Fréttir - Eyjafréttir - 29.01.1998, Side 16
Frétta- og auglýsingasíminn 481-3310 * Fax 481-1293
12ÉÍ Pinalands Pizza
og2 fíösktir 1/2 Itr Pepsi____kn12ð<
Cato kattamiatur 450 gr.____kr.'Wé*
Sun Lollv klakar___________.kr."26&<
Oxfonl kremkex 200 gr.________kr.lB^
Oetker kartöfluinús 220 gr._
Oetker þurrger 10 bréf í pk.._kr.*250^
Híiréfiskur400 gt pk.
(
-kr. 510S< pr. kg.
uenáCm í aCfcuiateob
\ vMaittr
VrORUvÁL
UESTURUEtSI 1»
UESTr.inNNAEYJUM
399,-
155,- pk.
219,- pk.
49,- pk.
158,- pk.
173,-pk.
2^499,- pr.kg.
FLUTNINGAR ■ VESTMANNAEYJUM
Vöruafgreiðsla
Mdldlogovegl 4 Síml 4C1 H40
Voruafgreiðsla ■ Reykjavik
TVO Höðlasggfq 1.3
tim\ M1 3030
Útgerðannenn hafa ekki
unnið heimavinmina sina
-segir Elías Björnsson formaður Sjómannafélagsins Jötuns
,,Eg var að fá símbréf frá fram-
kvæmdastjóra Sjómannasam-
bandsins rétt áðan," sagði Elías
Björnsson, formaður Sjómanna-
félagsins Jötuns þegar Fréttir
töluðu við hann í gær. „Það bréf
hljóðaði á svipaðan hátt og mörg
önnur sem ég hef fengið undan-
fama daga: -Fundi deiluaðila Iauk
á 12. tímanum. Ekkert gerðist.
Næsti fundur boðaður á föstudag
kl. tíu. „Þetta hefur nú verið gang-
urinn það sem af er viðræðum,
eins og líklega alþjóð veit," sagði
Elías.
„Reyndar kemur mér þetta ekkert á
óvíu't. þetta er nú í þriðja sinn sem
verðmyndunarmálin koma upp á
borðið. Líklega hafa útgerðannenn
ekki athugað að ný vinnulöggjöf
hefur tekið gildi og þeir hafa líklega
talið að sjómenn væru alveg
hæstánægðir með allt. Útgerðar-
rnenn hafa bara ekki unnið heima-
vinnuna sína, þeir hafa komið
óundirbúnir til funda og það er trú
mín að þeir séu þessa dagana að
vinna það sem þeir áttu að vera búnir
með. Þess vegna gerist ekkert á
fundunum.
En ég hef þá trú að hjá báðurn
aðilurn sé fullur vilji til að ná
samkomulagi. Reyndar á ég ekki
von á að það takist að semja fyrir
þriðjudag í næstu viku. En ég vonast
til að það Iíði ekki rnargir dagar áður
en það tekst," sagði Eh'as.
Hvert skyldi tekjutap sjómanna
verða ef t.a.m. kæmi til mánaðar-
verkfalls?
,Þetta er spuming sem þú færð mig
ekki til að svara. Þegar ég var til sjós
á sínum tíma þá reiknaði ég aldrei út
hlutinn rninn fyrirfram, það er
hreinlega ekki hægt að reikna út hlut
úr óveiddum fiski og hefur aldrei
verið hægt. Þó er ljóst að um
verulegt tekjutap yrði að ræða. Aftur
á móti eru fjölmiðlar að undanfömu
búnir að reikna sig hálfvitlausa í
sambandi við tekjutap, komi til
verkfalls. Mér finnst mál að þeir fari
að reikna sig til baka. Þær tölur. sem
hafa verið birtar undanfarið, eru svo
langt frá raunveruleikanum," sagði
Elías Bjömsson að lokunt.
Lóðsinn hið nýja hafnsögu- dráttar- og björgunarskip sem smíðað
var fyrir Hafnarsjóð Vestmannaeyja er hannað af Skipalyftunni ehf.
samkvæmt reglum og undir eftirliti Siglingastofnunar íslands.
Skipið er 147,6 tonn og er fyrsta stálskip sem smíðað er í Eyjum.
Lengd skipsins er 24,50 m, breiddin 7,33 m og dýptin 3,95 m.
Helstu undirverktakar við smíði skipsins voru Drangur ehf. í
tréverki, Geisli í rafmagni, Grétar Þórarinsson sá um pípulagnir og
Eyjablikk um blikkklæðningu.
Af innlendum búnaði í skipinu er helst að nefna að stýrisbúnaður
kemur frá Stýrisvélaþjónustu Garðars Sigurðssonar, vindubúnaður
frá Osey og sjálfvirkur sleppibúnaður frá Vélaverkstæðinu Þór.
Ibúðir eru fyrir sex menn í eins og tveggja manna klefum í
þilfarshúsi og einum þriggja manna klefa undir aðalþilfari. Sam-
byggt eldhús og borðsalur eru í þilfarshúsi, auk baðs og salernis.
Aðalvélar skipsins eru tvær af gerðinni Mitsubishi 2 x 1000 hestöfl
við 1500 sn/ mín. Hjálparvélar eru tvær af gerðinni Mitsubishi og
afkasta hvor 70 kw. Skrúfubúnaður er frá Hundested og gefur hann
26,5 tonna togkraft. Tvær 10 tonna dráttarvindur eru í skipinu með
70 tonna bremsukrafti. Dráttarkrókur er fyrir 75 tonna togátak og
aftan á þilfarshúsi er krani með vindu. Á brúarþaki er slökkvibyssa,
en hægt er að tengja kvoðukút við slökkvibúnaðinn.
Skipstjóri á Lóðsinum er Ágúst Bergsson sem hér sést standa við
stjórnvölinn. Sjá nánar á bls. 6.
Bráðbirgðatölur Fiskistofu um aflann á síðasta ári:
Vestmannaeyjar halda stöðu sinni
sem stærsta löndunarhöfn landsins
A síðasta ári bárust 187.242 tonn að
landi í Vestmannaeyjum á móti
197.304 tonnum á árinu 1996.
Munar þar minni afla í upp-
sjávarfíski en bolfiskaflinn hefur
aukist á milli ára. Vestmannaeyjar
eru eftir sem áður aflahæsta
löndunarhöfnin.
Þorskaflinn jókst úr 8469 tonnum
árið 1996 í 11.961 tonn á nýliðnu ári.
Einnig var aukning í ýsunni sem fór úr
4011 tonnum í 4419 og í karfa þar
sem aflinn jókst úr 3875 tonnum í
4121. Ufsaaflinn dróst aftur á móti
saman, var 6367 tonn árið 1996 en
5871 tonn í fyrra. Samtals var
botnfiskaflinn 32.621 tonn á síðasta
ári en hann var 28.578 tonn árið 1996.
Loðnuaflinn í fyrra varl54.130 tonn
en var árið áður 168.729 tonn.
Umtalsverður samdráttur varð í
sfldinni, en þó minni miðað við hvað
sfldveiðar gengu illa í haust og vetur.
Árið 1996 bárust 19.801 tonn af sfld
til Eyja en 13.379 tonn í fyrra.
Þrátt fyrir minni afla milli ára halda
Vestmannaeyjar stöðu sinni sem
stærsta löndunarhöfn landsins. Næst
koma Neskaupstaður með rúm
150.000 tonn og Eskifjörður með
rúmlega 140.000 tonn.
Þessar tölur eru fengnar frá
Fiskistofu og eru bráðabirgðatölur.