Fréttir - Eyjafréttir - 14.11.1996, Side 19
19
Fimmtudagur 14. nóvember 1996
ÍÞRÓTTIR
1. deild kala í handbolta • IBV hefur komið mest allra liða á óvart í vetur
Verða að læn að ben n’rðingu
fyrir ölltm andsfæðingum
- segir Þorbergur Aðalsteinsson þjálfari og bendir á að stutt sé í botnslaginn
ÍBV hefur koniið allra liða mest á
óvart í 1. deild karla í vetur. IBV er
í 3. sæti með 10 stig, eða jafn mörg
stig og KA. Afturelding er í efsta
sæti með 14 stig. IBV hefur aldrei
byrjað jafn vel á Islandsmóti í 1.
deild, hvorki fyrr né síðar. Kemur
þar til góður undirbúningur liðsins
að þessu sinni. Næsti leikur IBV í 1.
deild er nk. miðvikudag, á útivelli
gegn Haukum. Þorbergur
Aðalsteinsson, þjálfari IBV, er
ánægður með leik liðsins fram að
þessu ef undan er skilinn bikar-
leikurinn sl. sunnudag.
„Mér líst vel á leikinn gegn
Haukum og tel að við eigum helmings
möguleika á að vinna. Okkur gekk illa
gegn Haukuni sl. vetur en unnum þá í
Opna-Reykjavíkurmótinu í haust.
Þetta er mjög mikilvægur leikur því ef
okkur tekst að sigra náum við fjögurra
stiga forskoti á þá,“ segir Þorbergur.
Hann er ánægður með gang mála
það sem af er vetri. Liðið er í toppslag
I. deildar. En hvemig gengur að halda
þessum ungu strákum við efnið þegar
þeir eru orðnir meðal bestu handbolta-
manna landsins?
„Það gengur þokkalega. En það
þýðir jafnframt að þegar við förum í
svona leiki eins og gegn HK í bik-
amum þar sem við erum fyrirfram
álitnir sigurvegarar, á ekki að láta
skjóta sig svona niður á jörðina með
þessum hætti. Strákamir verða að læra
það að þeir verða að taka hvem and-
stæðing fyrir sig og bera virðingu fyrir
honum. Ekki má gleyma þvf að
deildin er jöfn og stutt í kúkinn í
þessu. Ef þeir tapa 2 til 3 leikjum í röð
eru þeir komnir í fallbaráttu," segir
Þorbergur.
Þnr leikir eru eftir fram að áramót-
um. í fyrra náði ÍBV samtals í 7 stig
fram að áramótum en hefur nú 10.
Mikið er um hlé í mótinu vegna lands-
leikja sem reynir verulega á þolrifin.
Hvemig skyldi ganga að kljást við
það?
„Þessi endalausu hlé sem hafa verið
í haust geta verið þreytandi. Vissulega
er kúnst að fara í gegnum þetta. Mér
finnst við hafa fundið ágætis flöt á því.
Við keyrum á forminum fyrri hlutann
í hléinu og seinni hlutinn fer meira í
taktík og að hugsa um andstæðinginn.
Það eru þrír erfiðir leikir fram að
áramótum, gegn Haukum og HK úti
og KA heima. Mér finnst gott að fá
fjögur stig út úr þessum leikjum.
Þessir þrír mikilvægu leikir em vissu-
lega prófsteinn á liðið, hvort það á
heima þar sem liðið er nú í deildinni.
Þetta er verulega spennandi og
skemmtilegt. Vonandi verður Arnar
Davíð Hallgrímsson lætu vaða á
markið. Mynd: Ingi Tómas.
búinn að ná sér fyrir Haukaleikinn.
Verði hann ekki með kentur það niður
á breiddinni en vissulega kemur
maður í manns stað,“ sagði Þorbergur.
- ÞoGu
Bikarkeppni karla • IBV úr leik
B lú kerfl hamll boJ Ifa-
bikarævintýri
Ekki tókst handboltaliði ÍBV að
fylgja eftir bikarævintýri
knattspyrnuliðs IBV frá því í
sumar. IBV tapaði fyrir HK á úti-
velli á laugardaginn, 23-24.
Fyrirfram hafði verið búist við
öruggum sigri IBV miðað við stöðu
liðanna í 1. deild. En ÍBV, án
Arnars Péturssonar, náði sér aldrei
á strik og ömurlega lélegur leikur
Iiðsins varð því einfaldlega að falli.
„Það var eitt atriði sem kom á óvart
hjá andstæðingunum. Þess vegna var
djöfullegt að tapa þessu. Með smá
skynsemi hefðum við getað unnið
þrátt fyrir að spila illa. Auðvitað
söknuðum við Amars, hann er kjöl-
festa út af fyrir sig. En HK er sýnd
veiði en ekki gefin og Hlynur varði
vel hjá þeim í markinu,“ sagði
Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari ÍBV
við Fréttir.
Náðist ekki upp bikarstemmning
fyrir leikinn?
„Við vorum búnir að ræða þessa
hluti fram og til baka hvað þyrfti til að
vinna. Með smá heppni er hægt að ná
langt í bikarkeppni. En það tókst ekki
að rífa liðið upp að þessu sinni.“
Leikurinn var jafn og spennandi
framan af en ekki tókst IBV að klára
leikinn að þessu sinni. Svavar og
Belanyi áttu góða spretti en annars
náði liðið í heild sinni sér engan
veginn á strik. Belanyi var markahæs-
tur með 7 mörk og Svavar skoraði 5.
1. deild kvenna • IBV tapaði fyrir norðan
Eyjastelpur náðu
sér ekki á strík
ÍBV stelpur töpuðu fyrir ÍBA fyrir
norðan á laugardaginn, 23-22.
Þetta var fjórða tap IBV stelpna í
röð. Akureyrarstúlkur höfðu ekki
unnið leik fyrir þessa viðureign í
íslandsmóti í heilt ár og því var
ansi sárt fyrir Eyjastelpur að
verða fyrsta liðið til að tapa fyrir
ÍBA.
ÍBA hafði yfirhöndina í fyrri
hálfleik en staðan í hálfleik var 15-
12. Eyjastúlkur sóttu í sig veðrið í
seinni hálfleik, léku ágætlega á
köflum en tókst ekki að snúa
leiknum sér í vil. Ingibjörg fór fyrir
sínu liði og átti stórleik.
Mörk ÍBV: Ingibjörg Jónsdóttir 8,
Stefanía Guðjónsdóttir 6, íris
Sœmundsdóttir 2, María Rós Frið-
riksdóttir 2, Unnur Sigmarsdóttir 2,
Elísa Sigurðardóttir I og Kolbrún
lngólfsdóttir 1.
Stefanía átti góðan leik fyrir
norðan en það dugði skammt.
Næsti leikur ÍBV er nk. laugardag
gegn Fylki heima í Eyjum og hefst
kl. 16.30.
- ÞoGu
Tippnúmer IBV:
9 0 0
Tippararnir Oskar, Jón Oskar og Rúnar eitthvað áhyggjufullir enda
gengur hvorki né rekur hjá Man. Utd. þessa dagana.
Ennisrakaðir bræður og
Golgífrétta í úrslit
Hinir geðprúðu
bræður Friðrik og . /7j\'
Óðinn Sæbjömssynir vr
sigmðu HlV-nei- m l
kvæða 4-3 í undan-
úrslitum hópleiksins
um síðustu helgi. 2
Heyrst hefur að Óðinn sé búinn að
bóka þá bræður á Highbury á næst
unni, svo sigurvissir em þeir.
i
hinum undanúrslitaleiknum sigraði
Golgifléttan Mundu 5-4 og eru þar
verðugir keppinautar á ferð fyrir
bræðuma.
Urslitaleikurinn er um næstu helgi
og við sjáum hvað setur.
Nýr hópleikur hefst þar næstu helgi
og er þegar farið að taka við hópum í
skráningu. Fyrirkomulagið sem var
nú í gangi hefur verið gagnrýnt
nokkuð og því hefur verið ákveðið
eftir nokkurt spjall að breyta því.
Það verður með þeim hætti að dregið
verður í tvo riðla og þeir spilaðir í 8
vikur. Þegar þeim er lokið munu
efstu hópamir spila hreinan úrslita-
leik. Þessu til viðbótar munu
hópam- ir sem em í 2. sæti í
riðlunum spila um 3ja sætið.
Nýbreytni verður tekin upp, en þeir
hópar sem eru í 8. sæti í riðlunum
munu spilatil úrslitaum 15.sætiðog
þeir sem eru í 5. sæti um það 9.
Þetta er gert til þess að allir hafi um
eitthvað að spila þegar teygist á
riðlunum á síðari stigum.
Verðlaun fyrir 1. sæti em eftir sem
áður ferðavinningur fyrir tvo og
verðlaun fyrir 2. sæti verður helgar-
ferð fyrir tvo til Reykjavíkur.
Verðlaun fyrir þriðja, níunda og
fimmtánda sæti verða í formi 16”
pizzu.
A laugardag verður sýndur á RUV
leikur Manchester United og Arsenal
kl. 15:00.
Að þessu sinni er getraunapistillinn
í styttra lagi og meira að segja vannst
ekki tími til að láta tippara vikunnar
tippa, en hann fær því auka viku til
að skoða seðilinn og verður í næsta
pistli. Nýir tippmeistarar verða
krýndir þar og einnig verður gerð
nánari grein fyrir næstu keppni. En
þangað til, munið getraunanúmerið
900.
Til greina
kemur að fá
útlendan
leikmann til
ÍBV
Enn hefur knattspymuráð ÍBV ekki
samið við þá leikmenn sem eru
með lausa samninga. Talið er víst
að bræðurnir Ingi og Magnús
Sigurðssynir verði át'ram í her-
búðunt ÍBV og markverðimir
Friðrik Friðriksson og Gunnar
Sigurðsson. Hins vegar er óvíst
með Leif Geir Hafsteinsson, ívar
Bjarklind og Sumarliða Árnason.
Þá liggur Friðrik Sæbjömsson undir
feldi og er að hugsa sinn gang og
Jón Bragi Amarsson hefur sem
kunnugt er lagt skóna á hilluna.
Að sögn formanns knattspyrnuráðs
ÍBV var gengið frá undirskrift
samnings við Guðna Rúnar
Helgason, leikmann Völsungs og
U-21 árs landsliðsins í ÍBV, í
síðustu viku. Til stendur að reyna
að fá annan leikmann hér innan-
lands. Ef það gengur ekki útilokar
formaðurinn ekki að leitað verði út
fyrir landsteinana að frekari
liðsstyrk. Það skýrist hins vegar
ekki fyrren á nýju ári, eftir því sem
næst verður komist.
- ÞoGu
Vikan 11.-17. nóvember
Laugardaginn 16. nóv. kl. 14.30
2. flokkur karla ÍBV-Selfoss
Laugardaginn 17. nóv. kl. 16.30
l.deild kvenna ÍBV-Fylkir
Elsta glerverksmiðja ó íslandi
Söluumboð í Eyjum
(Erum með einfalt gler ó lager)
Drangur ehf.
Strandvegi 80 Gengið inn að norðan
Sími 481-3110 og 481-3120
• Fax 481-3109 Heimas. Kristján 481-
1226 og 481-1822. Þórólfur 481-2206