Fréttir - Eyjafréttir - 12.11.1998, Side 15
Fimmtudagur 12. nóvember 1998
Fréttir
15
Aðgangur er ókeypis
Vinsamlegast skráið þátttöku hiá
íslandsbanka í Vestmannaeyjum,
Kirkjuvegi 23, í síma
481 1800 fyrirkl. 16:00
þriðjudaginn 17. nóvember nk.
;Xiölldaber,lK'
$3*0*
Kristín Halldórsdóttir, Sædís Eva Birgisdóttir og Sigurður Einisson.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Kirkjusandi • Sími 560 8900
Veffang: www.vib.is • Netfang: vib@vib.is
Fylgi maður Guð
-Litið við á námskeiði fyi
Á föstudaginn var var haldið
námskeið fyrir fermingarbörn í
Eyjum. Það var Hreiðar Örn
Stefánsson sem var umsjónar-
maður og mótsstjóri fermingar-
námskeiðsins, en honum til að-
stoðar var Kristín Þórunn Tómas-
dóttir héraðsprestur Kjalarness-
prófastsdæmis. Námskeiðið fór
fram í Safnaðarheimili Landa-
kirkju, en einnig var stunduð
útivera, farið í sund, kvöldverður í
hoði sóknarnefndar og kvöldvaka.
Auk þess voru haldnir fræðslu-
fundir. I lok dagsins var svo andakt
í Safnaðarheimilinu.
Mikið fjör var á námskeiðinu þegar
blaðamaður Frétta leit þar við á
föstudaginn, en þá var svokallaður
samhristingur í gangi, þar sem
krakkarnir voru að kynnast hver
öðrum og brjóta ísinn. Áuk þess sem
mikið var sungið og ekki annað að sjá
en allir hafi verið með á nótunum.
Hreiðar Örn segir að tilgangurinn
með námskeiði af þessu tagi sé að
fræðast um kirkjuna og Jesú Krist.
„Venjulega hugsum við um kirkjuna
sem stórt hús með krossi á tuminum.
En kirkjan er miklu meira, því hún er
samfélag þeirra sem eru helgaðir
Kristi í heilagri skím og vilja hafa Jesú
sem leiðatoga lífs síns.“
Hreiðar Örn segir að hver og einn
sé einstakur. Hins vegar séu allir
ómissandi í þeirri byggingu, þar sem
Kristur sjálfur er homsteinninn. „Við
getum byggt ömggt líf okkar á
honum.“
Séra Kristján Bjömsson, prestur í
Landakirkju, segir að um 180 manns
hafi mætt um kvöldið, jafnt foreldrar
og systkini fermingarbamanna. „Þetta
var góð stund og fór vel fram. Það var
haldin kvöldvaka þar sem bömin
kynnlu afrakstur dagsins og var hann
túlkaður í leikþáttum og söng, auk
þess sem gefið var út blað. Mótinu
lauk svo með bænastund og allir
ánægðir að mótinu loknu."
íkemmtilegt og
skandi
prosKanc
Kristín Halldórsdóttir, Sædís Eva
Birgisdóttir og Sigurður Einisson em í
Hamarsskóla og vom meðal þeirra
fermingarbama sem þátt tóku í
námskeiðinu. Þau voru á einu máli
um að námskeiðið hafi verið mjög
skemmtilegt og þroskandi og þau
margs vísari um fermingar-
undirbúninginn og hvað það er að
fermast og gera Jesú Krist að leiðtoga
lífs síns.
Kristín segir að þau hafi kannski átt
von á því að fá fleiri verkefni en raun
varð á. „Það var öllum skipt í hópa og
verkefnum útdeilt á þá. Einnig var
sungið mikið og búnir til stuttir
leikþættir sem voru svo fluttir á
kvöldvökunni."
Sædís segir að hópamir hafi svo
farið út í bæ og rætt við versl-
unareigendur. „Við spurðum þá að
því í hvaða löndum varan væri búin til
sem þeir væm að selja. Markmiðið
var að athuga hvort einhver vara væri
til sölu hjá þeim sem framleidd væri í
löndum þar sem böm ynnu að
framleiðslunni. Einnig spurðum við
fólk á fömum vegi hvemig feimingar-
undirbúningi þess hefði verið háttað.
Þetta var mjög skemmtilegt.“
Sigurður segir að honum hafí litist
vel á námskeiðið og hann hafi haft
mikið gagn af. „Samt fannst mér
skemmtilegast að fara í rútuferðina og
inn í Dal. Við fukum um allt og mikið
Qör.“
Stelpumar taka undir þetta hjá
Sigurði. „Við áttum að leita að
einhverjum hlut þar sem skæri sig frá
öðmm. Reyndar fundum við ekkert
sem ekki átti heima þar. En það var
samt mjög gaman.“
Finnst ykkur ekkert of snemmt að vera
að fjalla um ferminguna og þið eigið
ekki að fermast fyrr en í vor?
„Nei alls ekki," segja stelpumar.
„Það er byrjuð fermingarfræðsla, sem
er einu sinni í viku, þannig að það er
allt í lagi með að halda svona
námskeið núna. Það gæti jafnvel
verið sniðugt að hafa annað svona mót
í febrúar.
Sigurður segir að þetta sé ekkert of
snemmt. „Hins vegar held ég að það
sé ekki nauðsynlegt að halda annað
svona mót, þó að það hafi verið
gaman núna."
Foreldrum barnanna var boðið að
koma á kvöldvökuna og sjá hvað
börnin höfðu verið að vinna um
daginn. Þeim fannst ekkert að því að
foreldramir væm viðstaddir og í raun
sjálfsagt og Sædís Eva bætir við að sér
finnist nauðsynlegt að foreldramir fái
að vita hvernig fermingamndir-
búningnum er háttað. „Einnig var
töluvert um að yngri systkini komu
líka,“ segir Kristín.
Um kvöldið var boðið til mikillar
veislu og munu bömin hafa
sporðrennt um 30 pizzum sem boðið
var upp á. „Það var auðvitað mjög fínt
að fá pizzuveislu líka um leið og ferm-
ingarfræðsluna. Nú höfum við kynnst
krökkunum í Bamaskólanum miklu
betur, sem er mjög nauðsynlegt.“
Emð þið mjög trúuð?
„Já, ég tel mig vera það,“ segir
Sigurður. „Og þetta námskeið hefur
eflt trú mína á Jesú.“
„Já, ég trúi sko alveg á guð,“ segir
Sædís Eva og Kristín tekur undir með
henni: „Ef maður fylgir guði, ratar
maður rétta leið.“
Hreiðar Örn segir að tilgangurinn með námskeiði af liessu tagi sé að fræðast um kirkjuna og Jesú Krisl
Finnst ykkur eifitt að tala um
trúmál, eða finnst ykkur kristin trú
vera feimnismál í samfélaginu í dag
hjá ungu fólki?
„Nei,“ segja þau einum rómi.
„Trúmál em engin feimnismál og eiga
ekki að vera. Okkur finnst að allir eigi
að hafa tækifæri til þess að vita hvað
guð er og fyrir hvað hann stendur í
samfélaginu í dag.“
Kökubasar
Styrktaifélag Þroskaheftra heldur kökubasar í
Kvenfélagshúsinu Faxastíg 35
föstudaginn 13. nóvember kl. 15.00
Hjálpið okkur að styrkja gott málefni. -
Vorið
Námstefna VIB og Islandsbanka
í Vestmannaeyjum
Þriðjudaginn 17. nóvember
kl. 20:00 -22:00 í Akogeshúsinu
Erindi:
Kl. 20:00 - 20:45 Lífeyrisspamaður á nýrri öld.
Breytingar í kjölfar nýrra laga.
Rósa Jónasardóttir, ráðgjafi í lífeyrismálum
Kl. 20:45 -21:15 Veitingar
Kl. 21:15 - 22:00 Ávöxtun og horfur á innlendum og erlendum
verðbréfamarkaði á árinu 1999.
Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri VÍB
Rósa og Sigurður verða í útibúi íslandsbanka
fyrir hádegi 18. nóvember
til að veita ráðgjöf og svara fyrirspumum.
Þjóðhildur Þórðardóttir, verðbréfafulltrúi,
veitir einnig alla almenna ráðgjöf.