Fréttir - Eyjafréttir - 23.04.1998, Page 6
Fréttir
Fimmtudagur 23. apríl 1998
6
Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzo-
sópran mun halda tónleika í Safn-
aðarheimili Landakirkju sunnu-
daginn 26. apríl kl 14:00 við
undirleik Guðmundar H. Guðjóns-
sonar. í tengslum við komu sína
hingað til Eyja mun Ingveldur
einnig halda söngnámskeið dagana
23. - 29. apríl, en þetta er í þriðja
sinn sem hún heldur slíkt námskeið
hér í Eyjum.
Ingveldur Ýr var beðin um að halda
námskeið í Eyjum og svo vel tókst til
að hún var beðin að koma aftur og
nýtir nú ferðina til að syngja fyrir
Vestmannaeyinga. „Þetta námskeið
mun standa allan daginn og hver
nemandi fá tvær klukkustundir í
einkatíma. Það má segja að ég nýti
ferðina til þess að syngja fyrir
Vestmannaeyinga í leiðinni. Það er
mjög skemmtilegt að syngja fyrir fyrir
Vestmannaeyinga og ég vona að þeir
sjái sér fært að mæta á tónleikana.“
Ingveldur Ýr segir að efnisskráin
verði byggð upp á þekktum ísienskum
lögum, auk laga frá Italíu og Spáni.
„Tónleikaformið er mitt uppáhld í
sönglistinni. Þar get ég gefið af mér
og sýnt margar ólíkar hliðar á
tónlistinni og sjálfri mér. Ég hef alltaf
þann háttinn á að kynna lögin sjálf og
segja áhorfendum frá bakgrunni
laganna. Þetta fmnst mér gera tónleik-
ana aðgengilegri og skemmtilegri. Ég
hef sungið á fjölda tónleika bæði hér
heima og erlendis og gert útvarps-
hljóðritanir og sjónvarpsupptökur fyrir
austurríska, franska, kanadíska sjón-
varpið og RÚV. Nú er líka í undir-
búningi geisladiskur með einsöng
mínum sem Japis mun gefa út.“
Ingveldur hefur mikið söngnám að
baki bæði á íslandi, Austurríki og
Bandaríkjunum. A íslensku óperu-
sviði eru helstu hlutverk Ingveldar
Ýrar, Olga í Evgení Ónegin, Val-
þrúður og Fljóthildur í Niflunga-
hringnum, Prezisoilla í A valdi ör-
lagana og nú síðast hlutverk Dorabellu
í Cosi fan Tutte eftir Mozart. Einnig
hefur hún sungið í söngleikjum og
kabarett-tónlist. Hún het'ur verið
gestur á alþjóðlegum tónlistarhátíðum
og sungið með virtum hljómsveitar-
stjórum eins og Seiji Ozawa, Sir
Neville Mariner og Kent Naganao.
Hún tók þátt í frumflutningi óper-
unnar The Cenci í Queen Elisabeth
Hall í London fyrr í vetur og mun
syngja óperuna inn á geisladisk síðar á
árinu. Einnig eru í bígerð einsöngs-
og hljómsveitartónleikar í Frakklandi
og Bandaríkjunum á þessu ári.
Úrslitaviðureignin í Sveitakeppni Suðurlands fór fram í Eyjum um páskana. Þar
áttust við sveitir frá Eyjum og Selsfossi. Selfyssingar stóðu uppi sem
Suðurlandsmeistarar en árangur Vestmannaeyinga er athyglisverður því þetta
er í fyrsta skipti sem þeir komast í úrslit í sveitakeppninni.
Bridgefélag Vestmannaeyja sá um framkvæmd mótsins en spilað var í
Framhaldsskólanum. Sveitirnar sem kepptu til úrslita voru sveit Þórðar
Sigurðssonar frá Selfossi og Vestmannaeyjasveit Magneu Bergvinsdóttur. Er
skemmst frá því að segja að Selfosssveitin vann með 189 stigum gegn 88
stigum Vestmannaeyinga. Á myndinni eru f.v. að ofan Selfosssveitin Gísli
Þórarinsson, Þórður Sigurðsson, Grímur Árnason og Sigurður Hjaltason. Fyrir
framan, Sveit Vestmannaeyinga, Guðbjörn Guðmundsson, Bjarki Guðnason,
Jón Hauksson mótsstjóri og dómari keppninnar, Daniel Lee Davis, og Magnea
Bergvinsdóttir.
saim/inniiierúir-Laiiilsyii
A veröi tyrir pig’
Mallorkatilboð
Bjóðum 8000 krónu afslátt í brottför 13. maí til Mallorka í 13 daga á Cala Dor og Palma
Nova.
Verðdæmi: Tveir í tvíbýli á Playa Terra frá kr. 42.700 kr. á mann með flugvallarskatti.
Fjórir saman í íbúð frá 37.300 krónur á mann með flugvallarskatti.
Verð fyrir barn 25.630 krónur.
Nánari upplýsingar hjá Samvinnuferðum- Landsýn í síma 481-1271
í þessu blaði eru auglýsingar sem tengjast fermingum og
sumarkomunni. Þessar auglýsingar eru unnar í samstarfi við
Athafnaver unga fólksins sem nýlega tók til starfa í
Vestmannaeyjum. Fréttir fengu þá Gunnar Stein Magnússon
og Þóri Ólafsson til starfans. Sáu þeir um að safna
auglýsingum og eiga heiðurinn af gerð þeirra. Þetta fórst þeim
vel úr hendi og vonandi verður um áframhaldandi samstarf
Athafnaversins og Frétta að ræða.
Á myndinni eru Gunnar Steinn og Þórir að störfum á
Fréttum.
ttiiíegi
Sigurgeir Jónsson __ _ _ ^ u
skri,ar Af nrokeringum
Ingveldur ÝrJónsdóllir mezzosópmn:
Heldur tónleika og
námskeið íEyjum
Af nógu hefur veriö að taka í skandalamálum
hvers konar á íslandi að undanförnu. Þar ber
hæst mál Landsbankans og eru landsmenn
sjálfsagt búnir að fá nóg af þeirri umfjöllun í bili.
Þetta mál hefur þó undið svo upp á sig að nú eru
a.m.k. tveir bankar til viðbótar undir smásjánni í
því er snertir risnukostnað og laxveiðar. Skrifara
leikurforvitni á að vita hvort um frekari vakningu
verður að ræða í því að krytja bankastofnanir um
þessa hluti. Má e.t.v. eiga von á því að útibú á
Íandsbyggðinni fái sömu meðferð og þeir
Benedikt og Börkur megi eiga von á svipuðum
gegnumlýsingum?
En annað mál vakti verulega hrifningu
skrifara. Það er sú ákvörðun dómsmálaráðherra
og 1. þingmanns okkar Sunnlendinga, að skipta
úf sýslumönnum á Hólmavík. Á Hólmavík situr
ungur sýslumaður sem að kunnugra sögn hefur
staðið sig með miklum ágætum í starfi og hefur
að eigin sögn ekki óskað eftir tilfærslu í starfi.
kann hag sínum vel þar vestra. Aftur á móti situr
á Akranesi sýslumaður serh hefúr á undanfömum
árum verið nokkuð upp á kant við sinn
yfirboðara, áðumefndan dómsmálaráðherra og 1.
þingmann Sunnlendinga. Til að mynda var
honum um það brigslað fyrir fáeinum ámm að
mæta seint og illa til vinnu á sýsluskrifstofunni.
Var jafnvel ýjað að því að setja upp stimpil-
klukku á vinnustaðnum svo að hægt væri að
fylgjast með mætingum sýslumannsins og þá
væntanlega greiða honum laun eftir því.
Nú er ekki nema von að sýslumaður þeirra
Skagamanna mæti stundum seint til vinnu þar
sem hann býr vestur á Seltjamamesi og þaðan er
dijúgur spölur upp á Skaga, jafnvel þótt hann taki
Akraborgina. Nú þætti þessi vegalengd ekki
umtalsverð erlendis þar sem fólk má oftlega eyða
fjómm til fimm klukkustundum daglega í að
komast til og frá vinnu. En á Islandi þykir þetta
langt. Sýslumaður hefur og verið ófáanlegur að
flytja heimili sitt upp á Skaga enda eðlilegt að
þeir sem einu sinni hafa kynnst dásemdum
Seltjamarnessins fórni ekki slíku fyrir búsetu á
landsbyggðarhomi á borð við Skagann.
Þetta mál, ásamt raunar fleirum, varð ekki til
að auka á vinskap sýslumanns og ráðuneytis og
þótti þó ekki ástæða til alvarlegra ofanígjafa. Svo
á dögunum barst ráðuneytinu mikill hvalreki og
varðaði alvarleg embættisglöp sýslumannsins.
Þar með lét ráðherra til skarar skríða og ákvað að
refsa þessum óþekka starfsmanni sfnum. En nú
var honum nokkur vandi á höndum. Þessi meintu
afglöp þóttu ekki nægileg til að hægt væri að reka
hann (eða láta hann segja upp eins og gert er við
bankastjóra). En það er hægt að lækka menn í
tign og það þykir minni vegsauki innan kerfisins
að vera sýslumaður á Hólmavík en uppi á Skaga.
Því datt ráðherranum það snjallræði í hug að
hrókera og færa sýslumenn milli staða, öðmm til
vegsauka fyrir vel unnin störf, hinum til
minnkunar.
Gallinn við þetta er einungis sá að ráðherra
mun sá eini sem er ánægður með leik sinn.
Sýslumaðurinn á Hólmavík er ekkert of ánægður,
sýslumaðurinn á Akranesi mjög óánægður og
íbúar Hólmavíkur hreint hundfúlir og hafa lagst í
undirsriftasafnanir til að mótmæla leiknum.
Nú hafa Islendingar aldrei átt það sem aðrar
þjóðir margar eiga og kallast sakamannanýlendur
ekki síðan Brimarhólmsvist lagðrít af. T.d.
tíðkuðu Sovétmenn það á sínum tíma að senda
vandræðafólk innan kerfisins til Síberíu og þótti
prýðislausn. Nú hefur dómsmálaráðherra dottið
ofan á patentlausn í þessum málum. Þeir sem
ekki fara eftir gerðum kerfisins skulu hér eftir
sendir til Hólmavíkur. Verst er að ekki skuli vera
útibú frá Landsbankanum á Hólmavík, það hefði
leyst ómældan vanda þess banka. En Bún-
aðarbankinn er þar með útibú og nú bíða menn
þess í ofvæni hvað kemur út úr rannsókn á
tjárreiðum þess banka. Þá mætti e.t.v. hrókera á
ný. Bankamálaráðherra hlýtur að mega svoleiðis
líka. Og sviptingar í lögreglumálum höfuðborg-
arinnar mætti hæglega leysa með því að lækka
stórmenni þar í tign og senda þá til Hólmavíkur.
Löggæslumenn á Hómavík munu hafa mjög
óflekkaðan skjöld, hafa t.a.m. hvorki týnt
skýrslum né dópi, og myndu sóma sér vel sem
yfirmenn í Reykjavík.
Verst þykir þó skrifara að tilfærslur á borð við
þessar sýslumannahrókeringar skyldu ekki hafa
uppgötvast svo sem tveimur árum fyrr. Þá hefði
hæglega mátt leysa það deilumál sem upp kom í
söfnuði Langholtssóknar og urðu til þess að
sóknarpresturinn þar, séra Flóki, var gerður
útlægur og sendur af landi brott líkt og tíðkaðist
til forna með misindismenn. Hefðu kirkjuleg
yfirvöld borið gæfu til að leita í smiðju til 1.
þingmanns Sunnlendinga, þá hefðu engin
vandamál fylgt þessu. Séra Flóki hefði þegar í
stað verið sendur vestur á Hólmavík og þeirra
klerkur. sem mun vammlaus maður í alla staði,
hefði tekið við í Langholtinu.
1. þingmanns Sunnlendinga mun Iengi verða
minnst í sögunni fyrir þá snjöllu lausn sína, að
finna Islendingum góðan samastað fyrir
vandræðamenn sína. En skrifari vill þakka al-
mættinu fyrir að honum skyldi detta Hólmavík í
hug en ekki einhver annar staður. t.d. sunnarlega í
Suður-landskjördæmi.
Sigurg.
Barcelona - Benidorm - Costa del Sol - Heimsferðir, umboð í Eyjum - Straumur s. 481-1119