Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 09.09.1998, Page 6

Fréttir - Eyjafréttir - 09.09.1998, Page 6
6 Fréttir Miðvikudagur 9. september 1998 Koma Keikós -Nokkrar upplýsingar til bæjarbúa vegna komu háhymingsins á morgun Allur undirbúningur okkar miðast við þántöku bæjarbúa -segir Guölaugur Sigurgeirsson fjölmiðlafulltrúi um viðbúnað vegna komu Keikós til Eyja Búast má við nokkurri röskun á umferð í bænum og við höfnina vegna komu Keikós. Eins og gefur að skilja verða fjölmiðlar fyrir- ferðamiklir en bæjaryfirvöld og iögregla í samvinnu við Free Willy Kcikó sjóðinn hafa sett upp áætlun þar sem bæjarbúum og gestum í bænum verður gert eins auðvelt og kostur er að fylgjast með flutningi Keikós frá flugvelli í kvína í Klettsvík. Guðlaugur Sigurgeirsson fjölmiðla- fulltrúi bæjarins segir að allar áætlanir miðist við þátttöku bæjarbúa í komu Keikós en fólk verði að gera sér grein fyrir að takmarka verður aðgang að vissum svæðum meðan á flutningnum stendur. Fólk verður vart við þessar takmarkanir strax á flugvellinum. „Svæði í kringum flugstöðina og flugvélina sem flytur Keikó verður afmarkað með borðum sem lögregla og björgunarsveitarmenn hafa eftirlit með,“ segir Guðlaugur. „Fjölmiðla- fólk fær aftur á móti að fara út að vélinni gegn framvísun passa sem FWKS gefur út,“ bætir Guðlaugur við. Frá fluvelli verður Keikó ekið niður Dalaveg, Strembugötu, Heiðarveg og niður á Básaskersbryggju þar sent háhyrningurinn verður settur um borð í pramma við austurenda bryggjunnar. Guðlaugur segir að leiðin verði lokuð meðan á flutningi stendur og mælst er til þess að engir bilar verði við þessar götur á meðan. „Aðgengi að Heiðar- vegi verður lokað um klukkan níu og fólk sem fer á bílum sínum upp að Helgafellsvelli getur átt á hættu að lokast inni á meðan hersingin fer niður eftir. Búast má við að fjölmiðlar verði búnir að hertaka bestu útsýnisstaðina en á leiðinni hafa þeir ekki forgang umfram almenning. Fólk er þó beðið um að taka tillit til aðstæðna þessar þrjátfu mínútur sem gert er ráð fyrir að flutningurinn frá flugvelli standi yftr,“ segir Guðlaugur. Básaskersbryggju verður lokað en bflstjórar sem verða á þessum slóðum og vilja fylgjast með geta ekið austur Tangagötu eða Strandveg. Búast má þó við, að erfítt geti orðið að finna bflastæði við þessar götur. Eins og áður kom fram verður Keikó skipað út í prammann austan við Bása. A meðan verða tíu metrar af vestasta hluta Nausthamarsbryggjunnar loka- ður ölium nema fjölmiðlafólki. „Þrátt fyrir það teljum við að nægt pláss sé fyrir almenning til að fylgjast með því sem þama fer fram,“ segir Guðlaugur. A nýja hrauninu og Skansinum verða nokkrar takmarkanir á bfla- umferð en engar hömlur verða settar á umferð fótgangandi fólks. „Skansfjaran og útsýnispallurinn á móti Klettsvík verða lokuð allri bflaumferð meðan verið er að koma Auglýsing um timahundna broytingu á umferð í Vestmannaeyjum Vegna fyrirhugaðra þungaflutninga fimmtudaginn 10. sept. n.k., frá flugvelli, norður Dalaveg, Strembugötu, Heiðarveg og Skildingaveg niður á Básaskeresbryggju verða eftirtaldar takmarkanir gerðar á tímabilinu kl. 9 -12.30 ef flugfært verður. 1. Bifreiðastöður bannaðar við Dalaveg, Strembugötu (norðan Dalavegar), Heiðarveg, Skildaveg og Básaskersbryggju, (norðan og austan Bása). 2. Bifreiðastöður eru einnig bannaðar á Nýja Skansi 3. Einnig má búast við tímabundnum lokunum fyrir bifreiðaumferð að flugvelli og Básaskersbryggju á sama tímabili. 7.09.98 Lögreglan í Vestmanneyjum Yfirlögregluþjónn Keikó út í kvína. Trúlega verða fjölmiðlar búnir að leggja undir sig ákveðin svæði, t.d. útsýnispallinn og aðra góða útsýnisstaði en það verður nóg rými fyrir aðra, bæði í Skansfjöm og uppi á hraunkantinum. En þeir sem vilja geta fengið sér göngutúr og fylgst með því sem þama er að gerast. Við gemm okkur grein fyrir því að kannski em ekki allir sáttir við takmarkanir á umferð en hjá því verður ekki komist.Við emm nú einu sinni í kastsljósi heimspressunnar og fjölmiðlar þurfa sitt pláss en við viljum líka að Vestmannaeyingar geti sem best fylgst með því sem er að gerast því þegar upp er staðið emm það við sem emm að taka á móti háhymingnum Keikó. Sjálfur er ég ekki í vafa um að móttökur okkar Eyjamanna verða með glæsibrag en þrátt fyrir það skulum við hafa í huga að athyglin beinist líka að fólkinu hér í Eyjum, þegar til lengri tíma er litið“ sagði Guðlaugur að lokum. Gerum Hennan viðburð sem ánæg julegastan fyrir íbúana og bæjarf élagið allt -segir Karl Gauti Hjaltason sýslumaður Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður, segir að allar ráðstafanir lögreglu miðist við að tryggja öryggi fúlks og gera Vestmannaeyingum og gestum í bænum sem auðveldast að fylgjast með allt frá því flutningavélin lendir þar til háhyrningurinn verður kominn á sinn stað. Til þess að þetta geti gengið eftir leggur Karl Gauti áherslu á að fólk noti bfla sem minnst og reyni að koma sér fyrir á ákveðnum stöðum til að fylgjast með bflalestinni. Ekki verður gripið til sérstakra ráðstafana fyrr en rétt áður en bflalestin fer um en þá verður Dalavegi, Strembugötu og Heiðarvegi lokað. „Það verður leyfður gegnum akstur á Heiðarvegi fram á síðustu stundu til að teppa umferð sem rninnst," segir Karl Gauti. „í lestinni verða fjórir bílar, lögreglubfll, bfllinn sem flytur Keikó, tækjabfll og bíll frá Björgunarfélaginu." Karl Gauti segir að fyrsta spölinn fari lestin á nokkrum hraða en þegar nær dregur höfninni ganga áætlanir út á að hraðinn verði ekki meiri en sem nemur hraða gangandi manns. „Það em vinsamleg tilmæli til áhorfenda að þeir haldi sig í ömggri fjarlægð þannig að engar tafir verði og þeir hlýði lögreglu og gæsluliðum sem verða að störfum." Þarna segir Karl Gauti að best sé fyrir fólk að vera við neðri hluta leiðarinnar því ómögulegt sé að fylgjast með alla leið nema fyrir fuglinn fljúgandi. „Fólk sem fer inn á Sæfellsveg, veginn ofan við flugstöðina eða upp á Helgafellsvöll á á hættu að verða innlyksa í einhvem tíma. Það er því best fyrir þá sem vilja sjá sem mest að koma bflnum fyrir á góðum stað og fylgjast með á tveimur jafnfljótum." Sama segir Karl Gauti um höfnina og Nýjahraunið þar sem bflaumferð verður takmörkuð. Auk þess verður höfnin lokuð skipaumferð í fimm tíma eins og kemur fram í auglýsingu frá Vestmannaeyjahöfn. Allt lögreglulið Vestmannaeyja, 12 manns, 35 björgunarsveitarmenn, auk þjálfara og starfsfólk FWKS verða að störfum þennan morgun. Auk þess er slökkvilið og starfsfólk Flugmálsastjómar með viðbúnað á flugvelli. Gerir Karl Gauti ráð fyrir að allt að 80 manns tengist umferðar- og öryggisstjómun með einum eða öðmm hætti. „Af þessu sést að umsvifm em mikil. Það er ósk mín að allir Vestmannaeyingar standi saman um að gera þennan viðburð sem ánægjulegastan fyrir bæjarfélagið og íbúana. Það gerist best með því að taka þátt í móttöku háhymingsins og að sjá til þess að allt gangi snurðulaust. Með góðri samvinnu aíllra tekst það,“ sagði Karl Gauti. Nokkrar tímasetningar Kl. 01.00: C-17 vélin leggur af stað með Keikó frá flugvellinutn Newport í Oregon áleiðis til Vestmannaeyja. Kl. 02.00: Á heila tímanum verður hægt að fylgjast með fluginu á netinu. Slóðin er www.keiko.org. Kl. 10.00: C-17 vélin lendir með Keikó á flugvellinum í Vestmannaeyjum. Keikó verður fluttur í keri sínti úr vélinni og yfir á flatvagn sem honum verður ekið á niður á Básaskersbryggju. Kl. 11.00: Keikó verður hífður í flutningslaug sinni af flatvagninum og út á prammann sem hann verður fluttur á út í Klettsvík. Kl. 12.00: Keikó verður lyft tir flutningslauginni og hífður ylir í flotkvína. Athugið að hafnarsvæðið verður lokað fyrir allri umferð frá kl. 10.00 þar til flulningi á Keikó í kvína lýkur. Eina umferðin sent leyfð verður er umferð báta sem eru á vegum Free Willy Keikó samtakanna. þ.e. báta sem vinna að flutningnum sent og sérstakra báta fyrir fjölmiðlafólk. Sértsök svæði á flugvclli og við höfnina eru sérstaklega ætluð tjölmiðlafólki og er fólk vinsamlegast beðið að taka tillit til þess. ATH. Allar tímasetningar eru háðar veðri og vindum. lokun Vestmannaeyjahafnar Vestmannaeyjahöfn, innri og ytri höfn, verður lokuð fyrir umferð báta og skipa á tímabilinu 9.00 -14.00 fimmtudaginn 10. september. Hafnarstjóri

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.