Fréttir - Eyjafréttir - 09.09.1998, Side 2
2
Fréttir
Miðvikudagur 9. september 1998
Rólegt
147 færslur voru í dagbók lögreglu
síðast liðna viku, sem er nokkuð
færra en í vikunni þar á undan og
því rólegt hjá lögregu.
Þiófnaður úr bifreíð
Brotist var inn í bifreið sem stóð
við Kirkjuveg ! 0 aðfaranótt mánu-
dagsins og stolið úr honum
geisladiskum og fleira. Lögreglan
óskar eftir upplýsingum varðandi
grun-samlegar mannaferðir við
Kirkju- veg 10 umrædda nótt.
20 stútar
Þrjú umferðarbrot voru kærð í
vikunni. Einn ökumaður var stöðv-
aður vegna gruns um ölvun við
akstur og er hann sá tultugasti á
árinu. Þá var ökumaður létts bif-
hjóls stöðvaður þtu- sein hann ók
réttindalaus á óskráðu hjólinu.
Hvatning til foreldra
Lögreglan vill minna ökumenn og
farþega í bifreiðum að spenna
beltin, því beltin bjarga eins og
dæmin sanna og fram kom þegar
umferðarslys varð á Hamarsvegi
núna í vikunni. Sérslaklega eru
foreldrar og forráðantenn hvattir til
að sjá til þess að börn séu með
beltin spennt. Það getur oft verið
erfitt að fá börnin til að spenna
beltin en eins og lögregla vill koma
á framfæri og árétta. „Það eru
foreldramir sem ala upp börnin og
eiga að hafa vit fyrir bömunum.
Börnin eiga ekki að ala sig upp
sjálf.“
Gosafmæliðkomið
innámyndbandið
Heiðar Marteinsson, kvikmynda-
gerðarmaður, setti í sumar á
markað myndband um Heinta-
eyjargosið og uppbygginguna þar á
eftir. Nú hefur Heiðar bætt við
myndum frá goslokaafmælinu inn á
bandið sem fæst í Fotó. Þeir sem
hafa keypt fyrri útgáfunni geta skipt
henni út fyrir þá nýju í Fotó sér að
kostnaðarlausu.
Kúkurinn grillaður
Á Keikókvínni verða tvö hús,
annað tækjahús og hitt fyrir ör-
yggisverðina. Þar eru sjónvarps-
skjáir þar sem fylgst er með hverri
hreyfingu Keikós.
Állt er gert til þess að starfsfólk
geli haft það sem best við vinnu
sína á kvínni en þangað er búið að
leiða vatn, rafmagn og síma. Að
sjálfsögðu er klósett og hægt að
fara í sturtu. Til að gæta fyllsta
hreinlætis er klósettið með búnaði
til að eyða kúknum. Urn leið og
hann dettur kviknar á einskonar
grilli sem eyðir úrganginum. Gerist
það svo hratt að ekki finnst minnsta
lykt.
Upplýsíngamappa
fyrirblaðamenn
Öllum blaðamönnum sem koma til
Eyja fá möppu með ýmsum upp-
lýsingum um Vestmannaeyjar.
Fréttir sáu um þetta verkefni sem
unnið var af Grími Gíslasyni.
Möppuna prýða myndir eftir
Sigurgeir Jónasson.
Keikó kemur til Vestmannaeyja:
Bandaríkjamennimir verða
ekki með fasta búsetu í Eyjum
Hallur Hallsson hefur haft í mörg horn að líta undanf arnar uikur.
Bandarískt starfsfólk Free Willie
Keikósjóðsins verður ekki með
fasta búsetu í Vestmannaeyjum
heldur mun það skiptast á um að
vera hér.
„Starfsfólk FWKS frá Banda-
ríkjunum verður hér á 30 daga vöktum
og fer svo heim í 30 daga frí. Verða
um tíu manns staddir hér hverju sinni,
þjálfarar, dýralæknar og vísindamenn.
Við höfum tekið á leigu Skátaheimilið
þar sem starfsfólkið mun dvelja,"
segir Hallur Hallsson. Hann segir
þetta mjög dýrt fyrirkomulag því allir
koma starfsmennimir frá Vestur-
ströndinni en þar njótum við velvildar
Flugleiða sem eru styrktaraðilar að
verkefninu,“ bætti Hallur við.
Þegar fram í sækir er gert ráð fyrir
að íslendingar og ekki síst Vest-
mannaeyingar komi meira að
verkefninu. „Reyndar em Vestmanna-
eyingar komnir í vinnu hjá sjóðnum
því lífverðimir fimm em allir
Eyjamenn. En þeir geta líka komið inn
sem þjálfarar og tekið þátt í vísinda-
störfum sem tengjast Keikó og vem
hans við ísland. Auk þess er Gísli
Jónsson, dýralæknir trúnaðarlæknir
FWKS á íslandi.“
Sjónvamað um allan heim
Sjónvarpað verður frá koniu
Keikós út um allan heim og verður
viðbúnaður sjónvarpsstöðva mikill,
miklu meiri en Eyjamenn hafa
kynnst áður. Eini viðburðurinn sem
kemst í líkingu við þetta er leið-
togafundur Gorbatjovs og Reagans
í Reykjavík 1986.
Hallur Hallsson.talsmaður Free
Willie Keikósjóðsins á Islandi, sagði
þegar rætt var við hann að erfitt væri
að gera sér grein fyrir hvað margar
sjónvarpsstöðvar yrðu með tökulið því
bæði Stöð 2 og Sjónvarpið verða hér
með mikinn viðbúnað og munu
þjónusta fjöldan allan af erlendum
sjónvarpsstöðvum. „En þó að sjón-
varpsstöðvamar séu ekki með tökulið
verða margar þeirra með tæknifólk.
EBU, Samband evrópskra sjón-
varpstöðva, verður hér með Ijölmennt
tæknilið sem sér um að klippa og
þjónusta sjónvarpsstöðvar um alla
Evrópu. Eg veit að Sjónvarpið verður
með sendingar til CBS sjónvarpsins
bandaríska og EBU Samtaka
evrópskra sjónvarpsstöðva. Stöð 2 til
CNN og NBC sem sjónvarpar fréttum
um allan heim. Þessar sjón-
varpsstöðvar ásamt fjölda annarra
verða með beinar útsendingar frá
komu Keikós þannig að Vest-
mannaeyjar verða í brennidepli
heimspressunnar á fimmtudagsmorg-
uninn,“ sagði Hallur þegarrætt var við
hann á mánudaginn.
Keikó kemur klukkan tíu
Áætlað er að flugvélin sem flytur
Keikó til Vestmannaeyja lendi
klukkan 10 fyrir hádegi í fyrra-
máiið en þá hefur hún lagt að baki
átta til níu klukkutíma flug frá
Portland í Oregon á Vesturströnd
Banda-ríkjanna.
Þegar flugvélin er lent verður hafist
handa við að flytja Keikó frá flugvelli
í kvínna í Klettsvík. Allar tíma-
setningar eru mjög nákvæmar og er
gert ráð fyrir að Keikó verði kominn í
framtíðarheimili sitt ekki seinna en
klukkan 12. Lengstan tíma tekur að
koma flutningsgrindinni úr flugvél-
inni. Til þess er áætlaður einn
klukkutími. Um tíu mínútur tekur að
aka niður á Básaskersbryggju þar sem
Keikó verður hífður yfír á prammann
sem flytur hann síðasta spölinn. Á
prammanum verður krani sem hífir
Keikó yfir í kvínna og þar með er
lokið ferðalagi háhyrningsins yfir
hálfan hnöttinn sem staðið hefur í níu
til tíu klukkutíma.
TALÍEyjum
TAL ball í Eyjum—
Sóldögg leikur fyrir dansi á
laugardagskvöld 12. september.
Ballið verður í Týsheimilinu. Allir
þeir sem fá sér GSM síma og
TALkort frá fímmtudegi og fram á
laugardag fá boðsmiða á ballið en
annars kostar 1200 kr. Miðai' seldir
í Tölvun og er aldurstakmarkið á
ballið 18 ár.
10 krónur TAL í TAL. Frá og
með 15. sept kostar aðeins 10
krónur að hringja úr einum TAL
síma í annan.
Líf og íjör hjá Tölvun- í tilefni
af opnun GSM kerfís TALs f
eyjum verður ýmislegt í gangi fyrir
frantan Tölvun á fimmtudaginn.
Kók og pylsur, tónhst, andlits-
málning fyrir krakkana og annað
fjör.
Fréttatilkynning
Fréttamiðstöðí
Básum
Á efstu hæðinni f Básum er búið
að koma upp miðstöð fyrir frétta-
rnenn.
Húsnæðið hentar vel fyrir starf-
semina og ekki skemmir útsýnið
yfir austurhöfnina, Heimaklett og
Ystaklett og Klettsvíkin er einnig í
sjónmáli. I miðstöðinni verða öll
tæki sem blaða- og fréttamenn
þurfa. Þrjátíu símar eru til reiðu,
nokkrar tölvur, prentarar ljósritun-
arvél og sjónvaip. í miðstöðinni
verður einnig boðið upp á veitingai'.
Tökumallarhótanir
alvarlega
Halli Hallssyni hafa borist þrjú
hótunarbréf þar sem hótað er að
drepa háhyrninginn Keikó. Flestir
hafa litið á hótunarbréfin sem létt
grín en Hallur segir að hótanimar
séu teknar mjög alvarlega.
„Mikil áhersla hefur verið lögð á
öryggi Keikós og hótunarbréfin
sýna að vert er að fara að öllu með
gát. Búið er að skipa í sveit hóp
vaskra rnanna sem munu sjá um
öryggisgæslu. Auk þess hafa verið
gerðar sérstakar öryggisráðstafanir
sem ekki er hægt að greina frá,“
segirHallur.
Beldn björguðu begar bífreið fór út af Hamarsvegi
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt til
lögreglu að kvöldi aðfaranótt
sunnudagsins. Ekki urðu alvarleg
slys sem má þakka beltanotkun.
Slysið varð með þeim hætti að
bifreið var ekið út af Hamarsvegi íyrir
neðan Dverghamar. Ökumaðurinn
mun að sögn lögreglu hafa misst
stjóm á bifreiðinni í beygju.
Minniháttar áverkar urðu á ökumanni
og farþegar sluppu nánast ómeiddir.
Þakka þeir sem í bifreiðinni vom að
þeir vom spenntir í öryggisbelti, að
ekki fór verr.
Ökumaður og eigandi bflsins tók
undir þetta í samtali við Fréttir. „Við
vomm ijögur í bflnum og öll í beltum.
Hefðum við ekki verið það hefðum
við ömgglega ekki sloppið þetta vel.“
Margir stefna á Eyjar
Búist er við miklum fjölda fólks til
Eyja í tengslum við komu Keikós .
Er það ekki bara Ijölmiðlafólk því
íslendingar, ekki síst brottfluttir
Eyjamenn stefna að því að koma til
Eyja.
Bandarískisendi-
herrann í heimsókn
Bandaríski sendiheirann er mættur
Sendihena Bandaiíkjanna á Islandi,
herra Day Olin Mount kom til Eyja
í dag. Að sögn Guðlaugs Sig-
urgeirssonar blaðafulltrúa er
sendihen'ann mjög áhugasamur uni
Keikó og mun hann dvelja hér allan
daginn á morgunn.
FRÉTTIR Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson. íþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur frettir@eyjar.is. Veffang: hnp//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn, Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.