Fréttir - Eyjafréttir - 24.09.1998, Qupperneq 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 24. september 1998 • 39. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími:481 3310 • Fax: 481 1293
Georg mörgæs og sparibaukur íslandsbanka hélt upp á fimm ára
afmæli sitt sl. þriðjudag. Af því tilefni var börnum í Eyjum boðið til
mikillar afmælisveislu í bankanum og sannaðist að Georg og félagar
eru vinsælir alls staðar. Georg veitti vel í veislunni og einn ungur
maður spurði hann hvers vegna hann væri svo feitur. Georg svaraði
að bragði: „Af því bara, líklega er ég er svo duglegur að spara.“
Herjólfur fer í slipp 14. október:
Ekkert skip enn fundið
-Það verður leyst á einhvern hátt, segir stjórnarformaður
Eins og fram kemur annars staðar í
blaðinu dettur Herjólfur út úr
áætlun 14. október nk. en þá fer
skipið í slipp í Danmörku og verður
frá í þrjár vikur. Ekkert er enn á
hreinu með hvort eða hvaða skip
kemur til með að leysa Herjólf af
hólmi þessar þrjár vikur.
„Við höfum verið á fullu að vinna í
þessu,“ sagði Grímur Gíslason,
stjómarformaður Herjólfs. Skipa-
tækni hf. hefur verið okkur til aðstoðar
við leit að skipi. Innanlands eru það
eiginlega aðeins tvö skip sem koma til
greina, Akraborgin og Fagranesið.
Slysavamafélag íslands er eigandi
Akraborgarinnar, sem nú er skólaskip
Björgunarskólans og við fengum
algert afsvar hjá þeim þegar leitað var
eftir að fá skipið yfir þennan tíma
þannig að sá möguleiki er ekki inni í
myndinni. Ekki er alveg útséð um
Fagranesið sent leysti af síðast þegar
Herjólfur fór í slipp. En nú em aðrar
forsendur uppi hjá þeim en vom þá,
vegna breytinga á vegasamgöngum er
skipið meira í fastri áætlun en áður
var. Það er því ekkert á hreinu með
Fagranesið,“ sagði Grímur.
Þá sagði Grímur að víða væri búið að
leita erlendis en nánast ekkert sem
fundist hefði sem hentaði okkur.
Raunar hefði eitt skip verið á lausu en
þar hefði verið um að ræða
innanfjarðaferju með opinn skut og
slrkt sídp hefði aldrei fengið leyfi til
siglinga hér. Annað skip fannst að
vísu, svokallað Catamaran skip,
nýlegt skip og stórt, yfir 100 m langt
og með ganghraða upp á 40 sjómflur.
En kostnaðurinn við að taka það á
leigu var slíkur að það var útilokað.
Leigugjaldið eitt og sér var tvær
miljónir króna á dag og þá allur annar
kostnaður eftir. Þá má geta þess að
oh'ueyðsla slíkra skipa er gífurleg.
Alls fengu átta íslensk skip leyfi til
veiða úr norsk-íslenska sfldar-
stofninuni nú í ár. Þau munu flest
vera farin til veiða en ekki hefur
enn frést af afla.
Tvö skip frá Eyjum em í hópi
þessara átta, Sighvatur Bjamason og
Sigurður. Þau em bæði farin til
veiða, Sighvatur fór á mánudags-
En standa Vestmannaeyingar e. t.v.
frammi fyrir því að samgöngur á sjó
leggist af milli lands og Eyja þann
tíma sem Herjólfur vrður í slipp?
„Nei, það vona ég ekki,“ sagði
Grímur. „Það er náttúrlega ekki hægt
að bjóða upp á slíkt. Við höldunt
áfram að leita. Þetta er mál sem
verður að leysa og það verður leyst á
einhvem hátt,“ sagði Grímur Gíslason
að lokum.
kvöld og Sigurður á þriðjudag.
Magnið sem skipin mega veiða
miðast við einn fullfermistúr. Sam-
kvæmt því ættu um 1500 tonn að
koma í hlut hvors skipsins frá
Eyjum. Ekki mun þess þó vera
krafist að þeim afla sé náð í einni
veiðiferð heldur má skipta honurn
niður á fleiri túra.
Tuö Eyjaskiptil
sfldveiða við Noreg
Mynd Óskar Björgvinsson.
Vetraráœtlun Herjólfs
v. Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Mán - Lau Kl. 08:15 Kl. 12:00
Sunnudaga Kl. 14.00 Kl, 18.00
11 aukaferðir föstudaga Kl. 15.30 Kl. 19.00 j |
3-leriólfur
/mícw/ú/ið
Sími 481 2800 Fax 481 2991
Alvarlegt ástand vegna kennaraskorts í grunnskólunum:
Kennarar krefja bæjaryfirvöld um skjót viðbrögð
A fundi bæjarráðs lá fyrir bréf
dagsctt 4. september og undirritað
af flestuni grunnskólakennurum
bæjarins. Efni bréfsins ntun vera
um launamái og þann kennara-
skort sem háð hefur grunnskólum
bæjarins í haust.
Er óskað eftir því að bæjaryfirvöld
bregðist við þessu ófremdarástandi.
BæjaiTáð fól bæjarstjóra og skóla-
málafulltrúa að ræða við fulltrúa
bréfritara og fól bæjarstjóra jafnframt
að gera launanefnd sveitarfélaga grein
fyrir málinu. Þorgerður Jóhannsdóttir
bæjarfulltrúi Vestmannaeyjalistans
óskaði að bókað yrði að hún legði
áherslu á að afgreiðslu málsins yrði
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 -sími481
LD
GGI
R
NA
amálin á
ægilegan h:
hraðað. Þorgerður sagði í viðtali við
Fréttir að grunnskólunum bæri að
uppfylla ákveðna lagaskyldu og að
eitthvað yrði að gera til þess að svo
mætti verða. „Það er til dæmis engin
kennsla nú í dönsku í 10. bekk
Bamaskólans og við svo verður ekki
unað.“
Sigurður Einarsson sagði að í bréfinu
væri farið fram á að ræða kjör og
kjaramál við bæjaryfirvöld. „Þetta er
formleg beinðni um viðræður og við
sendum erindið í þann farveg sem
eðlilegur er, að láta bæjarstjóra og
skólamálafulltrúa ræða við fulltrúa
bréfritara.“
Góð spretta í fjörum
ingin dönskukennsla í
10. bekk Barnaskólans