Fréttir - Eyjafréttir - 06.08.1998, Síða 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 6. ágúst 1998
Sólskin, rigning og miMð fjör
á þjóðhátíðinni 1998
-sem er fjölmennasta og ein friðsælasta hátíð sem menn muna
Þjóðhátíðinni lauk á áttunda tímanum á mánudagsmorguninn
þegar Stuðmenn slógu síðasta tóninn á dansleiknum á stóra
pallinum. Þar með var lokið fjölmennustu þjóðhátíð frá upphafi en
um leið einni rólegustu þjóðhátíð seni menn muna eftir. Aætlað er
að rúmlega 10 þúsund manns hafi verið í Dalnum þegar flest var.
Að sögn iögreglu fór samt allt vel fram og voru mál helmingi færri
en undanfarin ár í öllum flokkum. Eins og alltaf er það veðrið sem
fer með ferðina á útihátíðum og þjóðhátíðin í ár var þar engin
undantekning þar á. Hátíðin hófst í góðu veðri sem varði fram á
laugardag en þá um kvöldið byrjaði að rigna og hélst hún sleitulítið
fram á sunnudagskvöld. Þá stytti upp og lauk hátíðinni í þokkalegu
veðri en Dalurinn ber þess merki að mikið rigndi.
Stuðmenn!!!!
Þetta eru ekki hinir raunuerulegu Stuðmenn en heir eru flottír engu að
síður og Árni Johnsen er og uerður Stuðmaðurinn eini sanni.
Föstu liðirnir á þjóðhátíð, brenn-
an á föstudagskvöldinu, flugelda-
sýningin á laugardagskvöldinu og
brekkusöngurinn voru á sínum
stað á þjóðhátíðinni.
Brennan var af hefðbundinni
stærð og naut sín ágætlega í góðu
veðri. Ekki blés eins byrlega á
laugardagskvöldið þegar flugelda-
sýningin átti að byrja en þá var eins
og rofaði til og naut ilugeldasýningin
sín mjög vel. Er það mál manna að
hún hafi aldrei verið glæsilegri en
nú. Árni Johnsen, sem staðið hefur
vaktina í brekkusöngnum frá því
hann varð til, segir að Brekkukórinn
hafi aldrei verið fjölmennari en nú
og var magnað að heyra um 10
þúsund manns syngja einum rómi.
Um önnur skemmtiatriði er það að
segja að þau vom misjöfn af gæðum,
en sumt var vel gert og féll í góðan
jarðveg á brekkusviðinu. En af
öðrum ólöstuðum voru það Stuð-
menn sem komu sáu og sigruðu.
Einkum vom þeir öflugir síðastu
nóttina en þá linntu þeir ekki látum
fyrr en klukkan að ganga átta á
mánudagsmorguninn. Þar með lauk
þjóðhátíðinni 1998 sem verður
minnst fyrir gott veður, mikla
rigningu, Stuðmenn og síðast en
ekki síst frábærra gesti sem voru á
allan hátt til fyrirmyndar og sjálfum
sér og sínum til mikils sóma.
Það uar uíða bröngt setinn bekurinn í tjöldunum en hröngt mega sáttir
sitia. Það sannaðist í tialdinu hjá Bjössa og Sæsu.
Setning bjóðhátíðar á föstudeginum fór fram í bliðskaparueðrí og uar f jöldi manns uiðstaddur, flestir
prúðbúnir. Gerður uar góður rómur að setningarræðu Þórs I. Vilhjálmssonar formanns ÍBV og hátíðarræðu Jóhanns
Friðfinnssonar. Gerði Jóhann ástina á bióðhátíð að umræðuefni. Séra Þórey Guðmundsdóttir flutti huguekju uið semingu
og færði mönnum andlegt uegarnesti inn í helgina.
thróttaleikir uoru á föstudaginn og fylgdust margir með kapphlaupi yngsta
fóiksins.
Keppni í boðhlaupi uar haldin millí manna sem kepptu síðast á hióðhátíð fyrir
um 30 árum. í beim flokki uoru m.a. Árni Johnsen, Arnar Sigurmundsson og
Bragi Steingrímsson. flttu heir kappi uið menn i meistaraflokki ÍBV sem unnu
nokkuð örugglega. Hér eru beir ásamt öðrum keppendum í frjáls-
íbróttakeppninni uið afhendingu uiðurkenninga.