Fréttir - Eyjafréttir - 24.09.1998, Síða 16
16
Fréttir
Fimmtudagur 24. september 1998
Gluggað í viðhorfakönnun í Bamaskólanum
Ekki vera leiðinleg,
við erum bara krakkar
-eru skilaboð nemenda skólans til starfsfólks og foreldra
Niðurstöður úr þremur
viðhorfakönnunum sem
gerðar voru í Barnaskóla
Vestmannaeyja í maí 1997
og haustið 1997 hafa verið
birtar. Þaðvarlngvar
Sigurgeirsson dósent við
Kennaraháskóla Islands
sem vann kannanirnar að
ósk stjórnenda Barna-
skólans. Kannanirnar
taka til viðhorfa foreldra,
nemenda og starfsliðs til
skólans og skólastarfsins.
Kannanirnar nutu styrkja
úr Verkefna- og náms-
styrktarsjóði Kennara-
sambands íslands.
Jóna Ólafsdóttir aðstoðarskóla-stjóri
Barnaskólans segir að tilgangurinn
með könnununum hafi verið sá að
bæta skólastarfið og reyna að fá fram
sjónarmið starfsfólks, nemenda og
foreldra á skólastarfinu og bæta það
sem fólki finnst hafa farið miður og
efla þá þætti sem jákvæðir em. „Þetta
er líka liður í því að opna skólann og
efla tengsl milli þeirra sem að þessum
málum koma. Skólastarf hér á landi
hefur verið lokað fram að þessu og
ekki mikið tillit verið tekið til skoðana
foreldra, nemenda og starfsfólksins.
Með þessum könnunum vonum við
að geta metið hvar skórinn kreppir, til
þess að gera megi skólann að þeim
þroskavettvangi sem hann á að vera.“
Jóna segir að þó að reynt hafi verið
að sinna ýmsum kvörtunum, jafnt
foreldra, stafsfólks og nemenda, þá sé
sú hætta alltaf fyrir hendi að fólk tali
ekki út um hlutina í samtölum. „Hins
vegar ef hægt er að tjá sig í nafnlausri
könnun eru meiri líkur á því að fólk
viðri skoðanir sínar af meiri hrein-
skilni.“
Jóna vill undirstrika að meta verði
niðurstöðumar í ljósi þess að ekki var
búið að taka vesturálmu Bamaskólans
í gagnið þegar fyrsta könnunin var
gerð í maí 1997. Þegar seinni
kannanimar voru gerðar var búið að
taka vesturálmuna í notkun. Þessi ár-
gangur kom einnig illa út úr
samræmdu prófunum og fólki hættir
til að dæma skóla eftir útkomu
samræmdra prófa. Hins vegar eiga
samræmdu próftn ekki við alla
aldursflokka svo rétt er að hafa það í
huga. Einnig hafi verið tekin upp
umdeild breyting í skólanum varðandi
kennslufyrirkomulag. „Það var
ákveðið að getuskipta 8. til 10. bekk
og nemendum raðað í bekki eftir því
hvort þeir voru á hraðferð eða
hægferð. Fram að 8. bekk voru hins
vegar áfram blandaðir bekkir, en þetta
fyrirkomulag hefur verið við lýði í ein
fjögur ár.
Jóna vill einnig leggja áherslu á að
skólastarf af öllu tagi sé í sífelldri
endurskoðun og að skólar sem leggja
vilja metnað í starf sitt taki mið af þvf.
Fréttir fengu góðfúslegt leyfi til að
glugga í skýrslumar og birta það sem
helst vekur athygli í þeim.
Viðhorfakönnun meðal
foreldra bama í Barnaskóla
Vestmannaeyja
Eins og áður segir birtir þessi skýrsla
helstu niðurstöður könnunarinnar.
Framkvæntd könnunarinnar fór
þannig fram að nafnlaus spumingalisti
var sendur til allra foreldra. Svör
bámst frá 309 foreldrum eða 73,7% .
Þetta hlutfall þykir heldur lágt og
heimtur lakari en fengist hafa í
sambærilegum könnunum.
Fyrsta spurningin sem lögð er fyrir
foreldra í þessari könnun snýst um
það hver það er sem svarar spurn-
ingunum.
Fjöldi %
Móðir 205 66,3%
Faðir 18 5,8%
Foreldrar saman 78 25,2%
Annar foráðamaður 3 1%
Ekkert svar 5 1,6
Það gæti verið forvitnilegt að sjá svör
úr öðrum könnunum við þessari
spumingu, sérstaklega í ljósi þess að
konur eru alltaf að fara meira út á
vinnumarkaðinn og þar af leiðandi
minnkandi viðvera kvenna innan
heimilisins. I Vestmannaeyjum eru
karlar að vísu mikið á sjó svo það
kann að skýra þetta háa hlutfall
kvenna sem svara spurningunni.
Skoðist gagnrýnum augum
Viðhorf foreldra til skólans er nokkuð
jákvætt, eða 65,4% þeirra telja að svo
sé, en aðeins 20,7% finnst það mjög
jákvætt. Þetta er ekki ólfkt niður-
stöðum sem fengist hafa í hliðstæðum
athugunum. Mat skýrsluhöfundar er
þó að skoða verði þessar niðurstöður
fyrir Bamaskólann í Vestmannaeyjum
gagnrýnum augum og finnst að
markið verði að setja hærra. Ekki er
mikill munur á viðhorfum foreldra
eftir aldri nemenda, en þó eiga flestir
neikvæðir foreldrar börn á ung-
lingastigi.
Hver er skoðun þín á stjórnun
Barnaskólans eins og hún kemur
þér fyrir sjónir?
Fjöldi %
Mjög góð 26 8,4%
í góðu lagi 95 30,7%
Sumt má betur fara 157 50,8%
I mörgu áfátt 23 7,4%
Stórlega ábótavant 6 1,9%
Ekkert svar 2 0,6%
I athugasemd með þessari spumingu
er mat skýrsluhöfundar að niðurstöður
þessar séu ekki nógu góðar og að leita
þurfi skýringa á því hvað ráði þessu
áliti foreldra.
í ljósi þess hversu viðhorfið til
skólans er jákvætt vom aðeins 16,8%
sem gátu mælt með Bamaskóla
Vestmannaeyja við aðra foreldra.
Ágætlega sögðu 43,7%, tek ekki
afstöðu sögðu 21%, 14,2% sögður að
nokkru leyti og 3,2% alls ekki. Þeir
sem ekki svömðu vom 1%.
Spurt var um viðhorf tii um-
sjónarkennara og samstarf við um-
sjónarkennara og er það í heildina
mjög jákvætt, eða nokkuð gott.
Jákvæðust eru viðhorf foreldra í 2. 3.
6. 8. og 10. bekk en minnst jákvæð
meðal foreldra nemenda í 7. og 9.
bekk. í framhaldi af því eru 59,9%
foreldra sem telja samstarf sitt við
umsjónarkennara mjög gott og 35,3
telja það nokkuð gott. Vekur skýrslu-
höfundur athygli á því að sami munur
komi fram eftir bekkjum og í
spumingunni um viðhorf til
umsjónarkennara.
Mikill meirihluti foreldra mætir á
kynningaifund en minna en helmingur
telur hann mjög gagnlegan
Spurt var hvort foreldrum fyndist
skólinn vekja áhuga barnsins á
námi og menntun?
Mjög rnikið Fjöldi 34 % 11%
Nokkuð 149 48,2%
Hef ekki skoðun 40 12,9%
Lítið 80 25,9%
Neikvæð áhrif 4 1,3%
Ekkert svar 2 0,6%
í ljósi mikillar umræðu um gildi
menntunar undanfarin ár hlýtur þetta
að teljast lakleg niðurstaða og
spuming hvort foreldrar ættu ekki að
fá rneiri hvatningu af hendi skólans
um gildi menntunar. Sérstaklega er
vert að velta upp þessum fleti með
tilliti til þess hversu foreldrar voru
áhugasamir um kynningarfund fyrir
foreldra þar sem skólastarfið var kynnt
Fjöldi %
Já 254 82,2%
Nei 51 16,5%
Ekkert svar 4 1,3%
Hins vegar vom ekki nema 32% sem
töldu fundinn mjög gagnlegan og
44,7% töldu hann nokkuð gagnlegan.
í framhaldi af því er spurt hvort óskað
sé eftir að fleiri slíkir fundir verði
haldnir og eru 34,3% sem segja nei
við spurningunni, 62,5% segja já og
3,2% svaraekki.
Foreldrar jákvæðir gagnvart
foreldraviðtölum
Á hinn bóginn eru foreldrar jákvæðir
um foreldraviðtöl og finnst þau bæði
gagnleg og viðmót kennara mjög
þægilegt í 72,5% tilfella og 23% segja
það nokkuð þægilegt. í ljósi þessa eru
93,2% foreldra sem telja sig fá yfirleitt
upplýsingar um allt sem skiptir máli í
foreldraviðtölunum en 5,5% segja að
svo sé ekki. En 98,4% foreldra sækja
foreldraviðtöl þegar þau eru boðuð.
43,4% telja að foreldraviðtölin séu
ekki nógu mörg og 55% telja þau
nógu mörg.
Jákvæðni
Spurt var hver skoðun foreldra væri
á að brjóta skólastarfið upp eins og
gert hefur verið á tilbreytingar-
dögum/opnum vikum í skólanum.
76,7% foreldra eru mjög sátt við þá
tilhögun og 19,1% nokkuð sátt.
Spurt var um hvernig miðað hefði í
skólastarfínu (miðað t.d. við fímm
síðustu ár).
Fjöldi %
Mikil framför 26 8,4%
Talsverðar framf. 163 52,8%
Staðið í stað 83 26,9%
Heldur farið aftur 15 4,9%
Mikið farið aftur 1 0,3%
Ekkert svar 21 6,8%
Nokkrar athugasemdir
Þátttakendum var boðið að gera við-
bótarathugasemdir um kennslu, stjóm-
un, aðstöðu, námsmat, upplýsingar til
foreldra, samskipti við skólann eða
annað sem vikomandi lá á hjarta. Alls
skráðu 126 foreldrar athugasemdir.
Hér á eftir fara nokkrar athugasemdir:
„Auka söng- og tónlistarmögu-
leika.. Það hjálpar til við tjáningu og
aga sem er ábótavant í samfélaginu,
bæði í skóla og á heimilum. Kurteisi
og agi jafngildir gleði og hamingju."
„Bamið mitt fær aldrei jákvæðar
athugasemdir."
„Agaleysi áberandi í skólanum. Sterk
tilhneiging hjá foreldram að varpa allri
ábyrgð á skólann. Aukin samvinna
heimilis og skóla getur bjargað
miklu.“
„Hefur jákvæð áhrif að auka sjálf-
stæði nemandans og efla hjá honum
ábyrgð." „Ég er mjög ánægð með
Bamaskóla Vestmannaeyja, ég vildi
ekki hafa bömin mín f öðrum. Takk
fyrir.“
„I heild er ég nokkuð ánægð með
Barnaskóla Vestmannaeyja. Ég er
mjög ósátt við getuskiptingu og þegar
hún var tekin upp í skólanum var
hunsaður meirihlutavilji foreldra um
að þessi skipting yrði ekki tekin upp.“
„Það er von okkar að þessi könnun
verði notuð skólanum til framdráttar."
Viðhorfakönnun meðal
starfsliðs Bamaskóla
Vestmannaeyja
Könnunin var lögð fyrir haustið 1997.
Alls svömðu 39 starfsmenn eða 85%
af þeim 46 sem voru á launaskrá
skólans. Þar af vora 23 kennarar og
16 aðrir starfsmenn. Könnunin var
nafnlaus. Kennarar svöruðu öllum
spumingum en aðrir starfsmenn
einungis þeim er vörðuðu þátttöku
þeirra í skólastarfinu.
Starfsfólkið sátt
í heild virðist starfsfólk skólans vera
sátt við skólann sem vinnustað.
71,43% er mjög sátt, 23,81% nokkuð
sátt, 2,38% hlutlaust, enginn var
fremur ósáttur, 2,38% mjög ósátt og
enginn gaf ekkert svar.
Þegar spurt er um stjómun skólans
telja 39,02% hana mjög góða, 41,46%
telja hana nokkuð góða, viðunandi
segja 12,2%, fremur slæma segja
4,88%, enginn tekur svo djúpt í árinni
að hún sé mjög slæm og 2,44% neita
að svara.
Um almenna skynjan starfsfólks á
andrúmsloftinu meðal kennara á
vinnustaðnum telja 61,9% það mjög
jákvætt, 30,9% telja það nokkuð
jákvætt og 7,1% taka ekki afstöðu.
Sérkennsla/Of margir að hverju
barni og hver með sína aðferð
Spurt var hver er skoðun þín sérkennslunni við skólann? Fjöldi %
Mjög góð 4 16%
Góð 14 56%
Hlutlaus 2 8%
Heldur slæm 0 0%
Óviðu. með öllu 0 0%
Ekkert svar 5 20%
Skýrsluhöfundur tekur undir eina
athugasemd frá einum þátttakanda
varðandi sérkennsluna sem segir að
„hann telji ekki gott fyrir nemendur að
fá einn kennara í stuðning í þennan
tíma og svo annan í þann næsta og
fara svo til sérkennara tvisvar í viku.
Of margir að koma að hverju bami -
hver með sína aðferð - gæti ruglað
nemendur."
Spurt var hvort viðkomandi
kennari væri ánægður með
samstarf kennara við foreldra?
Fjöldi %
Mjög ánægð(ur) 10 40%
Nokkuð ánægð(ur) 10 40%
Tek ekki afstöðu 5 20%
Fremur óánægð(ur) 0 0%
Mjög óánægð(ur) 0 0%
Ekkert svar 0 0%
Mjög ánægðir eru 40% og nokkuð
ánægðir eru 40% sem gerir 80% en
20% taka ekki afstöðu. Kannski er
hæpið að bera saman spumingu sem
beint var til foreldra í
foreldrakönnuninni, þar sem spurt var
um samstarf foreldris við
umsjónarkennarann og spurninguna
hér að ofan, þó verður svo gert með
þeirn fyrirvörum sem vert er að hafa í
huga, en þar telja 59,9% það vera
mjög gott og 35,3% nokkuð gott sem
gerir 95,2%. En eins og sjá má eru
foreldrar heldur ánægðari með
kennara en kennarar með foreldra.
Kennarar, foreldrar,
bæjarbúar
Spurt var hvemig Bamaskóliinn stæði
sig í santanburði við aðra skóla hvað