Fréttir - Eyjafréttir - 29.01.1998, Qupperneq 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 29. janúar 1998
Landakirkja
Fimmtudagur 29. janúar
Kl.l 1:00 KyiTðarstund á Hraun-
búðum
Kl.17:00 T.T.T. (10- 12ára)
Laugardagur 31. janúar
Kl. 14:00 Utför Stellu Jónsdóttur
Sunnudagur 1. febrúar
Kl. 11:00 Sunnudagaskólinn
Kl. 14:00 Almenn guðsþjónusta -
Boðið upp á akstur frá Hraun-
búðum
Kl. 20:30 Rokkmessa! - Hljóm-
sveitin Dee Seven
Mánudagur 2. febrúar
K1.20:30 Bænasamvera og Biblíu-
lestur í KFUM & K húsinu.
Þriðjudagur 3. febrúar
Kl. 16:00 Kirkjuprakkarar (7 - 9
ára) - hetja göngu sína á nýju ári.
Kl. 20:30 Eldrideild KFUM & K
fundar f húsi félaganna.
Kl. 20:00 þriðja og síðasta urn-
ræðukvöld Fullorðinsfræðslunnar:
sr. Bjarni Karlsson flytur erindið
„Siðfræði sjávarútvegs frá sjón-
arhóli mannlífsins“, panel-
umræður.
Miðvikudagur 4. febrúar
Kl. 10:00 Mömmumorgunn.
Kl. 12:10 Kyrrðarstund í hádegi -
Orgelleikur frá kl. 12:00
Kl. 15:30 Fermingartímar - Bama-
skólinn.
Kl. 16:30 Fermingartímar - Ham-
arsskóli
Kl. 20:00 KFUM & K húsið opið
unglingum.
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20:30 Biblíulestur
Föstudagur
Kl. 17:30 Krakkakirkja af lífi og sál,
fyrir börn á aldrinum 3 til 9 ára.
Kl. 20:30 Uppfærsla listamanna frá
Litháen (Samskot - gerum ráð fyrir
að hver leggi lágmark 500 kr.)
Laugardagur
Kl. 13:00, eða í hádeginu - hádegis-
matur með gestunum og brotning
brauðsins. Söfnuðurinn hvattur til
að mæta með öllum meðlimum saf-
naðarins og gestum.
Kl. 20:30 Uppfærsla listamannanna
frá Litháen (samskot).
Sunnudagur
Kl. 15:00 Vakningasamkoma
Aðventkirkjan
Laugardagur 31. janúar.
Kl. 10:00 Biblíurannsókn
Allir velkonuiir.
BaháíSAM-
FÉLAGIÐ
Opið hús að Kirkjuvegi 72B, fyrsta
föstudag hvers mánaðar kl. 20:30.
Allir velkomnir.
Heitt á könnunni
Biblían
talar
Sími
481-1585
ipamálning
Meistarano
fullt hús í Su
-Vilja fá inngöngu
Körfuboltinn að n
Sú íþróttagrein sem er einna yngst
hér í Eyjum er körfuboltinn. Þrátt
fyrir að stutt sé síðan körfu-
boltadeild var stofnuð í Vest-
mannaeyjum hefur mikið og gott
uppbyggingarstarf verið unnið í
kringum þessa íþrótt. Sá maður
sem á stóran þátt í þessari starfsemi
ásamt öðrum, er Víðir Oskarsson
formaður IV.
Eftir sameiningu Týs og Þórs sfðast-
liðinn vetur tók ÍV við þjálfun og
stjómun yngri flokka Týs í körfubolta.
í vetur eru starfræktir meistaraflokkur
og 11. flokkur drengja en í honum eru
strákar fæddir 1981 og yngri.
Á þessari leiktíð var ráðist í að fá
erlendan þjálfara og leikmann til starfa
og á endanum var Michael Eddy frá
Texas í Bandaríkjunum, 23 ára
guðfræðingur að mennt ráðinn til
starfans.
Víðir Óskarsson formaður ÍV, hafði
þetta að segja um hinn erlenda
þjálfara: „Michael tók að sér alla
þjálfun ásamt því að leika með
meistaraflokki. ÍV var mjög heppið
að fá þennan leikmann, því hann er
mjög samviskusamur og áreiðanlegur,
einnig er hann góður og traustur
leikmaður sem er með mikla þekkingu
á körfubolta þrátt fyrir ungan aldur,“
segir Víðir.
Meistaraflokkur spilar í 2. deild
íslandsmóts KKÍ en þar eru
úrvalsdeild, l.deild og svo 2.deild.
Önnur deildin er riðlaskipt og spilar
ÍV í Suðurlandsriðli ásamt liðunum;
Hekla/Dímon frá Hvolsvelli, Garpur
frá sveitinni austan við Selfoss,
Ungmennafélagi Hrunamanna og
Sindra frá Höfn í Homafirði.
íslandsmótið er skipulagt þannig að
það em spiluð 3 fjölliðamót í 5 riðlum
um veturinn og efsta liðið í hverjum
riðli kemst í úrslitakeppni. Sigur-
vegari úrslitakeppninnar fer síðan upp
íl.deild.
Eftir tvö af þremur fjölliðamótum í
vetur er ÍV efst í sínum riðli með fullt
hús stiga, hefur ekki tapað leik. Fast á
hæla þeirra er Hekla/Dímon sem
tapað hefur tveimur leikjum.
Ellefti flokkur ÍV spilar í 2. deild síns
aldursflokks og hefur leikið í tveimur
fjölliðamótum og því miður tapað
öllum sínum leikjum. Þess ber að geta
að u.þ.b. helmingur leikmanna
flokksins er fæddur 1982 og ætti því
að spila í lO.flokki. Einn leikmaður,
Guðmundur Eyjólfsson, sem er 16 ára
gamall, spilar einnig með meistara-
flokki var valinn í unglingalandslið
íslands ekki alls fyrir löngu og spilaði
með því á æfmgamóti. Guðmundur er
um 1.95 cm á hæð og er mikið efni.
Framundan er fjölliðamót meistara-
flokks á Höfn í Homafirði um
mánaðamótin febrúar - mars og 11.
flokkur mun spila síðasta mót sitt 7. til
8. mars en fyrirhugað er að fara með
þá í æfmgaferð upp á fastalandið í
febrúar.
„Það er ósk leikmanna ÍV að
stofnuð verði körfuboltadeild innan
ÍBV-íþróttafélags, en félagið hefur
aðeins knattspymu- og handbolta-
deild. Það myndi að sjálfsögðu
auðvelda allan rekstur deildarinnar.
Við höfum mætt miklum velvilja hjá
fyrirtækjum og Vestmannaeyingum
öllum og erum mjög þakklátir fyrir
alla styrkina og stuðninginn." sagði
Víðir að lokum.
Þess ber einnig að geta að yfir-
klappstýra og helsti stuðningsmaður
ÍV á leikjum þess hefur verið Sigurður
Guðmundsson, Siggi Gúm, og fær
hann kærar þakkir frá leikmönnum
fyrir það.
I Nafn:
I Sverrir M. Jónsson
| Friðrik Hjörleifsson
| Daði Guðjónsson
| Hannes Eiríksson
■ Hjalti Einarsson
! Ragnar Benediktsson
! Birkir Atlason
[ Guðmundur Eyjólfsson
I Andri Ólafsson
I Jónatan Gíslason
I Gústaf Kristjánsson
| Kolbeinn Ólafsson
| Hafsteinn Þorsteinsson
I Richard Þ.F. Dungal
j Trausti Hjaltason
I_________________________
j"Ellefti flokkurív
Aldur:
17
17
17
16
16
17
17
16
16
16
15
16
17
17
16
Staða:
bakvörður
framherji
bakvörður
bakvörður
framherji
framherji
bakvörður
miðherji
bakvörður
framherji
bakvörður
bakvörður
framherji
bakvörður
bakvörður
Smá-
auglýsingar
Einbýlishús til leigu
Til leigu er einbýlishús í
austurbænum.
Upplýsingar
ísíma 481-3487
Leikmenn meistaraflokks ÍV
Nafn: Aldur:
Viðar Huginsson 22
Kristinn Týr Gunnarsson 22
Jónatan Guðbrandsson 21
Sæþór Orri Guðjónsson 20
Kristinn Þór Jóhannesson 21
Davíð Arnórsson 20
Jón Valgeirsson 30
Gísli Gunnar Geirsson 22
Víðir Óskarsson 37
Örn Eyfjörð 21
Staða:
framherji
bakvörður
bakvörður
bakvörður
bakvörður
bakvörður
framherji
bakvörður
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför áskærrar móður
okkar
Magneu Sjöberg
frá Hóli.
Starfsfólk Hraunbúða og Sjúkrahúss
Vestmannaeyja fær sérstakar þakkir fyrir
góða umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda
Dætur hinnar látnu.
Framtalsaðstoð
Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar mun veita
félagsmönnum aðstoð við framtöl.
Gögnum skal skila á skrifstofuna fyrir 6. febrúar nk.
Ekki er veitt aðstoð vegna atvinnurekstrar.
Gjald fyrir hveija skýrslu er 500 kr.
Stjórn STAVEY