Fréttir - Eyjafréttir - 05.11.1998, Blaðsíða 1
Hrútaréttir voru á laugardaginn og mátti þar sjá margan
vænan gripinn. Ekki fékkst uppgefið hvað margir hrútar
voru í réttinni en samkvæmt skýrslu voru 242 fjár í
Eyjum 1997.
Ársreikningar Vinnslustöðvarinnar voru lagðir frá á þriðjudaginn:
Erum komnir í hóp
þeirra bestu í greininni
-sé tekið mið afafkomunni síðustu sex mánuðina, segir framkvæmdastjórinn
Á stjórnarfundi Vinnslustöðvar-
innar hf., sem haldinn var sl.
mánudag, samþykkti stjórnin
fyrirliggjandi endurskoðaðan árs-
reikning fyrir rekstrarárið sem
lauk 31. ágúst sl.
,Auðvitað er ég ekki sáttur en miðað
við hvernig staðan var eftir sex
mánuði sýnir afkoman seinni sex
ntánuði ársins að við erum á réttri
leið,“ sagði Sighvatur Bjamason
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar um afkomu félagsins á síðasta
rekstrarári.
„Auðvitað á maður að segja sem
minnst og láta verkin tala og það em
jákvæð teikn á lofti. Veltufé frá rekstri
er 360 milljónir króna á sfðari
helmingi rekstrarársins þannig að við
emm fyllilega samkeppnisfærir við þá
bestu í greininni. Fjárhagslega er
Vinnslustöðin sterk og nú verðum við
að halda áfram að vinna á sömu
braut,“ sagði Sighvatur.
Þegar gluggað er í reikningana eru
þessar helstar niðurstöður:
Niðurstöður rekstrarreiknings eru
hagnaður upp á 21 milljón kr. en á
fyrra ári var hagnaður upp á 99
milljónir.
Tap varð af reglulegri starfsemi er
nam 146 milljónum kr. Samsvarandi
tap á fyrra ári var 283 milljónir.
Veltufé frá rekstri jókst milli ára og
nam nú 216 milljónum, samanborið
við 94 milljónir á fyrra ári.
Heildarskuldir félagsins nema nú
3.611 milljónum en í lok fyma árs
námu þær 4.960 milljónum og hafa
þvf lækkað ntilli ára unt 1.349 millj-
ónir. Nettóskuldir nema kr. 2.552
milljónum og hafa minnkað frá fyrra
ári um 1.334 milljónir. Og nettó-
skuldir, að teknu tilliti til skulda-
bréfaeignar, nema nú 2.203 milljónum
og hafa dregist saman unt 1.224
milljónir miðað við fyrra ár.
Veltufjárhlutfallið nam nú 1,30 en
var í lok síðasta reikningsárs 1,14 og
lausafjárhlutfall hækkar úr 0,57 í 0,85.
Afkoma í veiðum og vinnslu á
uppsjávarfiski versnaði verulega á
árinu. Þær ástæður eru af náttúru-
legum toga, síldveiðar brugðust
haustið 1997, loðnufrysting á síðustu
vertíð hófst þremur vikum seinna en
venjulega og afleiðingar þess urðu að
minna var fryst á Japansmarkað. Þá
var loðnan einnig mun smærri en á
fyrri árum. Þrátt fyrir þessa misbresti
gekk rekstur loðnuverksmiðjunnar
vel, þrátt fyrir að hún hafí tekið á móti
30 þúsund tonnum minna af hráefni
en á fyrra ári. Verð afurða var mjög
hátt á árinu og rekstur deildrinnar í
góðu jafnvægi.
Afkoma í bolfískveiðum og vinnslu
batnaði verulega á rekstrarárinu og
skilaði um 252 milljónum betri
afkomu en á fyrra ári. Endurskipu-
lagning vinnslunnar er þar að skila sér
auk þess sem afurðaverð hefur
hækkað.
Horfur í rekstri fyrirtækisins velta
mikið á framvindu efnahagsmála í
viðskiptalöndunum. Minnkandi
framboð afurða frá santkeppnis-
löndum ætti að leiða til stöðugleika í
afurðaverði og styrkja rekstur fé-
lagsins. Þá er búist við mikilli
eftirspum á loðnuafurðum á Japans-
ntarkaði á komandi loðnuvertíð en
erfítt að spá fyrir um gengi japanska
jensins og svo hegðunarmynstur
loðnunnar á vertíðinni.
Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar
verður haldinn 14. nóv. nk. og mun
stjóm félagsins á þeim fundi bera fram
tillögu um heimild til aukningar
hlutatjár um allt að 175,5 milljónir
króna og að heimildin sé til fimm ára.
Ekki verður greiddur arður til hluthafa
að þessu sinni.
Þremur nemenduni úr Fram-
haldskólanum í Vestmannaeyjum,
Davíð Egilssyni, Freydísi Vigfús-
dóttur og Bjarka Steini Traustasyni
hefur verið boðið ásamt kennara
sínum Helgu Kristínu Kolbeins til
Osló dagana 7. til 10. nóvember og
taka þátt í 50. þingi Norður-
landaráðs á sína vísu.
Þátttaka þremenninganna er til kom-
in vegna verkefnis sem þau gerðu unt
lundann og laut að rannsóknum á
stofnstærð lundans. í sambandi við þá
rannsókn var veiði og uppvöxtur
pysju athugaður. Nemendur frá
öðrunt Norðurlöndum munu einnig
kynna verkefni sín unt hafið og
vistkerfi þess í tengslum við þingið.
Þetta verkefni fór upphaflega í gang
í tengslum við Hugvísi, hugmynda-
santkeppni ungs fólks í vísindunt og
tækni. Fengu þremenningamir I.
verðlaun í keppninni. Er hún hluti af
mannauðsáætlun Evrópusambandsins
sent ísland tók þátt í með samningum
um Evrópska efnahagssvæðið.
Kynnig þessi er á þingi Norður-
landaráðs er lokaáfangi verkefnisins
Hafið og Norðurlöndin sem Norræna
ráðherranefndin hefur fjármagnað í
tengslum við alþjóðlegt Ár hafsins
sem Sameinuðu þjóðimar og
UNESCO útnefndu árið 1998.
Helga segir að markmið verkefnisins
Hafið og Norðurlöndin hafí verið að
beina athygli nemenda að hafinu og
vistkerfi þess. ,Það hefur verið komið
upp tölvuvæddri kennslustofu í
miðborg Oslóar þar sem þremenn-
ingamir rnunu kynna verkefni sitt
ásamt nemendum frá öðmm
Norðurlöndum. í lok kynningarinnar
á þriðjudeginum munu svo nem-
endumir undirrita sérstaka yfirlýsingu
þar sem þeir heita því að beita sér fyrir
varðveislu hafsins í framtíðinni."
Sjávarútvegsráðherrar Norðurlanda
ntunu eiga fund í Osló þá daga sem
þingið stendur og er vonast til þess að
þeir ásamt þingmönnum frá öllum
Norðurlöndum sjái sér fært að
heimsækja kynningu nemandanna.
„Verkefni þremeninganna er það eina
frá íslandi," sagði Helga Kristfn að
lokum.
Vilja f lóttamenn til Vestmannaeyja
Á fundi bæjarráðs á mánudaginn var samþykkt samhljóða að fela bæjar-
stjóra að skrifa félagsmálaráðuneytinu bréf, þar sem tjáður yrði áhugi
Vestmannaeyjabæjar á því að taka á móti 20 til 25 flóttamönnum, sbr.
auglýsingu frá téðu ráðuneyti.
Sigurður Einarsson bæjarfulltrúi sagði að í Vestmannaeyjum væru aðstæður
góðar til þess að taka á móti flóttamönnum. „Við höfum aflað okkur upplýsinga
hjá þeini bæjaifélögum sem tekið hafa við flóttamönnum af Balkanskaganum
og það hefur sýnt sig að þetta er hið mætasta fólk.“
Riddarar götunnar
Þessir knáu knapar, Gísli Stefánsson 14 ára, Matthías Þór
Rafnkelsson 14 ára og Bjarni Þór Georgsson 15 ára hafa hafið
skellinöðruna til vegs og virðingar á ný. Þeir eru með allt sitt á
hreinu gagnvart umferðarlögunum og eru alltaf með hjálm. Þeir
segja gaman að þeysa um á nöðrunum en benda á að ökumenn
mættu vera tillitssamari.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/1.
RÉWNGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 481
Herjólfur fer í slipp
Herjólfur er væntanlegur um helgina
Ucrjólfur
/mícw /i/i/
Sími481 2800 Fax 481 2991