Fréttir - Eyjafréttir - 15.01.1998, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 15.janúar 1998
Fréttir
15
Eyjamenn mættu stjörnuprýddu
liði Aftureldingar í 8 liða úrslitum
bikarkeppninnar að Varmá síðast-
liðinn laugardag. Fyrirfram voru
menn ekkert alltof bjartsýnir á
þennan leik en eftir að Guðfinnur
Kristmannsson hafði gefið tóninn
fyrir IIiV í byrjun leiks var aldrei
vafi á því hverjir færu með sigur af
hólmi.
Eyjapeyjar komu greinilega vel
stemmdir til leiks og tóku leikinn strax
í sínar hendur. Þetta kom kjúkling-
unum úr Mosfellsbæ í opna skjöldu og
var greinilegt vanmat í herbúðum
þeirra. Leikurinn var prúðmannlega
leikinn og var það því sem köld
vatnsgusa í andlit Eyjamanna þegar
Svavar Vignisson, sem spilað hafði
mjög vel í byrjun leiks, fékk rauða
spjaldið fyrir mjög svo smávægilegt
brot í byrjun leiks. En strákamir létu
þetta ekki á sig fá og léku af mikilli
skynsemi allan leikinn og létu
leikmenn Aftureldingar aldrei í friði.
Afturelding náði aðeins einu sinni að
jafna í 15-15 en í kjölfarið fylgdu 4
mörk ÍBV og héldu þeir forystunni út
leikinn. Lokatölur 24-29. Vömin lék
geysivel og skóp sigurinn, sérstaklega
í ljósi þéss að Sigmar Þröstur varði
aðeins 9 skot í leiknum en það gerist
nú ekki oft. Hjörtur og Belló nýttu
færin sín mjög vel og eins tóku þeir
Guðfinnur, Sigurður og Robertas af
skarið þegar þess þurfti.
Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari
ÍBV, var að vonum kampakátur í
Strákarnir höfðu ástæðu til að fagna við heimkomuna.
leikslok og stoltur af frammistöðu
strákanna. „Okkar tími er alltaf eftir
áramót. Þetta er bara svona og verður
ekki breytt,“ sagði Þorbergur eftir
Ieikinn. __
Mörk ÍBV: Zoltán Belánýi 8/2,
Hjörtur Hinriksson 7, Guðfinnur
Kristmannsson 3, Robertas Pauzuolis
3, Sigurður Bragason 3, Svavar
Vignisson 2, Erlingur Richardsson 1.
Sigmar Þröstur varði 9/2 skot.
Dapurtgengi ÍBV
I
I Islandsmótið í innanhússknatt-
| spyrnu fór fram um síðustu helgi,
bæði í karla og kvennaflokki. I
I karlaflokki var IBV í riðli með
■ ÍBK, ÍA og Leikni. Okkar
* mönnum gekk ekki vel3 þeir
| byrjuðu á því að tapa fyrir IBK 1-
_ 4 og IA 3-6 en náðu að halda sæti
I sínu í deildinni með því að sigra
■ Leikni 6-5. IBV var í sterkasta
* riðlinum sem sést best á því að IA
| og IBK spiluðu til úrslita í mótinu
- og endaði leikurinn 2-1 fyrir IA.
I
Jóhannes Ólafsson, formaður I
knattspymudeildar, sagði í samtali I
við FRETTIR að míirgt hefði spilað
inn í dapurt gengi liðsins. Margir af |
lykilmönnum síðan í fyrra hefðu
ekki verið með og ungir og efnilegir
leikmenn fengið að spreyta sig.
Leik- og samæfingu hefði verið
ábótavant og þá er ekki von á góðu.
„Ljósi punkturinn er náttúrulega sá
að við héldum okkur uppi,“ sagði
Jóhannes að lokum.
Öflugt unslingaráð
A mánudaginn var gengið frá stofnun unglingaráðs IBV í fótboltanum.
Ráðið sér um þriðja flokki og þar fyrir neðan.
Ráðið skipa Jón Oskar Þórhallsson, Friðrik Friðriksson (markmaður). Hlynur
Sigmarsson. Sigurbergur Ármannsson og Ólafur Snorrason.
„Það er vonandi að við getum látið eitthvað gott af okkur leiða og okkur lánist
að efla unglingastarfið," sagði Jón Óskar.
Átta liða úrslit: Haukar 22 ÍBV 23:
Glæsilegur baráttu-
sigur Eyjastúlkna
Eyjastelpur mættu núverandi
bikarmeisturum Hauka á útivelli sl.
laugardag og sigruðu með glæsi-
brag eftir framlengdan leik, 22-23.
Urslitin verða að teljast nokkuð
óvænt, sérstaklega í ljósi þess að
Haukar voru með vænlega stöðu í
hálfleik, 13 - 8.
Það virtist fátt ætla að koma í veg
fyrir ömggan Haukasigur um síðustu
helgi en með mikilli baráttu og sterkri
vöm náði ÍBV að snúa leiknum sér í
hag og var mikil spenna allt til enda.
Aðeins 1 - 2 mörk skildu liðin að á
lokasprettinum en Eyjastúlkur ætluðu
sér greinilega ekkert annað en sigur og
uppskám samkvæmt því. Lokatölur
22-23 og ÍBV komið í undanúrslit
bikarkeppninnar.
Jón Bragi Amarsson. þjálfari ÍBV
var í sjöunda himni eftir leikinn. „Það
verður að segjast alveg eins og er að
útlitið var nú heldur svart í hálfleik en
við neituðum að gefast upp og með
skipulögðum vamarleik ásamt
frábærri liðsheild þá tókst okkur að
knýja fram sigur í lokin.“
Til marks um vamarleikinn þá fékk
ÍBV aðeins á sig 4 mörk á 28
mínútum í seinni hálfleik. „Stelpumar
em staðráðnar í að fara alla leið en nú
er það deildin sem tekur við og ætlum
við að einbeita okkur að henni", sagði
Jón Bragi að lokum.
Mörk IBV: Andrea Atladóttir 8,
Ingibjörg Jónsdóttir 6. Sara M Ólafs-
dóttir 2, Guðbjörg Guðmannsdóttir 2,
Sandra Anulyte 2, Stefanía Guðjóns-
dóttir 1, María Rós Friðriksdóttir 1.
Hilmar og Halli mæta á hverjum laugardegi íTippið.
Um næstu helgi er síðasta umferðin
í fyrri hópleik IBV og Frétta.
Keppnin í úrslitariðlunum tveimur
er mjög spennandi og er staðan í
þeim eftirfarandi:
Riðill 1 :Hrossagaukí»mir 25, í vörina
25, Men at work 23. Doddarnir 21,
Allra bestu vinir Ottós 19, HH-
flokkurinn 19, Austurbæjargengið 19
og loks Gaui bæjó 17 stig.
Riðill 2: K-tröllin 23, Húskross 22,
Mariner 22, Flug-eldur 21, Don Revie
20, Jagama 18. Klapparar 18 og
Rauðu djöflamir 15 stig.
Það verður því spennandi að
fylgjast með framvindu mála um
næstu helgi. Helst vekur athygli að K-
tröllin sem tóku aðeins 1 stig með sér
í úrslit eiga nú mikla möguleika á að
sigra sinn riðil og má segja að þeir
félagar séu að spila langt umfram
getu, eða svo segja Klapparafeðgamir
að minnsta kosti.
Nýjum hópleik var startað um
síðustu helgi og var frábær þátttaka og
bar þar hæst að skipverjar á
tippfleytunni Þómnni Sveinsdóttur VE
sendu inn, hvorki meira né minna en
13 hópa og geri aðrir betur. Segir
sagan að Viðar Sigurjónsson láni
hverjum þeim skipverja, sem þátt
tekur í hópleiknum, kojuna sína í tvær
nætur og fái að nota kaffibollann hans
í eldhúsinu í jafn langan tíma.
Mörg óvænt tíðindi áttu sér stað í
nýjum hópleik. Meðal þess sem gerð-
ist var að Biggi og Stebbi sem stýra
Bláu Löduni fóm á topp A-riðils. Men
at work fóru á botn sama riðils, en em
í úrslitum fyrri leiksins.
Þeir feðgar Helgi Lása og Huginn
mættu aftur til leiks, og segir formaður
hópsins, að þeir hefðu ekki getað horft
uppá þessa hörmung og þeir yrðu að
laga skorið til. Við sjáum hvað setur.
Jójó (Eddi Garðars) fór strax í sitt sæti
(3. neðsta) og má hann muna fífil sinn
fegurri (lenti í 4. neðsta í fyrra).
Staðan í riðlunum eftir 1. umferð er
eftirfarandi:
A-riðill: Bláa Ladan 9, Hengdur og
spengdur 9, Tveir flottir 9, Flug-eldur
8, Húskross 8, Seinheppnir-SH 8,
Ármenningar 7, Geir smart 7,
Hurðaskellar 7, Hurðaskellar no.l,
Rauðu djöflarnir, Bommi og frú 6,
Charlotta 6, Munda 6 og Men at work
5.
B-riðill: Beyglaður Ijósastaur 9, Dumb
and dumber 9, Allra bestu vinir Ottós
8, Bæjarins bestu 8, Dautt á Vatni 8,
Hamar 8. Mariner 8, Villta vestrið 8,
Pömpiltar 7, Snúmsniffaramir 7, Tveir
á toppnum 7, Baukamir 6, Jójó 6,
Klaki 6 og Tvíbökur 6.
C-riðill: I vörina 9, Doddararnir 8,
E.R. 8, H.S.Þ. 8, Sig-bræður 8,
Styðjum Roy Evans 8, A-team 7, Burt
með íhaldið 7, Hænumar 7, Maur 7,
Búðarráp 6, ER-jrs 6, Gaui bæjó 5 og
Gráni gamli 5.
D-riðill: Don Revie 8, Ermasund 8,
HH-flokkurinn 8, ÍBV 8, K-tröllin 8,
Reynistaður 8, Austurbæjargengið 7,
Frosti feiti 7, Jagama 7, Klapparar 7,
Sigló-sport 7, Sveitasnakk 7. V.S.O.P.
7 og Guðmundur VE 6.
Skorið var því bara með ágætum í
fyrstu umferðinni. Mörg athyglisverð
nöfn litu dagsins Ijós, en skemmti-
legast er þó, hve lengi sum nöfnin hafa
verið í keppninni og má þar helst
nefna Klappara, Reynistað, Bláa
Ladan, Bæjarins bestu, Pörupiltar,
Tveir á toppnum, Sig-bræður, Munda
og Austurbæjargengið.
Monrad-leikurinn hefst um næstu
helgi og geta þeir sem tippa fyrir 640
eða meira í Týsheimilinu verið með.
Leikurinn er einfaldur og eru þeir sem
skráðir em til keppni settir í eina deild
og em hópamir dregnir saman í hverri
viku. Sá hópur sem hefur betur fær 3
stig og báðir hópar fá 1 stig ef þeir em
jafnir. Þetta er tilvalið fyrir tippara að
tippa saman og auka á möguleikana
með stærri seðli.
Að lokum eru tipparar hvattir að
koma í Týsheimilið á laugardögum og
þiggja kafft og bakkelsi frá Vilberg-
kökuhúsi. Þið sem ekki sjáið ykkur
fært að mæta, eruð hvattir til að
merkja við félagsnúmer 900 þegar þið
tippið í sölukössum í sjoppunum.
Komust ekki í
úrslit
Eyjastelpur léku einnig í íslands-
mótinu um helgina og urðu úrslit
sem hér segir:
ÍBV - Reynir S 3-0
ÍBV -Breiðablik 0-3
ÍBV - Valur 1 - 5
ÍBV - ÍBA 3 -1
Stelpumar lentu í 3.sæti í sínum
riðli og komust ekki í úrslit.
„Það hefði verið óraunhæft
markmið að komast í úrslit þar sem
að til þess þurfum við fleiri
æfingaleiki og meiri þjálfun. En
lakari liðin sem við höfum verið í
erfiðleikum með unnum við
nokkuð sannfærandi og er það
framför. Þegar á heildina er litið
held ég að árangurinn sé viðun-
andi,“ sagði Sigurlás Þorleifsson,
þjálfari.
Fréttir úr enska
boltanum 03 fl.
Hermann Hreiðarsson var útnefnd-
ur Knattspymumaður ársins af KSÍ
milli jóla og nýárs. Val þetta kemur
engum á óvart þar sem Hermann
stóð sig frábærlega á síðasta ári með
ÍBV, Crystal Palace og síðast en
ekki síst íslenska landsliðinu.
Bjamólfur Lámsson og félagi
hans, Ólafur Gottskálksson, voru
ekki í leikmannahópi Hibernian
sem vann sinn fyrsta sigur í 15
leikjum.
Hermann Hreiðarsson lék allan
tímann í vöm Crystal Palace sem
tapaði enn einum heimaleiknum, nú
gegn Everton. Palace hefur enn
ekki náð að sigra á heimavelli í
deildinni í ár.
Kjartan til ÍBV
Kjartan Antonsson vaiuanuaðurinn
ungi og efnilegi úr Breiðablik, hefur
skrifað undir 2ja ára samning við
Islandsmeistara ÍBV í knattspyrnu.
Kjartan er 21 árs og er af mörgum
talinn einn efnilegasti vamarmaður
landsins. í samtali við FRÉTTIR
sagði Jóhannes Ólafsson, formaður
knattspymudeildar, að mikill fengur
væri í Kjartani og kæmi hann til
með að styrkja hópinn verulega.
Góður árangur
Um síðustu helgi var einnig
Islandsmót í innanhússknattspymu
yngri flokka og var keppt á
Reykjavíkursvæðinu. Annar
flokkur kvenna stóð sig frábærlega,
vann sinn riðil og mun spila í
úrslitakeppni sem fram fer í febrúar.
Einstök úrslit urðu þessi:
ÍBV - Fylkir 4 - 2
ÍBV-ÍR 10-0
ÍBV - Afturelding 3 - 2
ÍBV - Haukar 3 - 3
Þjálfari stelpnanna er Heimir
Hallgrímsson, sent gerði garðinn
frægan með mfl.ÍBV í knattspymu
hér á ámm áður.
Framundan
Nóg verður um að vera í
íþróttalífinu um næstu helgi:
Föstudagur 16. janúnar, mfl. kv.
ÍBV - Frarn kl„ 20:00
Laugai'dagur 17. janúar, 2. flokkur
karla ÍBV-Valurkl. 14:15
Eyjamenn eru beðnir um að
fjölntenna og styðja okkar fólk til
sigurs.