Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Side 6

Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Side 6
6 Fréttir Fimmtudagur 16. október 1997 Kíkt á bæjarstjórnarfund: Sjálfvirkar handa uppréttingar Fimmtudaginn 9. október var haldinn almennur fundur í Bæjar- stjórn Vestmannaeyja. Vegna orðróms um það að fundir bæjarstjórnar séu bæði stuttir, daufir og áheyrendasnauðir ákvað einn utanbæjarmaður að athuga sannleiksgildi þess. Þeir bæjar- fulltrúar sem sátu fundinn voru, talið frá vinstri: Georg Þór Kristjánsson, Guðmundur Þ. B. Ólafsson, Svanhildur Guðlaugs- dóttir, Páll Einarsson ritari, Ólafur Lárusson fundarstjóri, Guðjón Hjör- leifsson bæjarstjóri, Elsa Valgeirs- dóttir og Amar Sigurmundsson. Það verður ekki sagt að þessi fundur hafi verið stuttur, þvert á móti taldist hann í lengra lagi. Hann stóð nefnilegafrákl 18:00-21:30. Ogað hann hafi verið daufur væri heldur ekki réttmæli, vegna þess að menn voru bæði röggsamir og fyndnir í senn. Auk þess var mættur skörulegur hópur Snótarkvenna til að hlýða á umræðu bæjarfulltrúa um kjara- samning Snótar við bæjarfélagið. Nú velta menn því fyrir sér hvort lekið hafi út að utanbæjarmaðurinn yrði í hópi áheyrenda og menn því ákveðið að setja sig í framboðsstellingar og lofa upp í ermina á sér, þar sem hin sjálfvirka hönd hvílir alla jafna. Pólitískur jábræðrabragur Það var einhver pólitískur jábræðra- bragur yfir fundinum og velti utan- bæjarmaður því fyrir sér, hvers vegna bæjarfulltrúar væru ekki allir í sama flokknum. Nema þær ágætu og myndarlegu konur í hópi bæjar- fulltrúa, sem að gætu verið í sérstökum flokki sem helgaði sig þögninni. Þetta var því karlafundur, eins og þeir „bestir" gerast. Þau mál sem hæst bar á fundinum voru meðal annars málefni Skipa- lyftunar. Ákveðið var að ganga til samninga við Skipalyftuna vegna stálþils austan Friðarhafnarbryggju. Einnig var verklokasamningur vegna nýja lóðsbátsins til lykta leiddur. Bæjarfulltrúum er mjög umhugað um að reyna að halda atvinnu í bænum og að fyrirtæki hér gætu að einhverju leyti gengið fyrir vegna verkefna sem til framfara mættu heyra í bænunt. Georg Þór taldi þó, að ekki fylgdi alltaf hugur máli og hafði orð á því að sorpílát, sem Sigurður Óskarsson hefði fundið upp, hati fengið griðastað í Vík í Mýrdal. Bæjarstjóri sagði ástæðu þess vera vegna þess að sumarfrí hefðu skarast og að aðeins væri um reynslusamning til þriggja mánaða að ræða, svo ekki væri öll von úti enn um að hægt væri að ná samningum við Sigurð. Guðmundur Þ. B. sagðist hafa frétt af málinu í blöðum og erindið ekki komið upp í atvinnumálaráði. Hann var mjög hissa að sjá. Snótarkonur fjölmenntu Félagsmenn úr Verkakvennafélaginu Snót mættu á fundinn eins og áður sagði. Þeim var umhugað um fram- gang samningamála við Vestmanna- eyjabæ. Nokkrar umræður urðu um samninginn og var ákveðið að fresta afgreiðslu hans og fá hugsanlega umsögn þriðja aðila um túlkun hans. Elsa Valgeirsdóttir kvaddi sér hljóðs vegna umræðna um samn- inginn, þótti það tilbreyting. Þegar hér var komið sögu kom í Ijós að mistök hefðu átt sér stað við útprentun gagna sem dreift hafði verið til bæjarfulltrúa. Var því bæjarritari gerður út til að hlaupa í Ráðhúsið og nálgast þá pappíra sem vantaði svo fundurinn mætti halda áfram með eðlilegum hætti. Unga fólkið Mjög virðist bæjarfulltúum vera umhugað um unglinga á aldrinum 15 - 18 ára. Það kom mjög í ljós við umræðu um tillögu frá bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins um að koma á fót Menningar- tækni- og upplýsinga- miðstöð fyrir ungt fólk í Vest- mannaeyjum. Guðmundur Þ.B. taldi að móta þyrfti heildarstefhu sem tæki mið af tómstundum og atvinnumálum ungs fólks. Arnar Sigurmundsson sagði hug- myndina byggja á sambærilegum stofnunum á Norðurlöndum. Hann sagði að ekki væru hugmyndir að gera þessa miðstöð að einhverri mötunar- stofnun, heldur yrði unglingarnir fengnir til ábyrgðar. Þannig að bærinn skaffaði aðstöðu, en unglingamir tækju ábyrgð á starfseminni að ein- hverju leyti. Arnar sagði sendinefnd væntanlega frá Vestfjörðum til að kynna sér málefni unglinga í bænum. Allir sammála og handauppréttingar án vandræða. Ráðningarsamningar Menn ræddu um ráðningarsamninga bæjarins. Ekki kom í Ijós á þessum fundi hversu margir þeir eru, eða hvort sumir starfsmenn væru jafnvel í ráðningarsambandi. Hins vegar voru menn sammála um að ráðningar- samningamir væru: þrír, fjórir eða fimm. Við það sat þrátt fyrir að bæjarfulltrúar reyndu að snara út misjöfnum skýringum og skilgrein- ingum á þessu dularfulla máli Töluverðar umræður urðu um hvort bjóða ætti út rekstur stofnana bæjarfélagsins. Töldu fulltrúar minni- hlutans að rétt væri að hafa hlutina í réttri röð og það fælist engin viðurkenning á réttmæti útboða þó rætt væri við ákveðna aðila í bænum sbr. bréf frá Eggert Bjömssyni þar sem hann óskar eftir viðræðum við Vestmannaeyjabæ um yfirtöku á rekstri Vélamiðstöðvar, Malbikunar- stöð og Áhaldahúsi Vestmannaeyja. Samþykkt var að ræða við manninn en án allra skuldbindinga. Konumál og Oddur Og þá kom „konumál"? Nefnilega hugmynd um að færa málefni leikskólanna frá félagsniálaráði til skólamálaráðs. Menn voru ekki á eitt sáttir hvort telja ætti leikskólann til félagslegs úrræðis eða hvort hann skyldi vera menntunarúrræði. Væri kannski ráð að efna til skoðana- könnunar meðal bæjarbúa um málið. Bréf Odds Júlíussonar vom tekin fyrir. Var gerður góður rómur að viðleitni bæjarbúa til að vera í sem nánasta sambandi við fulltrúa sína og kom upp ein tillaga utan dagskrár reyndar að bæjarritari flytti heim til Odds. Hefur nú utanbæjamiaður áreiðanlegar heimildir fyrir því að Oddur sé að innrétta honum vistarvemr við hæfi. Svo heyrðist aftur í konum. Tilefnið var endumýjun vínveit- ingaleyfa á tveimur veitingastöðum í bænum. Konumar lýstu sig andvígar veitingunni, en karlamir voru á móti kvótum á fjölda veitingastaða, svo fremi sem þeir uppfylltu þær reglur sem Alþingi hefði samþykkt í sínum háu sölum. Konur vom ofurliði bomar í þessu máli og sættu sig við sjálfvirknina í höndum karlanna í bæjarstjóminni. Dálítið fannst utanbæjarmanninum sem þær væru hálf utan gátta að fá ekki að vera með í handaupprétt- ingunni, en þær sameinuðust þó í því að vera á móti. Utanbæjarmanninum leið mjög vel á fundinum, þáði veitingar af gostagi og skorar nú á bæjarbúa sem vilja koma hita í bæjarmálaumræðuna að mæta á fundi bæjarstjómarinnar. Að lokum. Þau eru skemmtileg mslatrogin. JBKL; = l:r—' — Georg Þór og Svanhildur sitja hljóð undir ræðu Guðmundar. Guðjón, Elsa og Arnar íbyggin á svip. Bæjarstjórn: Deilt um orðalag samnings við Snót Snótarkonur fylgjast með umræðum. Á bæjarstjórnarfundi fimmtudag- inn 9. október kont samningur Verkakvennafélagsins Snótar og Vestmannaeyjabæjar til umræðu. Snótarkonur fjölmenntu á fund- inn til að heyra hug bæjarfulltrúa. Á fundinum kom fram að skoð- anaágreiningur á sér stað hjá Vestmannaeyjabæ um ákveðið orðalag í samningununt sam- kvæmt því sem formaður Snótar segir. Linda Hrafnkelsdóttir formaður Snótai', segir að Verkakvennafélagið Snót sé búið að samþykkja samninginn við bæinn. ,,Það er alrangt að urn misskilning sé að ræða,“ segir Linda. „Áður en aðilar Vestmannaeyjabæjar voru búnir að samþykkja samninginn, bjuggu þeir til ágreining um túlkun á orðalagi sem getur ekki verið skýrari. Hins vegar koilvarpi túlkun bæjaiins samningnum hvað varðar nántskeið." Páll Einarsson bæjarritari, segir skoðanaágreining um viss atriði. „Það era ákvæði í samningnum sem kveða á unt að ef ágreiningur kemur upp um túlkun hans megi kalla til oddantann til að skera úr um ágreining. Hann segir að bæjarstjóm hafi hins vegar ekki tekið neina ákvörðun um framhaldið “ Ágreiningurinn stendur um 4. grein samningsins, þar sem kveðið er á um röðun í launaflokka. Námskeiðahald, sem veitir heimild til launaflokkahækkana er hins vegar bitbein samningsaðila. í 4. grein segir að röðun í launaflokka frá 64. launaflokki til 69. launaflokks skuli gildafrá I mars 1997. Síðar segir í samningnum: ,JÞrátt fyrir ofangreinda röðun í launaflokka skai enginn starfsmaður, sem tekur laun skv. samningi þessum, fá greidd laun skv. lægri launaflokki en 67 frá og með 1. mars 1997.“ Guðjón Hjörleifsson bæjarstjöri segir: ,Að samkvæmt Snótarkonum vilji þær meina að eftir 1. mars 1997 detti launaflokkar undir 67. flokki út og hann verði lægsti flokkur og þar með að að hækkanir sem veitast starfsfólki eftir þátttöku í námskeiðum gildi frá og með 67. flokki. Þetta er liins vegar ekki skilningur bæjarins. Bærinn vill að hækkanir milli launaflokka vegna þátttöku í námskeiðum miðist við þann launaflokk sem viðkomandi er í. Lægstu útborguð laun verði hins vegar greidd samkvæmt 67. flokki." „Annars eru báðir aðilar nteð lögfræðileg álit á þessari túlkun." segir Guðjón. „Þær hjá Snót ætluðu að hafa samband við okkur í vikunni og við bíðunt bara eftir því.“ [ HÓPLEIKUR j ! ÍBVOGFRÉTTA 1 Hópleikur ÍBV og Frétta hefst nk. laugardag með pompi og pragt. Að venju eru veglegir vinningar og verður keppt í riðlum líkt og gert var í fyrra og þátttökugjald á hóp er kr. 4000,- eins og áður. Getraunaþjónusta IBV mun vera með opið á laugardagsmorgnum í vetur frá kl. 10.00 og þar tii lokað verður fyrir sölu getrauna. í fyrstu til kl. 12.45 og síðar til kl. 13.45 þegar Bretar hafa breytt klukkunni hjá sér. Búið er að flytja starfsemina á efri hæðina í Týsheimilinu þar sem Getraunaþjónustan átti áður aðsetur. Séð verður um að heitt verði á könnunni og er aldrei að vita nema eitthvað gott verði með því. Sjómenn geta sent raðir sínar í fax 481-2751 eða hringt í síma 481-2861 Sjáumst á laugardaginn í góðum gír. J

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.