Fréttir - Eyjafréttir - 09.09.1998, Page 11
Miðvikudagur 9. septembrer
Fréttir
11
Annar flokkur kvenna í knattspyrnu:
Enduðu slæsilest sumar
með íslandsmeistaratitli
Helgina 28. - 30.ágúst léku stelp-
urnar í öðrum flokki í úrslita-
keppninni, sem fram fór á Akra-
nesi. Þar spiluðu þær tvo leiki og
unnu þá með miklum yfirburðum
sem tryggði þeim sæti í úr-
slitaleiknum. Þar mættu þær Val í
æsispennandi leik.
Á Akranesi unnu þær lið Fjölnis,
4 - 0 og skoraði Guðbjörg Guðmanns-
dóttir tvö mörk, Bryndís Jóhann-
esdóttir og Jóna Heiða Sigurlássdóttir
eitt mark hvor. I seinni leiknum voru
Blikastúlkur teknar í kennslustund og
endaði sá leikur einnig, 4 - 0. Bryndís
Jóhannesdóttir og Hrefna Jóhannes-
dóttir gerðu tvö mörk hvor. Þessi
úrslit þýddu það að ÍBV-stelpumar
vora komnar í úrslitaleikinn.
Mótherjar stelpnanna Jrar voru
erkifjendumir úr Val, en IBV hafði
spilað tvisvar áður við Val í sumar og
tapað íbæði skiptin. Úrslitaleikurinn
fór síðan fram í síðustu viku og var
spilað á Haukavelli í Hafnarfirði.
Valsstelpur komu frekar sigurvissar til
leiks en það kom ÍBV bara til góða.
Eyjastúlkur gerðu fyrsta mark leiksins
á 3. mínútu og var þar að verki Hjördís
Halldórsdóttir. Valur jafnaði skömmu
síðar, en Bryndís Jóhannesdóttir kom
ÍBV í 2 - 1. Þannig var staðan í
hálfleik.
Strax í byrjun síðari hálfleiks
jöfnuðu Valsstelpur, en það var síðan
Bryndís Jóhannesdóttir, sem tryggði
IBV Islandsmeistaratitilinn með
glæsilegu marki úr aukaspymu undir
lok leiksins.
IBV-stelpumar stóðu sig frábærlega
í þessum leik en af öðrum ólöstuðum
þá var Bryndís Jóhannesdóttir maður
leiksins. Eyjastúlkur hafa sýnt mjög
skemmtilega knattspymu í sumar og
eru vel að þessum titli komnar. Til
hamingju stelpur!
iSU 1 ^PHtours yi m
v-*’! i II h ■ i
Stúlkunum var fagnað með blómum við heimkomuna og í hálfleik í leik ÍBV og Fram á þriðjudaginn voru þær heiðraðar
sérstaklega. Mynd Sigurgeir Jónasson.
Stemmmnsin var betri hjá okkur
Heimir Hallgrímsson, þjálfari stelpnanna segir að
árangurinn hafi ekki komið sér á óvart. „Eg get ekki
sagt það. Eg vissi alltaf að ég væri með gott lið í
höndunum. Valur var reyndar búinn að vinna alla sína
leiki í sumar, en þegar fyrirkomulagið er með þeim
hætti að spilaður er úrslitaleikur, þá er allt lagt undir
og spurningin er bara sú hvort liðið kemur betur
stemmt til leiks, og í ár voru það við.
Hver var lykillinn að þessari velgengni ykkar, að þínu
mati? ,T>etta era allt duglegar og metnaðarfullar stelpur og
síðan er enginn vafi á að Sigurlás Þorleifsson, þjálfari
meistaraflokks kvenna, hefur skilað frábæni vinnu, þar sem
stór hluti stelpnanna hefur tekið undirbúningstímabil hjá
meistaraflokki og æft með honum. Nokkrar hafa verið að
spila með meistaraflokki í sumar og hefur það tvímælalaust
skilað sér með reynslu inn í annan flokkinn, og þá
sérstaklega nú undir lok móts. Einnig fengum við sterkar
stelpur úr 3.flokki til að styrkja hópinn og siðan byrjuðu
nokkrar sterkar stelpur aftur, sem vora hættar. Ég vil svo
þakka stelpunum fyrir frábært samstarf í sumar,“ sagði
Heimir að lokum.
Ætluðum að kom heim með dolluna
íris Sigurðardóttir, fyrirliði segir að framan af sumri hafi
þær ekki haft trú á að standa uppi sem sigurvegarar. „Þá
gekk okkur frekar erfiðlega, en eftir úrslitakeppnina voram
við ekki í nokkram vafa,“ segir Iris en hver var ykkar helsti
styrkleiki í sumar? „Við vorum ekki góðar í byrjun, en
lærðum af því þegar leið á sumarið. Mórallinn var góður
og ég held að við höfum spilað sem heilsteypt lið með
sterka liðsheild. Auðvitað er alltaf smá fiðringur fyrir svona
mikilvæga leiki, en við vorum staðráðnar í að sigra og
koma með dolluna til Vestmannaeyja. Við þökkum Heimi
fyrir frábært sumar og á hann stóran þátt í árangrinum.
Meistaradeild kvenna: ÍBV varð í 4. sæti
Stórsigur í lokaleik
Evjastúlkur fengu íslandsmeist-
ara KR í heimsókn í síðustu viku
og máttu sættasig við ósigur gegn
nýkrýndum Islandsmeisturum.
Þær gerðu aftur á móti góða ferð í
Grafarvoginná mánudaginn þar
sem þær unnu stórt. Þetta var
síðasti leikur sumarsins og hafn-
aði IBV í 4. sæti sem er góður
árangur. Er það ein staðfestingin
á því að IBV er að komast upp að
hliðinni á stórveldunum í kvenna-
knattspyrnunni.
Á fyrstu mínútunum var staðan
orðin, 0-3 KR í vil. Fyrri hálf-
leikur minnti helst á handboltaleik,
því skorað var á báða bóga. Hálf-
leikstölur vora heldur ekki ósvipaðar
handboltatölum, því þá var staðan, 3
- 5. KR-ingar héldu áfram að bæta
við mörkum í seinni hálfleik og urðu
lokatölur leiksins, 3-9.
Lið ÍBV: Petra 4 - Fanný 6, íris S.
5, Sigríður Á 6, Ema 5 - Elena 6, íris
Sæ 6, Hrefna 6, Hjördís 6 - Olga
5(Hanna 5), Bryndís 6(Lind 5)
Eyjastúlkur héldu í Grafarvoginn
á mánudag og léku þar við lið
Fjölnis. Þetta var síðasti leikur ÍBV-
liðsins í sumar, og með sigri gátu
þær sent Iið Fjölnis niður í 1 .deild og
um leið tryggt sér 4.sætið í
Meistaradeild kvenna.
Leikurinn endaði með stórsigri
ÍBV, 0-5. Mörk ÍBV skoraðu: Iris
Sæm. 2, Olga 2 og Sigríður Ása I.
Að sögn Sigurlásar Þorleifssonar,
þjálfara ÍBV, var aldrei spurning
hvoru megin sigurinn myndi lenda,
heldur hver stór hann yrði.
„Stelpumar voru að spila mjög
skemmtilegan bolta, og hefði
sigurinn getað orðið mun stærri.
Yfir heildina er ég nokkuð sáttur við
4. sætið og finnst mér það viðunandi
árangur. Við byrjuðum mótið mjög
illa en eftir því sem á mótið leið
fóram við að spila betur og betur og
í lokin vorum við að spila marga
góða leiki,” sagði Sigurlás að
lokum.
Lið ÍBV: Petra 6( Sigríður I. 6 ) -
Fanný 6, íris S. 6, Ema 6, Olga 6 -
Hjördís 7, Sigríður Á 6, Hrefna 6,
Elena 6 - Bryndís 6(Lind 6), íris 7.
Lokastaðan
KR 39 stig
Valur 36 stig
Breiðablik 26 stig
ÍBV 20 stig
Stjaman 17 stig
ÍA 9 stig
Haukar 7 stig
Fjölnir 6 stig
Landssímad. 15. umferd: IBV 2- Fram 0
Nær titlinum
Eyjamenn og Framara áttust við í
Landssímadeildinni á þriðjudags-
kvöld. Leikið var hér í Eyjum í
mildu haustveðri. Framarar hafa
átt erfitt uppdráttar í sumar en IBV
hefur vermt toppsætið allt frá
byrjun móts. Reyndar höfðu KR-
ingar fengið að tróna á toppnum í
nokkra daga en IBV endurheimti
sitt gamla sæti á þriðjudagskvöldið.
Leikmenn byrjuðu að þreifa rólega
fyrir sér en greinilegt var að Framarar
ætluðu sér að pakka í vöm og beita
skyndisóknum. Eyjamenn létu bolt-
ann rúlla og reyndu að fmna glufu á
Framvöminni. Á I9. mínútu kom
síðan fyrsta markið, og var þar að
verki Sindri Þ. Grétarsson, sem
skoraði af stuttu færi. Sindri kom inní
liðið fyrir markahrókinn Steingrím
Jóhannesson, sem er meiddur. Eftir
markið slökuðu Eyjamenn á og áttu
oft í vök að verjast gegn nokkuð
spræku liði Fram.
Eftir leikhlé var leikurinn opinn og
skemmtilegur og marktækifæri vora á
báða bóga. Leikmenn ÍBV náðu ekki
að leika af fullum krafti í leiknum, en
þegar þeir settu í þriðja gírinn þá var
ekki spuming um hvort liðið væri
betra. Það var síðan varamaðurinn,
Ivar Bjarklind, sem hefur átt við
meiðsli að stríða, sem gulltryggði
sigur ÍBV á 80.mínútu eftir að hafa
fengið stungusendingu innfyrir vörn
Fram. Lokatölur leiksins urðu því 2-
0, og hafa Eyjamenn því endurheimt
toppsætið af KR-ingum. Ágætis
sprettir voru hjá IBV-liðinu í þessum
leik og var sigurinn mjög dýrmætur.
Hlynur Stefánsson var bestur í liði
ÍBV ásamt Gunnari í markinu og
varamennimir Jens og ívar voru
sprækir þegar þeir komu inná.
LiðÍBV: Gunnar 8 - Hjalti 6, Guðni
R.6, Hlynur 8, Zoran 7 - Ingi 6(ívar B
6), ívar 7, Kristinn H. 6, Kristinn
L.6(Sinisa 5), Steinar 6 - Sindri 6
(Jens 6).
htárunfscðftBfllr
Þrjár umferðir eru eftir í Lands-
símadeildinni. ÍBV, sem er með 32
stig á toppi deildarinnar. Næsti leikur
er gegn Grindvíkingum laugardaginn
12. september. Síðasti heimaleikurinn
verður gegn Leiftri 20. september.
Síðasti leikurinn er svo úti gegn KR
sem nú eru í 2. sæti.
Ester púttdrottning
Hjóna-og parakeppni GV 1998
fór fram um síðustu helgi. Mjög
góð þátttaka var á mótinu og
mættu 26 pör til leiks.
I keppninni þar sem annar aðilinn
slær en hinn púttar, sigruðu Sigmar
Pálmason og Kristrún Axelsdóttir á
69 höggum, nettó. í öðru sæti vora
hjónin Guðni Grímsson og Esther
Valdimarsdóttir á 72 höggum,
Esther var jafnframt krýnd sem
Púttdrottning mótsins, en hún kom
inn á 39 púttum. í þriðja sæti lenti
Keikö vinurinn og hafnarvörðurinn
Ólafur M. Kristinsson og hans frú,
Inga Þórarinsdóttir, og voru þau á
75Jiöggum.
I keppninni þar sem hjón slá
annað hvert högg og velja betri
bolta. fóru leikar þannig að stór-
kylfmgamir Aðalsteinn Sigurjóns-
son og hans frú Þöra Gissurardóttir
lentu í fyrsta sæti með 63 högg. í
öðra sæti lentu Ársæll Sveinsson og
Signín Óskarsdóttir með 65 högg. í
þriðja sæti lentu síðan Aðalsteinn
Ingvarsson og Katrín Harðardóttir
með 66 högg.
KÁ-verslanirnar voru styrktar-
aðilir að þessu móti og þakkar
Gólfklúbbur Vestmannaeyja, þeim
framlagið.
Næsta mót verður Afmælismót GV
og fer það fram 12. september
Björgvin sigurvegari
Islenska mótaröðin í golft fór t'ram
hér í Vestmannaeyjum urn síðustu
helgi. f þessum mótum leika helstu
golfarar landsins. Leiknir voru þrír
hringir, eða alls 54 holur og urðu
úrslit þannig:
1. Björgvin Sigurbergs. GK 207 h.
2. Björgvin Þorsteins. GA 209 h.
3. Þórður E. Ólafs. GL21lh.
Hjá konunum sigraði Ólöf M.
Jónsdóttir. GK, á 222 höggum en í
öðru sæti varð Vestmanna-
eyingurinn, Kolbrún S. Ingólfs-
dóttir.GV. á 244 höggum.
Framundan
Fimmtudagur 10. september
Kl. 18:00 2. tl. ka ÍBV-Selfoss
Laugardagur 12. september
Kl,14:00 mfl.ka. Grindavík - ÍBV