Fréttir - Eyjafréttir - 29.01.1998, Qupperneq 1
I
!
-Átti að fara í reynslusiglingu í gær
Breytingar á loðnuskipinu ísleifi
VE, sem fram fara í Færeyjum, eru
á lokastigi og er hann væntanlegur
í næstu viku.
Selma Jóhannsdóttir, eiginkona
Gunnars Jónssonar skipstjóra og út-
gerðarmanns á Isleifi, segir að skipið
hafi átt að fara í reynslusiglingu í gær.
Þess var minnst á föstudaginn að
fyrir 25 árum hófst gos á
Heimaey. M.a. var farin blysför
um bæinn sem lauk með athöfn
á Básaskersbryggju
Sjá nánarábls. 6og12.
„Ég hef ekki heyrt ennþá hvemig
gekk en gangi allt að óskum koma
þeir heim með Isleif í næstu viku,“
sagði Selma.
Isleifur var lengdur um tvo metra
aftur, sett í hann ný aðalvél og
vélbúnaður var endumýjaður.
Isleifur var lengdur um átta metra í
Póllandi fyrir nokkrum árum og bar
eftir það um 1100 tonn af loðnu.
Burðargetan eykst ekki við þær
breytingar sem nú er verið að gera en
Selma segir að Gunnar sé ntjög
ánægður með hvemig til hefur tekist
hjá Færeyingunum.
25. árgangur • Vestmannaeyjum 29. janúar 1998 • 4. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími: 481 3310 • Myndriti: 481 1293
IsleifurVEvæntan-
lenur í næstu viku
i
i
-Verður ekki mætt nema með sölu skipa og kvóta, segir framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar
Allt stefnir nú í að verkfall
sjómanna hefjist aðfaranótt næsta
þriðjudags. Þungt hljóð hefur verið
í samningsaðilum, mikið ber á milli
og fæstir sem hafa trú á að náist að
semja fyrir þann tíma. Fréttir
spurðu forráðamenn Isfélags og
Vinnslustöðvar hvernig þeim litist á
ef til verkfalls kæmi. Þeir eru sam-
mála um að komi til stöðvunar
loðnuveiða í febrúar verði afleiðing-
arnar geigvænlegar. Tap fyrirtækj-
anna áætla þeir 2,5 milljarða og
segir framkvæmdastjóri Vinnslu-
stöðvarinnar að því verði ekki mætt
nema með sölu skipa og kvóta.
Sighvatur Bjarnason, hjá Vinnslu-
stöðinni, sagði að samningsstaðan
virtist erfið. Seint yrði gengið að þeim
kröfurn sem sjómenn setja fram og
þvf virtist allt stefna í verkfall.
Sighvatur var spurður hvert beint
framleiðslutap fyrirtækisins yrði ef um
mánaðarverkfall yrði að ræða.
„Beint framleiðslutap okkar, ef við
miðum við fyrri ár, yrði líklega um
1100 milljónir. Þá er eftir að taka
útgerð skipanna inn í dæmið og það
tap yrði ekki undir 200 milljónum.
Þessu tapi yrðum við að mæta með
því að selja eignir og einu seljanlegu
eignimar í dag eru skip með veiði-
heimildum. Þetta má ekki taka sem
einhverja hótun frá okkur en því
miður eru þetta bara blákaldar stað-
reyndir, öðravísi kæmumst við ekki
fram úr þvf. Ég aftur á móti neita að
trúa því að samningsaðiiar hafi ekki
þá skynsemi til að bera að þeir reyni
ekki til hins ítrasta að ná samkomu-
lagi. Þetta er aðaltíminn sem er fram-
undan og loðnusjómennimir hafa
verið að ná allt að 40% af árstekjum
sínum á þessum tíma. Þá hefur þetta
einnig verið stór hluti af tekjum
landverkafólksins og því afleitt fyrir
alla aðila ef engar loðnuveiðar verða á
þessum háannatíma í Vestmanna-
eyjum,” sagði Sighvatur Bjamason.
Sigurður Einarsson, hjá Isfélaginu
sagði að sér litist illa á stöðuna. Mikið
bæri á milli og litlar líkur á að
samningar næðust í tíma. „Annars
finnst mér þessi deila ekki snúast um
okkur í Vestmannaeyjum nema að
litlu leyti, aðstæður era aðrar hér en
víða annars staðar. Það sýnir sig m.a.
í því að yfirmenn hér felldu tillögu um
að fara í verkfall og munurinn hjá
undirmönnum var rninni en annars
staðar á landinu.” sagði Sigurður.
„Ef til mánaðarverkfalls kæmi, yrðu
afleiðingamar skelfilegar, bæði fyrir
fyrirtækið, sjómenn og landverkafólk.
Þetta er besti tíminn, bæði fyrir
vinnsluna, útgerðina, sjómennina og
verkafólkið. Ég myndi áætla að
framleiðslutap okkar í landi myndi
nema um 800 milljónum og tapað
aflaverðmæti útgerðarinnar yrði um
350 til 400 milljónir. Það segir sig
sjálft að það tæki fyrirtækið mörg ár
að jafna sig eftir slfkt áfall og
veralegur samdráttur yrði í rekstrinum
lengi á eftir. Auðvitað vona allir að
ekki komi til verkfalls en eins og
málin standa núna finnst mér trúlegt
að af því verði,” sagði Sigurður
Einarsson.
Sjá viðtal við Elías Björnsson,
formann Jötuns, á baksíðu.
Heildverslun K arls Krist
manns kaupir Tangann
tslandsbanki hefur tekið tilboði
Heildverslunar K. Kristmanns í
verslunarhúsnæði Tangans þar
sem KA rekur matvöruverslun í
dag. KA er með tíu ára
leigusamning og hafa kaupin engin
áhrif á hann. Utibússtjóri bankans
segir þetta farsæla lausn og mikils
virði sé að Tanginn sé í eigu
heimamanna.
Kristmann Kailsson, framkvæmda-
stjóri. segist með þessu vera að byija
á sama punkti og hann var á þegar
fyrirtæki hans leysti til sín Eyjakaup
sem síðar varð gjaldþrota. Eyjakaup
átti húsnæði og innréttingar sem
íslandsbanki keypti af þrotabúinu en
áður hafði það verið leigt KÁ.
„Ég gerði íslandsbanka tilboð í
Tangann semgengið varað. KÁátti
forkaupsréttinn en nýtti sér hann
ekki. Það verða engar breytingar því
enn eru eftir sjö og hálft ár af
leigusamningnum," sagði Kristmann.
Börkur Grímsson, útibússtjóri
íslandsbanka, segir þetta farsæla
lausn. „Það er ánægjulegt fyrir
bankann að þetta varð ofan á. Við
metum það svo að það sé mikils virði
fýrir Vestmannaeyjar að eignarhaldið
á Tanganum, sem er stærsta
verslunarhúsnæði í bænum, haldist
innanbæjar," sagði Börkur.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉWNGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 481
YGGI
IIR
LDUNA
ggingamálin á
g þægilegan hi
ORVGGI
GÆÐA FRA MKOLLUN
Alla daga nema sun.
sunnudaga
Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Kl. 08:15 Kl. 12:00
Kl: 14.00 Kl: 18.00
3/er/ó/^ur
BRUAR BILIÐ
Sími 4812800 Fax 4812991
Bókabúðin
Heiðarvegi 9 - Sími 481 1434
Verkfall sjómanna skellur á næsta þriðjudag. Afleiðingarnar gætu orðið geigvænlegar fyrir Vestmannaeyjar:
Tapið gæti orðið 2,5 milliarðar