Fréttir - Eyjafréttir - 29.01.1998, Qupperneq 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 29. janúar 1998
Diskabiófur
Síðastliðinn laugardag var tilkynnt
um innbrot og þjóínað að Brekastíg
19. Gripdeildai maðurinn mun hafa
haft á brott með sér eitthvað af
geisladiskum. Lögreglan hefur
ekki enn haft hendur í hári
mannsins. Allar upplýsingar um
ferðir grunsamlegra manna við
Brekastíg 19 þennan dag eru vel
þegnar.
Þjjófur í (lisköbúri
Á mánudaginn var tilkynnt um
innbrot og þjófnað úr Hamarsskóla.
Þar hat'ði hurð af svokölluðu
„diskóbúri“ verið sparkað upp og
stolið þaðan tónjafnara og Ijósa-
stilli. Sá sem vildi í „diskóbúrið"
hefur ekki náðst. Kannski að hinn
tónelska geisladiskaþjófur sem lét
greipar sópa á Brekastíg 19 hafi
vantað hafi vantað græjur? Alli
þeir sem geta gefið upplýsingar urn
málið eru hvattir til að hafa
samband við skólastjóra Hamars-
skólaeða lögreglu.
Rúðubrot
Fjögur rúðubrot voru tilkynnt til
lögreglu í síðustu viku. Rúður voru
brotnar í Ráðhúsinu, Bamaskól-
anum, Hamarsskóla og Tölvubæ.
Að minnsta kosti eitt þessara rúðu-
brotamun veraaf völdum loftbyssu
eða túttubyssu. Lögreglan telur
ljóst að börn eða unglingar hafi
einhvers konar loftbyssur eða
túttubyssur undir höndum. Lög-
reglan hvetur því foreldra til að hafa
vakandi auga með afkvæmum
sínum og taka þennan skaðvald úr
höndum þeirra, svo fyrirbyggja
megi frekara tjón af völdurn
þessara tóla.
Flýði afvettvangí
Á sunnudaginn var tilkynnt um
árekstur. Áreksturinn mun hafa átt
sér stað við Höfðaveg 40 eftir
klukkan 22:(X) síðastliðinn laugar-
dag. Sá sem árekstrinum olli flýði
af vettvangi og hefur ekki til hans
spurst.
Klippurnar áfjóra
Alls voru fjórtán umferðaiiagabrot
bókuð hjá lögreglu í síðustu viku,
þar af kiippti lögregla númerin af
fjórurn bílum sem ekki höfðu verið
færðir til skoðunar á réttum tíma.
Vægtóhapp
Föstudagskvöldið 23. janúar var
tilkynnt um umferðaróhapp. Þetta
var minniháttar hnjask og engin
slys urðu á fólki.
Beíónir uni styrki
Nokkur mál lágu fyrir um beiðnir
til styrkveitinga. Þessir aðilar voru:
Áhugafélag um böm og brjóstagjöf,
Byrgið, kristilegt líknarfélag, auk
KFUM og K. Bæjarráð vísaði
erindunum til gerðar fjárhags-
áætlunar 1998.
Horfiráheyjaforðann
Gunnar Árnason hafði sent
bæjarráði bréf þann 26. janúar
síðast liðinn. Þar ræðir hann um
fóðumál og heyforða.
Umræðufundur siðfræði i sjávarútvegi á vegum Landakirkju:
Rétt siðferði skilar hagnaði
hegar til lengri tfma er litið
Umræðufundur um siðfræði í
sjávarútvegi var haldinn í Safn-
aðarheimili Landakirkju síðast
liðinn mánudag. Þetta var annar
fundurinn af þremur og fjallaði
hann um siðferði í sjávarútvegi út
frá sjónarhóli efnahagslífsins. Alls
mættu fjörutíu og fimm manns á
fundinn og voru umræður líflegar
og skorinorðar.
Menn komu vel undirbúnir til
fundarins og ekki annað að heyra en
menn hafi verið vel með á nótunum.
Séra Bjami Karlsson ítrekaði í
upphafi fundarins að markmiðið með
fundaröðinni væri að fræðast, safna
upplýsingum, skýra sjónarmið og leita
grundavallargilda sem hægt væri að
byggja lokaniðurstöður á. Hann bað
menn svo virða vettvanginn, sem er
tjaldbúð drottins.
Bjarki A. Brynjarsson hjá Þróunar-
félaginu hafði framsögu á fundinum.
en í panel sátu, Amar Hjaltalín fulltrúi
fiskvinnslufólks, Amar Sigurmunds-
son frá landvinnslunni, Magnús Krist-
insson fullrtúi útgerðarmanna, Pétur
Árnmarsson fyrir hönd smábátasjó-
manna og Valmundur Valmundsson
frá Sjómannafélaginu Jötni. Fundar-
stjóri var Hafsteinn Guðfinnsson
sjávarlíffræðingur.
I framsögu sinni útskýrði Bjarki
hlutverk siðfræðinnar eins og
Guðmundur Luther Loftsson gerir í
bók sinni, Bætt viðskiptasiðferði:
„Siðfræðin leitast við að finna mæli-
stiku á mannlega breytni og ákvarða
hvað er gott og hvað er ilt, hvað er rétt
og hvað er rangt." í framhaldi af því
setja menn sér siðalögmál til
leiðbeiningar. Slík siðalögmál em þó
ekki lög. Bjarki sagði að sér virtist að
skilgreina mætti siðferðilega hegðun
sem þá hegðun, sem hámarki til lengri
tíma tiltekin gæði, til góðs fyrir
þjóðina í heild. Hins vegar benti hann
á það veigamikla atriði að það sem í
dag teldist kannski siðferðilega rétt
gæti dæmst síðar sem siðferðilega
rangt. Bjarki talaði svo um náttúru-
legar auðlindir og réttinn til að nýta
þær, og þær siðferðilegu skyldur sem
fylgja því jafnt fyrir einstaklinginn og
þjóðfélagið í heild. Einnig talaði
Bjarki um eignamyndunina sem yrði
til í þjóðfélaginu. Gerði hann meðal
annars að umtalsefni misjafnar
forsendur fólks þegar það metur
hagnað einstaklinga við framsal
aflaheimilda á kostnað þeirra sem í
raun ættu auðlindina, þ.e. þjóðarinnar
sjálfrar.
Umræður að lokinni framsögunni
voru fjölbreyttar og komið víða að
málunum. Menn spurðu mjög gjama
hvort tiltekin atriði teldust siðferðilega
rétt eða röng. Fundarmenn spurðu til
dæmis hvort það væri siðferðilega rétt
að henda fiski í sjóinn og hvort
kvótakerfið væri þá tjandsamlegt þjóð
og einstaklingum? Hvort það teldist
góð umgengni við auðlindina og
skilaði þeim arði til þjóðarinnar sem
æskilegur væri ef litið væri til langs
tíma?
Valmundur Valmundsson sagði
meðal annars að svo virtist sem
sveiflur í náttúrunni væru einnig háðar
siðferði sem skaraði jafnt efnahag og
persónulega breytni manna. Hann
sagði að fréttir hefðu borist af því að
gengi dollars væri að falla vegna þess
að Clinton Bandaríkjaforseti hefði
hugsanlega lent á kvennafari og að
breytni Clintons gæti því haft áhrif á
verðmætasköpun á íslandi.
Bjarki sagði að lokum að
sjávarútvegurinn sem atvinnugrein
yrði að lúta almennum siðareglum
viðskiptaheimsins. Hvort siðareglur
viðskiptaheimsins eigi samleið með
öðrum siðareglum sem menn setja er
kannski spuming sem vaknar í því
sambandi. Hins vegar sagði Bjarki að
þar sem almennt væri viðurkennt að
auðlindin væri talin eign allrar
þjóðarinnar væri það siðferðileg
skylda þeirra sem stunda sjávarútveg
að ganga vel um auðlindina og tryggja
að hún nýttist þjóðarbúinu í heild og
til langframa.
TTttttI
Hermaul
LlgÍjK
&laiií>ar-
dagskvöld
Dansað eftir
Guðsorði
Föstudaginn 30. og laugardaginn
31. janúar munu listamenn frá Lit-
haugalandi verða með listsýningar
og tónleika í Hvítasunnukirkjunni.
Einn þekktasti jassisti Lithauga,
Gintautas Abarius mun koma fram
ásamt ballettdansmeynni Juditu
Zdanavicciute.
Með þeim í för er predikarinn
Giedrius Saulítis safnaðarhirðir í
Kirkju trúarinnar í Vilnius.
Þessi listviðburður er öllum
opinn og hefst klukkan 20:30 bæði
kvöldin. Gert er ráð fyrir að standa
straum af kostnaði með samskotum
á staðnum. Gott þætti ef fólk gæti
lagt að lágmarki 7(X) kr. af mörkum
í þessu skini. Abarius og Saulitis
hafa báðir strítt við áþján eiturlyfja
og þær hörmungar sem þeim fylgja,
en ganga nú heilsugóðir á guðs
vegum.
Fréttatilkvnning.
íbiðstöðu
Georg Kr. Lárusson sýslumaður
segir að eftir þvf sem hann viti
verði enn einhver bið á því að
ákvörðun yrði tekin um ráðningu
ríkislögreglustjóra. Eins og greint
var frá í Fréttum í síðustu viku er
Georg einn umsækjenda um
stöðuna. Hann segir að ráðherrra
hafi komið frá útlöndum í gær og
ákvörðunin rnuni dragast eitthvað.
Georg segir líklegt að niðurstaða
fáist ekki í málið fyrr en eftir
helgina úr því sem komið er.
Bæjarráðpakkar
Fundur var haldinn í bæjarráði
þriðjudaginn 27. janúar. Það hóf
fund sinn á því að þakka öllum
þeim sem aðstoðuðu og tóku þátt í
athöfnum síðastliðinnar helgi er
þess var minnst að tuttugu og fimm
ár voru frá upphafi eldsumbrota á
Heimaey.
HannaMaríaleggur
frani sín sjónarmið
Skemmdarverk í kírkjugarðinum
Blaðinu hafa borist fleiri en ein
kvörtun um illa umgengni í
kirkjugarðinum. Fólk sem var statt
í kirkjugarðinum fyrir skömmu
segist hafa séð til unglinga að leik í
garðinum og hafi þeir skilið
greinileg ummerki eftir sig.
„Við komum í kirkjugarðinn eitt
kvöldið í góðu veðri til að líta eftir
leiðum ættingjanna," segir einn þeirra
sem kvartað hefur við Fréttir. „Þá
voru böm í garðinum og höfðu þau
greinilega traðkað á leiðum, slökkt á
kertum á þeim og skvett vaxi á
legsteina. Ég veit ekki hvort böm gera
sér grein fyrir helgi staðarins en þau
sýna mikla óvirðingu með þessu. Hvet
ég foreldra til að brýna það fyrir
bömum sínum að leita annað í leikjum
sínum.
Halldór Hallgrímsson staðarhaldari
Landakirkju segir að enginn hafi
kvartað við hann vegna skemmdar-
verka. Hann segir að þegar skreyting-
ar em með logandi kertum sé oft hætt
við að skreytingar skemmist. „Eins
og tíðin hefur verið undanfarið er
mögulegt í mikilli rigningu að þessi
vaxkerti hreinlega springi með
fyrrgreindum afleiðingum, en um
skemmdarverk af mannavöldum
kannast ég ekki við,“ sagði Halldór.
Fyrir lá bréf frá Hönnu Maríu
Siggeirsdóttur frá 18. janúar. þar
sem hún leggur fram sjónarmið sín
varðandi stofnun nýs apóteks í
Vestmannaeyjum.
ðnektá
SlökkviliAinu
Fyrir lá bréf frá Bninamálastofnun
ríkisins frá 22. janúar vegna
úttektar á slökkviliði Vestmanna-
eyja.
Oddur skrifar og
skrifar
Oddur Júlíusson Brekastíg 7b er
iðinn við bréfaskriftimar sem
endranær og lágu fyrir þrjú bréf til
bæjan-áðs frá 19. 21. og 23. janúar
síðastliðinn. Samkvæmt hefð og
venju faldi bæjarráð bæjamtara að
svara bréfunum.
FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
Iþróttir: Rútur Snorrason. Abyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt I áskrift og einnig I lausasölu í Turninum, Kletti, Novu, Skýlinu, Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni,
Tanganum, Söluskálanum. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði, i Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli og Söluturninum Smiðjuvegi 60 Kópavogi. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.