Fréttir - Eyjafréttir - 24.09.1998, Blaðsíða 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 24. september 1998
Tekst IB V að halda Islandsmeistaratitlinum e
i
ÍBVáréttá
1600miðum!
Samkvæmt reglugerð KSI á útilið
rétt á 40% af aðgöngumiðum á
leikjum í Landssímadeildinni. Sam-
kvæmt upplýsingum frá KR eru
útgelfiir miðar 4000. Stuðnings-
menn ÍBV eiga því rétt á 1600
miðum. Fastlega má gera ráð fyrir
því að uppselt verði á leikinn á
laugardag en hann hefst kl. 16.00.
Forsala hiá ESSO í
Eyjum
Forsala aðgöngumiða á leik KR og
IBV verður í Vestmannaeyjum.
Forsalan fer fram hjá ESSO á
Básaskersbryggju.
Aðgöngumiðaverð fyrir full-
orðna er 1000 kr. sem vekur nokkra
furðu því hjá öllum öðrum liðum í
Landssímadeildinni kostar að-
göngumiðinn 700 kr. Forsala að-
göngumiða hefst í dag, FIMMTU-
DAG.
Pakkalerðhlá
Herjólfi
Herjólfur hf. býður ólrúlega pakka-
ferð á úrslituleikinn. Miði í skipið, í
rútu fram og til baka og svo miði á
leikinn kostar 2800 kr. Skeljungur
gefur olíuna fram og til baka.
Heriólfur seinkar
heimferóinni
Leikur KR og IBV fer sem kunnugt
er fram kl. 16.00 á laugardaginn.
Herjólfur mun seinka heimferðinni
á laugardaginn og fer frá
Þorlákshöfn kl. 20.00.Ef svo fer að
ÍBV tryggi sér Islandstneist-
aratitilinn annað árið í röð má búast
við margmenni um borð í Herjólli.
íslandsmeistara-
titillinn meó HerjólfiP
Ef ÍBV verður íslandsmeistari í
knattspyrnu mun IBV liðið að
sjálfsögðu koma siglandi með
bikarinn heim til Eyja með Hetjólft.
Liðið kom með bikarmeist-
aratitilinn siglandi með Herjólfi
eftir sigurinn á Leiftri og móttök-
umar í Eyjum voru stórkostlegar.
föram í leikinn
með hví hugar-
fari að sigra
-segir Bjarni Jóhannson, þjálfarilBV
„Jú, þetta verður stór stund á
laugardaginn,“ sagði Bjarni Jóhanns-
son, þjálfari. „Reyndar eru allar
stundir stórar í fótboltanum í Eyjum,
ég hef alla vega ekki orðið var við
annað í sumar, þetta em allt
úrslitaleikir ef þannig er litið á málið.
En við eigum titil að verja og þess
vegna er kannski meira pressa á okkur
en KR.“
Bjarni sagði að allur undirbúningur
fyrir leikinn færi fram af mikilli
kostgæfni og í svipuðum farvegi og
var fyrir úrslitaleikinn í bikarnum í
sumar. Liðið dvelur á Hótel Örk og
ættu menn því að koma vel hvíldir og
stemmdir í leikinn. Allir eru heilir
heilsu og enginn sem þarf að taka út
leikbann í þessum mikilvæga leik.
„Eg á ekki von á öðru en að við
verðum með svipaða taktík í leiknum
og verið hefur,“ sagði Bjarni. „Sú
taktík hefur gefist vel í tvö ár og ekki
ástæða til að breyta henni.“
En nú er þetta útileikur hjá ÍBV.
Kemur ekki heimavöllurinn til með að
vega þungt, KR í vil?
„Það er nú það,“ sagði Bjami. „Víst
hefði verið gott að eiga heimaleik en
KR-völlurinn hefur nú verið okkur
hagstæður tvö síðustu ár og eigum við
ekki að vona að svo verði áfram. Þá
er stuðningur áhorfenda mikilvægur
og ég óttast ekki að hann verði ekki
fyrir hendi. Mórallinn er líka góður í
liðinu. menn ýta öllu öðm til hliðar og
hugsa um þetta eitt. Við förum í
þennan leik með því hugarfari að sigra
og það er mikilvægt,“ sagði Bjarni
Jóhannsson að lokum.
Raggi Sjonna, sem hér er með gamla fótboltabrýninu, Sigmari Pálmasyni,
uerður í aðalhlutverki á áhorfendapöllunum á laugardaginn.
Möguleikar IBV eru tveir á mód einum
-og byrjar með marki yfir, segirAtli Eðvaldsson
Atli Eðvaldsson, þjálfari KR-inga,
er sammála Bjarna Jóhannssyni
þjálfara IBV að upp sé komin
óskastaða allra knattspyrnuað-
dáenda, úrslitaleikur í Landssíma-
deildinni og það milli KR og ÍBV.
„Þetta er sannkölluð draumastaða
fyrir land og þjóð og við erum að tala
um stærri leik en sjálfan Bikarleikinn.
Það er sagt að stuðningsmenn þessara
liða séu þeir kröftugustu þannig að við
fáum ömgglega hörkuleik," sagði Atli.
Atli segir að mikill spenningur sé
fyrir leiknum í Vesturbænum og að nú
sé komin upp sú staða sem aðeins
bjartsýnustu KR-ingar létu sig dreyma
um sem hugsanlega möguleika í
upphafi móts. „Deildin þrifst á því að
KR nái ekki íslandsmeistaratitlinum.
Við erum meða hálfa þjóðina á móti
okkur en það eykur bara samheldnina
hjá okkar fólki. Það verður því tjöl-
mennt á völlinn á laugardaginn."
Ekki eru nema tvö ár síðan Atii
yfirgaf herbúðir IBV þar sem hann
þjálfaði í tvö tímabil. Atli ber ekki á
móti því að hann telji sig eiga eitthvað
í báðum liðum. „Auðvitað er þetta
geggjuð staða sem ég er í en það þýðir
ekkert að velta sér upp úr því. Þegar
ég tók við ÍBV hafði liðið verið í
bullandi fallbaráttu í þrjú ár í röð og
okkur var spáð falli. Svo unnum við
leik eftir leik og áttum möguleika á Is-
landsmeistaratitlinum. Það sama
gerðist árið eftir og það var æðislegt
að fylgjast með þegar íslands-
meistaratitillinn fór til Eyja t' fyrra. Það
hefði getað gerst fyrr hefðu peningar
verið fyrir hendi. Þeir kontu ekki fyrr
en seinna með Evrópukeppnum og
sölu leikmanna."
Ekki vill Atli spá um úrslitin en
segir að ÍBV sé í óskastöðu. „Eg er
ekki spámaður en ég vildi vera í þeirri
stöðu að jafntefli nægði til að ná í
titilinn. Möguleikar IBV eru tveir á
móti á móti einum hjá okkur þannig
að segja má að við byrjum með eitt
mark undir.“
Atli segist ekki eiga von á öðru en
að mæta með sitt sterkasta lið.
Reyndar hefðu tveir eða þrír verið
aumir eftir Keflavíkurleikinn en hann
á von á hörkuleik. „Það verður fullt á
vellinum. Stemmningin er mikil og
það sama er að segja um titringinn.
Hann er að verða verulegur en það er
skrýtið að vera í þessari stöðu,“ sagði
Atli að lokum.
mwm. iiöuoLfuit
Hver býður hagstæðari
íargjölú á leikinn?
M 6
L Í —<1 i
B »
Áleik mvogKR
fyrir aðeins
Skeljungur hefur ákveðið að niðurgreiða ferðir Eyjamanna
sem ætla með Herjolfi á úrslitaleikinn um
íslandsmeistaratitilinn með hví að leggja til allan
olíukostnað við ferðir Herjólfs
í tengslum við leikinn og gengur hað
beinttil lækkunarfargjalds.