Fréttir - Eyjafréttir - 05.11.1998, Síða 12
12
Fréttir
Fimmtudagur5. nóvember 1998
Leikmenn meistaraflokka ÍBV í kvenna- og karlafiokkum í knattspyrnunni höföu svo
sannarlega ástæðu til að fagna á lokahófi fótboltans á laugardaginn. Strákarnir eru þrefaldir
meistarar og stelpurnar náðu sínum besta árangri til þessa.
Eyjamenn hafa aldrei gert betur
í fótholtanum en í sumar
-sagði Jóhannes Ólafsson formaður knattspyrnudeildar ÍBV-
íþróttafélags á uppskeruhátíð fótboltans á laugardaginn
Lokahóf knattspyrnudeildar ÍBV-íþróttafélags fór
fram með miklum glæsibrag í Kiwanishúsinu á
laugardaginn. Iþróttafólk og forráðamenn íþróttamála
í Vestmannaeyjum hafa ekki í annan tíma haft ríkari
ástæðu til að fagna góðum árangri því meistaraflokkur
karla hampaði Bikar- og Islandsmeistaratitli og er auk
þess meistari meistaranna. Stúlkurnar í meistaraflokki
náðu sínum besta árangri í sumar þegar þær náðu 4.
sæti í deildinni og voru hársbreidd frá því að komast í
bikarúrslitaleikinn. Auk þess náði IBV tveimur íslands-
meistaratitlum í yngri flokkunum í kvennaknatt-
spyrnunni.
Jóhannes Ólafsson, formaður knattspymudeildar, sagði í
ávarpi sínu á lokahófinu að Eyjamenn hefðu sérstaka
ástæðu til að fagna því síðasta tfmabil hefði verið gjöfulasta
frá upphafi og að vinna þrefalt í karlaboltanum væri stærsta
íþróttaafrek sem Vestmannaeyingar hefðu unnið til þessa.
„Fótboltinn er andlit Vestmannaeyja út á við og mesti
vaxtarbroddurinn í íþróttum í bænunt. Iþróttin verður því
að njóta meira sannmælis hjá ÍBV-íþróttafélagi og stjómin
verður að sjá til þess að kvennaknattspyrnunni og
unglingastarfinu verði tryggt nægt tjármagn," sagði
Jóhannes og benti á að mikill ntetnaður væri í ung-
lingastarfinu þar sem m.a. hefði verið ráðinn nýr yfir-
þjálfari.
Næst rakti Jóhannes stærstu viðburði suntarsins og
þakkaði þann velvilja og stuðning sem stjórn
knattspymudeildar hefði hvarvetna mætt. Nefndi hann í því
sambandi Stuðningsmannaklúbb ÍBV í Reykjavík,
stemmninguna í kringum bikarúrslitaleikinn og sfðasta
leikinn gegn KR þar sem IBV stóð uppi sent Islands-
meistari.
Um framtíðina sagði Jóhannes að bæði Bjarni
Jóhannsson þjálfari og Kristinn aðstoðarþjálfari yrðu áfram
hjá félaginu og að Heintir Hallgrímsson hefði verið ráðinn
þjálfari í stað Sigurláss Þorleifssonar. „Sé litið til lengri
tíma verðum við að fylgjast með breytingum sem eru að
verða á rekstri knattspyrnufélaga. Verið er að stofna
hlutafélög um rekstur meistaraflokka og þar verðum við að
fylgjast vel með ef við ætlum ekki að dragast aftur úr."
Þegar kom að því að þakka styrktaraðilum þeiua framlag
sagði Jóhannes að erfitt væri að taka einn stakan út úr en
hann gæti þó ekki Iátið hjá líða nefna Herjólfsmenn sem
hefðu lagt sitt af mörkum til að gera heimkontu íslands- og
bikarmeistara ÍBV ógleymanlega. „Móttökumar íEyjunt
voru frábærar og allur sá fjöldi bæjarbúa sem mættur var á
bryggjuna sýnir hvað fótboltinn á sterkar rætur í
Eyjamönnum. Þessum fjölda eigunt við m.a. að þakka þann
árangur sem við náðum í sutnar." sagði Jóhannes Ólafsson
að lokunt.
Fjöldi viðurkenninga var veittur á lokahófinu, bæði frá ÍBV
og KSÍ.
Ásmundur Friðriksson formaður ÍBy-héraðssambands
afhenti eftirtöldum silfurmerki ÍBV: Ólafur Friðriksson.
Elías Bjöm Angantýsson, Sigurður Guðnason, Gunnar
Guðnason, Ingibjörg B. Jóhannesdóttir (Beggó), Sigurlás
Þorleifsson og Gunnar Svavarsson. Auk þess fær Ingimar
Georgsson silfurmerki IBV en hann var tjarstaddur.
Jóhann Ólafsson stjómamiaður í KSÍ afhenti Guðmundi
Þ.B. Ólafssyni, Tryggva Kr. Ólafssyni, Sigurjóni Birgissyni
og Eggert Garðarssyni silfurmerki KSÍ.
Stjóm knattspymudeildar afltenti helstu styrktaraðilum
fótboltans penna, pennastatíf og skrifblokk. allt úr silfri
nema pappírinn í blokkinni, og var í sérsmíðuðum trékassa.
Guðjón Hjörleifsson. bæjarstjóri, Þór Vilhjálmsson
formaður ÍBV-íþróttafélags og Ásntundur Friðriksson
formaður ÍBV fluttu kveðjur og Beggó aflienti 500.000
krónur til byggingar stúku við Hásteinsvöll frá Stuðn-
ingsmannaklúbbi IBV í Reykjavík.
Tryggvi, Eggert, Sigurjón og Guðmundurfengu silfurmerki KSÍ.
ÞAU BESTU. Hlynur Stefánsson, fyrirliði ÍBV og íris Sæ-
mundsdóttir voru tilnefnd bestu leikmenn ÍBV í sumar.
ÞAU MARKAHÆSTU. íris Sæmundsdóttir og Steingrímur
Jóhannesson eru markakóngar ÍBV sumarið 1998.
1 jw
HMSb
inffi Miitys
NlltUI
ÞAU EFNILEGUSTU. ívar Ingimarsson og Bryndís Jó-
hannesdóttir voru útnefnd efnilegustu leikmenn ÍBV í sumar.