Fréttir - Eyjafréttir - 08.04.1998, Blaðsíða 8
8
Fréttir
Miðvikudagur 8. apríl 1998
Kw»4sii'm á myy\cilisfÍKa
teki
brey+ti
myndlis+armaður, í
va»*
-OQ ’tbð
I II
v\v\ mjog snemma
tVí engiun segi^ Skuli
pjalli um lífið og lis+iua
Olaf:
sson
j
Skúli Ólafsson myndlistarmaður er fæddur í Vestmannaeyjum og hefur búið þar
með misjafnlega löngum hléum þó. Hann segir samt að hann sé ekkert
sérstaklega Eyjamaður, frekar en íslendingur eða Dani vegna þess að hann sé
ekki maður landamæra. Skúli ætlar að lofa Vestmannaeyingum að njóta
ávaxtanna af myndlistariðkun sinni nú um páskana og opnar sýningu á morgun
skírdag, í Akóges og mun hún verða opin til þriðjudagsins 14. apríl. Fréttir tóku
hús á listamanninum til þess að kynna lesendum heim myndlistarinnar.
SKÚIIÚLAFSSON : Þegar ég var krakki þótti mér mjög gaman að sulla með lití, eins og
kannski öllum krökkum finnst og foreldrum finnst kannski líka gaman að bví að börnín
beirra séu að gera fallegar myndir.
Fótboltinn nýtur meiri
skilnings en myndlistin
„Ég hef starfað sem verkamaður með mynd-
listinni," segir Skúli. „Ég er reyndar atvinnulaus
eins og er. en maður reynir að verða sér úti um
einhverjar tekjur. En þegar maður er í erfiðis-
vinnu frá átta á morgnana til sex eða sjö á
kvöldin, þá vinnur maður afskaplega lítiö fyrir
sjálfan sig þegar maður kemur heim."
Skúli segir að þegar myndlistarmaður sé í
verkamannavinnu, þá verði hann vinna. Hins
vegar geti hann verið á sama vinnustað með til
dæmis fótboltaköppum, sem að mæta í vinnuna
til þess að hvíla sig á milli leikja eða æfinga. Þar
af leiðandi eykst líka álagið á myndlistar-
manninum sem verður ennþá þreyttari þegar
hann kemur heim. „Það þýðir ekkert fyrir mig
að spyrja verkstjórann hvort ég geti fengiö frí f
dag vegna þess að mig langi til að gera mynd. Ef
ég spyrði hins vegar hvort ég gæti fengið frí f dag
vegna þess að ég þyrfti að æfa mig. þá horfði
málið öðru vísi við.“
Skúli telur þó að þama sé ekki endilega um
togstreitu að ræða milli myndlistar og íþrótta,
sem standi öðru tveggja fyrir þrifum. „Sem
listamaður getur maður haft áhuga á íþróttum og
allt gott urn þær að segja í sjálfu sér. Það er hins
vegar þessi afstaða margra til þessara hluta sem
er yfirleitt á kostnað myndlistarinnar. Ef ég finn
hjá mér þörf til þess að gera mynd á meðan ég er
í vinnu, þá gengur maður ekki heim til þess að
gera þessa ntynd, heldur verð ég að bíða þangað
til vinnudegi lýkur og er þá orðinn of þreyttur til
að gera eitthvað fallegt. Það tekur alltaf einhvem
tíma að ná sér niður til þess að geta gert eitthvað
fallegt. Svo er maður kannski rétt búinn að
koma sér í form um helgi og farinn að ná
einhverri stemntningu, en þá verður maður að
kúpla sig frá því vegna þess að vinnan bíður
klukkan átta á mánudagsmorgni."
Þarf að hafa hugtök
myndlistarinnar á hreinu
Er fegurðarhugtakið efsta lagið í myndlistinni í
þínum huga?
„I myndlistinni eru ákveðin lögmál. Maður
gerir ekki eitthvað og segir að það sé myndlist.
Maður þarf að hafa ýmis hugtök á hreinu, eins og
til dæmis myndbyggingu. litasamsetningu og
hreyfingu. í flestum tilfellum held ég að maður
geti sagt að það sem einum þykir Ijótt geti verið
góð myndlist. Það er í rauninni persónulegt mat.
En þetta með að kunna að búa til myndina, er
háð þessum lögmálum seni ég nefndi. Ég hef til
dæmis mikið dálæti á Picasso sem kunni að búa
til myndir. Allar myndir sem ég hef séð eftir
hann eru pottþéttar sem myndlist, en ntér finnst
verk hans langt frá því að vera falleg. Picasso er
einn mesti myndlistarmaður sögunnar, en þær
höfða ekki til fegurðarskyns míns, en þær eru
gríðarlega góðar myndlistarlega. Ég myndi ekki
vilja hafa þær hangandi inni í stofu hjá mér, en
ég get vel sætt mig við þær á söfnum og í huga
mínum.
Má finna einhver merki áhrifa Picasso í þínum
myndum?
„Nei, nei. Að vera undir áhrifum ffá ein-
hverjum reyni ég að komast hjá. Maður lærði af
sínum kennurum á sínurn tíma. Ég reyni hins
vegar að gera það sem mótast í mínum huga, en
ekki ganga í smiðju til einhvers annars. Maður
reynir að vera nægileg vitsmunavera til þess að
geta lært af því sem maður sér í kringum sig.
Picasso er ekki uppáhaldsmálari minn, en ég hef
miklar mætur á honum. Ég nefni hann frekar
sem dæmi um þessi lögmál sem gilda í
myndlistinni."
Listin orðin stóriðja
Ef við snúurn okkur aðeins að viðhorfi fólks til
myndlistar og stöðu listamannsins í samfélaginu.
Skynjar þú eitthvert bil sem er að aukast milli
listamannsins og almennings og að myndlistin sé
einungis vettvangur fræðinga?
„Mér finnst fræðingarnir vera komnir í
aðstöðu sem er alveg fáránleg. Einn myndlistar-
maður úti í heimi, sem hefur kannski lapið
dauðann úr skel allt sitt líf verður skyndilega
frægur eftir andlátið og alls konar fræðingar fara
að safnast um hann. Þeir skrifa bækur, halda
fyrirlestra og skrifa greinar, sem hala inn fé fyrir
þá. Þetta er eiginlega orðin stóriðja. Ég get tekið
impressionistana sem dæmi. Frá alda-mótum er
búið að skrifa heilu staflana af bókum, þannig að
ef þær yrðu settar saman hver við hliðina á
annarri, þá skipti það kilómetrum. Þetta eru alls
konar hlutir sem verið er að skrifa um sem
skipta í raun og veru engu máli fyrir ntyndlist
ntannsins sjálfs. Þetta er að miklu leyti
upphafning fræðimannanna á sjálfum sér. Eftir
því sem þeir verða svo gáfulegri og skrifa
flóknari greinar um einfalda hluti, því meira hala
þeir inn sjálfir og verða þekktari. Svo er hins
vegar sá þáttur sem snýr að almenningi sem oft
segir þegar hann stendur frammi fyrir listaverki
að hann skilji ekki. Það er mikið til skólakerfmu
að kenna. Éf byrjað er nógu snemma á því að
kynna myndlist fýrir fólki, þá verður þetta ekkert
vandamál. Myndlist skiptir einhvem veginn
minna máli heldur en algebra og aðrar greinar í
skólakerfinu."
Skúli segir að viðhorfið til fræðinganna eigi
líka við um samtímalistamenn. Þó geti verið
allur gangur á því. „í dag er í raun og vem mjög
erfitt að koma sér á framfæri, eða lifa af
myndlistinni, nema einhver fræðimaður finni
eitthvað bitastætt fyrir hann sjálfan. Það er rnikið
atriði fyrir listafólk í dag að hafa einhverja sterka
aðila í pólitík, eða í viðskiptum sem taka þá upp
á sína arma. Þetta er í sjálfu sér ekki góð þróun.
Til dæmis að listamaður sem hefur lítið til
brunns að bera, en á frænda sem hefur áhrif
einhvers staðar geti komið listamanni á flot.
Samt held ég að þetta sé ekki einkennandi fyrir
myndlistina í dag, en það er alltaf einhver
tilhneiging í þessa átt.“
Að mála ekki Heimaklett
Hvert er viðhorfið til myndlistar hér í Eyjum
þegar þú ert að alast upp?
„Ég geri mér kannski ekki beinlínis grein fyrir
því. Þegar ég var krakki þótti mér mjög gaman