Fréttir - Eyjafréttir - 15.01.1998, Qupperneq 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 15. janúar 1998 • 2. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími:481 3310 • Myndriti: 481 1293
Siguröur VE:
íslandsmet
í loðnuafla
og líklega
heimsmet
Sigurður VE var aflahæsta
loðnuskipið í íslenska flotanum á
síðasta ári. Alls fékk skipið
50.081 tonn af loðnu og landaði
43 sinnum. Þar að auki landaði
Sigurður rúmlega 5400 tonnum
af síld úr norsk-íslenska stofn-
inum.
Eftir því sem blaðið kemst næst er
hér um íslandsmet að ræða í
loðnuafla. Einhver skip hafa áður
landað meira aflamagni á árs-
grundvelli en þá eru þar fleiri
tegundir með, t.a.m. bæði síld og
bolfiskur. En ekkert skip mun áður
hafa landað meiri loðnu á einu ári.
Kunnugir segja að hér sé urn
heimsmet að ræða en öllu erfiðara
er að sannreyna það þar sem
aflatölur frá hinum ýmsu heims-
homum liggja ekki á lausu. En alla
vega er hér um mikinn afla að
ræða sem skipstjóri og skipverjar
mega vera hreyknir af.
Enginn fýll
I nokkrar vikur hefur enginn
fýll sést í Vestmannaeyjum.
Þetta er mjög óvenjulegt og er
rakið til þess að lítið æti sé að
flnna í sjónum í kringum Eyjar.
„Það sést enginn fýll og hann
hefur ekki sést hér í margar vikur,“
segir Kristján Egilsson forstöðu-
maður Náttúrugripasafnsins. „Það
gefur til kynna að hér sé ekkert æti
að hafa. Ég ræddi við trillukarl sem
ekki sagðist hafa séð fýl lengi en
aftur á móti væri mikið af máf.
Hann virðist vera svangur því
trillukarlinn sagði að hann réðist
óhikað á ftsk á línunni hjá ser.“
Kristján sagðist hafa rætt þetta við
Óskar Sigurðsson, vitavörð í
Stórhöfða sem merkt hefur um 17
þúsund fýla. „Óskar sagði að þetta
væri mjög sérstakt. Það kernur
fyrir að fýllinn hverfur í nokkra
daga, sérstaklega fyrir ákveðin
veður, en hann skilar sér alltaf
aftur.“
Þróunarfélagið og Sparisjóðurinn sameinast um átak í atvinnumálum:
Koma á upp vísl að iðn-
görðum fyrir smáfyrirtæki
Þróunarfélagið Vestmannaeyja
hefur í undirbúningi stofnun
Iðngarða í Vestmannaeyjum. Gert
er ráð fyrir að Iðngarðarnir hýsi
um tíu smáfyrirtæki á sviði léttari
iðnaðar og er ætlaður frumkvöðl-
um sem vilja vinna úr hugmyndum
með það að markmiði að hefja
sjálfstæðan rekstur. Gert er ráð
fyrir því að þátttakendur í Iðngörð-
unum sjái sjálflr um niðurhólfun og
breytingar á húsnæðinu í samræmi
við þarfir starfseminnar.
Bjarki Brynjarsson, hjá Þróunafé-
laginu, segist hafa tekið við sér eftir að
hafa lesið lesendabréf sem birtist í
Fréttum nýlega og skrifað var af
Sigrúnu Gísladóttur þar sem hún lýsti
yfir áhuga sínum á að komið yrði á fót
svona starfsemi í Eyjum. „Ég ræddi
við Sigrúnu og í framhaldi af því fór
ég að athuga með húsnæði. Ég vissi
af iðnaðarhúsnæði í eigu Sparisjóðs
Vestmannaeyja á Flötum 25, en það
pláss er um sexhundruð femietrar.'1
Benedikt Ragnarsson sparisjóðsstjóri
segir að erindi Þróunafélagsins um
leigu- og samstarfssamning hefði
hlotið jákvæðar undirtektir á fundi
stjómar sjóðsins í sl. viku. „Frum-
kvæði Þróunarfélagsins að skapa betri
aðstöðu fyrir smáiðnað er liður í því
að auka fjölbreytni í atvinnulífinu í
Vestmannaeyjum og ég tel það hið
bestamál."
Bjarki segir að að hugmyndin sé að
Iðngarðarðamir verði sjálfbær eining,
en vegna samnýtingar á húsnæði og
búnaði verði hægt að halda kostnaði í
lágmarki. „Við erurn þá að tala um
sameiginlega símsvörun og bókhald,
en það yrði þó ákvörðun fyrirtækjanna
sjálfra. Einstaklingar sem óska eftir
þátttöku í Iðngörðunum munu taka
þátt í námskeiði um stofnun og rekstur
smáfyrirtækja þar sem meðal annars
markmið verði skilgreind og gerð
viðskiptaáætlana. Auk þess mun hver
einstaklingur njóta aðstoðar Þróunar-
félags Vestmannaeyja í formi
ráðgjafar í vinnu- og vömþróun."
Það er liður í þessari hugmynd að
Sparisjóðurinn taki virkan þátt í
uppbyggingu Iðngarðanna í samstarfi
við Þróunarfélagið. „Samstarfið yrði
fólgið í því að gerður yrði víkjandi
leigusamningur til eins árs, milli
Þróunarfélagsins og Sparisjóðsins um
afnot af húsnæði að Flötum 25, og
framhaldið síðan metið í Ijósi reynsl-
unnar. Með víkjandi leigusamningi er
átt við að leiga yrði greidd í samræmi
við fjölda þátttakenda. Þróunarfélagið
yrði því ábyrgur leigutaki gagnvart
Sparisjóðnum og Þróunarfélagið
leigði síðan fyrirtækjunum. Þróunar-
félagið legði hins vegar til námskeið
og aðstoð í formi vinnuframlags til
Þátttakenda í Iðngörðunum."
Nýnapótekímars
Apótekið, seni Sigmar Pálma-
son. Andrés Sigmundsson og
fleiri ætla að stofna, verður
opnað í byrjun mars.
Þeir keyptu Geysi við Skólaveg
undir starfsemina og em þegar
búnir að panta innréttingar. „Það á
bara eftir að hreinsa til og þá tekur
ekki langan tíma að korna upp
innréttingum og flísaleggja. Geri
ég ráð fyrir að það verði búið um
mánaðamótin febrúar rnars og þá
er okkur ekkert að vanbúnaði að
opna apótekið. Við erurn í
samstarfi við lyfjafræðing sem
mun sjá um reksturinn,“ sagði
Sigmar í samtali við blaðið.
Félag eldri borgara varð tíu ára þann 7. janúar. í stjórn eru Hjörleifur
Guðnason, Hilmar Rósmundsson, Kristjana Þorfinnsdótir, formaður,
Rebekka Hagalínsdóttir, Guðrún Andersen og Sveinn Magnússon. Á
myndina vantar Erlend Stefánsson.
Ætla alla leið
I gær var dregið í undanúrslitum
bikarkeppninnar í handbolta seni
bæði kvenna- og karlalið ÍBV
komust í.
Stelpurnar fá erfiðari andstæðinga
því þær mæta Stjömunni, sem er í
efsta sæti deildarinnar. á útivelli.
Strákamir fengu aftur á móti heima-
leikámóti Val.
Ingibjörg Jónsdóttir, fyrirliði, segir
þetta engan dauðadóm. „Þær voru í
erfiðleikum með okkur síðast. Á
góðum degi stoppar okkur ekkert og
við ætlum í úrslitaleikinn."
Þorbergur Aðalsteinsson.' þjálfari
karlaliðsins, segir að best hefði verið
að fá HK heima en telur þetta næst-
besta kostinn. „Það er ekkert gefið.
Þetta gæti orðið erfitt en við ætlum
okkur alla leið.
Leikimir fara fram næsta miðviku-
dag og úrslit verða 7. febrúar.
Stelpurnar höfðu fulla ástæðu til að
fagna eftir sigur á Haukum. Bls. 15
EÆ Kodak
GÆÐAFRAMKÖLLUN
Bókabúðin
Heiðaivegi 9 - Sími 481 1434