Fréttir - Eyjafréttir - 08.04.1998, Page 4
4
Fréttir
Miðvikudagur 8. apríl 1998
IMttaaiF
Draumur Jonna ryksugusala
Ég þakka vinkonu
minni henni Margo
fyrir áskorunina. Þar
sem ég er kominn í
matarstúss þá ætla ég
að bjóða upp á fjóra
rétti, einn mjög góðan
fiskrétt og svo tvo
lundarétti og eina svartfuglaeggja-
köku. Þessir rétttir eru mjög auðveldir
í matreiðslu.
Fyrst er það fiskrétturinn en þessa
uppskrift fékk ég hjá honum Jonna
rannsóknarlöggu og ryksugusala í
Reykjavík. Jonni hefur alltaf verið vel
liðtækur í eldamennskunni, það hef ég
sannreynt í eldhúsinu í Bjamarey.
Draumur ryksugu-
salans:
800 gr ýsuflök eða skötuselur,
skorið í bita
300 gr rækjur
10-15 humarhalar, skeldregnir
200 gr ferskir sveppir, sneiddir
1 stk. laukur, saxaður
1 stk. blaðlaukur, sneiddur
I stk græn paprika, skorin í bita
1 stk. rauð paprika, skorin í bita
2 stk. gulrætur, skomar í sneiðar
1/2 ds. ananaskurl + safinn
150 gr. hreinn rjómaostur
1/41 rjómi
smjör til steikingar
1/2-1 tsk. salt
1 tsk. sítónupipar
1/2 tsk. paprikuduft
I tsk. karrý
1 1/2 tsk. súpukraftur
Þó að uppskriftin sé svona þá eru
það ekki lög því best er að smakka
sósuna til og bæta í hana meira kryddi
eða minnka það eftir smekk hvers og
eins.
Þá er það eldamennskan. Lauk-
urinn og blaðlaukurinn eru steiktir í
smjörinu. Paprikunni, gulrótunum og
sveppunum bætt út í ásamt
ananaskurlinu og safanum og þetta
látið krauma smástund á pönnunni
(látið mýkjast). Rjómanum og
rjómaostinum bætt út á og látið
jafnast. Þegar þetta allt er kornið á
pönnuna þá er gott að setja kryddið út
í. Síðan er fiskurinn settur út í og
látinn krauma með í 8-10 mín. Síðast
er humrinum og rækjunum bætt í
réttinn og látið krauma í 2-3 mín.
Þykkja má sósuna með dökkum
sósujafnara.
Borið fram með hrísgrjónum, sal-
ati og grófu hvítlauksbrauði. Svo er
líka ágætt að fara í skýlið til Kela og
kaupa franskar kartöflur með, það
skemmir ekki. Best er að elda þennan
rétt nokkrum tímum áður en á að
snæða hann því þá fær fiskurinn að
drekka í sig löginn og hann verður
gómsætur. Athugið það þaif nokkuð
stóra steikarapönnu fyrir þennan rétt.
Þar sem stutt er í sumarið og (
framhaldi, eggja- og lundavertíðina
þá læt ég fylgja með góðar og
auðveldar uppskriftir úr eldhúsinu í
Bjamarey.
Lundaforréttur
Reyktur lundi frá Magga Braga,
skorinn í þunna strimla.
Ferskjur úr dós, skomar í þunna
strimla.
Piparrótarsósa.
Borið fram með ristuðu brauði og
smjörklípu.
Með þessu er drukkið „Bjarnar-
eyjarskyr"
Lundi í sólberjasósu
Laukur brúnaður á pönnu í smjöri.
Söxuðum sveppum er bætt við og þeir
látnir steikjast með lauknum í
smástund. Rjóma bætt á pönnuna og
síðan kryddað með pipar og
koriander. Að lokum er bætt við einu
rifi af hvítlauk. Pannan tekin af
hitanum og grænmetið tekið af
pönnunni.
Nokkrar lundabringur flakaðar og
skomar í litla teninga og steiktar á
pönnu. Þegar kjötið er orðið steikt (3-
4 mín.) er sósunni bætt við og
sólberjasultu bætt út á. Best er að
smakka sósuna til. Ég þurfti fimm
matskeiðar af sólberjasultu áður en ég
var ánægður með bragðið.
Meðlæti: Brúnaðar kartöflur,
rabarbarasulta og blandað grænmeti.
Drykkur: „Bjamareyjarskyr"
Svartfuglaeggjakaka
Eggjataka í úteyjum er erfið og er
því gott eftir puð dagsins þegar menn
koma lúnir í hús að fá eitthvað hollt
og gott í kroppinn. Þetta á einnig við
um okkur hin þegar við komum heint
úr vinnunni.
Bjamareyingar mæla með svart-
fuglaeggjaköku.
Svartfuglaeggin eru barin í skál.
(Blanda má svartfuglseggin með
fýlseggjum eða hænueggjum). Bætt
við persilju og ciboulette, söxuð.
Piparostur eða annar kryddostur
skorinn í litla teninga og blandað út í.
Kryddað að lokum með salti og pipar.
Hellt á pönnu og látið steikjast.
Verði ykkur að góðu.
Af góðri reynslu þá ætla ég að
skora á vin minn, Þröst Johnsen allt
„múligtmann" sem næsta sælkera.
Hann er listakokkur og þarf ekki
uppskriftir fyrir framan sig við
eldamennskuna, heldur galdrar hann
þetta af fingrum frani. Hann er
sérfræðingur f villibráð, fuglasteik og
humarréttum. ég veit að margar
frábærar lundauppskriftir eru komnar
frá honum þ.á.m. Teriyakilunda-
uppskriftin. Ég mæli með því að hann
galdri eitthvað fram um páskana og
kalli svo í mig til að smakka.
- Jæja, þá liggur V-listinn fyrir. Og það
kemur okkur algjörlega í opna skjöldu
og kemur okkur mikið á óvart að i
öðru sæti er enginn annar en Ragnar
Óskarsson en hann hefur sem
kunnugt er gefið út fjölmargar
yfirlýsingar um að hann sé hættur.
Ragnar skammaði okkur Fréttamenn
og Dagskrá fyrir íhaldsmennsku og
falsanir. En við höfðum fyrir mistök,
ekki falsað, heldur fyrir mistök farið
rangt með tölur úr síðustu kosn-
ingum. Það er nefnilega munur á því
að falsa og gera mistök eins og
íslenskumaður og framhaldsskóla-
kennari hlýtur að vita. Ef hann hefði
sagt í ógáti að hann væri hættur en
meint að hann ætlaði að halda áfram,
væru það mistök. En hafi hann gefið
yfirlýsingu um að hann ætlaði að
hætta en þrátt fyrir það ætlað allan
tímann að halda áfram, má þá fara að
kalla það falsanir?
- Hvort sem framboð Ragnars eru
mistök, falsanir eða eitthvað allt
annað er listinn að öðru leyti frekar
ferskur og töluvert um ný nöfn sem
gaman væri að sjá reyna sig í
bæjarstjórn.
-Sú ótrúlega saga gengur um bæinn
að Allaballar hafi ekki getað fundið
annan en Ragnar Ó. í sitt saeti á V-
listanum og því hafi Ragnar Ó. orðið
þrautalendingin. Þessu trúum við
ekki. Ragnar hlýtur bara að hafa
langað einusinnienn.
- Heyrst hefur að ÍV hinir fræknu
körfuknattleiksmenn Eyjanna verði
með nýja fjáröflun á Þjóðhátíð í
sumar. Leigður verði salernisbíll og
selt verði inn. Þarna er hugmyndin að
hreinlætið verði í fyrirrúmi og þrifið
eftir hverja heimsókn. Verðskráin
hefur ekki verið birt en nefnt hefur
verið kr. 1000,- fyrir lítið og kr. 1500
fyrir stórt. Enginn vafi er á að þetta á
eftir að vekja mikla hrifningu meðal
þjóðhátíðargesta sem hingað til hafa
þurft bókstaflega að fara í svaðið til að
gera þarfir sínar,-
PABBI EB BESTUR
Eyjahljómsveitin D-7 tók þátt í
svonefndum Músíktiiraunum í
Reykjavík rétt fyrir síðustu
mánaðamót. Hijómsveitin fékk
mjög lofsamlega dóma, bæði í
DV og Morgunblaðinu, en komst
samt ekki i úrslit. Ástæðan var
sú að þeir fétagar voru i þessari
keppni á „röngum forsendum" ef
svo mætti að orði komast. Þetta
var nefnilega ekki hljómsveita-
keppni heldur „músíktilraunir"
eins og nafnið bendir til. Og í
úrslit fóru m.a. tveir piltar sem
mættu með töivuheiia á svið og
dönsuðu kringum hann. Engu að síður
fengu Eyjamenn mjög góðar viðtökur
og lofsamleg ummæli gagnrýnenda og
Ijóst að hér eru framtíðarmenn i tónlist á
ferð. Söngvari D-7, Ólafur Guðmunds-
son, er Eyjamaður vikunnar.
Fullt nafn? Ólafur Kristján Guð-
mundsson.
Fæðingardagur og ár? 27. október
1979.
Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? Laus og liðugur, bý
í foreldrahúsum.
Menntun og starf? Vinn í Vinnslu-
stöðinni, er í fríi frá námi en ætla að taka
upp þráðinn næsta haust.
Laun? Misjöfn, oftast mjög góð.
Helsti galli? Rosalega uppstökkur.
Helsti kostur? Það veit ég ekki.
Uppáhaldsmatur? Piparsteik hjá
mömmu.
Versti matur? Súrsaður matur og
hákarl.
Uppáhaldsdrykkur? Kók.
Uppáhaldstónlist? Brit-tónlistin.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
gerir?
Að vera
með hljómsveitinni að spila og horfa á
Liverpool í fótboltanum.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
gerir? Velja á mig föt þegar ég fer út
að skemmta mér.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir
milljón í happdrætti? Fara strax til
London, á hljómleika með Oasis og á
fótboltaleik hjá Liverpool.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Pabbi
(Guðmundur Þ.B.) Verst að hann skuli
vera hættur í pólitík.
Uppáhaldsíþróttamaður? Páll Þor-
valdur Almarsson (skemmtilega geð-
veikur).
Ertu meðlimur í einhverjum félags-
skap? Já, Leikfélagi Vestmannaeyja,
ÍBV og Liverpool klúbbnum á íslandi.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Hljóm-
leikar með Oasis og hryllingsmyndir,
annað horfi ég ekki á.
Uppáhaldsbók? Örlög eftir Stephen
King.
Hver eru helstu áhugamál þín?
Tónlist og fótbolti.
Hvað metur þú mest í fari annarra?
Að menn séu glaðir í bragði.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
annarra? Fólkífýlu.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Ég fór til London í nóvember
1995 og kom þar á stað sem heitir
Hampstead, þar var fallegt. Svo er líka
fallegt í Herjólfsdal, sérstaklega meðan
áflugeldasýningunni stendur.
-Eruð þið sáttir við þessa útkomu
ykkar? Við erum mjög sáttir. Þótt við
kæmumst ekki í úrslit þá var gagnrýnin
sem við fengum mjög jákvæð og það
erum við ánægðir með.
-Vissuð þið áður en þið tókuð þátt í
keppninni að þetta væri ekki eiginleg
hæfileikakeppni heldur tilrauna-
starfsemi? Við vissum að það yrði
„sýrð" músík sem ynni, þetta væri
tilraunastarfsemi. En okkur var alveg
sama, okkur langaði til að fara með
okkar efni. Það eina sem við vonuðum
var að fá góða gagnrýni og það gekk
eftir.
-Hvað er á döfinni hjá D-7 í sumar?
Við ætlum að drífa okkur upp á land,
Höfn í Hornafirði er inni í myndinni og
Selfoss. Annars er þetta ekki planlagt
langt fram í tímann. En vonandi
verðum við á þjóðhátíð.
Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir
þessi orð?
-Tónlist? Þéttleiki og mikil skemmtun.
-D-7? Frábærir peyjar.
-Músíktilraunir? Skemmtileg keppni
fyrir tónlist sem sker sig úr.
Eitthvað að lokum? Ég vil þakka
öllum styrktaraðilum okkar fyrir þeirra
framlag sem varð til þess að við
komumst í þessa keppni. Það voru
íslandsbanki, Herjólfur, Vestmanna-
eyjabærogTölvun.
2. april eignuðust Ema Sævaldsdóttir
son. Hann vó 16 1/2 mörk og var 56
sm. að lengd. Með litla bróður á myndinni em f.v. Bergur
Páll og Andri Þór. Ljósmóðir var Drífa Bjömsdóttir.
Drengur Þann
og Gylfi Siguijónsson
Talnaglöggvunarnámskeið
fyrir bæjarfultrúa verður haldið dagana 16. og 17.
maí nk.
Teknar fyrir tölur með mörgum núllum.
Endurskoðendur eru einnig velkomnir.
Námskeiðsgjald fer eftir þátttöku.
Lysthafendur hafi samband við Eggert
Björgvinsson talnaglöggvara