Fréttir - Eyjafréttir - 23.04.1998, Page 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 22. aprfl 1998
Skoðanakönnun Gallup fyrir Fréttir:
Rúmur helmingur tekur ekki afstöðu
Niðurstöður könnunar sem Galiup
gerði fyrir Fréttir Iiggja nú fyrir.
Könnunin hefur valdið nokkurri
armæðu hjá talnaglöggum mönn-
um af ástæðum sem lesendum
Frétta eru kunnar. Ekki verður
farið nánar út í þá sálma hér, né
hugrenningar manna þar um. En
niðurstöður skýrslunnar látnar
tala, eins og þær koma frá Gallup.
Markmið rannsóknarinnar var að
kanna hvað fólk myndi kjósa í
sveitarstjórnarkosningunum í vor
og hvern fólk vildi sjá sem næsta
bæjarstjóra.
Könnunin var framkvæmd dagana
15. til 19. mars s.l. og upplýsinga
aflað gegnum síma, eftir tilviljunar-
úrtaki úr þjóðskrá. Þátttakendur voru
Vestmannaeyingar á aldrinum 18 til
75 ára og úrtaksstærð 600 einstak-
lingar.
Heildarfjöldi svarenda var422. Þar
af neituðu 62 að svara. I 96 náðist
ekki. Vestamannaeyingar búsettir
erlendis voru 4. Brottfluttir 13 og
veikir 3. Endanlegt úrtak. þegar frá
hafa verið dregnir þeir sem eru
búsettir erlendis, fluttir eða veikir,
samanstendur af 580 einstaklingum.
Nettósvörun er því 72,8%.
Niðurstöður voru greindar eftir
aldri, kyni, tekjum og starfí. Þegar
greint er eftir tekjum er átt við
heildartekjur allra einstaklinga á
heimilinu.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi
rúmlega 53% fylgi ef kosið væri nú
en Vestmannaeyjalistinn tæplega
42% fylgi. Rúmlega 44% neituðu að
svara eða höfðu ekki gert upp hug
sinn og tæplega 8% myndu ekki kjósa
eða skila auðu.
Ef niðurstöður könnunarinnar eru
bomar saman við úrslit kosninganna
1994 sem hlutfall af greiddum at-
kvæðum fékk D-listi 52,3%, V-listi
31,5% og H-listi 16,2%. Fylgi Sjálf-
stæðisflokks minnkar í þessum
samanburði en V-listi bætir við sig.
Fylgi H-lista þurrkast nánast út.
Ef greint er eftir, aldri, tekjum og
starfssviði fékkst ekki marktækur
munur. Hins vegar ef greint er eftir
kyni náðist marktækur munur en þar
hefur Sjálfstæðisflokkurinn í öllum
tilvikum vinninginn. Karlar sem ætl-
uðu að kjósa Sjálfstæðisflokkin voru
30.8%, en konur 24,5%. Af þeim
sem ætluðu að kjósa Vestmanna-
eyjalistann voru karlar 25,9% og
konur 17,6%. Af þeim sem ekki
höfðu gert upp hug sinn eða neituðu
að svara voru karlar 39,8% og konur
56,4%. Það er því hærra hlutfall karla
en kvenna sem kysi Sjálfstæðisflokk
og Vestmannaeyjalistann. Hlutfall
óákveðinna er hins vegar hærra meðal
kvenna en karla. Þeir sem neituðu að
svara eða vissu ekki hvað þeir myndu
kjósa eru inni í tölunum sakvæmt
þessari greiningu.
Tæplega 35% aðspurðra vilja
Guðjón Hjörleifsson áfram sem
bæjarstjóra. en tæplega 57% sögðust
ekki vita hvem þeir vildu, sem er
mjög stórt hlutfall óákveðinna. (Þetta
er ekki óeðlilega hátt miðað við
hvernig spumingin er orðuð, sbr.
yfirlýsingu frá Gallup). Af þeim sem
ætluðu að kjósa Sjálfstæðisflokkinn
voru 81,5% sem vildu Guðjón sem
bæjarstjóra, 9,4% þeirra sem ætluðu
að kjósa Vestmannaeyjalistann vildu
Guðjón sem bæjarstjóra. Óákveðnir
og þeir sem neituðu að svara voru
25,8%.
Af þeim sem ætluðu að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn vildu 0,0%
Ragnar, 8,2% þeirra sem ætluðu að
kjósa Vesmannaeyjalistann vildu
Ragnar og 10,0% nefndu einhverja
aðra og 2,2% vissu ekki hvern þeir
vildu eða neituðu að svara.
Spurning 1.
Ef sveitarstjórnarkosningar færu fram á
morgun, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?
Fjöldi Hlutf. Vikmörk
Sjálfstæðisflokkurinn 108 53,2% 46,3-60.1%
Vestmannaeyjalistinn 85 41,9% 35,1 -48,7%
H-listi 3 1,5% 0,0- 3,1%
V og H í sam- eiginlegt framboð 5 2,5% 0,3- 4,6%
Annað 2 1,0% 0,0- 2,3%
Samt. 203 100,0%
Af þeim sem afstöðu tóku 203 48,1%
Kjósa ekki/skila auðu 33 7,8%
Veit ckki/neita að svara 186 44,1%
Fjöldi aðspurðra 422 100,0%
Sjálfstæðismenn fögnuðu sigri í síðustu kosningum en ijést er af
skoðanakönnun Gallup fyrir Fréttir að róðurinn uerður pyngri hjá heim að
hessu sinni hví Vestmannaeyjalistinn hefur sótt ueruiega í sig ueðrið.
Spurning 2.
Hver vilt þú að verði bæjarstóri að loknum
kosningum í vor?
Fjöldi Hlutf. Vikmörk
Guðjón Hjörleifsson 146 34,6% 30,1 -39.1%
Ragnar Oskarsson 13 3,1% 1,4 - 4,7%
Páll Zophóníasson 6 1,4% 0,3 - 2.6%
Annað 18 4,3% 2,3 - 6,2%
Veit ekki 239 56,6% 51,9-61,4%
Samt. 422 100,0%
útvam
Suður-
land í
sumar-
haminn
Sumardagskrá Utvarps Suður-
lands fer af stað þann 16. apríl
og verða töluverðar breytingar
er útvarpið hristir af sér
vetrarhaminn en 1. maí verður
dagskráin komin í sumar-
haminn.
Þátturinn Eyjólfur verður frá
10:00 - 12:30 á morgnana. Frá
12:30 - 13:00 verður íþrótta-
hádegið á sínum stað. Frá 13:00-
15:30 verður nýr þáttur sem heita
mun Gormur og taka mun á
áhugamálum ungs fólks, jafnt í
tónlist sem öðru. Umsjónarmenn
Gormsins verða Einar Ágúst
Vt'ðisson og Jónas Sigurðsson. Frá
15:30 - 17:00 verður annar nýr
þáttur á dagskrá, Toppurinn í
umsjá Sæmundar Sigurðssonar,
sem er blandaður þáttur um íþróttir
og tónlist. Fréttatengdu þættirnir
Dagmál frá 07:00 -10:00 og á ferð
og flugi frá 17:00 - 19:00 verða á
sínum stað með hefðbundnu sniði.
Síðari breytingar á kvöld og
helgardagskrá verða svo kynntar er
nær dregur maf.
Skólamál, ábyrgð okkar allra
Þegar ég ákvað, að vandlega íliuguðu
máli, að gefa kost á mér í þriðja sæti á
framboðslista Sjálfstæðismanna í
kosningunum 23. maí nk. var það
vegna mikils áhuga á málefnum
bæjarins. í bæjarfélagi eins og Vest-
mannaeyjum eru æði mörg viðfangs-
efni sem bæjaryfirvöld þurfa að sinna
og ég er viss um að reynsla mín í
félagsmálum, við heimilið og barna-
uppeldi auk víðtækrar starfsreynslu á
vinnumarkaðnum, innanbæjar sem
utan. geri mig hæfari að fást við hin
margvíslegu verkefni bæjarfélagsins.
í stuttri blaðagrein er aðeins hægt að
bera örstutt niður í þau mál sem mér
eru hugleikin, svo sem skólamál.
Góð reynsla af yfirtöku
grunnskólanna
Með yfirtöku bæjarins frá ríkinu á
rekstri grunnskólanna haustið 1996
má segja að kaflaskipti hafi orðið í
viðhorfi bæjarstjórnarinnar til skóla-
mála. Ég er þess fullviss að það hafi
verið gæfuspor að stofna eigin skóla-
skrifstofu hér í Vestmannaeyjum.
Starfsemi skólaskrifstofunnar sem sett
var á fót á miðju ári 1996 og ráðning
sérmenntaðs starfsfólks hefur þegar
sannað gildi sitt.
Það er ánægjulegt til þess að vita að
námskeiðahald fyrir kennara grunn-
skólanna hefur að verulegu leyti verið
flutt heim í hérað. í stað þess að gefa
fáum kost á því að sækja námskeið
upp á land eru leiðbeinendur nú
fengnir hingað til Eyja og sem flestum
kennurum þannig geftnn kostur á
námskeiðum.
Vestmannaeyjar hafa upp á margt
að bjóða til þess að gera rekstur
grunnskólanna mjög skilvirkan. í
Vestmannaeyjum eru nú um 800
nemendur í grunnskólunum, sem
skiptast nánast til helminga milli
Bamaskólans og Hamarsskólans.
Þetta er án efa heppileg stærð fyrir
skóla með hliðsjón af allri stjómun í
skólunum. Við eigum því láni að
fagna að um 90% grunnskólakennara
í Eyjum eru með full kennsluréttindi
og margir leiðbeinenda eru mjög vel
menntaðir.
Það hefur ekki farið fram hjá fólki
að miklar framkvæmdir hafa verið í
uppbyggingu skólahúsnæðis íEyjum
á undanfömum árum. Nú síðast ber
hæst endurbygging elsta hluta Bama-
skólans þar sem þetta 80 ára gamla og
virðulega skólahús hefur algjörlega
verið endumýjað.
Stöndum vel í uppbyggingu
skólanna
Það var mikið happaspor fyrir skóla-
starf í landinu að færa allt starf
gmnnskólanna til sveitarfélaganna. Þá
var verið að færa á eina hendi, t.d.
Vestmannaeyjabæjar, rekstur og
ábyrgð á skóiastarfinu í bæjarfélaginu
í stað þess að skipta því á milli ríkis og
bæjar.
Samkvæmt lögum frá Alþingi skal
einsetningu grunnskólanna vera lokið
á árinu 2003 eða eftir 5 ár. Til þess að
ná þessu markmiði í Vestmannaeyjum
þarf að bæta við einni álmu við
Hamarsskóla og hefst hönnun hússins
á þessu ári. Þá á eftir að fara í
töluverðar framkvæmdir við Barna-
skólann en þar er hönnunarvinnunni
að mestu lokið. Miðað við þá fjár-
muni sem áætlaðir em til byggingar
skólahúsnæðis í nýlega samþykktri
áætlun bæjarins fyrir 1998 - 2000
höfum við alla burði til að ljúka þessu
verkefni á tilsettum tíma.
Spennandi verkefni framundan
Framundan eru mörg krefjandi verk-
efni í skólamálum í Vestmannaeyjum.
Yfirfærsla á rekstri leikskólanna undir
skólamál frá síðustu áramótum bíður
upp á enn nánara samstarf milli leik-
og grunnskólanna. Huga þarf að
forvamarstarfi, nýbúafræðslu, aðgengi
fatlaðra, samstarfi skóla og heimila og
mörgu öðru. Þá megum við ekki
gleyma þeim mannauði sem fólginn er
í starfsfólki allra þessara uppeldis-
stofnana. Nú er vinna við mótun
heilstæðrar skólastefnu Vestmanna-
eyjabæjar á lokastigi en hún nær yfir
leikskóla, grunnskóla, Listaskóla
Vestmannaeyja og fullorðinsfræðslu
og samstarf við Framhaldsskólann.
Á síðari tímum hafa augu manna
opnast fyrir mjög auknu gildi upp-
eldis- og skólamála í starfsemi
sveitarfélaga. Skólamál eru ekki
lengur „mjúkmál”, eingöngu á ábyrgð
kennaranna og foreldra bamanna í
skólunum. Mín skoðun er sú að við
berum öll ábyrgð á börnum bæjarins
og okkur ber að gæta þeirra og þeirra
hagsmuna. Mín framtíðarsýn er að
við hér í Vestmannaeyjum eigum
góða möguleika á að efla hér allt
skóla- og fræðslustarf í næstu framtíð
til mikilla hagsbóta fyrir þetta
bæjarfélag.
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir
Höfundur skipar 4. sœti á D-lista