Fréttir - Eyjafréttir - 15.01.1998, Side 16
í síðustu viku var verið að steypa í FES.
Ekkifallið tiagurúrí stemnni
Framkvæmdir við nýtt verksmiðjuhús loðnubræðslu ísfálagsins eru
komnar í fullan gang. Verið er að byggja grunn undir húsið og er verkið
í höndum Steina og Olla.
Gott tíðarfar í haust og vetur hefur verið aðilum í byggingariðnaði
hagstætt. Atli Elfasson t Steypustöðinni segist vart muna aðra eins
einmunatíð á þessum árstíma. „Það hefur verið hægt að steypa upp á
hvern einasta dag. Það hefur tvisvar komið næturfrost og krap einn dag
en það tafði ekkert fyrir,“ sagði Atli. „Ég man ekki annað eins tíðarfar
en ég vil þó taka fram að veðurminni mitt er ekki merkilegra en flestra
annarra “ haptti hnnn uiA
FLUTNINGAR - VESTMANNAEYJUM
» I_____j- -*t- 1-» Z * *----m.m
invyioyur iwuu uvmi u kbb mi mi
Vöruafgreiðsla
Sidldingovegi 4 Síml 481 3440
Vöruafgreiðsla ■ Reykjavík
TVO Héðinsgofa 1 - 3
Sími 581 3030
Rúnilafölr-BiKtours
Öll móttaka ferðantanna, skóla- og íþróttahópa
ODMtVVII kOSII KIW I I VH M
FAX 4811927 CD 481 1909 - 896 6810
Sendibílaakstur innanbæjar.
Vilhjálmur Bergsteinsson
SEMDlFEHðABILL
0481-2943,
* 897-1178
Er síúfræðí að flnna í
íslenskum sjávarútuegiP
-/ tilefni afári hafsins efnir Landakirkja til opinnar umræöu um málið
í tilefni af ári hafsins hefur
Fullorðinsfræðsla Landakirkju
leitað samstarfs við Hafrannsókn-
arstofnun og Þróunarfélag Vest-
mannaeyja til opinnar umræðu um
siðfræði sjávarútvegs.
Bjami Karlsson sóknarprestur
Landakirkju segir að ráðgert sé að
hefja vorönnina á þremur umræðu-
kvöldum í safnaðarheimilinu þar sem
málefnið verður reifað frá þremur
ólíkum sjónarhomum með virkri
þátttöku útgerðarmanna, sjómanna,
ftskvinnslunnar og fiskvinnslufólks.
Þriðjudagskvöldið 20. janúar mun
Hafsteinn Guðfmnsson, sjávarlífffæð-
ingur frá Hafrannsóknastofnun fjalla
um siðfræði sjávarútvegs frá sjónar-
hóli lífríkisins. Viku síðar, þann 27.
janúar mun dr. Bjarki Brynjarsson,
verkfræðingur frá Þróunarfélaginu
flytja erindi um siðfræði sjávarútvegs
frá sjónarhóli efnahagslífsins og 3.
febrúar mun sr. Bjarni Karlsson, tala
um málefnið frá sjónarhóli mannlífs-
ins.
Eftir framsögur munu verða
panelumræður. Fulltrúar hagsmuna-
aðila munu lýsa viðhorfum sínum og
svara fyrirspumum fundarmanna úr
sal. „Markmið þessara umræðu-
kvölda er að greina siðfræðileg
álitamál á sviði sjávarútvegs og skýra
ólfk sjónarmið af yftrvegun." segir
Bjami. .frummælendur munu semja
texta í framhaldi af kvöldunum
þremur sem lagður verður fyrir þátt-
takendur til umræðu og samþykktar
þriðjudagskvöldið 11. feb. þar sem
leitast verður við að gera hnitmiðaða
grein fyrir helstu áherslum og
sjónarmiðum. Textinn verður síðan
þýddur á norska tungu og fluttur á
ráðstefnu um siðfræði sjávarútvegs
sem kirkjulegir aðilar í Lofoten í
Noregi standa fyrir 18. - 21. feb. næst-
komandi. Sjávarútvegsráðherra Nor-
egs, Peter Angelsen, mun verða meðal
áheyrenda, auk allstórs þverfaglegs
hóps hagsmunaaðila og sérfræðinga."
Bjarni segir að þetta erindi sé að
fmmkvæði Norðmanna og hafi farið í
gegnum biskupstofu og fræðsludeild
hennar. í framhaldi af því hafi verið
haft samband við Bjama, bæði vegna
þess að Vestmannaeyjar eru einn
mikill útgerðar- og fiskvinnslustaður,
en einnig vegna þess að norskur
prestur. séra Harold Holtermann hafi
verið hér á ferð í vináttuheimsókn á
sjómannadeginum 1996 mitt í
Smugudeilu og kemur beiðnin um
þátttöku Bjama í framhaldi af þeirri
heimsókn. „Harold er upphafsmað-
urinn að þessu. Hann er í sambandi
við menn sem áhuga hafa á sam-
eiginlegum gildum sjávarsamfélaga á
norðlægum slóðum. Þetta em harðbýl
svæði og þróunin oft óhagstæð þessu
fólki, þannig að það em líka byggða-
sjónarmið sem koma inn í þessa
umræðu.“
Hvað finnst þér áhugaverðast og
kannski skipta mestu máli fyrir
kirkjuna og kirkjulegt starf varðandi
þessi umræðukvöld?
„Merkast er kannski hve þverfagleg
þau eru. Að þessu koma menn frá
Hafrannsóknastofnun, kirkjunni og
Þróunarfélaginu, auk allra helstu
hagsmunaaðila í sjávarúvegi. Það að
hagsmunaðilar skuli vera tilbúnir að
taka saman höndum á þennan hátt að
fmmkvæði kirkjunnar er aðdáunar-
vert. Ég vona að þetta komi til með
að vísa fram á veginn, þannig að
kirkjan geti orðið í auknum mæli
vettvangur mikilsverðrar þjóðfélags-
umræðu.“
Bjarni segir að kirkjan sé sam-
eiginlegur vettvangur þar sem menn
leggi frá sér vopnin og hugi að
bróðurþelinu. „Kirkjan á að vera
haftn yftr dægurþras og flokkaríg.
Hún verður því að leggja áherslu á
siðferðileg grundavallargildi. sem
sameiginleg em öllum mönnum, og
það samfélag sem mennimir lifa í.
Þar á kirkjan að láta til sín taka, ekki
síður en aðrir sem starfa í þessu
samfélagi"
Uppstokkun
híáKókíEyjum
Blaðið hefur fyrir því áreið-
anlegar heintildir að uppstokkun
verði á næstunni hjá umboði
Vífilfells í Eyjum. Um er að ræða
mannaskipti og aukin umsvif.
Heimildir segja að urnboð
Víftlfells, sem m.a. sér um dreif-
ingu á Coca Cola, hafi tekið
Netagerð Sigurðar Inga á leigu. Um
leið yfirtekur það sölu á öllum
vömm Sólar-Víkings. Um er að
ræða Svala, Trópí, Ljómasmjörlíki,
nokkrar bjórtegundir auk tjölda
annarra vömflokka.
Þá mun vera ákveðið að Sigmar
Pálmason. sem hefur verið um-
boðsmaður Vífilfells í 25 ár, láti
umboðið í hendur tengdasonar sfrts,
Hlyns Stefánssonar.
Jakob’s tekex 200 gr. 35,- pk.
Frón matarkex jcn'Hés; 125,- pk.
Frón mjólkurkex &r446i; 125,- pk.
Nóa rúsínur 200 gr. 119,-pk.
Candelia konfekt 325 gr. 358,- pk.
Búrfells saltkjöt kr.
299,-
m
m
m