Fréttir - Eyjafréttir - 06.08.1998, Qupperneq 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 6. ágúst 1998 • 31. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
Á föstudaginn og föstudagskvöldið skartaði Herjólfsdalur sínu fegursta og brennan naut sín til fullnustu
Þjóðhátfðin 1998 sú
fjölmennasta frá upphafi
Það er sama við hvern var rætt,
menn voru ánægðir með hvernig til
hafði tekist með þjóðhátíðina þrátt
fyrir baráttu við veðurguðina. Það
var fljótt ljóst að mikill straumur
fólks stefndi á Vestmannaeyjar og
að flutningsgetan réði því hver
endanlegur fjöldi yrði. Samkvæmt
upplýsingum frá flutningsaðilum
komu nánlægt 6500 gestir á þjóð-
hátíðina í ár sem er um 900 manns
fleira en þjóðhátíðina 1986. Þá var
áætlað að tæplega 10.000 manns
hefðu sótt hátíðina en í ár bendir
allt til þess að talan hafí farið yfir
10.000 gesti. Það virðist því vera svo
að þjóðhátíðin 1998 sé fjölmennasta
þjóðhátíðin til þessa.
Árið 1986 flutti færeyska ferjan
Smyrill um 2500 gesti á þjóðhátíð,
Herjólfur milli 1700 og 1800 og um
1500 komu með flugi. Samtals gera
þetta 5700 þjóðhátíðargesti. í ár flutti
Herjólfur um 3000 gesti á þjóðhátíð,
Flugfélag Vestmannaeyja um 1500,
íslandsflug milli 1100 og 1200 og
Flugfélag Islands 880 eða samtals um
6600 gesti.
í Fréttum eftir þjóðhátíðina 1986 var
gert ráð fyrir að milli 3500 og 4000
heimamenn sæktu hátíðina. Sam-
kvæmt því hafa þjóðhátíðargestir þá
verið innan við 10.000 en miðað við
að 3500 manns úr bænum hafi sótt
þjóðhátíðina í ár fer talan yfir 10.000.
Samkvæmt þessu er þjóðhátfðin 1998
stærsta þjóðhátíðin hingað til en taka
verður tölum um fjölda bæjarbúa með
nokkmm fyrirvara. Eins er ekki
samræmi á milli seldra miða og fjölda
gesta því böm að 14 ára aldri þurfa
ekki að borga aðgangseyri og það
sama gildir um fólk 67 ára og eldra.
Unnið að því ab setja net á kvína
Verður tilbúin á réttum tíma
I fyrradag var byrjað að klæða kví Keikós með netinu sem mun afmarka
hana undir yfirborði sjávarins.
Netið er 4 mm þykkt með um 7 sm stómm möskvum og er ofið en ekki hnýtt
saman, því er síðan haldið á niðri við botninn með með átta tommu þykkunt
römm sem fyllt em með sandi og em úr sarna efni og yfirborðsflotholtin.
Jim Styers sem er aðalráðgjafi Keiko samtakanna varðandi samsetningu
kvíarinnar, segir að búið sé að netklæða helming kvíarinnar og að lokið verði
við það verkefni í dag. Jim segir að þessi hluti verksins hafi gengið ntjög vel,
eins og allt verkið hingað til. „Við verðurn tilbúnir með kvína á réttum tírna,"
segir Jim að lokum.
Svartir
sauðirí
mörgufé
Lögregla lýsir yfir nokkurri á-
nægju með gesti Þjóðhátíðar,
sem langflestir voru til fyrir-
myndar, þó eru alltaf svartir
sauðir sem ekki kunna fótum
sínum forráð.
Töluverð ölvun var og þurftu
nokkrir aðilar að gista fanga-
geymslur af þeim sökum, en aldrei
varð þó það þétt í rúm skipað að
vísa þyrfti mönnum frá. Lögreglan
í Vestmannaeyjum fékk aðstoð frá
12 lögreglumönnum og einum
fíkniefnahundi frá Reykjavík.
Lögð var áhersla á leit að fíkni-
efnum. Alls komu upp 7 fíkniefna-
mál, en um lítið magn var að ræða.
Aldur þessara manna var frá
tvítugu og upp í tuttugu og fimm ár
og magnið ekki það mikið að
ástæða þætti til að bendla þessa
einstaklinga við sölu fíkniefna.
Þrjátíu og þrír þjófnaðir voru til-
kynntir í Herjólfsdal, sem telst allt
of mikið að mati lögreglu. Sex lík-
amsárásir voru kærðar og hlutust af
beinbrot í þremur þeirra tilvika sem
telst mjög alvarlegt. Þrír aðilar
voru teknir fyrir ölvun við akstur,
auk þess sem nokkrir voru staðnir
að því að aka án réttinda.
Engin
nauógun
kærð ennpá
Sérstök neyðarmóttaka var til
taks á Sjúkrahúsinu, ef kyn-
ferðisafbrot kæmu upp.
Jafnframt voru aðilar frá Fé-
lagsmálaráði á bakvakt ef um
barnavemdarmál væri að ræða, en
ekki þurfti að leita til þeirra, svo
lögreglu sé kunnugt.
Engin nauðgun var kærð á
Þjóðhátíð, en tvær konur voru
fluttar í neyðarmóttöku sjúkra-
hússins, þar sem að þeim var hlúð
eftir að þær höfðu leitað aðstoðar
eftir kynferðisafbrot. Ekki vildu
þær þó leggja fram kæru að svo
stöddu.