Fréttir - Eyjafréttir - 15.01.1998, Qupperneq 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 15.janúar 1998
Sælkeri vikunnar -
Humar og
skötuselur
Sœlkeri síðustu viku
Hallgrímur Sigurðs-
son, skoraði á nafna
sinn Guðmundsson
að taka við sem
hann gerir hér með.
„Eg þakka nafna
fyrir að troða mér
inn í þennan þátt.
Eg ætla að fara að hans beiðni og
koma með eitthvað úr sjónum, bæði
humar og skötusel, hvort tveggja
einfalda og góða rétti.
Pönnusteiktur humar í rifsberja-
sósu:
1 kg humar
1/2 tsk. salt
1/2 tsk. pipar
3/4 tsk. paprikukrydd
1/4 stk. gullostur
6 - 7 msk. rifsberjahlaup
2 pelar rjómi
Kippum humrinum úr skelinni og
setjum hann á vel heita piinnu. Gott er
að nota djúpa pönnu. Stráum salti,
pipar og paprikukryddi yfir og látum
krauma í u.þ.b. eina mínútu. Síðan
setjum við ostinn og rifsberjahlaupið
út í og veltum öllu saman þar til ostur
og hlaup em við það að bráðna niður.
Þá hellum við rjómanum út á og
sjóðum vel saman. ekki lengur en 4
mínútur. Þar með er rétturinn tilbúinn
og best að bera hann fram á pönnunni.
Með þessu er borið ristað brauð og
hrásalat og milt hvítvín hentar einkar
vel með þessu.
Ofnhakaður skötuselur með rjóma-
piparostasósu:
1 skötuselshali. ca. 1-1,3 kg
5()()-6(K) g fryst grænmetisblanda
(eftirlætisblanda)
2 þeyttar eggjahvítur
60-100 g hvítlaukskryddsmjör
Takið skötuselinn t'rá beininu og
hreinsið hann vel. Skerið raufar þvert
á fiskinn með jöfnu millibili, 2 cm
djúpar. Setjið fiskinn í eldfast mót,
skerið kryddsmjörið niður og raðið
því í raufarnar. Penslið hann mjög vel
með eggjahvítunni. Græn-metis-
blöndunni er raðað í mótið kringum
fiskinn. Sett í 170-180° heitan ofn í
25 til 30 mín.
Með þessu berum við pipar-
ostasósu, ferskt salat og Golden Rice
hrísgrjón. Mjög gott er, þegar búið er
að sjóða hrísgrjónin, að setja
Camembertost saman við þau og láta
allt bráðna saman. Ef fólk vill
endilega þamba meira af hvítvíni þá er
það svo sem í lagi.
Piparostasósa:
1-2 piparostar
1-3 pelarrjómi
Magnið fer alveg eftir því hve sterka
sósu fólk vill.
Bræðið ostinn við vægan hita í potti
og hellið rjómanum saman við.
Einfaldara getur það varla verið.
Eg ætla að skora á Guðmund
Ágústsson að taka við matseldinni í
sælkeraþættinum. Ég hef sjálfur
kynnst snilld hans í eldhúsinu og veit
að enginn verður svikinn af þvf sent
hann kentur með.“
Munið ódýra Bakkaflugið.
Hvenær sem þér hentar.
Bílaleiga á Bakkaflugvelli
Pantanir í síma 481 3255
% 7 A?
VESTMANNAEYINGAR ATHUGIÐ !
Kl. 8.00 frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur
Kl. 18.00 frá Reykjavík til Eyja
Pantanir hjá íslandsflugi í síma 481 3050
Vorum mikið kysstir
Eins og fram kemur í blaðinu i
dag buðu þeir útgerðarmenn á
Byr VE, Sævar Brynjólfsson og
Sveinn R. Valgeirsson, eldri
borgurum í Vestmannaeyjum til
lúduveislu á dögunum og þótti
hún heppnast frábærlega vel.
Veislan varhaldinað
Hraunbúðum og margréttað,
þ.á.m. grálúða, lúðusúpa,
innbökuð lúða, lúða með
hnetum, lúða í brúnni sósu upp
á gamla mátann og svo
lúðuhausar. Yfirumsjón með
matseldinni hafði Sigurður Gíslason
hjá Veisluþjónustunni en naut
aðstoðar matreiðslufólks á
Hraunbúðum. í tilefni af þessu ágæta
framtaki er Sveinn Valgeirsson
Eyjamaður vikunnar þetta sinnið.
Fullt nafn? Sveinn Rúnar
Valgeirsson.
Fæðingardagur og ár? 5. október
1951.
Fæðingarstaður? Reykjavík.
Fjölskylduhagir? Kvæntur Þóru
Guðjónsdóttur. Við eigum synina
Nökkva, Guðjón Emil og Leó Snæ.
Menntun og starf?
Stýrimannaskólinn. Útgerðarmaður
og skipstjóri.
Laun? Frekarhoruð.
Helsti galli? íhaldsmaður.
Helsti kostur? Að vera
sjálfstæðismaður.
Uppáhaldsmatur? Auðvitað lúða;
smjörsteikt smálúða.
Versti matur? Hákarl.
Uppáhaldsdrykkur? í augnablikinu
er það Bacardi og kók.
Uppáhaldstónlist? Ég hef gaman af
bæði klassík og blús.
Hvað er það
skemmtilegasta
sem þú gerir?
Alls konar
veiðimennska.
Hvað er það
leiðinlegasta
sem þú
gerir? Að
sitja leiðinlega
fundi, til að
mynda er ég
að fara á einn
með hafnar-
stjóranum og
hlakka ekkert til
þess.
Hvað myndirðu gera ef þú
ynnir milljón í happdrætti? Stinga
henni i vasann.
Uppáhalds stjórnmálamaður?
Guðjón bæjarstjóri.
Uppáhalds íþróttamaður? Hermann
Hreiðarsson..
Ertu meðlimur í einhverjum
félagsskap? Nei, engum. Ogþó,
Veiðifélaginu í Álsey.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Fréttir.
Uppáhaldsbók? Pólstjarnan er eina
bókin sem ég hef lesið tvisvar.
Hver eru helstu áhugamál þín?
Veiðimennska.
Hvað metur þú mest í fari annarra?
Að menn séu sjálfum sér samkvæmir.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra? Illgirni..
Fallegasti staður sem þú hefur
komiðá? Álsey.
Hvernig datt ykkur í hug að fara að
bjóða í lúðuveislu? Það kom nú
nokkuð af sjálfu sér. Við höfum
gegnum tíðina verið að gefa
eldri borgurum lúðuhausa
og það er eins og verið sé
að gefa þeim gull. Svo
datt okkur í hug að efna til
smáveislu og létum verða
af því
Hvernig voru
móttökurnar? Égmyndi
segja að þær hefðu verið
mjöggóðar. Allavega
vorum við mikið kysstir. Svo
þakkaði kór eldri borgara okkur
fyrir með söng og það var virkilega
skemmtilegt.
Má eiga von á frekari
veisluhöldum? Já, við stefnum að
því að halda þetta aftur að ári ef okkur
endist aldur og heilsa til. Annars eru
það kokkarnir sem eiga mestan
heiðurinn af þessu, þetta var alveg
frábært hjá þeim.
Hvað dettur þér í hug þegar þú
heyrir þessi orð?
-Lúða? Sævar Brynjólfsson, hann er
svo líkur stórlúðu.
-Útgerð? Öfugur hlaupareikningur.
-Sævar Brynjólfsson? Bjartsýni.
Eitthvað að lokum? Við erum bara
ánægðir með hversu vel þessi veisla
tókst og hve viðtökurnar voru góðar.
Nýfceddir Vestmannaeyingar
(f
Drengur
Þann 29. okt. sl.
eignuðust Guðný
Guðinundsdóttir og
Hersir Sigurgeirs-
son dreng sem
hefur verið skírður
Sesar. .Hann vó 15
merkur og var 51
cm og er hér í
faðmi móður
sinnar.
Fjölskyldan er
búsett í Kalifomíu í
Bandaríkjunum.
Drengur Þann 28. nóvember eignuðust Vallý
Ragnarsdóttir og Ómar Öm Magnússon dreng sem skírður hefur
verið Magnús Örn. Hann vó 16,5 merkur og var 55 cm að lengd.
Það eru hinir stoltu foreldrar sem eru með drengnum á myndinni.
Ljósmóðir var Guðný Bjarnadóttir
Stúlka
Þann 6. janúar eignuðust Sara Guðjónsdóttir og Sigurjón
Andrésson stúlku. Hún mældist 53 cm og vó 15 merkur. Það er
hinn nýbakaði faðir sem heldur á dótturinni.
Fjölskyldan er búsett í Reykjavík
Drengur
Þann 24. desember
eignuðust
Sigurlína
Guðjónsdóttir og
Smári Harðarson
dreng. Drengurinn
vótæpar 17
merkur og var 54
cm að lengd. Það
er Sigríður Margrét
stóra systirsem
heldur á bróður
sínum á myndinni.
Ljósmóðir var
Drífa Björnsdóttir