Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Blaðsíða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 16.10.1997, Blaðsíða 12
12 Fréttir Fimmtudagur 16. október 1997 Ifil .... ájS t <A ■~m7r ^ f WSB i'VW 1 ! ••• !- ; r- " vv 1 1 A~« Krakkarnir í 5. G.V. stjórnuöu • • Oll erum við blóm í sama garði I Hamarsskóla var í síðustu viku haldin vinavika í annað skiptið. Tilgangurinn er að leiða saman yngri og eldri ncmendur með það að markmiði að auka kynni þeirra á milli. Þetta hefur tekist með þeim ágætum að andi í skólanum er allur annar að mati skólast jóra. „Öll viljum við að börnunum okkar líði vel í skólanum," segir Halldóra Magnúsdóttir skólastjóri. „Því miður er það svo að of margir nemendur eru einmana eða verða fyrir stríðni í skólanum sínum. í Hamarsskóla leggjum við áherslu á að nemendur séu vingjarnlegir og sýni kurteisi og prúðmennsku. Eitt af þeim markmiðum sem við höfum sett okkur er að bæta líðan og samskipti allra sem eru í skólanum. Við reynum að auka jákvæð samskipti á milli bekkja og innan hverrar bekkjardeildar. Þetta gerum við m.a. með því að úthluta hverri bekkjardeild vinabekk. Um- sjónarkennarar sjá um að vina- bekkimir hittist, þeir fara t.d. saman í leiki, gönguferðir, skiptast á heimsóknum og syngja saman. í haust hófst vinaverkefnið okkar á því að allir nemendur og starfsmenn gerðu sér blóm sem þeir hengdu upp á vegg. Því öll erum við blóm í sama blóma- garði.“ Vinabekkjunum er raðað upp eftir aldri þannig að yngri og eldri nemendur, t.d. 1. bekkur og 5. bekkur og 2. og 8. mynda vinabekki. „Vinabekkirnir hittast og umsjónar- kennararnir tala sig saman um hvað skal gera og það þarf ekki endilega að vera það sama. Bekkimir skiptast á gjöfum, t.d. teikningum, vinaböndum og stærri börnin lesa fyrir þau minni. Eldri bömin kenna þeim yngri leiki og stjóma þeim. Allt gengur þetta út á að þau læri að virða hvert annað og þau litlu verði ekki hrædd við stærri bömin sem oft eru fyrirferðarmeiri í skólan- um.“ Halldóra segir að vinavikan í fyrra hafi skilað áþreifanlegum árangri og áfram verði haldið á sömu braut. „Þó vinavikunni sé að ljúka verður áfram unnið í anda vináttunnar. Þetta starf hefur skilað sér í betri anda í skólanum og á það jafnt við nemendur og starfsfólk skólans," sagði Halldóra að lokum. Vinaverkefnið hefur tekið á sig ýmsar myndir og í 3.G.S. bekk voru samin ljóð til að fylgja því eftir: Hamarsskólasöngvar Það má ekki lemja út á lóð, því öll við erum vinir, erum góð. Nú er vinavika í Hamarsskólanum. Við fömm eftir skólareglunum. leik meö nemendum í 1. G. Snæ. Heimsókn í gamla vinabekkinn. Krakkarnir í 8. S.Ó. litu við í 2. H.O. sem var vinabekkur þeirra í fyrra. I Hamarsskóla er svo gaman. Við leikum okkur saman. Við læmm að lesa hátt og viljum vera sátt. Höfundur texta: 3.G.S. I Hamarsskóla er gaman, þar læra allir saman, þeir læra margt og mikið, og allir eru með. Læra skrifa og teikna og líka smíði og reikna. Nú vitið þið hvað allir eru æðislegir héma. Höfundur texta: Steinunn Hödd Nemandi úr 5. G.V. les fyrir krakkana í1. G.Snæ. ÖLL ERUM VIÐ BLÓM í SAMA GARÐI. Starfsfólk á líka sín blóm í blómagarði Hamarsskóla. Halldóra og Oddfríöur Guðjónsdóttir benda á blómin sín. LESENDABREF -Fiskvinnslukonur Að gefnu tilefni Undanfarið hefur umræða um flæði- línur í frystihúsum verið áberandi í þjóðfélaginu. Virðist sem fram- kvæmdastjórar fiskvinnslufyrirtækj- anna séu að vakna upp við vondan draum um ágæti þeirra. Þann 30. september sl. tjáði sig einn framkvæmdastjóri í útvarpsfréttum um galla flæðilína og þar sem hann skilur ekki vandann ætlum við að skilgreina hann í helstu dráttum. í upphafi hefðu fyrirtækin átt að hafa meiri samvinnu við starfsfólk um hönnun og aðbúnað því það er jú starfsfólkið sem vinnur við þetta og ætti að hafa meiri yfirsýn yfir það hvemig svona apparat ætti að líta út. En auðvitað datt þeim það ekki í hug, heldur voru þessar flæðilínur hannað- ar og keyptar beint frá fyrirtækjum sem við leyfum okkur að staðhæfa, að það ágæta fólk sem þar vinnur, hafi ekki yfirsýn á störf fiskvinnslufólks né aðbúnað þess. Að þessi umræddi framkvæmda- stjóri skuli halda því fram að megingalli við flæðilínuna skuli vera sá að starfsfólk þurfi að teygja sig of ótt og títt eftir nýju flaki, þá ætti sá sami að fá sér göngutúr um flæðilínu- salinn og spjalla við starfsfólk. Þá erum við nokkuð vissar um að hann kæmist að annarri niðurstöðu. Helsti galli flæðilínunnar er sá að alltof margir flöskuhálsar eru þar til staðar, þ.e. starfsfólki er ekki gert kleift að vinna í bónus/premíu vegna vöntunar á hráefni eða að of margir eru á línunni í einu. Þar af leiðandi þarf starfsfólkið að bíða meira og minna eftir hverju flaki. Aukin afköst þýða aukið álag á líkama og sál sem leiðir af sér meiri verki og veikindi vegna hönnunar- galla flæðilínanna. Við getum ekki séð hvemig hægt er að ætlast til þess að starfsfólk leggi sig allt ffam án þess að fá meira borgað fyrir. Því um leið og starfsfólk fer að vinna í bónus/premíu er það búið að skila sínu fyrir fastakaupið. FLÆÐILÍNA-AUKIN FRAM- LEIÐNI-ÁN ÞESS AÐ HÆKKA LAUNIN var það eina sem komst að hjá framkvæmdaaðilanum í byrjun. Er hægt að ætlast til þess að starfsfólk í fiskvinnslu auki framleiðni húsanna án þess að fá hærri laun fyrir. NIÐURSTAÐAN verður alltaf sú að ef starfsfólk fær ekki greitt í peningum sinn hlut fyrir aukna framleiðni, sem er ætlast til af því, þá hefur tími flæðilínanna og um leið framleiðnin runnið sitt skeið á enda. F.h. kvennanna Linda Hrafnkelsdóttir, formaður Snótar. Hvar er hrokinn? í síðasta tölublaði Frétta er les- endabréf frá Oddi Júlíussyni með fyrirsögninni „Hroki“ og er mynd af honum sjálfum undirfyrirsögninni. Er ég þar vændur um hroka og virðist ástæðan vera sú að honum líkar ekki við það svar sem hann fékk á sínum tíma um skólamál. Svarið var einfaldlega svona: „Spumingum, sem þú varpar fram varðandi skólamál, verður ekki svarað á þessum vettvangi. Með vísan í upplýsingalög finn ég ekki skjöl þar sem fram koma í heild upplýsingar um það sem þú virðist vera að leita að.“ Oddur kýs að túlka svarið sem hroka og dregur hann þrjár ályktanir af því: a) Ekki eru til skjöl um opinbera skólastefnu bæjaryfirvalda. b) Bæjarbúum koma ekki við úrræði bæjarstjómar til lausnar á yfirvofandi kennaraverkfalli. c) Oddur er að velta því fyrir sér hvort hann þurfi að stofna saumaklúbb! Það er mér algjörlega hulið hvemig Oddur fær þessar niðurstöður úr stuttu svari mínu. Orðin í svarinu bjóða ekki upp á túlkun og hrokinn er túlkunar- vandræði Odds sjálfs. Oddur Júlíusson hefur skrifað fjöl- mörg bréf til bæjaryfirvalda undan- fama mánuði. Hefur hann í bréfum sínum oft hampað upplýsingalögum og hefur alltaf verið reynt að svara honum í samræmi við þau lög og af fyllstu kurteisi. Nú ber svo við að það hentar honum illa að svarað sé í samræmi við lögin, og þá er það kallað hroki. Upplýsingalögin vom sett til þess að veita almenningi aðgang að vissum gögnum hjá opinberum aðilum. Það er ekki skráð í lögunum að skylt sé að svara hinum ýmsu spumingum og hugleiðingum Odds Júlíussonar, hvað þá að þola opinberlega skítkast frá honum án þess að svara fyrir sig. Páll Einarsson. Höfundur er bœjarrítari. Unglist '97: l/érðw í fnv/n I. név Laugardaginn 1. nóvember nk. verður efnt til listadags sem ætlaður er ungu fólki. Dagurinn er á vegum Unglistar ‘97 sem nær til landsins alls. Þema dagsins í Eyjum er „Blautt“ og þai' gefst fólki á aldrinum 16 til 25 ára tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum sfnum. Listsýning og uppákomur verða um daginn en um kvöldið verður skemmtun. Fer þetta fram á þremur stöðum í bænum. Selma Ragnarsdóttir, sem hefur veg og vanda af þessum listadegi unga fólksins ásamt Jóhönnu Ýr Jónsdóttur segir að næstum allt komi til greina. „Það má vera myndlist, ljósmyndir, húsgagna- og fataliönnun, ljóð. smásögur. skúlptúrar, gjömingar og jafnvel stuttmyndir. Eða allt sem ykkur dettur í hug þegar talað er uin list. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu geta haft samband við okkur Jóhönnu en báðar emm við í símaskránni," sagði Selma.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.