Fréttir - Eyjafréttir - 16.06.1999, Page 19
Miðvikudagur 16. júní 1999
Fréttir
19
Fámennt Landsmót
Kiwanismanna
Kiwanismenn héldu Landsmót sitt í
golfi í Vestmannaeyjum um helg-
ina. Fyrirhugað var að halda rnótið
á laugardag en vegna stanslausrar
rigningar var völlurinn á floti og
ekki leikhæfur fyrr en á sunnudag.
Þá var mótið sett á í indælis veðri.
Alls tóku 24 þátt í mótinu, þar af 13
frá Vestmannaeyjum og mun þetta
fáiuennasta mót sem um getur hjá
Kiwanis.
Slæmt veðurútlit átti sinn þátt í
því, svo og að lengi var ófært með
flugi framan af helgi. Vestmanna-
eyingar fengu bróðurpartinn af
þeim verðlaunum sem í boði voru,
þeir Atli Elíasson og Sigmar
Pálmason unnu lægri forgjafarflokk
karla með og án forgjafar.
Olísmenn hirtu sjálfir
öll verólaunin
Hið árlega Kaffístofumót Olís í
golft var haldið sl. föstudag og var
þetta í annað sinn sent mótið er
haldið. Rétt til þátttöku hafa fasta-
gestir á kaffistofu Olís, þeir sem
leika golf, og skulu taka með sér
einn óvanan íþróttinni. Alls mættu
18 til leiks, níu gamalreyndir og rnu
sem ntinna kunnu iyrir sér. Leikinn
var svonefndur betri bolti. níu holur
í úrhellisrigningu, og slegið til
skiptis. I hófi að leik loknum voru
afhent verðlaun en tvenn verðlaun
eru veitt, fyrir efsta og neðsta sæti.
I efsta sæti urðu Olísmennimir
Sigurður Þ Sveinsson og Óskar
Jósúason en í neðsta sæti sjálfur
umboðsmaður Olís, Magnús
Sveinsson og ónefndur iðnaðar-
maður er lék með sem félagi hans.
Cantat 3 um helgina
Stórmót í golfi er á laugardag, Opna
Cantat 3 mótið og em verðlaun hin
glæsilegustu, farsímar og aðrir
góðir símar sem Landssími Islands
gefur. Skráningarfrestur í mótið
rennur út á föstudag kl. 17 en mótið
hefst kl. níu á laugardag.
KFS úr leik í
bikarnum
KFS mætti IR-ingum á þriðju-
dagskvöldið í 32 liða úrslitum Coca
Cola bikarsins. Leikið var á
blautum og forugum Helgafellsvelli
sem setti mark sitt á leikinn.
KFS varð að sætta sig við 1 - 2
tap en sigurinn hefði getað lent
hvomrn megin sem var.
Landssímadeildin: IBV 1 - Fram 1
Góð keyrsla í fyrrí hálf-
leik naejði ekki til sieurs
Eyjamenn náðu að aðeins að hrista
af sér slenið frá leiknum gegn
Breiðabliki og mættu grimmir til
ieiks gegn Fram á sunnudaginn.
Þessi grimmd entist þó aðeins fyrri
hálfleikinn en sá tími hefði átt að
nægja Eyjamönnum til að gera út
um leikinn. En færin nýttust iila og
var staðan í leikhléi 1 - 0
Eyjamönnum í vil. Seinni hálfleikur
var jafnari en um leið var hann
einn grófasti leikur IBV í langan
tíma og var uppskeran 4 gui spjöfd
og eitt mark sem á einhvern
óskiljaniegan hátt var dæmt af.
Bjami Jóhannsson, þjálfari, gerði
umtalsverðar breytingar á liði sínu
fyrir leikinn gegn Fram. Hlynur Stef-
ánsson fór úr vöm á miðjuna og
Guðni Rúnar tók sæti hans í vöminni.
Bjami Geir Viðarsson kom nýr inn í
byijunarlið í stöðu hægri bakvarðar og
ívar Bjarklind var færður fram í stöðu
framliggjandi miðjumanns.
Hvort þessi breyting var af hinu
góða eða ekki þá var fyrri hálfleikur
nokkuð vel spilaður af hálfu Eyja-
manna sem réðu algjörlega gangi
leiksins. Þetta skilaði sérá 17. mínútu
þegar Ingi Sigurðsson hirti boltann af
tám Framara og skoraði. Eyjamenn
átti kost á að gera fleiri mörk í
hálfleiknum en heppnin var ekki
þeirra megin og var 1 - 0 forysta í
hálfleik verðskulduð.
Hlynur fyrirliði hafði meiðst í íyrri
hálfleik og kom Færeyingurinn Allan
Mörköre kom inn á fyrir hann eftir
leikhlé. Allan á eftir að aðlagast liðinu
en þama er greinilega mjög sterkur
leikmaður á ferðinni. Svo verður
tíminn að leiða það í ljós hvemig hann
á eftir að nýtast ÍBV.
Eyjamenn misstu dampinn illilega
niður í seinni hálfleik og um leið
komust Framarar betur inní leikinn án
þess þó að skapa sér hættuleg færi.
Þegar um 15 mínútur era liðnar af
síðari hálfleik skorar Hollendingurinn
í liði þeirra mjög ódýrt mark. Hann
fékk sendingu innfyrir vöm ÍBV og
skoraði framhjá Birki sem átti þama
mjög lélegt úthlaup.
Eftir markið reyndu heimamenn
hvað þeir gátu að sækja og náði
Steingrímur Jóhannesson að koma
boltanum í netið. Steingrímur var
sagður rangstæður og markið dæmt af.
INGA var vel fagnað af samherjum sínum eftir að hann skoraði
markið gegn Frarn á sunnudaginn.
Var það einn af mörgum furðulegum
dómum eins furðulegasta dómaratríós
sem hér hefur lengi sést.
A lokamínútunum rembdust Eyja-
menn eins og rjúpan við staurinn en
inn vildi boltinn ekki hjá andstæð-
ingunum. Jafntefli var ekki ósann-
gjamt í þessum leik en Framarar áttu
kost á að krækja sér í stigin þrjú á
síðustu mínútu leiksins. Þá komust
þeir innfyrir vöm ÍBV en Birkir varði
skot úr dauðafæri.
Eftir frábæra byrjun hefur ÍB V liðið
hikstað og það illilega í útileikjum. Þar
er eins og leikmenn vanti sjálfstraust
og vilja til að sigra. Þama era brestir
sem enginn nema þjálfarinn getur
barið í.
Landssímadeildin: Valur2 - ÍBV 1
Heppnin ekki með Eyjastúlkum
ÍBV-stelpurnar urðu að sætta sig
við tap þegar þær mættu Val sem
eins og KR hefur ekki enn tapað
stigi í deilinni. Lokatölur urðu 2-1
en í hálfleik var staðan 1 -1.
Fljþtlega í upphaft fyrri hálfleiks
fékk ÍBV á sig hálf klaufalegt mark og
tók það liðið nokkum tíma að ná vindi
í seglin á ný. Það tókst þó og með
mikilli baráttu tókst Eyjastúlkum að
jafna með marki Karenar Burke.
Strax á fyrstu mínútum seinni
hálfleiks tókst Valsstúlkum að skora
mark sem tryggði þeim þrjú stig úr
leiknum. Þrátt fyrir mótlætið gáfust
IB V-stelpumar ekki upp. Þær náðu að
skapa sér nokkur góð færi en því
miður höfðu þær ekki heppnina með
séraðþessu sinni.
KAREN Burke hefur skorað
grimmt fyrir IBV.
Kemur Borís til Eyja
Eyjamenn hafa verið í viðræðum
við hinn frábæra þjálfara, Boris
Akbashev, sem er faðir Mikhail
Akbashev, yfirþjálfari yngri flokka
IBV. Boris hefur dvalið hér á landi
í 10 ár og þjálfað lengst af hjá Val
og alið af sér okkar bestu hand-
knattleiksmenn í dag. Eins og
flestum er kunnugt er Boris aðstoð-
armaður hjá íslenska landsliðinu og
yrði það gríðarlegur fengur fyrir
handboltann f Eyjum ef hann kæmi
hingað til starfa, en það skýrist sem
fyrr segir á morgun.
Gullkorn frá Jóa Pé.
Þeir félagar í handknattleiksráði
vora að peða um verðandi and-
stæðinga íslands í Evrópukeppninni
í handknattleik og Jóhann Pétursson
hræddist aðeins eitt lið og sagði:
„Eg vona aðeins að íslendingtu'
dragist ekki á móti Kúbu í
Evrópukeppninni!!"
Búið að semja við
markmann frá Túnis
Eyjamenn hafa samið við Túnis-
rúmenska markmanninn, Soltaen
Majeri, sem er 26 ára gamall. Að
sögn Magnúsar Bjagasonttr hjá
handknattleiksráði ÍBV á Soltaen
mjög glæsilegan feril að baki.
„Hann hefur spilað með landsliði
Túnis og einnig rúmenska lands-
liðinu. Soltaen varð rúmenskur
meistaii árið 1993 og Túnismeistari
1996. Þá spilaði hann með liði
KSCZUVAJ í Póllandi og varð
pólskur ineistari með þeim og með
því liði komst hann einnig í
undanúrslit í Evrópukeppninni. í
fyrra spilaði hann svo með liði
Mulhouse í Frakklandi," sagði
Magnús. „Þá erum við einnig í við-
ræðum við vinstrihandarskyttu og
vonandi fara þau mál að skýrast á
næstunni," sagði Magnús að lokum.
ÍBV slapp fyrir horn
gegn Leikni
Bikarmeistarar ÍB V komust í hann
krappan þegar þeir mættu 3.
deildarliði Leiknis á útivelli f
fyrrakvöld í 32 liða úrslitum
bikarkeppninnar. Jafnt var undir lok
Ieiksins, 2 - 2, en á lokamínútunum
tókst Eyjamönnum að skora tvö
mörk og gera þannig út um leikinn.
Eyjamenn byrjuðu leikinn af
miklum krafti og strax á upp-
hafsmínútum náði Ingi að skora
fyrsta rnark leiksins. En Adam var
ekki lengi í paradís því Leiknis-
menn náðu að jafna skömmu síðar.
Þannig var staðan í leikhléi en
fljótlega í seinni hálfleik náði
Hlynur að bæta við marki en enn og
aftur náðu frískir Leiknismenn að
jafna. Það var allt útlit fyrir
framlengingu en gömlu brýnin,
Hlynur og Ingi, vora á öðra máli og
gulltryggðu IBV farmiða í 16-liða
úrslitin.
Framundan:
Laugardagur 19. júní
Kl. 14.00 IBV - KR á Hásteinsvelli
í Landssímadeildinni.
Þriðjudagur 22. júní
Kl. 20.00 Fjölnir - ÍBV í Meist-
aradeild kvenna.
Miðvikudagur 23. júní
Kl. 20.00 Víkingur - ÍBV í
Landssímadeildinni.