Fréttir - Eyjafréttir - 12.11.1998, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 12. nóvember 1998
Guðjón Jónsson,
sælkeri, rollubóndi og
lífskúnstner skorar á
mig í síðustu Fréttum.
Mér finnst að
Guðjón ætti að koma
síðar meir aftur og
gefa okkur uppskrift
að fiskibollum í dós a la Hrauney!! Það er
hans sértækasta uppskrift og erfitt að leika
eftir þær matreiðslukúnstir.
Jæja, þar sem við erum ævifélagar og
vinir ætla ég ekki að bregðast vini mínum
og reyna við eitlhvað ætilegt. Þar sem við
erum Vestmannaeyingar og höfum
sérstöðu varðandi sjávarfang þá kemur
hér uppskrift að skaifi handa fjórum:
Skarfaveisla:
Bringur af 3 toppskörfum (eða
dfiaskörfum þá 2 stk. Ath. mun stærri
fugl)
salt og pipar
2 msk. olía
blönduð ber
Sósa:
5 dl. sjófuglasoð (sjá sjófuglasoð)
1-2 msk hrútaberjahlaup
(hægt að nota rifsber)
30 g smjör
30 g hveiti
3 dl tjómi
salt og pipar.
Hitið soðið og hrærið berjahlaupið
saman við. Búið til smjörbollu, þ.e.a.s.
smjör og hveiti hitað og hrært saman og
notað til að þykkja sósuna. Sjóðið sósuna
í 10 mín. Bætið þá rjómanum við og
sjóðið ál'ram í 3 mín. Kryddið með salti
og pipar eftir þörfum. Hitið ofninn í 180°.
Urbeinið skarfabringumar og kryddið þær
með salti og pipar. Hitið olíuna á pönnu
og brúnið þær í 1 mín. hvorum megin
Setjið pönnuna í heitan ofninn og steikið
bringumar þar í um 6 mín. Takið pönnuna
úr ofninum og skerið bringumar þversum
í þunnar sneiðar. Hitið á meðan sósuna á
pönnunni sem bringumar vom steiktar á.
Raðið bringunum á diska og hellið
sósunni yfir og skreytið með berjunum. I
þennan rétt má einnig nota súlu, lunda eða
svartfugl.
Sigurmundur Einarsson
er sælkeri þessarar viku
Sjófuglasoð:
1 kg bein af svartfugli eða öðrum
sjófugli
sojaolía, 1 gulrót, 2 laukar.
Hvíti hlutinn af 1 blaðlauk,
eitt blaðlauksblað, grænt, í kryddpoka.
lOsteinseljustönglar,
lOhvítpiparkorn.
4 einiber, 2 lárviðarlauf, 1/2 msk salvía,
1/2 msk timjan, 3 dl maltöl, vatn,
1 tsk. salt.
Höggvið bein smátt, hitið sojaolíu og
brúnið mjög vandlega ásamt grænmetinu
við mikinn hita í ofni eða á pönnu. Látið
krydd í kryddpoka. Látið bein, grænmeti,
kryddpoka og vatn krauma við vægan hita
í 2 klukkustundir. Bætið regulega vatni út
í og fleytið froðu og fitu vel ofan af. Sfið
soðið og sjóðið áfram þar til helmingur er
eftir. Of't vill koma lýsisbragð af sjófugli,
sérstaklega ef hann er skotinn seinni part
vetrar, þá dugar að bæta við ögn af maltöli
eða sojasósu.
Nú er besti tíminn til að ná sér í góðan
svartfugl ef menn hafa aðstöðu til. Það
eina sem þú þarft er bátur, samkvæmt
lögum má hann ekki ganga meira en 8
mííur til fuglaveiða (þ.e.a.s. trilla, mjög
líklegt verð ca 8-15 milljónir), haglabyssa
(ekki hægt að kaupa nema með
skotvopnaleyfi), skotvopnaleyfi (tekur 3
mánuði á kvöldnámskeiði í Reykajvík),
veiðileyfi til veiða á fugli, má ekki vera
sértækt veiðileyfi í úteyjum (fæst ekki
nema með skotvopnaleyfi), þú verður að
vera 500 metra frá bjargi, og nokkur
önnur atriði svona ca. 48, þannig að þú
sérð að þetta er nánast fyrir alla!! Við
lifum í þjóðfélagi jafnaðar og frelsis!!
Svartfugl með gráðostasósu og
gljáðum vínberjum:
U.þ.b. ein bringa á mann
Hreinsið himnu og fitu af bringunum,
kryddið með salti og pipar, Steikið í olíu í
3-5 mín.
Sósa:
4 msk. portvín
2 msk. gráðostur
1 tsk. blábeijasulta
1 1/2 dl soð
1/2 tsk. garðablóðberg
2 msk. kalt smjör.
Setjið portvín, soð, sultu og gráðost á
pönnuna og síðan kalt smjör eftir að suðan
kemur upp. Þykkt með maizenamjöli.
Meðlæti gljáð vínber og léttsteikt græn-
meti í smjöri á pönnu.
Ég ætla að skora á Mara pípó (Marinó
Sigursteinsson) Gaui segir að hann kunni
uppskriftina að fiskibollum í dós!!
Handboltaliði ÍB Vhefur gengið þokkaiega í deildinni í
haust, m.a. lögðu þeir FH örugglega hér heima um helgina
og eru einnig komnir áfram í bikarnum. í bikarleiknum
gegn Breiðabliki á dögunum kom inn á Gunnarnokkur
Sigurðsson og skoraði tvö mörk. Gunnar er annars
þekktari tyrirað vera markvörður í knattspyrnuliði ÍBV en
sýndi þarna að hann kann einnig nokkuð fyrir sér í
handboltanum. Hann er Eyjamaður vikunnar að þessu
sinni.
Fullt nafn? Gunnar Sigurðsson.
Fæðingardagurog ár? 14. ágúst 1975.
Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? Unnustan heitir Hrefna Jóhannesdóttir.
Börn engin enn sem komin er. Stendur vonandi til bóta.
Menntun og starf? Lærður smiður og vinn sem slíkur hjá
Steina og Olla, þeim sannleikselskandi mönnum.
Laun? Sæmileg.
Helsti galli? Skapstór.
Helsti kostur? Að vera Vestmannaeyingur, þeir eru upp til hópa
gallalausir.
Uppáhaldsmatur? Lambahryggur og piparsteik, en sitt i hvoru
lagi.
Versti matur? Pitsa.
Uppáhaldsdrykkur? Kók hjá Hlyn Stefáns.
Uppáhaldstónlist? U-2 og Sálin.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að spila fótbolta
og vera með Hrefnu.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að tapa í íþróttum.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happdrætti? Maður
gerir lítið fyrir eina milljón, það segir Daddi trukkur allavega.
Uppáhaldsstjórnmáiamaður? Þingmenn úr Eyjum.
Uppáhaldsíþróttamaður? Magnús bróðir.
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Nei, bara í ÍBV í
handbolta og fótbolta.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Táknmálsfréttir, það er friður á
meðan.
Uppáhaldsbók? Andrés Önd og Lukku Láki.
Hvað metur þú mest í fari annarra? Stundvísi.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Leti.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Vestmannaeyjar.
Af hverju ertu kominn í handboltann líka? Til að halda mér í
formi og hafa gaman af.
Hefði ekki verið eðlilegra að þú yrðir varamarkvörður frekar
en að spila úti? Nei, því að ég er miklu betri en Svavar Vignis.
Kemur þetta til með að rekast á æfingar í fótboltanum? Já,
það gerir það en fótboltinn gengur fyrir.
Hvort er skemmtilegra að spila handbolta eða fótbolta? Ég
sagði það áðan, fótbolta en handboltinn er skemmtilegur líka og
góð tilbreyting, gott fyrir okkur markmennina.
Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir þessi orð?
Handbolti? Sigmar Þröstur.
Fótbolti? Titlar hjá ÍBV.
Þorbergur
Aðalsteinsson? Fæ ég að
vera með næst?
Eitthvað að lokum? Allir að
mæta í næsta heimaleik og
sjá hver skorar tíu mörk (ef
hann fær að vera með).
Gunnar Sigur
er Eyjamaður vikunnar
MlKLU BETfíl EN SVAVAR
Þann 28. september eignuðust Ásdís Jensdóttir og Kristján Jákup Joensen
son. Hann vó 12 merkur og var 52 sm að Iengd. Með honum á myndinni
eru stóru systur hans Ásta María (eldri) og Ebba Maríanna (eldri).
Fjölskyldan býr í Gjógv í Færeyjum.
Þann 30. september eignuðust Ingibjörg Þorsteinsdóttir og Lúðvík
Jóhannesson dóttur. Hún vó 13 merkur og var 49 sm að lengd. Ljósmóðir
var Guðný Bjarnadóttir.
0 1 r d s ] 3 o r
- 1 undirbúningi mun vera stofnun regnhlífasamtaka meðal handbolta- áhugamanna. Þetta mun gert af illri nauðsyn þar sem íþróttamiðstöðin heldur hvorki vatni né vindi og því nauðsynlegt að klæða sig vel áður en menn sækja þar leiki. Nú mun í bígerð að skipta um loftklæðningu sem væntanlega mun hægja eitthvað á vatninu en þó ekki stöðva það því þakið lekur. Ótrúleg rýrnun hefur verið á sælgæti í sjoppunni í íþróttamiðstöðinni af völdum músa sem þar gera sig heimakomnar, og það jafnvel svo að meira hverfur ofan í mýsnar en mannfólkið. Einum góðum manni varð á orði að það væri nú merkilegt ef mýs væru farnar að hafast við i íþrótta- miðstöðinni, því hann hefði nú haldið að þær þyrftu að komast í skjól!
HUSEY
JCT
HÚSEV
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA
A-A fundir
A-A fundir eru haldnir sem hér
segir í húsi félagsins að Heima-
götu 24: Sunnudaga kl. 11:00,
mánudaga kl. 20:30 (Spora-
fundir), þriðjudaga kl. 20:30
(kvennadeild), miðvikudaga kl.
20:30, fimmtudaga kl. 20:30,
föstudaga kl. 19:00 og 23:30 og
laugardaga, opinn fjölskyldu-
fundur, reyklaus, kl. 20:30.
Móttaka nýliða hálfri klukkustund
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Áthugið símatíma okkar sem eru
hvern fundardag og hefjast 30
mín. fyrir ákveðinn fundartíma og
eru í 2 klst. í senn.
19. nóvember UK 17, D7 tónleikcir
21. nóvember Islandsmeistaramótið í
vaxtarrœkt í Islensku Operunni.