Fréttir - Eyjafréttir - 09.09.1998, Side 8
8
Fréttir
Miðvikudagur 9. september 1998
Daði heim-
sótti Keikó
Daði Ólafsson er ellefu ár Eyjapeyi
sem upplifði það á dögunum að fara
til Oregon og heilsa upp á hvalinn
Keikó. Tilefnið var koma Keikó til
Vestmannaeyja og mynd sem Ríkis-
sjónvarpið lét gera úti í Oregon og
sýnd var í sjónvarpinu á sunnu-
daginn og hét Keikó krakkarnir.
„Hugmyndin að þessu kom upp
hérna á sjónvarpinu,“ segir Asta
Hrafnhilur Garðarsdóttir umsjón-
armaður Stundarinnar Okkar.
„En Hallur Hallson nefndi einnig
hvort ekki væri hægt að gera
eitthvert barnaefni tengt komu
Keikós til Eyja.
Ásta segir að myndin tjalli um
Daða sem fer að heimsækja pennvin
sinn Leighton íBandaríkjunum. „Svo
vill svo skemmtilega til að Keikó er í
nágrenninu og þeir fara að heimsækja
hann."
Ásta segir að óvíst verði hvort
eitthvað framhald verði á upptökum
héma heima. „Það ræðst af peningum
eins og oft áður. en það hafa verið
vissar hugmyndir uppi um að skjóta
kannski einhverjar senur í Vest-
mannaeyjum. Hins vegar kemur
tökulið til Eyja frá Discovery sjón-
varpsstöðinni, en þar á bæ er verið að
gera mynd um háhyminga og
krakkarnir sem voru í myndinni
okkar úti munu fylgja þeim upp-
tökuhópi þegar Keikó kemur til Eyja.“
Daði er ekki óvanur kvikmyndaleik
því hann hefur leikið mynd um sem
Páll Steingrímsson kvikmyndagerðar-
maður hefur gert um lundann og
pysjutímann í Eyjum en bræður Daða
léku líka í þessum myndum. Það þótti
við hæfi að leikarinn í myndinni væri
úr Eyjum, þar sem að Keikó kemur nú
til með að eyða ellinni í Klettsvíkinni
um óljósa framtíð. Það var hins vegar
Páll sem að benti á Daða
Daði er sallarólegur yfir öllu þessu
umstangi í kringum Keikó og ferð
sína til Oregon sem stóð í sex daga
með tilheyrandi millilendingum á
flugvöllum. „Það var auðvitað mjög
skemmtilegt að fara þessa ferð,“ segir
Daði og segist vera orðinn alvanur
viðtölum við blaða- og féttamenn, og
að láta mynda sig í bak og fyrir.
Daði segist hafa mikinn áhuga á
fiskum og sjávardýrum og hafi
stundum komið með homsýli heim og
eins látið Kidda á Náttúrugripasafninu
fá eitt og annað sem hann hafi fundið
í fjörunni. „Ég á líka gullfiska en ég er
nú samt ekkert viss um að ég verði
einhver náttúrufræðingur eða sjávar-
líffræðingur, þó mér finnist gaman í
líffræði. Mér finnnst til dæmis líka
mjög gaman í leikfimi og smíði í
skólanum."
Hvað fannst þér skemmtilegst í
ferðinni til Oregon?
„Það var margt mjög skemmtilegt,
en það var skemmtilegast að fá að
snerta hann.“
Afmælis-
golfmót
Afmælisgolfmót verður haldið
laugardaginn 12. september og
hefst kl. 19.00.
Spilaðar verða 18 holur
með og án forgjafar.
Nándarverðlaun
á öllum par þrjú holu.
Púttkeppni fyrir maka
og gesti hefst kl. 13.00.
Styrktaraðili þessa mðts er
Sparisjóður Vetmannaeyja.
riK.jWBasSlSiSBlHElSS.
t’i ■•SHlHIHBISBiÍBSi? m
wrmf1 ‘rirrt
■" i 'i' 1 i • P !
Og hvemig var hann viðkomu?
„Þetta vareins og blautt þykkt leður
en samt mjúkt, eða svoleiðis."
Gastu eitthvað talað við hann ?
Daði lítur á mig hálfgerðum vork-
unnar, en þó samúðaraugum og
kannski svolítið hneikslaður. Svo
hlær hann og segir að það hafi ekkert
verið hægt að tala við hann enda skilji
hann líklega ekki íslensku. „Og ég
hugsa að hann muni heldur ekki
þekkja mig þegar hann kemur til
Eyja.“
En fannst þér hann nokkuð leiður í
búrinu sínu?
„Það er nú örugglega ekkert mjög
skemmtilegt hjá honum en hann hefur
alls konar dót sem hann getur leikið
sér að. Hann er hörku handbolta-
hvalur held ég og flinkur að leika sér
með bolta. En ég hugsa að það verði
miklu skemmtilegra fyrir hann að vera
í Klettsvíkinni. Þar er alvöru sjór og
lifandi fiskar.“
Þegar ég spyr Daða að því hvort
hann hafi ekki verið orðinn nokkuð
frægur í Oregon gefur hann lítíð út á
það. „Þó ég hafi verið í viðtölum og
fimm sjónvarpsstöðvar hafi talað við
mig, þá var ég ekkert frægur held ég.
Kannski aðeins þessa viku."
Daði fór líka í ferðalag upp í sveit í
Oregon og þar fannst honum mjög
gaman. „Þar var hægt að spranga og
leika sér í köðlum og svona neti sem
var strengt á milli trjáa og það var
meiriháttar gaman. Það kom mér
eiginlega mest á óvart að það skyldi
vera hægt að spranga þama, en
reyndar var það í trjánum."
Heldurðu að þú segir ekki
ferðasöguna í skólanum?
„Krakkamir spyrja mig mikið um
þetta og kannski segi ég frá þessu í
skólanum í vetur,“ segir Daði að
lokum og er sallarólegur yfir þessu
öllu saman. Be.G.
Daði hefur áhuga á dýrum og á meðal annars skrautfiska í búri.
Daði í fréttaviðtali við Úlaf Sigurðsson á RÚV.