Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Page 4

Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Page 4
4 Fréttir Fimmtudagur! 6. október 1997 HELGA JÓNSDD TTI R ER SÆLKERI VIKUNNAR Kjúklingur & bollur Viðar Huginsson, sem lék listir sínar (og móður sinnar) í síðasta blaði, skoraði á Helgu Jónsdóttur að taka við sem hún gerir hér með. „Vinur minn Vídí vúdúmeistari og vangafangari hefur væntanlega skorað á mig til að ég gæfi honum nú loksins kjúklingauppskrift. Hér kemur hún. Kjúklingaréttur. 1. - Kjúklingurinn: I kjúklingur I sítróna Kikkoman sojasósa McCormick garlic pepper McCormick Original chicken Sea- soning Nuddið kjúklinginn með sítrónunni, hellið Kikkoman sósunni yfir og inn í kjúklinginn, kryddið. Steikið kjúkling- inn í potti inni í ofni í u.þ.b. eina og hálfa klst. Látið síðan kjúklinginn kólna, takið kjötið af beinunum og skerið í bita. 2. - Grænmetið: I rauð paprika, sneidd I appelsínugul paprika, sneidd u.þ.b. 1/2 púrrulaukur, sneiddur nokkrir sveppir í sneiðum I -2 cm af engifer, smátt saxað smá ólífuolía og e.t.v. smá smjör Þessu er öllu brugðið á pönnu í stutta stund. 3. - Sósa: I krukka Sweet and sour sósa 1 peli rjómi Kikkoman sojasósa krydd eftir smekk Þessu er öllu blandað saman. 4. - Rifinn ostur: Ríftð niður góðan ost, t.d. brauðost, magnið fer eftir smekk. Kjúklingurinn er látinn í smurt eldfast mót, grænmetinu dreift yfir, síðan sósunni og loks rifna ostinum. Hitað í 180° heitum ofni þar til allt er orðið gegnheitt. Borið fram með hrfsgijónum. Eg er svo heppin að vinna á frábærum vinnustað sem er Fram- haldsskólinn okkar. Þar hafa komist á ýmsar skemmtilegar hefðir og er ein þeirra sú að þegar útskriftamemar dimmitera, bjóða þeir kennumm og starfsfólki í morgunkaffi. I þessum samsætum höfum við sporðrennt margri dýrlegri hnallþórunni og öðmm gómsætum réttum. Einu sinni var komið með stóra körfu, fulla af ný- bökuðum bollum og með fylgdi ís- lenskt smjör og ostur. Ekki var linnt látum fyrr en komist var yfir þessa uppskrift og hér kemur hún en boll- umar henta vel með kjúklingaréttinum. Það er svo auðvelt að baka þær að næstum er útilokað að þær heppnist ekki. Fínar bollur: (u.þ.b. 30 stk.) 1 pk. þurrger 1/2 dl volgt vatn 125 g brætt smjör I 1/2 dl kalt vatn 2egg II /2 tsk. salt 1-2 tsk. sykur 1/2 kg hveiti (8-9 dl) 1 hrært egg til að pensla með Hrærið gerið í volga vatninu. Blandið saman kalda vatninu og brædda smjörinu og hellið því f gerblönduna. Blandið nú öllu liinu í (nema hrærða egginu) og linoðið vel. Látið deigið lyfta sér, t.d. inni í bakaraofni, í 30 mínútur. Hnoðið deigið aftur og skiptið því í tvo hluta. Úr hvorum hluta fást 12-15 bollur. Setjið ofninn á 225° og látið hann hitna. Látið bollumar lyfta sér á plötunni í 15 mínútur og penslið þær með hrærða egginu. Bakið þær síðan í 12-15 mínútur í miðjum ofni. Eg ætla að skora á írisi Róberts- dóttur að sýna lesendum í uppskrifta- bókina sína. Mér er sagi að Iris sé frábær kokkur og að í matseld hennar fari saman hollusta og gæði.“ Haft er fyrir satt - Að Veitingastaðurinn Lundinn sé að skipta um eigendur. Stefán í Amígó sé að kaupa staðinn af Sparisjóði Vestmannaeyja. Ekki er Ijóst hvað Vignir veitingamaður hyggst taka sér fyrir hendur. - að félagsstarf sameinaða félags- ins okkar ÍBV þyki með dauflegra móti. Helst er talað um að Shellmótsslútt og Þjóðhátíðar- slútt hafi ekki verið haldin og hefurfólk, sem mikið hefur starf- að í félögunum, áhyggjur af að erfitt geti reynst að manna sjálfboðaliðastarf í tengslum við þessi mót og annað á vegum félaganna ef ekki er reynt að halda uppi félagsstarfi þess á milli. Suður-amerísk sveifla og blues Kirkjukór Landakirkju og Samkór Vestmannaeyja, sem fluttu Pákumessuna eftir Haydn ásamt 30 manna kammersveit úr Sinfóníuhljómsveit islands á sjómannadaginn í sumar, fluttu sama verk í Langholtskirkju í Reykjavík sl. laugardag. Þetta samstarf kóranna hefur að sögn kórfélaga verið mjög ánægjulegt. Valgerður Guðjónsdóttir er formaður Samkórsins og hún er Eyjamaður vikunnar að þessu sinni. Fullt nafn? Valgeröur Guöjónsdóttir. Fæðingardagur og ár? 8. febrúar ‘63. Fæðingarstaður? Á fæðingarskírteininu minu stendur að ég sé fædd að Undralandi við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Fjölskylduhagir? Gift Jónatani Guðna Jónssyni. Börnin eru þrjú, Kristinn 14, Guðdís tveggja ára og Erla hálfs árs. Menntun og starf? Utskrifaðist úr Kennaraháskóla íslands 1988. Starfa sem kennari við Hamarsskóla. Laun? Vonandi fara þau að batna. Helsti galli? Óþolinmóð. Helsti kostur? Rösk. Uppáhaldsmatur? Ég er mjög hrifin af austurienskri matargerð, t.d. kfnverskri. Versti matur? Skata. Uppáhaldsdrykkur? Gvendarbrunna- vatn. Verst hvað það er erfitt að fá það í Vestmannaeyjum. En vatn er minn drykkur. Uppáhaldstónlist? Ég er hrifin af suður- amerískri sveiflu og bluestónlist og reyndar mörgu fleiru. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að vera með fjölskyldunni. Svo finnst mér skemmtilegt að lesa og syngja. Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að hafa ekkert fyrir stafni. Svo finnst mér leiðinlegt að strauja. Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happdrætti? Ég myndi ávaxta hana og notahana síðartil ferðalaga. Uppáhalds stjórnmálamaður? Enginn sérstakur. Mér finnst stjórnmálamenn upp til hópa vera leikarar og sem slíkir geta þeir raunar verið ágætir. Uppáhalds íþróttamaður? Jón Arnar Magnússon. Svo held ég líka upp á soninn, Kristin. Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Sinawik, Samkórnum og svo erum við nokkrar saman í menn- ingarklúbbi sem sérhæfir sig í að horfa á góðar bíómyndir, myndir sem karlarnir okkar nenna ekki að horfa á. Hvert er eftirlætissjónvarpsefnið Mér fannst Landsbyen góður þáttur og sakna hans. Eins sakna ég Bráðavaktarinnar og vona að hún fari að birtast á ný. Og svo góðar bíómyndir. Uppáhaldsbók? Blómin í ánni eftir Edith Morris. Hver eru helstu áhugamál þín? Ég les mikið og prjóna talsvert. Svo er ég í kór og stúdera einnig mikið matargerð. Hvað metur þú mest í fari annarra? Trúmennsku, glaðværð og heiðarleika. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Óheiðarleiki. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Stakkholtsgjá í Þórsmórk. Hvað kostar að fara með svona prógramm til Reykjavíkur? Kostnaðurinn er það mikill að hann er nánast dragbítur á að fólk leggi það á sig að ráðast í verk sem þetta. Hvernig tókst flutningurinn í Reykjavík? Ég held að við megum vel við una. Undirtektir áheyrenda? Góðar. Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir þessi orð? -Samkórinn? Skemmtilegur félagsskapur. -Kirkjukórinn? Ánægjulegt samstarf. -Haydn? Fyrsta lagið sem ég lærði að spila á píanó var eftir Haydn. Hanner með léttari tónskáldunum. Eitthvað að lokum? Já, ég vil koma að leiðréttingu á því sem haft var eftir mér í síðustu Fréttum. Þarsagði að Samkórinn væri skipaður áhugafólki en Kór Landakirkju væri á launum. Þetta voru ekki mín orð og hefði mátt skilja þau á þann hátt að ég væri að kasta rýrð á fólk. Því fer viðs fjarri enda var þetta samstarf kóranna beggja mjög ánægjulegt á allan hátt og mjög lærdómsríkt fyrir okkur í Samkórnum. Þá vil ég nota þetta tækifæri til að þakka ölium þeim sem veittu okkur lið á einn eða annan hátt við þessa uppfærslu. Nýfazddir Vestmannaeyingar Drengur Þann 8. október sl. eignuðust ^ Ester Fn'ða Ágústsdóttir og Guðlaugur Olafsson dreng. Hann vó 15 merkur ogvar53cm. Hann hlær hér í fangi móður sinnar. Ljósmóðir var Guðný Bjamadóttir Húsnæði Barnaskólans endurvígt Endurvígsla húsnæðis Barnaskólans fer fram föstudaginn 17. október kl. 16:00. Opið hús verður síðan laugardaginn 18. október milli kl. 13:00 og 16:00 þar sem bæjarbúum gefst tækifæri til þess að skoða húsnæði skólans. Opnun Listaskólans. Listaskólinn verður opnaður formlega laugardaginn 18. október. Ef veður leyfir mun skrúðganga leggja upp frá Arnardrangi að Vesturvegi 38 kl. 15:30, þar sem Listaskólinn verður til húsa. Litla lúðrasveitin og nemendur úrTónlistarskóla Vestmannaeyja munu leika við athöfnina. HÖGG Margir Vestmannaeyingar hrukku óþyrmilega við í kvöldmatartímanum á mánudag, rétt fyrir kl. átta. Þá nötruðu mörg hús í bænum, rétt eins og í þau hefði verið sparkað eða þeim greitt högg og héldu flestir að um jarðskjálfta væri að ræða. Óskar Sigurðsson, vitavörður í Stórhöfða, sagði slíku ekki að dreifa enda hefði ekkert komið fram á mælum í Stórhöfða sem benti til slfks. Ekki var heldur hægt að rekja þetta til sprenginga í höfninni, sem sagt er frá annars staðar í blaðinu. Hjá Veðurstofunni sögðu menn að margir Vestmannaeyingar hefðu hringt þetta kvöld og næsta morgun til að spyrjast fyrir um hvað valdið hefði þessu höggi og í Ijós hefði komið að þota eða þotur á leið yfir landið hefðu rofið hljóðmúrinn. Slíkt veldur sprengingu og er slíkt flug reyndar bannað í lofthelgi íslands. En þessi mun skýringin á mánudagsskjálftanum. Smáar Til sölu GMC van árg. ‘86 til sölu Upplýsingar í síma 481 2561 Toyota til sölu Toyota Tercel 4x4 ‘87 til sölu. 2 eigendur. Ekinn 105.000. Verö kr. 390.000. Upplýsingar í síma 481 2737 á kvöldin Hornsófi óskast Óskum eftirfínum, vel meö fömum (helst leður) hornsófa. Uppl í síma: 481 3099 (símsvari) Útvegsbændur héldu aðalfund sinn í síðustu viku. Kristján Ragnarsson formaður LIÚ var gestur á fundinum og sést hann hér með nokkrum útvegsbændum

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.