Fréttir - Eyjafréttir - 15.01.1998, Blaðsíða 11
Fimmtudagur I5.janúar 1998
Fréttir
Fjörutíu og níu Eyjasjómenn í Slysavarnaskóla sjómanna:
Nám við skólann skil-
yrði fyrir skráningu
-Þeir sem skráðu sig á námskeið fyrir áramót fá undanþágu frá reglugerðinni
Kennarar og nemendur í Slysauarnaskóla Sjómanna.
Nú um áramótin gekk í gildi ný
reglugerð um skráningar sjómanna
á skipum sem eru tólf metrar eða
lengri. Reglugerðin kveður á um
það að allir sjómenn sem eru á
skráningarskyldum skipum verði
að hafa lokið námskeiðum frá
Slysavarnaskóla sjómanna. Skól-
inn er nú með námskeið fyrir
sjómenn í Vestmannaeyjum en
hann er nú á tólfta starfsári og
hefur margsannað gildi sitt þau ár
sem hann hefur starfað. Efa menn
ekki að sú þekking sem miðlað er í
skólanum hefur komið sjómönnum
til góða, jafnvel þótt þeir væru ekki
á sjó. Hátt í þrettán þúsund manns
hafa lokið námskeiðum frá
skólanum þessi ár sem gerir
rúmlega þúsund sjómenn á ári.
Þráinn Skúlason, Halldór
Almarsson og Einar Öm Jónsson eru
kennarar við skólann og sjá um
námskeiðahaldið þessa daga sem
skólinn verður starfræktur hér í
Eyjum.
Halldór Almarsson segir að þeir
hafi alla tíð verið í Eyjum í
janúarmánuði. Þá þjálfi þeir nem-
endur í Stýrimannaskólanum og þá
sem eru á vélstjómarbraut. „Þetta er
um hálfsmánaðar töm í senn, þá
tökum við fyrsta stig stýrimanna- og
vélskólans fyrri vikuna og annað stig
stýrimanna seinni vikuna og reynum
að koma inn eins mörgum auka-
mönnum og við getum á grunnnám-
skeiðin.“
Hann segir að skráðir nemendur í
skólanum til hausts 1999 séu um átta
hundruð. Hann giskar því á að um
það tvö þúsund sjómenn eigi eftir að
fara í skólann ef tekið er mið af öllu
landinu.
Þegar blaðamaður Frétta leit inn á
námskeiðið var 31maður að hlýða á
Þráin Skúlason, sem hélt mikla tölu
um eldvamir. I heildina em hins
vegar fjörutíu og níu manns skráðir í
þessari töm. „Við höfum alltaf komið
á Sæbjörginni," segir Halldór. „En nú
er hún orðin það léleg að hún fær ekki
haffæmiskírteini en við höfum ennþá
von um að fá Akraborgina þegar þar
að kemur.“
Halldór segir að allir sem stunda
sjómennsku þurfi að hafa lokið námi í
Slysavamarskóla sjómanna. „Vegna
þess mikla fjölda sem enn á eftir að
fara á námskeiðin var ákveðið að þeir
sem skráðu sig fyrir áramótin fengju
að sama skapi sjálfkrafa undanþágu
frá reglugerðinni þangað til þeir hefðu
lokið skólanum. Þannig að nú er búið
að fullskrá á öll námskeið á þessu ári
og fram á haust árið 1999. Við
þurfum því eitt og hálft ár til þess að
allir þeir sem ekki hafa lokið nám-
skeiðunum hafi réttindi samkvæmt
þessum nýju reglum.
Halldór nefnir að margir þeirra sem
höfðu samband við skólann fyrir
áramótin væru menn sem stunda sjó
tímabundið en verði samt að hafa
þessi réttindi. „Hins vegar vil ég líka
að það komi fram að þeir sem eru að
byrja til sjós í fyrsta skipti. þurfa ekki
að mæta á námskeið hjá skólanum
fyrr en þeir hafa verið á sjó í sex
mánuði. Þeir hafa því ákveðinn
aðlögunartíma upp á að hlaupa. Það
er mikil hreyfmg á mönnum í
sjómannastéttinni, þannig að stundum
getur verið erfitt að ná til allra.“
Hann segir að frá 1990 - 1996 sem
þó er bara helmingur þess tíma sem
skólinn hefur starfað, megi sjá
marktæka fækkun slysa hjá sjó-
mönnum. Árið 1990 hafi 620
sjómenn slasast en 1996 hefur þeim
fækkað niður í432. Á þessu tímabili
voru samt 3536 sjómenn frá vinnu og
bótagreiðslur námu um níuhundruð
milljónum. „Við skulum vona að
þessa fækkun megi rekja til Slysa-
vamaskólans og þeirrar fræðslu sem
þar er miðlað. Meginþátturinn í
kennslunni hjá okkur hefur miðast við
það hvemig bregðast skuli við slysum
og óhöppum, en það er von okkar að
við getum farið að einbeita okkur
meira að fyrirbyggjandi þáttum í
framtíðinni. Að þessu leyti er skólinn
kannski á byrjunarreit ennþá, en við
sjáum fram á eitt og hálft ár í
grunnnámskeiðum miðað við þann
fjölda nýliða sem skráðu sig fyrir
áramótin.“
Hótel ísland verður Broadway:
Vestmannaeyjakvöld í vetur
Ráðgert er að halda Vestmanna-
eyjakvöld á Broadway, Hótel Is-
landi í vetur. Tvisvar áður hafa
verið lialdin slík kvöld á Hótel
Islandi. Þær skemmtanir hafa
tekist svo vel að ráðgert er að gera
þær að föstum lið í rekstrinum.
Ekki er enn búið að dagsetja næstu
skemmtun en Vestmannaeyingar
verða látnir vita með góðum fyrir-
vara svo hægt verði að skipuleggja
helgarferð á skemmtunina, þar sem
Vestmannaeyingar hvaðanæva af
landinu geta hist og átt góða kvöld-
stund, með söng og dansi.
Hróður Broadway hefur hefur
borist víða um lönd og hafa stór-
sýningar þær sem Ólafur Laufdal
hefur sett upp átt miklum vinsældum
að fagna meðal landsmanna. Sú
breyting er ffamundan að veitinga- og
skemmtistað Ólafs Laufdals á Hótel
Islandi verður formlega gefið nafnið
Broadway laugardaginn 31. janúar
næstkomandi.
í vetur verður haldið áfram með
hina glæsilegu tónlistardagskrá Björg-
vins Halldórssonar, „I útvarpinu
heyrði ég lag“ og hefjast þær 17.
janúar næst komandi. Þar fer
Björgvin á kostum með frábærri
stórhljómsveit undir stjóm Þóris
Baldurssonar. Dagskráin hefur yfir
sér dálítinn útvarpsblæ. Þar er stillt á
ýmsar bylgjulengdir og allir finna sfna
„rás“. Áðrir söngvarar sem taka þátt í
sýningunni em Guðrún Gunnarsdóttir,
Eyjólfur Kristjánsson, Ingi Gunnar
Jóhannson og Pétur Guðmundsson.
Gestir koma einnig í heimsókn og
taka lagið. Kynnir er hinn nafntogaði
útvarpsmaður Jón Axel Ólafsson.
Útsetningar annaðist Þórir Baldurs-
son, en um sviðsetningu og útlit sá
Bjöm G Bjömsson.
Sýningin hefur fengið mjög
jákvæðar undirtektir gesta og aðsókn
verið mjög góð.
umHvað segja sjómennirnir Slysavarnaskólann?
Gott námskeið
fyrir alla sjómenn
-segir Valmundur Valmundsson
Valmundur
Valmundur Valmundsson er á
fyrsta stigi skipstjórnarbrautar
Framhaldsskólans. Hann er einn
þeirra sem er á námskeiði Slysa-
varanaskóla sjómanna. Hann er
ánægður með námskeiðið og segir
að þetta sé nauðsynlegur þáttur í
námi sérhvers sem ætli að stunda
sjó sem atvinnu.
„Við erum skyldaðir til þess að
taka þetta námskeið sem hluta af
náminu í Framhaldsskólanum. Þetta
er mjög gott námskeið fyrir alla
sjómenn. Eg hef verið á sjó í yfir
tuttugu ár og margt sem hér er nefnt
er ég að læra í fyrsta skipti.“
Hann segir að margt hafi komið
sér á óvart og þá sérstaklega þau
atriði sem kunna að konia fyrir úti á
sjó og bregðast þurfi við með
skjótum hætti. „Oft á tíðum hugsar
maður hlutina í rangri röð þegar
maður stendur frami fyrir þeim,“
segir Valmundur.
En þar sem þú hefur margra ára
reynslu til sjós, getur þú þá ekki líka
miðlað einhverju af þinni reynslu?
„Auðvitað gerir maður það. Ein
af forsendununt fyrir þessum
námskeiðum er að menn taki þátt í
umræðum og miðli af reynslu sinni.
Það er líka athyglisvert að nokkrir
þeirra ungu manna sem eru á
námskeiðinu og hafa verið stutt á
sjó, eru mjög áhugasamir og dug-
legir að spyrja og taka þátt í
samræðum. Enda sjá menn það í
hendi sér að þetta kemur okkur
öllum til góða að geta unnið vel
saman ef eitthvað kemur upp á.
Þetta námskeið er kannski fyrst og
fremst til þess að samhæfa mann-
skapinn, á hugsanlegri örlaga-
stundu.“
Hefur aðbúnaður og öryggismál
ekki tekið stórstígum framförum
síðan þú byrjaðir til sjós?
„Það hefur auðvitað mikil
breyting átt sér stað. Þegar ég
byrjaði á sjó fyrir norðan lenti ég
með mjög góðurn skipstjóra, sem
gerði akkúrat það sem menn hafa
verið að kenna á þessu námskeiði í
sambandi við nýliðafræðsluna.
Hann fór með mann um allt og sýndi
hvar öryggisbúnaðurinn var í skipinu
og hvemig ætti að nota hann. Hann
kynnti mönnum hvernig ætti að slá
af og beygja. Hins vegar kom
maður stundum á önnur skip, þar
sem þessunt málum var ekkert sinnt.
Núna er maður orðinn meðvitaðri
um það, ef að nýr maður kemur, þá
veit liann ekki til dæmis um
öryggisþætti skipsins, nema spyrja
um það, en þvf miður gera fæstir
það. En það þarf að leiðbeina
mönnum unt öll öryggisatriði um
borð og menn eru alltaf að skilja
alvöru málsins betur og betur.“
Arni Sigurður Pétursson:
Getur aldrei
gert neinum illt
Ární Sigurður
Árni Sigurður Pétursson hefur
verið á sjó í tvö ár með hléuni.
Hann er á vélstjórnarbraut Fram-
haldsskólans. Hann segir að
menn læri mjög mikið á svona
námskeiðum.
„Ég er búinn að fara á grunn-
námskeiðið, þannig að ég hef séð
margt af þessu áður, en það kemur
alltaf einhver viðbótarkunnátta. Góð
vísa er aldrei of oft kveðin.“
Ámi segir kennarana ágæta og
ganga röggsamlega frant í kennsl-
unni en stundum geti komið upp
spaugileg atvik sem nauðsynlegt er
öðra hvoru til að létta á mann-
skapnum. Hann segir andann mjög
léttan og það þýði ekkert að láta sér
leiðast. Það verði að hafa gaman af
þessu líka
Léstu skrá þig á þetta námskeið
núna vegna þessara nýju reglna sem
tóku gildi um áramótin ?
„Þetta er hluti af vélavarðanáminu
og fylgir því en þótt ég hefði ekki
verið í náminu hefði ég samt farið á
námskeiðið. Ég er mjög hlynntur
því að þetta sé gert að skyldu. Nám-
skeiðið getur aldrei gert neinum illt.“
Tllboð í Café Turninn
Anna Antonsdóttir sem hefur haft rekstur Café Turnsins með höndum frá
því hann fékk endurnýjað veitingaleyfi í haust, hefur gert kauptilboð í
staðinn.
Tilboðið hljóðar upp á sautján milljónir. Inni í því eru kaup á húsnæði og
rekstri ásamt yfirtöku einhverra skulda, þó ekki allra. Á meðan samið verður
um skuldir og tilboðið metið liefur verið gerður leigusamningur til eins mánaðar
milli hins nýja rekstraraðila og fráfarandi rekstraraðila Sigurjóns Jakobssonar.
Anna segir að reksturinn hafi gengið vel frá þvf hún tók við honum. Hún
segir að tilboðið miðist við að kaupa söluturninn líka. Anna er bjartsýn á
framhaldið og segir að unnið sé að ýmsum hugmyndum til að efla staðinn og
gera hann að jákvæðum þætti í mannífinu, auk þess sem verið sé að vinna í því
að stækka staðinn.