiðið? „Að
komast á verðlaunapall. Ég vil ekki
gefa út neinar yfirlýsingar að öðru
leyti.“
í vaxtarrækt fara keppendur að
skera sig niður, eins og það er kallað,
að ganga á fituforðann í líkamanum,
tólf vikum fyrir mót. Smári og Ragnar
byrjuðu eftir þjóðhátíð að skera sig
niður og hefur gengið mjög vel.
Sérstaklega hefur Ragnari gengið vel.
Fituprósent hans var um þjóðhátíð í
kringum 20 prósent eða eins og hjá
meðal manni. Þegar Ragnar var
mældur sl. laugardag var hann
kominn niður í 6 prósent. Smári hefur
einnig náð að skera sig vel niður og
enn betur en í fyrra. Núna er hann í
um fjórum prósentum á móti sex í
fyrra.
Smári hefur æft líkamsrækt, eða
pumpað lóð eins og hann kemst að
orði, á fjórða ár. Árangur hans er því
mjög eftirtektarverður en reyndar
hafði hann mjög góðan grunn. Hann
æfði sund í mörg ár, hljóp mikið og
var í þreki auk þess „að vera þrekinn
að eðlisfari" eins og hann komst sjálf-
ur að orði. Hann æfir fjórum til fimm
sinnum í viku og hugsar vel um sig,
borðar holla og góða fæðu, sefur nóg
og hvílist vel á milli.
Sigur að vera með
Ragnar hefur æft líkamsrækt í tvö
ár en hafði lítið komið nálægt
lyftingum eða slíku fram að því. Hann
æfir fjórum til fimm sinnum í viku.
Hann segist hafa tekið ákvörðun á
vaxtarræktarmótinu í fyrra þegar hann
fór að fylgjast með Smára, að reyna
að taka þátt í mótinu í ár. Ragnar
tekur þátt í þyngdarflokknum -80 kg
og segist í raun og veru ekki hafa
hugmynd um hvemig hann stendur.
,Það er sigur fyrir mig að fá bara að
vera með og öðlast dýrmæta reynslu.
Það hefur verið gaman að taka þátt í
þessu og alveg þess virði. Ég hef
verið undir handleiðslu Smára og
hann hefur miðlað mér af reynslu
sinni,“ segir Ragnar.
Smári segir að það hafi verið mjög
Smári Harðarson, 31 árs.
Keppir í þyngdarflokknum +90 kg.
Fituprósenta: 4%.
Upphandleggsvöðvi: 50 sm.
gaman að hafa Ragnar með sér í
þessu. „Strákurinn er búinn að standa
sig rosalega vel. Honum hefur gengið
ævintýralega vel að skera sig niður og
hefur grennt sig vel. Ég reyni að
miðla öllu sem ég get og við styðjum
við bakið á hvor öðrum.“
Stór hluti af því að undirbúa sig
fyrir íslandsmót í vaxtarrækt er að æfa
svokallaðar pósur. Smári segir að
pósur felist í því að ná því besta fram
í vöðvunum sem þeir hafa. Smári
heldur að líklega sé efri hluti líkamans
sterkasti hluti hans. Þeir félagar æfa
ákveðin „dansspor" eða „rútínu" sem
þeir sýna svo á keppniskvöldinu.
Dansspor Smára vöktu mikla athygli
á mótinu í fyrra og hefur hann einnig
lagt mikla vinnu í þau að þessu sinni.
Vaxtarrækt er frekar öfgakennd
íþrótt og þeir félagar vildu svo sann-
arlega að fleiri tækju þátt í henni. En
mestu máli skipti að fleiri Vestmanna-
eyingar hugsuðu betur um heilsuna
sína.
En eftir stranga megrun í nokkrar
vikur eru þeir félagar þegar farnir að
hlakka til að geta borðað eitthvað sætt
eftir keppnina á sunnudaginn. Smári
segir að krakkarnir í sunddeild ÍBV
sem hann þjálfar, hafi gefið honum
sleikjó um daginn sem á að vera það
fyrsta sem hann borðar eftir keppnina.
Og Ragnar getur varla beðið eftir að
komast í súkkulaði og almennilegan
„mömmumat"!
Smári vildi koma á framfæri kæru
þakklæti til Pizza 67 en staðurinn
hefur séð honum fyrir fæði undan-
farna þrjá mánuði. Félagarnir vildu
þakka Hressó fyrir frábæran stuðning
og svo hefði þetta ekki hafst nema að
borða tisk frá 200 mílum. Og Ragnar
vildi koma á framfæri sérstöku
þakklæti til foreldra sinna fyrir
stuðninginn.
- ÞoGu
Ragnar Þór Ragnarsson, 24 ára
Keppnir I þyngdarflokknum -80 kg.